Fréttablaðið - 29.04.2010, Page 54
29. apríl 2010 FIMMTUDAGUR
Fylgirit Fréttablaðsins
• Meðlimir Who
Knew börðu hver
annan í klessu
í myndbandi.
• Ofurskutlan Lilja
Ingibjörg og grófu
spurningarnar sem
hún svaraði ekki
á Netinu.
Hundarnir veiða þar sem
skinkurn ar djamma:
• Popp kortleggur
sukkið í 101.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Fimmtudagur 29. apríl 2010
➜ Kvikmyndahátíð
Ítölsk kvikmyndahátíð undir yfirskrift-
inni Sögur af innflytjendum fer fram í
Norræna húsinu við Sturlugötu 29. apríl
til 3. maí. Enginn aðgangseyrir og allir vel-
komnir. Enskur texti. Nánari upplýsingar á
www.nordice.is.
20.00 Sýnd verður kvikmynd Emanuele
Crialese Nuovomondo (2006).
➜ Tónleikar
20.30 Bubbi Morthens heldur tónleika
í Bíóhöllinni við Vesturgötu á Akranesi.
Húsið verður opnað kl. 20. Enginn
aðgangseyrir.
21.00 Trúbatrixur standa fyrir tónleikum
á Cafe Rósenberg við Klapparstíg. Fram
koma Myrra Rós, Halla Norðfjörð, Elín Ey,
Sigga Eyþórs, Johnny Stonghands, Toggi
og Helgi Valur.
21.00 Kvartettinn Þel kemur fram á
tónleikum Jazzklúbbsins Múlans sem
fara fram í kjallara Cafe Cultura við
Hverfisgötu 18.
21.00 Uwaga Wagga, sem er samstarfs-
verkefni tónlistarmanna frá Bosníu, Pól-
landi, Danmörku og Íslandi, stendur fyrir
tónlistaruppákomu á Græna Hattinum
við Hafnarstræti á Akureyri. Djass, folk og
elektró.
21.30 Kanadíska hljómsveitin Woodpig-
eon heldur tónleika á Sódómu Reykjavík
við Tryggvagötu. Einnig koma fram Pascal
Pinon, Mukkaló og Útidúr. Húsið verður
opnað kl. 21.
22.00 Lights on the Highway halda
órafmagnaða tónleika á Dillon við Lauga-
veg 30.
22.00 Hljómsveitin Dúndurfréttir held-
ur tónleika á NASA við Austurvöll. Húsið
verður opnað kl. 20. Nánari upplýsingar á
www.midi.is.
➜ Sýningar
Sýningu Kristjáns Péturs Sigurðssonar
á Kaffi Karólínu við Kaupvangsstræti á
Akureyri hefur verið framlengt til 7. maí.
Opið mán.-fim. kl. 11.30-01, fös. og lau.
kl. 11.30-03 og sun. kl. 14-01.
BÓKSÖLULISTINN
Listinn er birtur á tveggja vikna fresti og mælir sölu íslenskra bóka.
Listinn er byggður á upplýsingum frá flestum bóksölum landsins,
dagvöruverslunum og öðrum verslunum sem selja bækur. Rann-
sóknarsetur verslunarinnnar annast söfnun upplýsinga fyrir hönd
Félags íslenskra bókaútgefenda.Eftirfarandi verslanir taka Þátt í
gerð listans: Bókabúð Máls og menningar, Bókabúðin Eskja, Bóka-
búðin Hamraborg, Bókabúðin Iða, Bókabúðin við höfnina (Stykk-
ishólmi), Bóksala stúdenta, Bónus, Hagkaup, Kaupás, N1, Office 1,
Penninn - Eymundsson, Samkaup
Metsölulisti 12.04.10 - 24.04.10
Nr. Titill Höfundur Forlag/útgefandi
1. Rannsóknarskýrsla Alþingis Rannsóknarnefnd Alþingis Alþingi
2. Hafmeyjan Camilla Läckberg Undirheimar
3. Maxímús músikús trítlar í tónlistarskólann Hallfríður Ólafs-
dóttir Mál og menning
4. Nemesis Jo Nesbø Uppheimar
5. Hvorki meira né minna Fanney Rut Elínardóttir N29
6. Góða nótt, yndið mitt Dorothy Koomson JPV útgáfa
7. Fyrirsætumorðin James Patterson JPV útgáfa
8. Sítrónur og saffran Kajsa Ingemarsson Mál og menning
9. Vetrarblóð Mons Kallentoft Undirheimar
10. Póstkortamorðin Liza Marklund/James Patterson JPV útgáfa
Uppsafnaður metsölulisti tímabilið 01.01.10-24.04.10
1. Rannsóknarskýrsla Alþingis Rannsóknarnefnd Alþingis Alþingi
2. Póstkortamorðin Liza Marklund/James Patterson JPV útgáfa
3. Loftkastalinn sem hrundi Stieg Larsson Bjartur
4. Stúlkan sem lék sér að eldinum Stieg Larsson Bjartur
5. Svörtuloft Arnaldur Indriðason Vaka-Helgafell
6. Hafmeyjan Camilla Läckberg Undirheimar
7. Góða nótt, yndið mitt Dorothy Koomson JPV útgáfa
8. Þegar kóngur kom Helgi Ingólfsson Ormstunga
9. Meiri hamingja Tal Ben Shahar Undur og stórmerki
10. Horfðu á mig Yrsa Sigurðardóttir Veröld
Leiklist ★★★★
Glerlaufin eftir Philip Ridley
Leikarar: Lilja Guðrún Þorvalds-
dóttir, Jóel Sæmundsson, Ólafur
S.K. Þorvaldz, Vigdís Másdóttir
Framleiðendur og sviðsmynd:
Alheimurinn ehf. og Börn Loka
Búningar: Thelma Björk Jónsdóttir
Ljós: Arnar Ingvarsson
Tónlist: Védís Hervör Árnadóttir
Aðstoðarleikstjóri: Þóra Karítas
Árnadóttir
Leikstjóri: Bjartmar Þórðarson
Frumsýning á Norðurpólnum á
laugardagskvöldið. Maður hlýt-
ur að eiga að segja á Norðurpóln-
um og ekki í Norðurpólnum þó
svo að sýningin sé vitaskuld inni
í þessu bráðskemmtilega leikhúsi
eða öllu heldur fjöllistahúsi sem
áður hýsti plastframleiðslu úti á
Seltjarnarnesi.
Leikhópur undir leikstjórn
Bjartmars Þórðarsonar kynnir
okkur fyrir fjölskylduharmleik
þar sem meðvirkni og lygi ræður
ríkjum.
Glerlaufin er stutt og þétt leik-
rit um tvo bræður sem eru ólík-
ari en allt en þó samtvinn-
aðir af uppeldi sínu og
sameiginlegum hremm-
ingum í bernsku. Barry
er drykkfeldur mynd-
listarmaður en Steven
er hinn ábyggilegi
fyrirtækisforstjóri
með glerborð og
plaststóla á full-
komnu heimili
með fallega eig-
inkonu. Móðir
þeirra skopp-
ar á milli
þeirra
eins og
badmin-
tonkúla
allt eftir því hvernig slegið er
hverju sinni.
Höfundur verksins, Philip
Ridley, nam málaralist í St.Mar-
tin School of Art og hefur sýnt
verk sín um gjörvalla Evrópu og
í Japan. Hann hóf feril sinn sem
gjörningalistamaður.
Þetta er eilífðarspurning um
hver er saklaus og hver er sekur,
hver stendur sig vel og hver
stendur sig illa og hvað er að
vera góð manneskja: Barry á við
áfengisvanda að stríða og bróðir
hans gerir allt sem í hans valdi
stendur til þess að halda honum
á beinu brautinni og móðirin við-
heldur hlutverkaskipan sem hald-
ist hefur óbreytt frá bernsku þá
er faðir þeirra framdi sjálfsmorð
sem hún hefur líklega aldrei
alveg meðtekið eða viljað horfast
í augu við.
Þetta er vel skrifað og vel þýtt
drama (hver þýðir?) þar sem hvert
hlutverk er skýrt og afmarkað og
þó svo að sagan sé kunnugleg og
margsögð er hún engu að síður
spennandi, á stundum skondin, þó
harmleikurinn sé undirliggjandi.
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir leik-
ur miðaldra móður drengjanna
sem hún af sjúklegri meðvirkni
sinni vaggar inn í hverja vitleys-
una á fætur annarri. Lilju Guð-
rúnu tekst undravel að koma
hinni hræddu en vamm-
lausu konu til skila.
Það er mergjaður
kraftur í hverri
hreyfingu og
henni tekst svo
skemmtilega
að sýna lyg-
ina með öllum
þeim yfirbreiðslum sem einkenn-
ir fársjúka eiginkonu alkóhólista
sem mun aldrei horfast í augu við
sannleikann. Hún leikur á alla
sína skondnu strengi og áhorf-
endur njóta hverrar kexköku sem
hún deilir út til að trufla og eyða
því tali sem upp kemur.
Bræðurnir eru ólíkir og hlut-
verk þeirra mjög skýrt afmörk-
uð þegar í bernsku. Barry sem
staðið hafði föður sínum nær
vinnur aldrei úr þeim harmi sem
föðurmissirinn olli honum né
þeirri niðurlægingu sem hann
varð fyrir hjá ókunna mannin-
um. Sem sagt ansi hreint kunn-
uglegt þema um orsakir rugl-
aðs lífs. Ólafur S.K. Þorvaldz fer
með hlutverk Barrys og tekst vel
að koma hinum öra en skilnings-
ríka dreng til skila. Hann er sá
sem hefur sannleikann í hendi sér
og vill koma honum upp á yfir-
borðið en hin eru bara stolt af því
að hann skuli vera edrú og með
spurninguna á vörunum alla daga
um hvort hann sé nú nokkuð far-
inn að drekka, eða hæla honum
fyrir að vera svona edrú.
Steven er öllu flóknari persóna
í leiknum og fer Jóel Sæmunds-
son með það hlutverk og hann á
ekki í nokkrum vandræðum með
að koma hinum undirliggjandi
sársauka og reiði til skila. Vig-
dís Másdóttir leikur eiginkonuna
sem er í senn puntudúkka og leit-
andi að hamingju sem hún held-
ur sig finna í fínni innréttingu.
Vonandi vakna stúlkur af þeim
draumi einhvern tíma en Vigdís,
sem íðilfögur gerir manni sínum
allt til geðs, sýnir hér að hún býr
yfir styrk og skopskyni auk þess
sem hún, þrátt fyrir að vera svo
bæld hér, hefur mikla útgeisl-
un. Glerlaufin eru gjafir keyptar
fyrir fé fengið með sársauka.
Elísabet Brekkan
Niðurstaða: Klassísk lítil vel sögð
saga í leikmynd sem hentaði
innihaldinu.
Hver þolir dagsljósið?
LEIKLIST
Lilja Guðrún Þor-
valdsdóttir leikur
stórt hlutverk í Gler-
laufunum sem sýnd eru
á Norðurpólnum á
Seltjarnarnesi.
MYND FRÉTTABLAÐIÐ