Fréttablaðið - 23.04.2010, Page 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
veðrið í dag
23. apríl 2010 — 94. tölublað — 10. árgangur
föstudagurFYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS
23. apríl 2010
ÆVINTÝRI Í AUSTRIÓlafur Arnalds er ný-kominn úr tónleika ferða-lagi um Kína og er að gefa út nýja plötu.
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
Æfir stíft fyrir Bocu d
Atli Þór Erlendsson e á lBj
Hér er Atli Þór með einfaldan eftirrétt þar sem árstíðabundin og íslensk hráefni fá að njóta sín.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
TÍSKUSÝNING ÚTSKRIFTARNEMENDA í fatahönn-
un við hönnunar- og arkitektúrdeild Listaháskóla Íslands verður
haldin í gamla Bykohúsinu við Hringbraut í dag klukkan 20. Þar
sýna sex útskriftarnemendur fatahönnun sína. Erlendir próf-
dómarar á sýningunni eru Martin Sitbone og Marc Ascoli.
Nýr A la Carte
4 é
Góð tækifærisgjöf!
LAMBATVENNAmeð steinseljurótarmauki, aspas, rófu, soðkartöflu og basil-myntu gljáaVið mælum með Sensi Chianti Riservameð þessum rétti.Stefán Elí Stefánsson, matreiðslumaður.
3 SÉRBLÖÐ
í Fréttablaðinu
Allt
Föstudagur
FÖSTUDAGUR
Opið alla daga
frá 11-22
á báðum stöðum
Viðkunnanleg
stórstjarna
Anna Mjöll Ólafs-
dóttir hitti George
Clooney á Hawaii.
fólk 34
Með háskólagráðu í
harmoníkuleik
Helga Kristbjörg Guðmunds-
dóttir er fyrsti Íslend-
ingurinn sem útskrifast
úr harmoníkuleik af
hljóðfærabraut
LHÍ.
tímamót 18
skoðun 16
VINDUR AF AUSTRI eða suðaustri,
fremur hægur víða en heldur vax-
andi við suðurströndina. Snjókoma
eða slydda suðaustanlands og svo
suðvestan- og vestanlands síðdegis.
VEÐUR 4
3
1 0
-1
0
Akureyri vann Val úti
Úrslitakeppni N1-deildar
karla hófst í gær þar sem
Akureyri og Haukar unnu
leiki sína.
íþróttir 30
LÖGREGLUMÁL Akureyrarlögreglan
fann 1,2 kíló af amfetamíni og 100
grömm af hassi þegar ráðist var í
húsleitir á þremur stöðum samtím-
is á þriðjudagskvöldið var.
Tveir menn, á fimmtugs- og þrí-
tugsaldri, sitja í gæsluvarðhaldi
vegna málsins, sem er stærsta
fíkniefnamál sem nokkru sinni
hefur komið upp í bænum. Sá eldri
situr inni til 1. maí en hinn til 26.
apríl. Einnig fannst rými sem ljóst
þykir að hafi verið notað til kanna-
bisframleiðslu. Þar var lagt hald á
tólf hitalampa og annan búnað, en
engar plöntur voru á staðnum.
Gunnar Jóhannes Jóhanns-
son, yfirmaður rannsóknardeild-
ar, segir að um fimmtán lögreglu-
menn frá Akureyri, Blönduósi og
embætti Ríkislögreglustjóra hafi
tekið þátt í aðgerðinni. - sh
Rúmt kíló af amfetamíni tekið:
Mesta dópmál í
sögu Akureyrar
BRETLAND Gordon Brown, forsæt-
isráðherra Bretlands og leiðtogi
Verkamannaflokksins, sagði and-
stæðinga sína, þá Nick Clegg,
leiðtoga Frjálslynda demókrata-
flokksins, og David Cameron, leið-
toga Íhaldsflokksins, báða vera
hættulega Bretlandi í sjónvarps-
kappræðum þeirra í gærkvöld.
Meiri harka var í kappræðun-
um nú en fyrir viku, en allra augu
beindust að Nick Clegg sem óvænt
stóð sig það vel í fyrstu kappræð-
unum að flokkarnir þrír standa
nú nokkuð jafnt að vígi fyrir þing-
kosningarnar 6. maí. - gb
Allra augu á Nick Clegg:
Aukin harka í
kappræðum
CAMERON, BROWN OG CLEGG Flokks-
leiðtogarnir þrír hittast í þriðja og síðasta
sinn eftir viku. NORDICPHOTOS/AFP
VIÐSKIPTI Íslenska ríkið tók seint
í gærkvöldi yfir alla starfsemi
Sparisjóðs Keflavíkur. Viðræður
við kröfuhafa um endurskipulagn-
ingu sparisjóðsins höfðu staðið um
nokkra hríð en í gær varð endan-
lega ljóst að ónógur fjöldi kröfu-
hafa myndi ganga að því samn-
ingstilboði sem fyrir lá. Sjóðurinn
er því farinn í þrot.
Stofnað hefur verið nýtt félag,
SPKEF, utan um starfsemina. Ásta
Dís Óladóttir, forseti viðskipta-
deildar Háskólans á Bifröst, er
formaður nýrrar stjórnar.
Starfsmenn voru í gærkvöldi
boðaðir til fundar vegna málsins
klukkan átta í dag. Ekki stendur
til að segja upp fólki eins og sakir
standa. Þá var útlit fyrir það í gær-
kvöldi að ekki yrðu neinar breyt-
ingar gerðar á stjórnendahópi
sparisjóðsins að svo komnu máli.
Eins og fyrr segir er ríkið eini
eigandi hins nýja félags. Ekki
hefur verið tekin ákvörðun um
það hversu mikið stofnfé ríkið
mun leggja því til. Félagið mun
síðan renna inn í Bankasýslu rík-
isins sem tekur ákvörðun um það
hvort félagið verður á seinni stig-
um sameinað öðrum fjármálafyr-
irtækjum í eigu ríkisins.
Öll starfsemi sparisjóðsins verð-
ur óbreytt frá og með deginum í
dag og allar innistæður viðskipta-
vina eru tryggðar að fullu sam-
kvæmt margítrekuðum yfirlýs-
ingum ríkisstjórnarinnar.
Eftir að SPRON fór í þrot hefur
Sparisjóðurinn í Keflavík verið
næststærsti sparisjóður landsins á
eftir BYR, með sextán afgreiðslu-
staði í jafnmörgum bæjarfélögum.
Hann hefur starfað í 102 ár. - sh
Ríkið hefur tekið yfir
Sparisjóð Keflavíkur
Sparisjóður Keflavíkur er farinn í þrot. Ríkið yfirtók starfsemina í gærkvöldi.
Viðræður um endurskipulagningu runnu út í sandinn. Allir halda vinnunni.
SAMGÖNGUR Talið var líklegt í gær-
kvöld að loka þyrfti bæði Kefla-
víkurflugvelli og Reykjavíkur-
flugvelli snemma í dag vegna
gjósku frá eldstöðinni í Eyjafjalla-
jökli. Gert er ráð fyrir að vindur
standi úr austri í dag næstu daga
og beri gosmökkinn vestur yfir
landið.
Samkvæmt tilkynningu frá
Flugstoðum var talið líklegt að
lokun flugvallanna muni standa
í minnst tólf klukkustundir.
Vegna þessarar stöðu flýtti Ice-
landair brottfarartíma morgun-
fluga sinna til Evrópu í dag fram
til klukkan fimm í morgun. Flug-
um Iceland Express til London og
Kaupmannahafnar sem vera áttu
klukkan sjö í morgun var flýtt til
klukkan ellefu í gærkvöldi. Ekki
voru komnir nýir tímar á önnur
flug félagsins þegar Fréttablað-
ið fór í prentun. Sumu flugum
var aflýst og ný flug sett á áætl-
un. Ameríkuflug Icelandair verð-
ur í gegnum Glasgow. Flugfélögin
biðja farþega sína að fylgjast vel
með fréttum af stöðu mála.
Þótt Keflavíkurflugvöllur og
Reykjavíkurflugvöllur lokist
stöðvast flugsamgöngur við landið
ekki þar sem alþjóðaflugvellir eru
bæði á Akureyri og Egilsstöðum.
Icelandair hefur skipulagt rútu-
ferðir til Akureyrar þaðan sem
flogið verður til Glasgow.
Hrafn Guðmundsson, veður-
fræðingur á Veðurstofu Íslands,
sagði nokkuð ákveðnar austanáttir
í kortunum fram yfir helgi. Hann
byggist ekki við að fólk á höfuð-
borgarsvæðinu myndi finna mikið
fyrir öskufalli þótt erfitt væri að
spá fyrir um það. Eldur sást af
láglendi í gosgígnum í gærkvöldi.
Hrafn segir að gosmökkurinn hafi
náð mest í um sex kílómetra hæð í
gær. Búast mætti við að mökkur-
inn bærist yfir höfuðborgarsvæð-
ið um klukkan sex í morgun. - gar
Austanvindur beinir gosmekki frá Eyjafjallajökli í átt til höfuðborgarsvæðisins:
Gjóska lokar Keflavíkurflugvelli
SUMAR Í FROSTASKJÓLI Dennis Hoda og félagar fóru mikinn þegar þeir stukku af trampólíni og tróðu
bolta í körfuna á sumarhátíð sem ríki og borg héldu Vesturbæingum í Frostaskjóli í gær.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/D
A
N
ÍEL