Fréttablaðið - 19.04.2010, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 19.04.2010, Blaðsíða 36
16 19. apríl 2010 MÁNUDAGUR BAKÞANKAR Júlíu Margrétar Alexanders- dóttur ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman Fréttir Verkfall skiltagerð ar- manna heldur áfram Zalo! Já, þetta ert þú! Eh... Þetta varst þú! Koma svo Fríða, þú veist hvað þú þarft að gera... Hérna snúast allir draumar upp í martröð og eitthvað þaðan af verra! Ég er að drepast úr hungri! Ha??? Hvernig geturðu verið svangur Palli? Við vorum að borða! Leiðrétting: Við borðuð- um. Hann andaði að sér. Okkar kenning er að ef ég borða nógu hratt, þá fer maturinn beint í gegnum magann. Gettu hvað? Pabbi er að fara í kviðdóm! Hvað þýðir það? Það þýðir að hann fær að ákveða hvort einhver er sekur eða saklaus. Ó. Er það ekki hlutverk mömmu? í 5. sinn PI PA R\ TB W A • S ÍA • 1 0 0 5 8 0 MIKIÐ ÚRVAL GOTT VERÐ Gildir til 31. maí 2 010 Rauðhellu 11, Hfj. ( 568 2035 Hjallahrauni 4, Hfj. ( 565 2121 Dugguvogi 10 ( 568 2020 GOTT VERÐ OG FRÁBÆR GREIÐSLUKJÖR fyrir þá fjölmörgu sem þurfa að kaupa ný dekk fyrir sumarið. Dekk undir: ■ Fólksbíla ■ Jeppa ■ Mótorhjól ■ Sendibíla ■ Vörubíla ■ Rútur ■ Vinnuvélar ■ Traktora ■ Hjólhýsi ■ Kerrur o.s.frv., o.s.frv. www.pitstop.is VAXT ALAU ST VISA & MAS TE RC A R DGildir til 3 1. m aí 20 10 VA X TA LA US T Í AL LT AÐ 6 MÁNUÐI A u g lý si n g a sí m i Allt sem þú þarft… Joan Craword var þekkt amerísk leikkona um miðja síðustu öld, þrisvar tilnefnd til Óskarsverðlauna, fjórum sinnum gift, og ættleiddi jafnmörg börn og hjónaböndin voru, háttalag sem virðist ekki síður henta líðandi stund í Hollywood. ÚR fjarlægð, og jafnvel nálægð, virtist líf Joan með börnunum vænt og gott. Joan fékk hringekju og trúða í stór garðafmæli, talaði fjálglega um bestu stundir dagsins – með börnunum á kvöldin – og lét amer- ískt sjónvarp mynda sig heima við, mærð- arleg sem móðir jörð á svip, með börnin í kringum sig. Það var því nokkuð áfall og vakti mikil viðbrögð þegar dóttir hennar, Christina Crawford, gaf út bók árið 1978, þar sem hún rekur hvernig móðir henn- ar beitti hana og bróður hennar alvarlegu líkamlegu og andlegu ofbeldi alla þeirra æsku. VIÐBRÖGÐ margra vina og aðstandenda Joan voru þau að útiloka að Christina gæti verið að segja satt. Marlene Dietrich, Cesar Romeri, Van Johnson og fleiri stjörnur þessa tíma sögðu að ofbeldi hefði aldrei átt sér stað. Barnfóstr- ur, eldabuskur og starfsfólk hússins, auk einhverra samstarfsmanna Joan, svo sem Bette Davis, studdu hins vegar frásögn Christinu og fræg kvikmynd var gerð eftir bók- inni, Mommie dearest, árið 1980. CHRISTINA er ekki fyrsta né síðasta fórn- arlamb ofbeldis, sem lendir í því að vera ekki trúað. Slíkt gerist oftar en ekki, sér- staklega þegar gerendur njóta velgengni í starfi og koma vel fyrir út á við. Það er oft erfiðast að taka til heima hjá sér, og auk heldur fljótlegast að blása burt því óskemmtilega. Mér varð hugsað til Christ- inu þegar ég skoðaði fjölda þeirra sem hafa skráð sig í hópinn „Segjum nei við ofbeldi gegn konum“ á Facebook (meðlimafjöldi telur yfir 4000) og hversu fyrirhafnarlít- ið það er að vera góður úr fjarlægð. Það er lítið hlass að lyfta að skrifa sig á hvers kyns undirskriftarlista og gerast meðlimur í „Nei-grúppum“, mun auðveldara en takast á við ómjúklega áskorun. MESTA áskorunin í baráttunni gegn ofbeldi, og alvöru tækifæri til að breyta heiminum, er þegar ofbeldi uppgötvast í manns eigin ranni. Þegar upp kemst að sonur, bróðir, vinnufélagi eða vinur, hefur beitt ofbeldi. Þá fyrst rennur manns raun- verulega ákall upp og maður fær ábúðar- fullt tækifæri til að vinna gegn ofbeldi, for- dæma það, styðja þolendur þess og fá hjálp handa gerendum. Þetta er enginn þykjustu- leikur, enginn takki sem hægt er að smella á sem á stendur „join group“ heldur gaman- laus og erfið vinna. Vert er að hafa í huga að þessi áskorun getur runnið upp hvenær sem er og gerandinn getur verið sá sem þér þykir vænst um. Ert þú tilbúinn? Óþægilegar áskoranir

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.