Fréttablaðið - 29.04.2010, Blaðsíða 25

Fréttablaðið - 29.04.2010, Blaðsíða 25
FIMMTUDAGUR 29. apríl 2010 25 Ár er síðan ég var kosin formað-ur Blaðamannafélags Íslands. Hópurinn er breyttur, margir hafa fengið reisupassann á fjölmiðlum eða horfið til annarra starfa. Það eru miklir átakatímar í blaða- mennsku eins og öðru. Í fyrra fékk ég óskorað umboð ykkar til að stýra Blaðamannafélaginu, sem ég hef gert eftir bestu getu. Þetta hefur verið viðburðaríkt ár, erfitt og mikil áskorun. Ég hef haldið uppi vörnum fyrir blaða- mennsku, sem formaður stétt- arfélags og fagfélags. Það hefur ekki verið auðvelt. Oft hefði verið betra fyrir sjálfa mig að taka ekki slaginn. En ég hef gert það, þar sem mér hefur fundist vegið að sjálf- stæði okkar, trúverðugleika og vinnuaðstæðum og kjörum. Endurmat blaðamanna Við höfum þurft að takast á við efnahagshrun og sjálfsmynd okkar hefur beðið hnekki. Við blaðamenn höfum þurft endurmeta margt sem brást í samfélaginu og spyrja, átti ég eða minn fjölmiðill einhvern hlut að máli? Á sama tíma blasti við að helstu gerendur í efnahags- hruninu áttu og stýrðu fjölmiðl- um. Þetta hef ég gagnrýnt og nú er svo komið að þetta er það sem ég er mest gagnrýnd fyrir af ykkur sem kusuð mig til að vera formað- ur í þessu félagi. Orð mín um að eignarhald þessara fjölmiðla skaði trúverðugleika eru sögð hafa vakið reiði meðal blaðamanna á 365. Ég var rekin af Morgunblaðinu ásamt fjölda annarra blaðamanna, eftir að Davíð Oddsson tók við rit- stjórn. Ég hef gagnrýnt ritstjóra- skiptin harðlega, ekki síst með tilliti til uppgjörsins eftir banka- hrunið. Margir blaðamenn á Morgunblaðinu eru ekki sammála mér um það. Gott og vel, en ég tel að formaður Blaðamannafélags sem ekki hefði tjáð sig í slíku máli væri ekki formennskunnar verður. Dæmd og léttvæg fundin Ég tók að mér að ritstýra vefrit- inu Smugunni frá í mars. Þetta gefur framkvæmdastjóri félags- ins upp sem ástæðu til að fara fram gegn mér þar sem flokks- pólitík og blaðamennska fari ekki saman. Það fer vel á því að eini maðurinn í félaginu sem þarf ekki bera kinnroða fyrir eignarhald- ið er í vinnu hjá félaginu sjálfu. Ég er semsagt dæmd og léttvæg fundin vegna eignarhalds á litl- um vefmiðli, sem er umræðu- vettvangur fyrir vinstri menn, á sama tíma og ég er gagnrýnd fyrir að hafa efasemdir um að helstu gerendur efnahagshrunsins séu þeir réttu til að eiga fjölmiðl- ana sem gera upp þennan kafla Íslandssögunnar. Ég stend hér ekki í neinni málsvörn. Ég ætla ekki að segja ykkur ósatt. Ég myndi gera þetta aftur. Ef þið vilduð formann sem telur það ekki hlutverk for- mannsins að gagnrýna slíka hluti þá hefðuð þið aldrei átt að kjósa mig. Svo einfalt er það. Blaða- menn eru ekki leikskólabörn. Ég hef unnið með mörgu afbragðs fólki í blaðamennsku með mis- munandi skoðanir á þjóðmálum. Og góðir blaðamenn hafa oftast sterka réttlætiskennd og áhuga á stjórnmálum. Það leiðir af starf- inu og ræður líka stundum starfs- valinu. Það er hræsni að ganga um og halda að blaðamenn séu fag- legri eða heiðarlegri ef þeir hafa ekki skoðanir. Og ég tek ekki þátt í því. Naut ekki stuðnings framkvæmdastjóra Mér varð snemma ljóst að ég nyti ekki stuðnings Hjálmars Jónsson- ar framkvæmdastjóra. Mér fannst það erfitt því formaður er í öðru starfi líka og þarf að reiða sig á framkvæmdastjórann um allt sem fram fer í félaginu og upplýsingar um framkvæmd allra hluta. Hjálm- ar var liðlegur í mörgum málum og oft hinn elskulegasti. En um leið og ég vildi hafa eitthvað að segja um stefnu félagsins fann ég fyrir andstöðu. Ég vildi upplýsingar til að leggja fyrir stjórn um fjár- mál og framkvæmd ýmissa hluta og þetta skapaði togstreitu. Hún varð að lokum til þess að það varð hérumbil ófundarfært í stjórn- inni, þar sem framkvæmdastjór- inn óð uppi með alls kyns áskanir og hafði félagslög að engu. Ég lýsti því þá yfir í bókun að ég gæti ekki undir þessum kring- umstæðum tekið ábyrgð á eftir- liti með fjárreiðum félagsins eins og stjórn er skylt að gera. Trún- aðarbrestur væri milli mín og framkvæmdastjórans. Stjórn- in var hins vegar klofin og vildi leita sátta. Meirihlutinn kallaði eftir upplýsingum sem enn hafa ekki borist þrátt fyrir fullyrðing- ar um annað. Framkvæmdastjór- inn las fá og rýr svör um nokk- ur atriði varðandi kaup og kjör á skrifstofu félagsins upp á fundi en var gerð grein fyrir því að upplýs- ingarnar væru ekki fullnægjandi. Sigurður Már Jónsson, fyrrver- andi ritstjóri Viðskiptablaðsins, hefur stutt framkvæmdastjórann dyggilega og sat hjá þegar stjórn- in kallaði eftir þessum upplýsing- um. Fram kom vilji hjá stjórnar- mönnum til að gæta þagmælsku út á við, félagsins vegna, og gerði ég það. Stjórnin beið upplýsinga frá framkvæmdastjóra en í milli- tíðinni lýsti hann yfir framboði til formennsku og taldi ekki til- efni til að víkja af skrifstofunni meðan hann ræki framboð sitt. Í viðtölum sagði hann pólitík og blaðamennsku ekki eiga saman. Svo er nú það. Hann sá sér leik á borði og hugðist fljóta inn á pól- itískri óánægju í þægilegt sæti sem einvaldur á Blaðamannafé- laginu. Ég er ekki flokksbundin og hef ekki sóst eftir vegtyllum stjórn- málaflokka. En hér varð hrun, afþví að enginn taldi það hlut- verk sitt að gagnrýna og eftirliti var ekki sinnt. Fjölmiðlar sögðu glaðlega frá ársreikningum bank- anna korteri fyrir hrun, kynntum af sérfræðingum bankanna með glærusýningum. Mér finnst ekki fara vel á því árið 2010, ef það að biðja um upplýsingar og skrifa ekki upp á óséða hluti, sé að vega að æru manna eins og látið er að liggja í stuðningi við Hjálmar Jónsson. Dreg framboð til baka Ég hefði viljað halda áfram að vera formaður Blaðamannafélagsins og hrinda í framkvæmd ásamt stjórn, breytingum á rekstri félagsins. Fyrst og fremst hafði ég þó áhuga fyrir faglegu hlutverki þess um tjáningar- og prentfrelsi. Ég hefði viljað vera dæmd af verkum mínum en ekki skoðunum. Sú ósk gekk ekki eftir. Sé Hjálmari Jónssyni alvara með því að framboð hans og her- ferð gegn mér sé drifin áfram af pólitísku hreinlyndi þá býð ég fram sáttahönd. Ég dreg framboð mitt til baka og óska þess jafn- framt að hann sýni það dreng- lyndi að víkja sem framkvæmda- stjóri félagsins ætli hann að vera í stjórn. Ef ekki væri heiðarleg- ast að auglýstur yrði nýr aðal- fundur þar sem fleiri geta gefið kost á sér, nú þegar ljóst er að ég verð ekki í kjöri. Hjálmar Jónsson gæti þá haldið formannsframboði sínu til streitu og lagt það í dóm félagsmanna. Opið bréf til félagsmanna BÍ Fjölmiðlar Þóra Kristín Ásgeirsdóttir Formaður Blaðamanna- félags Íslands Stjórnin beið upplýsinga frá fram- kvæmdastjóra en í millitíðinni lýsti hann yfir framboði til formennsku og taldi ekki tilefni til að víkja af skrifstof- unni meðan hann ræki framboð sitt.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.