Fréttablaðið - 29.04.2010, Side 38
29. APRÍL 2010 FIMMTUDAGUR6 ● fréttablaðið ● burnout 2010
● LANDSMÓT Í HÚNA-
VERI Landsmót bifhjólafólks
verður haldið í Húnaveri dagana
fyrsta til fjórða júlí en það hefur
verið haldið ár hvert síðan 1987.
Mótið í ár er það tíunda sem hald-
ið er í Húnaveri.
Mótin hafa verð haldin í nafni
Sniglanna í gegnum árin en í ár
eru það Óskabörn
Óðins MC sem halda mótið. Allir vélhjólamenn eru vel-
komnir og vilja mótshaldarar sjá alla klúbbana fjölmenna
og setja upp tjaldbúðir en veitt verða verð-
laun fyrir þær flottustu. Þeir lofa fjölbreyttri
dagskrá að venju og verður Sniglabandið
fremst í flokki ásamt fleiri hljómsveitum.
Þá verða kappleikar, „burnout“-keppni
og ýmislegt fleira ásamt AA-fundum
fyrir óvirka alkóhólista. Á meðal
veiga má svo nefna landsmóts-
súpu á laugardagskvöld og
orkumikla morgunhressingu
alla morgna.
Í litlum bílskúr við Háaleitis-
brautina hefur Grímur Jónsson
vélsmiður unnið við að gera
upp afar fágætt mótorhjól
síðustu misserin.
Hjólið er af gerðinni Henderson,
sem er amerískt hjól framleitt á ár-
unum 1912-1931. Henderson-hjólin
voru með 4ra strokka toppventlavél
og þóttu fullkomin á sinni tíð. Þessi
gerð hjólsins var smíðuð stuttu eftir
að Ignaz Schwinn keypti Hender-
son-fyrirtækið 1917. Hjólin voru
framleidd í Detroit til að byrja með
en Schwinn flutti framleiðsluna til
Chicago. Þar voru þau framleidd
ásamt Excelsior-mótorhjólunum þar
til Schwinn hætti framleiðslu mótor-
hjóla 1931. Hönnuður hjólsins, Willi-
am Henderson, hélt reyndar áfram
framleiðslu 4ra strokka mótorhjóls
undir merkinu ACE sem var keypt
af Indian.
UMBOÐIÐ Á AKUREYRI
Ingólfur Esphólín flutti hjólið til
landsins en hann bjó á Akureyri.
Hvort hjól Gríms sé árgerð 1918
eða 1919 er erfitt að segja með vissu.
Hjólið er með bókstafinn Z í verk-
smiðjunúmeri sem segir að það sé
1919-árgerð en Espholin Co. byrjaði
að auglýsa mótor-reiðhjól 11. október
1918 í blaðinu Íslendingi. Hið rauða
„X“ er í merkinu á hjólinu, en það
var á DeLuxe-útgáfunni árið 1918.
Líklegt má telja að aðeins eitt
Henderson-hjól hafi ratað til lands-
ins. Það bar fyrst númerið RE-408
þegar það var í eigu Sigurðar I.
Hannessonar í Ánanaustum á ár-
unum fyrir seinna stríð en fékk
númerið R-1103 árið 1937. Hjólið
er svo afskráð 12. september 1938
eftir tveggja áratuga notkun.
FANNST Á BROTAJÁRNSHAUG
Grímur frétti fyrst af hjólinu þegar
honum var sagt frá mótor sem lík-
lega væri af mótorhjóli og stóð í vél-
smiðju Héðins í Reykjavík. Þetta
var árið 1963. Þannig komst hann
á sporið og eftir smá eftirgrennsl-
an kom í ljós að grindin og fleira úr
hjólinu var enn í gömlum brotajárn-
shaug í Ánanaustum. Vélin hafði
verið tekin úr hjólinu á uppgangsár-
um seinni heimsstyrjaldarinnar til
að nota í steypuhrærivél. Hún hafði
svo brætt úr einum stimpli og aldrei
farið í hjólið aftur. Grímur byrjaði
á uppgerðinni fyrir næstum tveim-
ur áratugum og smíðaði þá stimpla í
hjólið. Þá þurfti að steypa aftur þar
sem þeir fyrri voru alsettir eitlum
vegna of lítils kolefnis í steypunni.
Endurgerð hjólsins hófst svo ekki
fyrir alvöru fyrr en 2007. Grím-
ur keypti annan Henderson-mótor
nánast sömu gerðar úr flugvél og
notaði meðal annars stimpilstang-
ir úr honum. Grímur sá hins vegar
sjálfur um að smíða ventlastýring-
ar, stimpla, stimpilhringi, stimpil-
bolta, ventlagorma og ýmsar fóðr-
ingar í gömlum rennibekk í skúrn-
um hjá sér. Einnig rétti hann af
grindina og smíðaði smáhluti í hjól-
ið og ryðbætti bretti og fleira. Þurfti
Grímur að leita víða áður en hann
fékk rétt hnoð í brettin en þau fund-
ust í gamalli skúffu í Blikksmiðju
Reykjavíkur.
Í GANG EFTIR 70 ÁR
Þótt Grímur hafi endursmíðað stór-
an hluta hjólsins sjálfur aðstoðaði
Kristinn Sigurðsson hann við að
finna hluti sem margir komu að utan.
Gjarðir í hjólið komu frá Bandaríkj-
unum sem og rafkerfi en gúmmí í
handföng og fótborð frá Kanada. Í
Póllandi fannst sérfræðingur í gerð
hnakka fyrir þessar gerðir mótor-
hjóla og olíuþykktarmælirinn kom
alla leið frá Ástralíu. Grímur fékk
aðstoð völundar að nafni Guðni Ingi-
mundarson við að magna upp magn-
etuna í hjólinu og stilla hana ásamt
blöndungi fyrir gangsetningu.
Guðni er ekki óvanur endursmíði
gamalla véla enda hefur hann gert
upp margar bátavélar frá fyrri tíð.
Loks var hjólið sprautað hjá Sigurði
í Bílsetrinu í Mosfellsbæ.
Fyrsta púst vélarinnar var á gólf-
inu í skúrnum við Háaleitisbrautina
en fyrir rúmum þremur vikum var
mótorinn prufukeyrður og stillt-
ur fyrir suður í Garði og hafði þá
ekki verið gangsettur í sjö áratugi.
Henderson-hjólið er nánast fullgert
þótt enn sé eftir að smíða og laga fá-
eina hluti. Það verður frumsýnt al-
menningi á Burnout-sýningunni í
Kauptúni um komandi helgi. - ng
Steypuhrærivél aftur að mótorhjóli
Smiðurinn við dýrgripinn. MYND/TRYGGVI ÞORMÓÐSSON
Grímur smíðaði marga hluti í hjólið frá grunni.
Henderson 1918 IZ
Vél: 4ra strokka línuvél, IOE
Rúmtak: 67 ci/1100 cc
Slag/strokkmál: 3 x 2,53 tommur
Hestöfl: 14,2
Blöndungur: Schebler
Kveikja: Magneta
Gírkassi: 3ja gíra
Framgaffall: Henderson Spring
Fork
Bremsur: Bandabremsur
Dekk: 3x28 tommur
● ROKK, RÓL OG
MÓTOR HJÓL No-club
stendur fyrir balli á
skemmtistaðnum Play-
ers í Kópavogi að
kvöldi 1. maí, í tengsl-
um við hópkeyrslu mótor-
hjólamanna sem er farin
fyrr um daginn. Þar mun
bandið Síðasti séns leika
fyrir dansi og verður DJ
Mikkólf hljómsveitinni til
halds og trausts. Miða-
verð á ballið er
1.500 krónur. Áhugi
á mótorsporti er
ekki skilyrði fyrir
því að komast
inn og eru allir
velkomnir.
Bílabúð Benna og Kvartmílu-
klúbburinn voru stofnuð á
sama ári, 1975, og hefur saga
þeirra verið samofin alla tíð
síðan. Benedikt Eyjólfsson,
eigandi Bílabúðar Benna, var á
fyrstu árum Kvartmíluklúbbs-
ins virkur þátttakandi í kvart-
mílukeppnum og öllu sem teng-
ist mótorsporti á Íslandi. Alla
tíð síðan hefur Benedikt stutt
dyggilega við Kvartmíluklúbb-
inn og sportið sem slíkt og verið
mikill frumkvöðull í mótor-
sporti á Íslandi.
Bílabúð Benna og Kvartmílu-
klúbburinn hafa staðið saman
að fjölmörgum bíla- og mótor-
hjólasýningum í gegnum tíð-
ina og meðlimum Kvartmílu-
klúbbsins býðst afsláttur af
ýmsum vörum og þjónustu hjá
Bílabúð Benna. Bílabúð Benna
verður með sölubás á sýning-
unni Burnout 2010 þar sem
kynntar verða þær sérpantanir
sem fyrirtækið hefur gert fyrir
kvartmílubifreiðar.
Samofin saga
Bílabúð Benna og Kvartmíluklúbb-
urinn eiga jafn langa sögu og hafa
lengi fylgst að.