Fréttablaðið - 29.04.2010, Síða 18
18 29. apríl 2010 FIMMTUDAGUR
hagur heimilanna
Fyrir þá sem vantar kút á
grillið fyrir sumarið eru
síðustu forvöð að hreppa
plastkúta á „gamla verðinu“
hjá ÍSAGA og Skeljungi. Bú-
ast má við að verðið hækki
innan skamms. Sáralítill
verðmunur er á stálkútum
og áfyllingu á þá, en tæpum
sex hundruð krónum getur
munað á plastkútaáfyllingu
Olís á leið í innflutning.
ÍSAGA og Skeljungur selja plast-
gaskúta á rúmar níu þúsund krón-
ur, en aðrir á rúmar þrettán og upp
í fjórtán þúsund krónur. Fyrirtæk-
in tvö búast við að hækka verð á
næstunni, eða þegar sending berst
til landsins.
„Þetta er gömul sending, flutt
inn fyrir þremur árum,“ segir Guð-
mundur Rafnsson, framkvæmda-
stjóri hjá ÍSAGA, en fyrirtækið
býður upp á heimsendingarþjónustu
á gasi fyrir átta hundruð krónur.
Plastkútar eru algengastir í
tíu kílóa stærð og ódýrastir hjá
Skeljungi á 9.054 krónur. Dýrast-
ir eru þeir hjá Byko, á 13.990. Hjá
Byko fylgir áfylling kútnum.
Ódýrasta áfyllingin á plastkútana
er hjá Byko, 4.414 krónur, en mest
kostar áfyllingin hjá Skeljungi,
5.009 krónur.
Gömlu stálkútarnir eru mun
ódýrari en plastkútarnir. Níu kílóa
stálkútar kosta rúmar 2.000 kónur
og munar fimmtán krónum á hæsta
og lægsta verði.
Lítill verðmunur er og á áfyll-
ingu á níu kílóa stálkúta, eða átta-
tíu krónur milli hæsta og lægsta
verðs.
Olís ætlar á næstunni að flytja
inn eigið gas. Um leið verður boðið
upp á nýja gerð tenginga milli grills
og kúts, sem sagðar eru hentugri og
öruggari.
Olís mun jafnvel bjóðast til að
koma heim til fólks og skipta um
tengingar fyrir það, sem bætist við
þjónustu eins og heimsendingu á
gasgrillum. klemens@frettabladid.is
Útgjöldin
>Kílóverð á skinku, í febrúar ár hvert
Verð á gasi og gaskútum:
Tegund Stálkútur 9 kíló Áfylling Plastkútur 10 kíló Áfylling
Byko - - 13.990* 4.414
ÍSAGA - - 9.600 4.550
N1 2.015 4.228 13.305 4.699
Olís 2.005 4.308 13.310 4.791
Skeljungur 2.020 4.237 9.054 5.009
Miðað við upplýsingar úr símakönnun í gærdag. Bornir eru saman 10 kílóa plast-
kútar, áfylling á þá, og 9 kílóa stálkútar og áfylling á þá.
*Innihaldið er ókeypis þegar keyptur er nýr kútur hjá Byko.
Fólk getur fengið gaskúta á
gamla verðinu enn um sinn
Skilagjald er á kútunum, jafnhátt
útsöluverði. Því mætti ætla að hægt
væri að kaupa sér tóma kúta hjá
Skeljungi og skila þeim til Byko og
hirða mismuninn. En viðskiptavinir
sem skila gaskútum eru gjarnan
krafðir um kvittanir í verslunum,
enda hafa þjófar oft reynt að losa
sig þar við illa fengna gaskúta. - kóþ
Ekki viðskiptatækifæri
GRÆTT Á DAGINN OG GRILLAÐ … Sumarið er byrjað samkvæmt dagatalinu og lands-
menn farnir að huga að gasgrillum sínum. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Eitt félag,
Gasfélagið,
flytur inn allt
própangas á
Íslandi, sem
er gasið sem
fer á gasgrillin.
Gasfélagið
er í eigu
Sjávarsýnar,
félags Bjarna
Ármannssonar
athafnamanns. Olíufélögin og fleiri
endurselja svo neytendum gasið
frá Gasfélaginu.
Pétur Pétursson, framkvæmda-
stjóri Gasfélagsins, á ekki von á
því að verð lækki mikið við það að
Olís hefji innflutning á gasi. Verðið
ráðist af heimsmarkaðsverði og
gengi Bandaríkjadollars. „En það
getur vel verið að olíufélögin fari
þá í verðstríð,“ segir hann og tekur
fram að hann skipti sér ekkert af
verði olíufélaga. - kóþ
Bjarni á allt gasið
BJARNI
ÁRMANSSON
Heimild: Hagstofa Íslands
2.500
2.000
1.500
1.000
500
0 kr.
2004 2006 2008 2010
„Verstu kaupin mín voru tvímælalaust mynt-
körfulánsbíllinn minn, sem var grár smábíll
af gerðinni Huyndai Getz sem ég keypti
notaðan á milljón árið 2007,“ segir Hörður
Sveinsson ljósmyndari. „Þetta er hinn besti
bíll þannig séð, ég á hann og nota, en
kaupin eru tvímælalaust þau verstu sem
ég hef gert. Mér var sagt að það væri voða
sniðugt að taka myntkörfulán og ég féll
kylliflatur fyrir því,“ segir Hörður sem
heldur í þá von að annaðhvort
styrkist krónan eða lánin verði
endurskoðuð.
Bestu kaup Harðar
eru af allt öðrum
toga. „Ég keypti mér
lítinn rauðan úkúlele-gítar í Pal-
ermo á Sikiley síðasta sumar.
Hann er eins og ananas í
laginu og skreyttur ávaxta-
myndum. Ég hef notað hann
mjög mikið þó að ég kunni
ekki beinlínis að spila á gítar,
ég fikta bara í honum. Ég er
reyndar handóður, get ekki haft
hendurnar kyrrar og þess vegna
virkar gítarinn eins og stressbolti
fyrir mig. Gítarinn var ódýr
og ég hef notað hann svo
mikið að hann hlýtur
að vera bestu kaupin
sem ég hef gert.“
NEYTANDINN: Hörður Sveinsson ljósmyndari
Gítar bestu kaup en bíllinn þau verstu
Árlega veitir Öldrunarráð Íslands
viðurkenningu fyrir
frábær störf í þágu aldraðra.
Nú er óskað eftir ábendingum um einstaklinga, stofnanir
eða félagasamtök, sem víðast af landinu sem verðskulda
slíka viðurkenningu árið 2010.
Ábendingar sendist til starfsmanns Öldrunarráðs
Pálínu Sigurjónsdóttur, Hverahlíð 20, 810 Hveragerði
eða í tölvupósti, pala@dvalaras.is, fyrir 15. maí.
„Besta húsráðið er að henda aldrei
lífrænum úrgangi heldur setja hann
í safntunnu sem
Reykjavíkurborg
hefur svo til gefið
í mörg ár,“ segir
Jón Gnarr, leikari
og frambjóðandi
Besta flokksins í
næstu sveitarstjórn-
arkosningum. Jón
telur almennt sorp frá heimilinu hafa
minnkað hafa um helming í kjölfarið
.„Seint á vorin er úrgangurinn orðinn
eins og hrossaskítur. Hann set ég í
beðin, við rósirnar mínar.“
GÓÐ HÚSRÁÐ
SAFNAR ÚRGANGI
■ Jón Gnarr, leikari og frambjóðandi,
setur úrgang á rósabeð
SAMGÖNGUR Kristján L. Möller
samgönguráðherra vill breyta
skattlagningu
eignarhalds
og notkunar
neyslugrannra
bíla svo þeir
verði fýsilegri
kostur en nú er.
Þetta kemur
fram í kafla um
markmið um
umhverfislega
sjálfbærar sam-
göngur í nýrri samgönguáætlun.
Til neyslugrannra bíla teljast til
dæmis tvinnbílar, tengiltvinnbíl-
ar, bílar sem nota vistvænt elds-
neyti og bílar sem nota gasolíu.
Þegar eru í gildi skattaívilnanir
vegna neyslugrannra bíla en þrátt
fyrir það eru slíkir bílar innan við
eitt prósent af bílaflotanum.
Runólfur Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri Félags íslenskra
bifreiðaeigenda, segir mark-
miðið jákvætt; fullt tilefni sé til
að fjölga neyslugrönnum bílum
í umferðinni. Hann leggur þó
áherslu á að breytingar á skatt-
kerfinu verði raunhæfar og þjóni
markmiði sínu af alvöru.
Í samgönguáætluninni kemur
einnig fram sá vilji Kristj-
áns Möllers að breyta kröfum í
útboðum með það að markmiði
að auka hlut vistvænna ökutækja
í sérleyfisakstri og auka kröfur
til opinberra stofnana og fyrir-
tækja um að þær noti vistvæn
ökutæki í starfsemi sinni.
Fyrir utan þessi verkefni á að
leita leiða og vinna að markvissri
áætlun um hvernig standa megi
að orkuskiptum í samgöngum sem
lið í að ná loftlagsmarkmiðum
stjórnvalda.
- bþs
Samgönguráðherra setur fram markmið um umhverfislega sjálfbærar samgöngur:
Vill lækka skatta á neyslugranna bíla
KRISTJÁN MÖLLER