Fréttablaðið - 29.04.2010, Page 41
„Það er enginn uppgjafartónn
í okkur,“ segir Karl með mestu
rósemd og lýsir stöðunni nánar
frá sínum bæjardyrum. „Þegar
seinna gosið brast á og vegur-
inn fór í sundur sunnanlands
þurftum að koma fólki frá okkur
norðurleiðina. Við misstum öll við-
skipti í tíu daga en það er að koma
hreyfing á þau aftur og miðað við
hvernig vorið og sumarið líta út
í okkar bókum þá erum við bara
brött. Við höfum tækifæri til þess
með haustinu að vinna upp þetta
tap sem hefur orðið. Það er bara
verkefni að glíma við.“
Karl kveðst þó greina óvissu
hjá fólki sem eigi bókaða Íslands-
ferð. „Hingað er mikið hringt og
sent af tölvupósti til að spyrja
hver staðan sé. Við reynum að
leiðbeina fólki eftir bestu getu og
koma því í skilning um að ástand-
ið sé ekki eins ógnvænlegt og það
lítur út fyrir í sjónvarpinu. Hér sé
byggilegt enn og Klaustur á sínum
stað.“
Á Hótel Klaustri eru 57 her-
bergi, þar af tíu eins manns. „Ég
tek rúmlega hundrað manns í
gistingu,“ segir Karl og er í fram-
haldinu inntur eftir veitinga-
sölu. „Morgunmaturinn er seldur
sérstaklega. Svo leggjum við mikið
upp úr kvöldmatnum en minna er
um matargesti um miðjan dag-
inn nema hópa sem hafa pantað
fyrirfram.“
Eldsumbrotin í Eyjafjallajökli
hafa rifjað upp sögur um Kötlu-
hlaup, Öræfajökulsgos og Skaft-
árelda. „Þetta er auðvitað ekki
það versta sem hefur dunið yfir
hér,“ segir Karl. „Það eru virkar
eldstöðvar allt í kringum okkur og
þegar við sem stundum ferðaþjón-
ustu á svæðinu höfum sest niður til
að greina hvað sé jákvætt og hvað
neikvætt við svæðið þá munum
við alltaf eftir því.“ Spurður hvort
hann sé sárreiður forsetanum fyrir
að minnast á Kötlu í erlendum fjöl-
miðlum svarar hann: „Forsetinn
hefði alveg getað látið þetta ósagt.
Auðvitað er Katla viss vá en hann
hefði mátt sleppa því að minnast á
hana í þessu samhengi.“
Til framtíðar litið telur Karl eld-
gosin að undanförnu geta orðið
landinu til framdráttar. „Ísland
hefur aldrei fengið aðra eins
kynningu og núna, þó með þess-
um hætti sé,“ segir hann. „Von-
andi kveikir hún forvitni hjá ein-
hverjum og áhuga á að heimsækja
okkur.“ gun@frettabladid.is
Klaustur enn
á sínum stað
Karl Rafnsson, hótelstjóri á Hótel Klaustri á Kirkjubæjarklaustri, lítur
björtum augum á framtíðina þótt röskun hafi orðið á rekstrinum
þessar vikurnar, vegna elds og flóða úr Eyjafjallajökli.
„Við reynum að leiðbeina fólki eftir bestu getu og koma því í skilning um að ástand-
ið sé ekki eins ógnvænlegt og það lítur út fyrir í sjónvarpinu,“ segir Karl hótelstjóri á
Hótel Klaustri. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Að sýningunni standa mark-
aðsstofur landshlutanna í
ferðaþjónustu, Ferðaþjónusta
bænda, Opinn landbúnaður og
Beint frá býli. Gestum verður
boðið að ganga hringinn í kring-
um landið og fá smjörþefinn
af því besta sem ferðalöngum
stendur til boða í sumar. Hver
landshluti kynnir sínar perlur og
áhugaverða staði til að skoða
og heimsækja.
Tilgangurinn með sýningunni
er að kynna fjölbreytileikann í
ferðaþjónustu á Íslandi, veita
almenningi tækifæri til að koma á einn stað í þeim tilgangi að kynna sér
ferðaþjónustuna á Íslandi, smakka, skoða, spjalla og spyrja. Einnig að koma
á framfæri nýjungum á komandi sumri og leyfa fólki að kynna sér náttúru-
tengda ferðamennsku eins og fugla-, sela- og hvalaskoðun. Beint frá býli
kynnir og sýnir á sýningunni innlenda matarframleiðslu.
Aðgangur er ókeypis en sýningin stendur frá 10 til 17 báða dagana.
Íslandsperlur í Perlunni um helgina
FERÐASÝNINGIN ÍSLANDSPERLUR FER FRAM Í PERLUNNI 1. OG 2. MAÍ.
Fagur regnbogi í Norðurárdal.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Noma í Kaupmanna-
höfn hefur verið valinn
besti veitingastaður
heims en hann trónir
efst á lista S.Pellegrino
yfir 50 bestu veitinga-
hús heims árið 2010.
www.freisting.is
MATUR OG GISTING
Dýrasta hótelherbergi heims er kon-
unglega villan í Grand Resort Lagon-
issi í Aþenu. Nóttin kostar sex milljónir
króna en herberginu fylgir sundlaug,
einkaströnd og píanóleikari.
www.turisti.is
á glæsilegu sveitasetri í fallegu og afslöppuðu umhverfi.
Ráðstefnur og fundarhöld
Ef halda skal veislu, námskeið eða hópefli eru fáir staðir betur staðsettir en Grímsá sveitasetur
og Veiðihúsið við Laxá í Kjós. Við tökum að okkur allar tegundir af veislum og uppákomum.
Bæði húsin taka allt að 40 manns í gistingu sem leigjast með eða án þjónustu.
3 rétta máltíð, gisting
og morgunverðarhlaðborð
frá kr. 9.900,- á mann.
TILBOÐ :
Pöntunarsímar: 618 0083 & 437 0083
www.grimsa.is
Í Veiðihúsinu við Laxá í Kjós
er stór og vandaður veislusalur
sem tekur allt að 100 manns í
sæti og með gistingu fyrir allt að
50 manns.
Veiðihúsið í Kjós Grímsá Veiðihús
Í veiðihúsinu við Grímsá er
glæsilegur salur sem tekur allt að
70 manns í sæti og gisting fyrir allt
að 36 manns. Í húsinu er gufubað
og heitur pottur svo hægt er að
slaka vel á eftir góðan dag.
Verkalýðsdagurinn á Einari Ben
Í tilefni Verkalýðsdagsins 1. maí býður Einar Ben
5 rétta Stolt matreiðslumeistarans á aðeins 5.900 kr.
3 rétta Stolt matreiðslumeistarans á aðeins 4.500 kr. dagana 1. og 2. maí
Bo
rða
pan
tan
ir
í sí
ma
51
1-5
090
Upplýsingar á www.einarben.is og www.smakkarinn.is