Fréttablaðið - 20.04.2010, Blaðsíða 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
veðrið í dag
20. apríl 2010 — 91. tölublað — 10. árgangur
HÁSKÓLANÁM
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
Í golf þegar ferliErla Þorst i
„Karfan er alfarið liðsíþrótt þar sem er mikill hraði og hamagangur en golfið er einstaklingsíþrótt þar sem reynir mikið á einbeitingu og þolinmæði,“ segir Erla.
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/STEFÁN
VINNUSKÓLI REYKJAVÍKUR starfar í sumar líkt
og áður. Opnað hefur verið fyrir skráningu nemenda en
sú nýbreytni hefur verið tekin upp að foreldrar skrá nú
unglingana sína í skólann með því að fara inn í Rafræna
Reykjavík á heimasíðu borgarinnar, www.rafraen.reykjavik.
Patti.isLandsins mesta úrval af sófasettum
nÚ RÝMUM VIÐ FYRIR NÝJUM VÖRUM
50%
Fjölþrepa bakbrettið• Eykur sveigjanleika• Linar bakverki• Bætir líkamsstöðu• Auðvelt í notkun• Má nota hvar sem er
Opið virka daga frá kl. 9 -18
www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25
Verð: 7.950 kr.
SÉRBLÖÐ
í Fréttablaðinu
Allt
Háskólanám
ÞRIÐJUDAGUR
skoðun 14
GRJÓTFLUG OG GOSMÖKKUR Horft til suðausturs yfir gíginn í Eyjafjallajökli í gær. Grjótflugið úr gígnum sést vel; björg á stærð við bíla þyrlast upp og lenda sum hver á gíg-
barminum vinstra megin á myndinni. Fremst á myndinni hægra megin er Goðasteinn, litla fjallið fjærst er Drangshlíðarfjall og sést handan við það niður á Skógasand.
Hönnun innblásin af gosinu
Verið er að hanna fl íkur fyrir E-label
sem eru innblásnar af eldgosinu í
Eyjafjallajökli.
fólk 30
Bíða eftir 17 milljónum
Garðar Gunn-
laugsson og Ásdís
Rán bíða eftir
ógreiddum laun-
um Garðars frá
CSKA Sofi a.
fólk 30
Útbjuggu spil fyrir
yngstu kynslóðina
Höfundar Spurt að
leikslokum gefa út
fjögur ný spurn-
ingaspil.
tímamót 20
NÝ
KILJA
ÚRKOMA VESTAN TIL Í dag verða
suðaustan 8-13 m/s með slyddu
eða snjókomu norðvestan til, annars
hægari og úrkomulítið en slydda eða
rigning suðvestan til síðdegis.
veður 4
-1
-2
-2
2
2
NEYTENDUR Fersk jarðarber, kryddjurtir og viðkvæmar
káltegundir með stuttan líftíma mun skorta hér á landi
til skamms tíma vegna röskunar á millilandaflugi til
meginlands Evrópu. Ávextir og grænmeti með lengri
líftíma eru yfirleitt flutt hingað sjóleiðina.
Kjartan Már Friðsteinsson, framkvæmdastjóri
Banana, segir viðbúið að fersk jarðarber muni vanta
í veislur. Hverja sendingu þarf að panta með tveggja
daga fyrirvara.
Eggert Árni Gíslason, framkvæmdastjóri Mötu,
segir ferskar vörur fluttar inn frá Hollandi tvisvar til
þrisvar í viku. Ein sending hefur fallið niður hjá fyrir-
tækinu. Vörurnar bíða enn á flugvellinum úti og reikn-
ar Eggert með því að þær fari ekki lengra en í ruslið.
Ekki er um verulegt magn að ræða. Vonast er til að
flug komist nú í samt lag að hluta eftir röskun í tæpa
viku. Frestist flug frá meginlandinu frekar er hægt
að flytja inn ávexti og grænmeti frá Bandaríkjunum.
Verð þar er hins vegar mun hærra en í Evrópu.
Eggert segir ekki liggja fyrir hversu mikið röskun
á flugi kostar Mötu. Hann reiknar með að málin skýr-
ist fljótlega og verður þá kannað hvort fyrirtækið sé
tryggt fyrir skakkaföllum sem þessum. „Við verðum
líklega bara að bíta í það súra epli,“ segir hann. - jab
Ferskir innfluttir ávextir og grænmeti liggja undir skemmdum í Hollandi:
„Verðum að bíta í það súra epli“
Öruggt hjá Kefl avík
Kefl avík hefur tekið forystuna
í úrslitarimmunni gegn
Snæfelli um Íslandsmeistara-
titilinn í körfubolta.
íþróttir 26
ELDGOS Bændur á Raufarfelli I
undir Eyjafjöllum hafa yfirgef-
ið bæinn en fara tvisvar á dag að
sinna skepnunum. Þeir hafa þurft
að keyra fjórtán nautgripi, sem
gengu úti, til slátrunar.
„Við tókum þá ákvörðun á
laugardag að fara. Þá var allt í
svartamyrkri og við ósofin vegna
hávaða,“ segir Anna Björk Ólafs-
dóttir, bóndi á Raufarfelli.
Hún segir síðustu daga hafa
reynt mikið á og vont að vita ekki
um áhrif öskunnar á skepnurnar né
hvort heyjað verði í sumar. Börnin
skilji ekki til fullnustu hvað gangi
á. „Jökullinn hefur alltaf bara verið
fallegur og skýlt okkur fyrir norð-
anáttinni,“ segir Anna Björk.
Í dag má búast við að gosaska
berist ekki langt frá gosstöðinni,
að mati Veðurstofunnar, en talsverð
eldvirkni var enn í þremur gígum
í gær. Hraunkleprar náðu allt að
þriggja kílómetra hæð í sprenging-
um úr gígunum en hraun rann ekki.
Flugfélög hafa orðið fyrir um 130
milljarða króna tjóni vegna gossins
og Icelandair Group telur sig hafa
tapað hundrað milljónum á degi
hverjum frá því að það hófst.
- kóþ, sbt, jab / sjá síður 6 og 8
Slátruðu nautgripunum
Bændur undir Eyjafjöllum hafa yfirgefið heimilið en sinna skepnum eftir getu. Hafa þurft að slátra naut-
gripum og vita ekki hvort þeir heyja í sumar. „Jökullinn hefur alltaf bara verið fallegur og skýlt okkur.“
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA