Fréttablaðið - 21.04.2010, Blaðsíða 17

Fréttablaðið - 21.04.2010, Blaðsíða 17
MIÐVIKUDAGUR 21. apríl 2010 17 AF NETINU Í almennum ritum um sögu Frakklands á þriðja og fjórða áratug síðustu aldar greinir frá því að þá var andúð á lýðræði útbreidd í landinu, uppivöðslu- samir flokkar geystust um með hávaða og látum, haldnir voru mótmælafundir sem lyktaði stundum með óeirðum. Í febrúar 1934 var jafnvel reynt að ráðast á franska þinghúsið, og lágu þá margir í valnum; mikill ótti var við valdarán. Æ síðan hafa þess- ir óeirðaseggir og forsprakkar þeirra fengið mjög slæma pressu, þeir eru kenndir við „fasisma“, umsvif þeirra eru tengd við það sem gerðist á þessum árum víða annars staðar í álfunni, og Frakk- ar hafa jafnan prísað sig sæla fyrir að ekki skuli neitt verra hafa hlotist af, þeir hafi sloppið við ein- ræði af því tagi sem ruddi sér þá til rúms á Ítalíu, í Þýskalandi, á Spáni og víðar. En það var þó ekki stjórnmálamönnum að þakka, ef betur er rýnt í sögu þessara ára kemur í ljós að stór hluti ábyrgð- arinnar á þessu ófremdarástandi lá hjá þeim; stundum liggur við að maður hugsi, að þeir hafi verið heppnir að sleppa eins vel og þeir gerðu eftir allt saman. Á þessum tíma virtist stjórn- málamannastéttin nánast alveg ráðvillt og duglaus. Það var eins og hún gæti ekki ráðið við neitt af þeim vandamálum sem þá steðj- uðu að landsmönnum, enda virt- ust stjórnmálamenn naumast hafa neina stefnuskrá eða sann- færingu. Hins vegar tók hvert fjármálahneykslið við af öðru, og teygðu þau sig oft upp í æðstu stig stjórnmálanna. Þekktast þeirra er e.t.v. „Staviski-málið“ svo- kallaða; því lauk á þann hátt að svikahrappurinn Staviski stytti sér aldur, en sá orðrómur gekk þó fjöllunum hærra að honum hefði verið komið fyrir kattarnef til að bjarga þeim mörgu pípu- höttum sem flæktir voru í málið. Sem dæmi um andrúmsloftið í landinu má nefna að sagt var um þingmenn róttæka flokksins að þeir væru „eins og radísur, rauðir að utan en hvítir að innan og allt- af við hliðina á smjörinu“. Þegar „þriðja lýðveldið“ lagði upp laup- ana voru þeir færri sem syrgðu það. Síðan eru liðin ár og dagur. Og nú fyrir skömmu, 14. og 21. mars, voru haldnar héraðsstjórnarkosn- ingar í Frakklandi, en þeirra var beðið með nokkurri eftirvæntinu, því þetta voru fyrstu kosningarn- ar í landinu síðan Sarkozy var kjörinn forseti. Samkvæmt öllum fjölmiðlum varð niðurstaðan sú að vinstri flokkarnir unnu stór- sigur en stjórnarflokkarnir biðu nánast afhroð. Í fyrri umferð- inni fengu sósíalistar tæp þrjátíu af hundraði og voru langstærsti flokkur landsins, „græningjar“ með Daniel Cohn-Bendit og Evu Joly í broddi fylkingar fengu rúm tólf af hundraði og kommúnist- ar ásamt bandamönnum sínum rúm sex af hundraði, og þótti það allmerkilegt “come back”. Sam- anlagt fengu allir vinstri flokk- arnir nálægt fimmtíu af hundr- aði. Flokkur Sarkozys fékk hins vegar aðeins rúm tuttugu og sex af hundraði, og hafði engan stór- an bandamannaflokk að styðja sig við. Þetta fannst fréttaskýr- endum hranaleg hirting. En þó var eitt sem skyggði dálítið á gleði sósíalista, án þess að vera nokkur huggun fyrir Sar- kozy: fleiri sátu nú hjá en nokk- urn tíma áður í sambærileg- um kosningum. Reyndar hefur kosningaþátttaka í Frakklandi verið að minnka jafnt og þétt, eina undantekningin var forseta- kosningin 2007 þegar frambjóð- andanum Sarkozy tókst að skapa spnnu, en ef undanskildar eru „Evrópukosningarnar“ sem eng- inn tekur alvarlega, hefur tala þeirra sem sitja hjá aldrei áður farið yfir helming manna á kjör- skrá, a.m.k. ekki um langt skeið: nú var hún rúmlega fimmtíu og þrjú af hundraði. Við þetta bætt- ist annað: „þjóðernisfylking“ hins illræmda Le Pen, sem sumir voru á leiðinni að jarða, reis nú aftur upp eins og Þorgeirsboli og fékk tæp tólf af hundraði. Þetta þótti þeim mun merkilegra fyrir þá sök að sjálfur er Le Pen úr leik fyrir aldurs sakir, þótt hann virð- ist furðu ern, og er flokkurinn í höndum dóttur hans sem enn er ekki föst í sessi. Í rauninni var ekki hægt að skýra þetta nema á einn hátt: fremur en að vera „sigur“ vinstri manna sýndu þessi kosningaúrslit djúpstætt vantraust og kannske andúð á stjórnmálamönnum yfir- leitt. Kannske var atkvæðatala sósíalista einnig mótmæli fremur en stuðningur við leiðtoga flokks- ins, sem eru ekki einu sinni rauð- ir að utan. Þetta heyrir maður alls staðar ef maður gefur gaum að hvíslingum fólksins, menn hafna þeim stjórnmálamönn- um sem standa ráðalausir gagn- vart atvinnuleysi og versnandi lífskjörum en boða þær umbæt- ur í heilbrigðismálum að loka sjúkrahúsum (einkum fæðingar- deildum), þær umbætur í skóla- málum að fækka kennurum og draga úr kennslu, og annað eftir því. Þótt ekki geysi neinir flokk- ar óeirðaseggja um götur að svo stöddu, eru þessi þöglu mótmæli síst betri. Radísurnar Einar Már Jónsson sagnfræðingur Í DAG Landsmenn standi saman Það er óendanlega dapurlegt að sjá bæina og jarðirnar undir Eyjafjöllum þar sem allt er á kafi í ösku. Það þarf ofurmannlegt þrek til að lifa og búa í svörtum öskumekki dag eftir dag. Taki gosið sig upp af nýjum krafti er hætt við að ein fegursta sveit landsins, byggðin undir Eyja- fjöllum, fari í eyði. Ekki er vafi á að landsmenn munu þá standa saman, allir sem einn, að hjálpa þeim sem tapa öllu sínu. Við Íslendingar kunnum það. http://blog.eyjan.is/hjalmarsveinsson/2010/04/20/ veruleikasjokk/ Hjálmar Sveinsson Reiða fólkið í návígi Fólk er mjög reitt og sumir reiðari en aðrir. Skil þá, sem lýsa reiði sinni í návígi við heimili afbrotafólks í pólitík. Tel, að svar afbrotafólks sé rangt. Ekki má veifa börnum sínum eða afa þeirra framan í mótmælendur. [...] Hins vegar tel ég rangt að fara svona að fólki, sem hefur rænt bankana. Á þessu stigi málsins. Uppgjörið við fortíðina er annars staðar og hefur sinn gang. Þegar dómstólar byrja hins vegar að sýkna afbrotafólk, má fjandinn verða laus mín vegna. jonas.is Jónas Kristjánsson Hafðu samband sími Ert þú í Vildarþjónustu Arion banka? Arion banka arionbanki.is ávinning á Nóatúni 4 • Sími 520 3000 www.sminor.is A T A R N A Uppþvottavélar frá Siemens. Hraðvirkar, hljóðlátar og vinnusamar.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.