Fréttablaðið - 19.04.2010, Blaðsíða 46
26 19. apríl 2010 MÁNUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
SJÓNVARPSÞÁTTURINN
LÁRÉTT
2. æsa, 6. pot, 8. bók, 9. farfa, 11.
tveir eins, 12. fáni, 14. mentastofnun,
16. átt, 17. rakspaði, 18. mál, 20. fyrir
hönd, 21. ókyrr.
LÓÐRÉTT
1. íþrótt, 3. tveir eins, 4. vitsmuna-
missir, 5. sigað, 7. andsvar, 10. verkur,
13. gaul, 15. sjá eftir, 16. arinn, 19.
kusk.
LAUSN
„Ég er mikill rannsóknarlög-
regluþáttamaður og datt til að
mynda í þáttaröðina Criminal
Justice og svo hef ég horft á CSI-
þættina.“
Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari Snæfells.
LÁRÉTT: 2. örva, 6. ot, 8. rit, 9. lit, 11.
tt, 12. flagg, 14. skóli, 16. sv, 17. löð,
18. tal, 20. pr, 21. órór.
LÓÐRÉTT: 1. golf, 3. rr, 4. vitglöp, 5.
att, 7. tilsvar, 10. tak, 13. gól, 15. iðra,
16. stó, 19. ló.
Hugmyndir eru uppi um að koma
Regnboganum til bjargar og
breyta þessu eina kvikmynda-
húsi miðborgarinnar í svokall-
að arthouse-kvikmyndahús með
kaffihúsi, bókasafni, sérhæfð-
um kvikmyndasýningum og
kvikmyndahátíðum, og kvik-
myndasýningum fyrir skóla og
ferðamenn. Kvikmyndamiðstöð
Íslands er að flytja upp á aðra
hæð Regnbogahúsnæðisins og
sjá kvikmyndagerðarmenn og
áhugafólk um sjálfstæða kvik-
myndagerð þarna kjörið tæki-
færi til að sameina kvikmynda-
starfsemina undir einn hatt.
Ari Kristinsson, formað-
ur SÍK, staðfestir í samtali við
Fréttablaðið að miklar umræð-
ur hafi átt sér stað um framtíð
Regnbogans. Kvikmyndagerðar-
fólk geti ekki hugsað þá hugsun
til enda að miðborgin glati sínu
eina kvikmyndahúsi. „Þetta gæti
verið rétta arthouse-kvikmynda-
húsið,“ segir Ari. Hann bendir á
að stofnanir kvikmyndabransans
séu frekar dreifðar, kvikmynda-
safnið sé til að mynda í Hafnar-
firði en í Regnboganum fengi
það frábæra aðstöðu. „Þetta
yrði miðstöð fyrir þessar óhefð-
bundnu kvikmyndir og ég tel að
það sé alveg mögulegur rekst-
argrundvöllur fyrir slíkri kvik-
myndamiðstöð. Þarna væri hægt
að sýna gamlar íslenskar mynd-
ir, kvikmyndasögulegar myndir
og svo þessar evrópsku myndir
sem fá ekki alltaf brautargengi
í hinum venjulegu kvikmynda-
húsum. Þarna væri líka kominn
kjörinn vettvangur fyrir kvik-
myndahátíðir,“ segir Ari sem
sér það fyrir sér að þarna yrði
nokkurs konar menningarmið-
stöð fyrir kvikmyndagerð.
Ísleifur B. Þórhallsson hjá
Græna ljósinu heldur til að
mynda sína árlegu bíódaga næstu
þrjár vikur. Hann segir það
verða erfitt að halda slíka kvik-
myndahátíð ef Regnboginn lokar.
Hann viðurkennir að ákveðinna
breytinga sé þörf og er sammála
hugmyndum Ara um að koma á
fót alvöru arthouse-kvikmynda-
húsi líkt og þekkist í öðrum stór-
borgum. freyrgigja@frettabladid.is
ARI KRISTINSSON: KVIKMYNDAGERÐARMENN VILJA BJARGA HÚSINU
Regnboganum verði
breytt í menningarmiðstöð
MÁ EKKI
LOKA
Ari Kristinsson
segir íslenska
kvikmyndagerðar-
menn og áhuga-
fólk um evrópskar
kvikmyndir og
-sögu hafa mikinn
áhuga á að bjarga
Regnboganum frá
lokun. Húsnæð-
ið gæti nýst vel
undir nokkurs
konar menning-
armiðstöð fyrir
kvikmyndagerð.
Kristmundur Axel Kristmundsson og félagar í Borg-
arholtsskóla sigruðu í Söngkeppni framhaldsskólanna
um helgina með laginu Komdu til baka. Lagið vakti
gríðarlega athygli, en textinn fjallar á afar einlægan
hátt um alkóhólisma föður Kristmundar.
Viðbrögð við laginu hafa verið sterk, en að sögn
Kristmundar hefur það reynst vel í baráttu föður
hans, sem er edrú í dag, við sjúkdóminn. Þá er hann
búinn að heyra um að minnsta kosti fjóra alkóhólista
sem settu tappann í flöskuna eftir að þeir heyrðu það.
„Ég þekki þá ekki einu sinni,“ segir hann. „Ég spil-
aði það á AA-fundi og það var náungi sem talaði við
mig og sagðist ekki hafa drukkið eftir að hann heyrði
lagið. Þetta höfðar til svo margra. Það eru marg-
ir krakkar búnir að tala við mig segjast kannast við
þessa reynslu.“
Lagið hefur raunar vakið svo mikla athygli að nú
eru Kristmundur og félagar eru þegar búnir að taka
lagið upp í hljóðveri, en útvarpshlustendur mega búast
við að heyra lagið á öldum ljósvakans á næstu vikum.
Rappheimurinn hefur einnig tekið eftir hæfileikum
Kristmundar og samkvæmt heimildum Fréttablaðsins
eru margir ólmir í að vinna með honum tónlist. Nafn
Erps Eyvindarsonar heyrist í því samhengi, en hann
ku vera áhugasamur um að taka í hljóðnemann með
rapparanum unga í náinni framtíð. - afb
Einlægt sigurlag á leiðinni í útvarp
Í HLJÓÐVERI Kristmundur er búinn að taka upp sigurlagið fyrir
útvarp. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Stuttmyndin, Vet Inte, í leikstjórn
Davíðs Charles Friðbertsson-
ar hefur verið tilnefnd til verð-
launa í flokknum besta alþjóðlega
stuttmyndin á kvikmyndahátíð-
inni Swansea Bay Film Festival.
Hátíðin er haldin í Bretlandi 8. til
16. maí og er verndari hennar hin
heimsþekkta leikkona Catherine
Zeta-Jones.
Davíð nam kvikmyndagerð og
leikstjórn við kvikmyndaskólann
Prag Film School og er stuttmynd-
in Vet Inte lokaverkefni Davíðs
frá skólanum. Myndin er skot-
in á svonefnda Super 16-filmu og
lauk Davíð við eftirvinnslu henn-
ar nú í febrúar og samdi Steve
Sampl ing tónlistina fyrir mynd-
ina. „Ég kláraði myndina í Berlín
í febrúar og sendi hana svo áfram
á stuttmyndahátíðir víðsvegar um
heiminn. Það er mjög ánægjulegt
að vera tilnefndur í flokki bestu
stuttmynda með fyrstu myndina
sína,“ segir Davíð, sem hyggst fara
á hátíðina í Swansea. „Fjölskylda
mín setti saman í púkk svo ég get
verið viðstaddur. Það fylgir þess-
um bransa víst að þurfa að selja
sig, kynna verk sín og skapa tengsl
við aðila sem starfa innan brans-
ans og þess vegna er gott að geta
mætt á hátíðina,“ segir hann.
Um þessar mundir vinnur Davíð
að nýju handriti ásamt íslensk-
um og þýskum félögum, handrit-
ið fjallar um ungan pilt sem send-
ur er inn á Tsjernóbýl-svæðið
skömmu eftir slysið til að hnupla
verðmætum sem eftir urðu. Þýsk-
ur framleiðandi hefur nú þegar
sýnt verkefninu áhuga og verður
myndin að öllum líkindum fram-
leidd þar í landi. „Handritið var
upphaflega hugsað sem handrit að
stuttmynd, en þýski framleiðand-
inn vildi kvikmynd í fullri lengd og
við erum sem sagt að vinna í því
þessa stundina,“ útskýrir Davíð.
- sm
Davíð tilnefndur til verðlauna
KEMST ÚT Davíð Charles Friðbertsson
hefur verið tilnefndur til verðlauna á
kvikmyndahátíðinni Swansea Bay Film
Festival í Bretlandi.
Fiskikóngurinn • Sogavegi 3 • sími 587 7755
Fiskikóngurinn • Sogavegi 3 • sími 587 7755
OPNUM KL 8.00 ALLA VIRKA DAGA
VAR AÐ DETTA Í HÚS!
SIGIN GRÁSLEPPA
FRÁ DRANGSNESI
REYKTUR RAUÐMAGI
Skúli Z. Gestsson og félagar í
hljómsveitinni Diktu komu í fyrsta
skipti fram á Players í Kópavogi
síðastliðið föstudagskvöld. Þrátt
fyrir að Dikta sé vinsælasta hljóm-
sveit landsins um þessar mundir
þá voru menn ekki vissir um að
þeir myndu ríða feitum hesti frá
þessu musteri sveitaballapoppsins.
Hljómsveitin þaggaði
hins vegar niður í
öllum úrtölurödd-
um og strákarnir
troðfylltu kofann.
Uppselt var á
tónleikana og
þurftu ein-
hverjir frá
að hverfa
þegar
hætt var
að selja
inn.
Strákarnir í Diktu voru ekki þeir
einu sem komu í fyrsta skipti fram
á Players því netstjarnan Maggi
Mix hitaði mannskapinn upp.
Góður rómur var gerður að uppi-
standi Magga sem þykir lunkinn
grínisti, þó að hann
sé þekktari fyrir
góða spretti í
eldhúsinu. Maggi
lék við hvern
sinn fingur og
fagnaðarlátun-
um ætlaði aldrei
að linna þegar
hann endaði
á laginu Sexí
bomba.
Íslenska landsliðið í handbolta
lék tvo æfingaleiki við Frakka um
helgina og tókst að standa í þessu
sterkasta handboltaliði heims. Eftir
naumt tap á laugardag-
inn fóru strákarnir
út á lífið og fáir
voru hressari
en Ásgeir Örn
Hallgrímsson,
Róbert Gunnars-
son og Aron Pálm-
arsson sem sáust
á Kaffibarnum
umkringdir
æstum hand-
boltaunnend-
um. - afb
FRÉTTIR AF FÓLKI