Fréttablaðið - 29.04.2010, Blaðsíða 10
10 29. apríl 2010 FIMMTUDAGUR
GRIKKLAND „Kreppa er tækifæri,“
sagði George Papandreou, forsæt-
isráðherra Grikklands, og reynir
að hvetja til bjartsýni þrátt fyrir
verðfall á hlutabréfamörkuðum og
vantrú matsfyrirtækisins Stand-
ard & Poor‘s á fjárhagsstöðu gríska
ríkisins.
„Við skulum vinna að endur-
fæðingu þjóðarinnar,“ sagði hann
á þingflokksfundi Sósíalistaflokks
síns í gær: „Nú er að duga eða
drepast.“
Fjárhagsvandræði Grikklands
eru fyrir löngu komin í hnút eftir
fjármálaóstjórn undanfarinna
ára. Sósíalistaflokkurinn tók við
vægast sagt slæmu búi af hægri-
stjórn Kostas Karamanlis síðast-
liðið haust, og þarf að takast á við
afleiðingarnar.
Stjórnin er nú í örvæntingarfullu
kapphlaupi við tímann, því 19. maí
gjaldfalla stór lán sem ríkissjóður
mun engan veginn ráða við án utan-
aðkomandi aðstoðar.
Sameiginleg björgunaráætl-
un Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og
fimmtán Evrópusambandsríkja
var samþykkt fyrir rúmlega hálf-
um mánuði, en Þjóðverjar hafa þó
verið tregir til, enda eiga þeir að
útvega 8,4 milljarða evra af samtals
45 milljarða Evrópuhluta aðstoðar-
innar við Grikki, mun hærri fjár-
hæð en hin Evrópuríkin.
Á fundi fulltrúa AGS með evr-
ópskum ráðamönnum í Þýska-
landi í gær var hart lagt að Þjóð-
verjum að skorast ekki undan, en
skoðanakannanir sýna að 57 pró-
sent Þjóðverja eru algerlega andvíg
því að Þýskaland komi Grikkjum til
bjargar.
Þjóðverjar eru sjálfir orðnir
skuldsettari en góðu hófi gegnir.
Samsteypustjórn Kristilegra og
Frjálslyndra demókrata, með Ang-
elu Merkel kanslara í fararbroddi,
hefur safnað skuldum í stærri stíl
en áður mun hafa þekkst í Þýska-
landi síðan hún tók við völdum
fyrir ári. Fjárlagahalli á þessu ári
verður 80 milljarðar evra, sem er
fjórðungur af útgjaldahlið fjárlag-
anna. Ellefu prósent fjárlaga fara
nú í afborganir af skuldum.
Allt stefnir því í strangar
aðhaldsaðgerðir í Þýskalandi á
næstu árum til þess að greiða niður
skuldirnar.
Með því að taka á sig góðan
skammt af skuldasúpu Grikklands
í viðbót verður áhættan orðin meiri
en Þjóðverjar, sem vanir eru því
að fara varlega í fjármálum, eiga
auðvelt með að sætta sig við.
gudsteinn@frettabladid.is
Hvetur Grikki til bjartsýni
Þjóðverjar eru tregir til að veita Grikkjum fjárhagsaðstoð. Naumur tími er til stefnu, því stór lán gjaldfalla
brátt á Grikki. Forsætisráðherra Grikklands lítur á kreppuna sem tækifæri til endurfæðingar þjóðarinnar.
EKKERT AÐHALD Fjöldi manns mótmælti aðhaldsaðgerðum stjórnvalda í Aþenu.
Ármúla 30 | 108 Reykjavík | Sími 560 1600 | www.borgun.is
Borgun hefur sérhæft sig í öruggri greiðslumiðlun í
30 ár. Þekking okkar og reynsla nýtist viðskiptavinum
á hverjum degi, allan sólarhringinn.
Borgun býður:
Allar gerðir posa á hagstæðum kjörum
Öruggar lausnir fyrir vefverslanir
Skilvirka leið við innheimtu boðgreiðslna
Notendavæna þjónustuvefi
Hafðu samband í 560 1600 eða borgun@borgun.is
og fáðu tilboð í færsluhirðingu.
AUÐVELDAR VIÐSKIPTI
N
O
R
D
IC
PH
O
TO
S/A
FP
FAGNA ÓFÖRUM BANDARÍKJANNA
Tveir ungir íranskir hermenn á her-
tekinni bandarískri þyrlu taka þátt í
athöfn í Teheran til að minnast þess
að 30 ár eru frá því Bandaríkjamönn-
um mistókst að frelsa gísla.
NORDICPHOTOS/AFP
Kvikmynd um Högnu
Lista- og menningarráð Kópavogs
hefur samþykkt að veita einnar millj-
ónar króna styrk til gerðar heimildar-
myndar um Högnu Sigurðardóttur
arkitekt. Högna er einn þekktasti
arkitekt landsins en starfaði lengst
af í Frakklandi og er búsett þar. Hún
teiknaði meðal annars Sundlaug
Kópavogs.
MENNING