Fréttablaðið - 29.04.2010, Page 56
40 29. apríl 2010 FIMMTUDAGUR
tonlist@frettabladid.is
TÓNNINN GEFINN
Trausti Júlíusson
Vel heppnaðri barnamenningarhátíð í Reykjavík lauk á sunnudaginn
með tónleikum í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Þar voru lög af Vísna-
plötunum tveimur sem Bókaútgáfan Iðunn gaf út á áttunda áratugnum
flutt af stórum hópi söngvara og hljóðfæraleikara. Þessar plötur sem nú
hafa verið endurútgefnar eru einstakar í poppsögunni. Hugmynd þeirra
Iðunnarmanna að fá tvo af fremstu poppurum
þess tíma, Gunnar Þórðarson og Björgvin
Halldórsson, til að útsetja og hljóðrita vísur
úr þessari vinsælu bók hitti alveg í mark. Þeir
Gunni og Bjöggi sem báðir bjuggu í London
fengu þriðja íslenska popparann í borginni,
Tómas Tómasson, í lið með sér og fyrri plat-
an, Einu sinni var, var tekin upp í Ramport-
hljóðveri Who-manna sumarið 1976 að mestu
leyti með enskum hljóðfæraleikurum.
Útsetningarnar sem Gunnar skrifaði tókust
sérstaklega vel og vinnsla plötunnar var í sér-
flokki. Hún náði algjörri metsölu. Tuttugu
þúsund eintök seldust á skömmum tíma og í
dag er hún komin að minnsta kosti í fjörutíu þúsund. Ári seinna var leik-
urinn endurtekinn með plötunni Út um græna grundu. Plöturnar fengu
góða dóma, en samt voru þeir til sem höfðu áhyggjur af þessum nýstár-
legu útsetningum og gagnrýnanda Alþýðublaðsins fannst Einu sinni var
allt of amerísk. Og vissulega voru útsetningarnar alþjóðlegar en ekki
þjóðlegar. Stóð ég út í tunglsljósi hefur til dæmis stóra útsetningu í anda
Phils Spector, Bokki sat í brunni er kántrískotið, Hann Tumi fer á fætur
er í reggítakti og svo framvegis. Það er farið um víðan völl, en allt geng-
ur upp. Það er sennilega ekki tilviljun að þeir Gunni, Bjöggi og Tommi
hafa síðan verið á meðal öflugustu hljóðupptökumanna Íslands.
Nýja útgáfan er mjög flott. Plöturnar koma saman bundnar inn í 36
bls. harðspjaldabók sem í eru allir textar, umfjöllun um gerð platnanna
og myndir. Þetta bókaform er nokkuð vinsælt í geisladiskaútgáfu í dag
og oft notað þegar um veglegar endurútgáfur eða söfn er að ræða. Hér á
það hins vegar sérstaklega vel við. Vísnaplötubók!
40 þúsund eintökum seinna
FLOTT ENDURÚTGÁFA Einu
sinni var og Út um græna
grundu eru komnar út saman
í glæsilegri útgáfu.
> Í SPILARANUM
Quadruplos - Quadruplos
Jamie Lidell - Compass
Plants And Animals - La La Land
Steve Sampling - Milljón mismunandi manns
The National - High Violet
QUADRUPLOS THE NATIONAL
Tónlistarkonan Elíza New-
man gefur út lagið sitt Eyja-
fjallajökull um allan heim á
morgun. Henni var boðinn
útgáfusamningur við plötu-
fyrirtækið Your Favorite
Music til að gefa lagið út og
höfundarréttarsamningur
við fyrirtækið Quite Great.
Síðasta vika hefur verið afar
viðburðarík hjá Elízu þar sem
henni var boðið að koma fram á
Al Jazeera-sjónvarpstöðinni til
að hjálpa erlendu fólki að bera fram orðið
Eyjafjallajökull. Til þess samdi hún lítið
lag á úkúlele sem kallast Eyjafjallajök-
ull og sló það í gegn. Þessi frétt
varð ein sú vinsæl-
asta á Al Jazeera
fyrr og síðar og var
endursýnd mörgum
sinnum. Hún var einnig
sett á Netið og síðast-
liðna viku hafa 200 þúsund
manns horft á myndbandið.
Umfjöllun um lagið hefur
birst í New York Times,
Huffington Post, The Daily
Telegraph og í fleiri frétta-
miðlum um allan heim.
Elíza gerði samning
ELÍZA NEWMAN Tónlistarkonan Elíza
Newman gefur út lagið Eyjafjallajökull
um allan heim á morgun.
Kanadísku rokkararnir í Wolf
Parade undirbúa nú útgáfu þriðju
breiðskífu sinnar. Seint á síðasta
ári tóku meðlimir sveitarinnar sér
pásu frá hinum böndunum sínum
(Sunset Rubdown, Handsome Furs,
Swan Lake, Moonface) til að taka
upp plötuna sem kallast Expo 86.
Platan kemur út í júní eða júlí á
vegum Sub Pop.
Síðasta plata Wolf Parade var
At Mount Zoomer sem kom út árið
2008. Hún fékk nokkuð góðar við-
tökur en féll algerlega í skuggann
af fyrstu plötu sveitarinnar, meist-
araverkinu Apologies to the Queen
Mary. Sú plata kom út árið 2005 og
sama ár spilaði Wolf Parade á eftir-
minnilegum tónleikum á Gauki á
Stöng á Iceland Airwaves.
Dan Boeckner, einn meðlima
Wolf Parade, ræddi nýju plötuna
í viðtali við Pitcfork á dögunum.
Þar sagði hann að hann hefði ekki
skemmt sér jafn vel við upptökur á
Wolf Parade-plötu áður. „Nýja plat-
an er mun markvissari en sú síð-
asta. Það er meiri kraftur á henni
en ég get ekki borið hana saman
við Apologies því það virðist svo
langt síðan við gerðum þá plötu.
Ég veit ekki hvort nýja platan er
blanda af hinum tveimur; hún er
klárlega öðruvísi en þær báðar.
Þetta hljómar eins og hljómsveit
að spila á tónleikum,“ segir hann.
Styttist í plötu Wolf Parade
Svokallaðir handboltarokk-
arar eiga gósentíð í vænd-
um miðað við þær plötur
sem líta nú dagsins ljós
hver á fætur annarri. Það
eru hljómsveitirnar God-
smack, Stone Temple Pilots,
Good Charlotte, Bullet For
My Valentine og Drowning
Pool sem bjóða í veisluna.
Godsmack gefur út sína fimmtu
hljóðversplötu, The Oracle, 4. maí
næstkomandi. Sveitin kemur frá
Massachusetts í Bandaríkjunum
og var stofnuð árið 1995 af for-
sprakkanum Sully Erna, sem hefur
nefnt hinn sáluga Laney Staley úr
Alice In Chains sem helsta áhrifa-
vald sinn. Tvær plötur sveitarinn-
ar, Faceless og IV, hafa komist í
efsta sæti Billboard-sölulistans.
Hafa þær fest hana í sessi sem
eina vinsælustu þungarokkssveit
síðasta áratugar í Bandaríkjun-
um, enda hafa plötur hennar selst
í yfir nítján milljónum eintaka um
heim allan. Á meðal vinsælustu
laga Godsmack eru Straight out
of Line, Awake og I Stand Alone
sem hljómaði í ævintýramyndinni
The Scorpion King.
Stone Temple Pilots öðlaðist
heimsfrægð þegar grunge-bylgj-
an reist hátt í byrjun tíunda ára-
tugarins. Sveitin fékk Grammy-
styttu fyrir slagarann Plush og
hafa plötur sveitarinnar selst í
tæpum fjörutíu milljónum eintaka.
Geri aðrir betur. Stone Temple
hætti störfum 2003 eftir slags-
mál söngvarans Scotts Weiland
og gítarleikarans Deans DeLeo
og eftir það gekk Weiland til liðs
við Velvet Revolver. Núna hefur
Stone Temple Pilots verið endur-
reist, allir eru orðnir vinir aftur
og fyrsta hljóðversplatan í níu ár
kemur út 25. maí. Athygli vekur að
Atlanta gefur plötuna út en fyrir-
tækið höfðaði fyrir tveimur árum
mál gegn Weiland og tromm-
aranum Eric Kretz fyrir meint
samningsbrot.
Good Charlotte spilar létt pönk-
rokk í anda Blink 182 og Green
Day. Fimmta plata sveitarinnar,
Cardiology, er væntanleg 11. maí.
Good Charlotte, sem er nefnd
eftir samnefndri barnabók, var
Gósentíð handboltarokkara
PUNGSVEITT
ROKKVEISLA
Rokkararnir í God-
smack gefa út sína
fimmtu hljóð-
versplötu, The
Oracle, 4. maí
næstkomandi.
Scott Weiland
er mættur aftur
með Stone Temple
Pilots eftir langt
hlé. Joel Madden
er forsprakki Good
Charlotte sem gefur út
Cardiology 11. maí.
WOLF PARADE Strákarnir frá Montreal í
Kanada mæta með þriðju plötu sína í
sumar.
Sharon Osbourne hefur upplýst
að kvikmynd verði gerð um líf
eiginmanns hennar, rokkarans
Ozzy Osbourne. „Þetta kemur
allt fljótlega í ljós. Það er búið
að kaupa réttinn og nú fer fram-
leiðslan að hefjast,“ segir Sharon.
Engir leikarar hafa enn verið
ráðnir í myndina en Sharon full-
yrðir að nægir peningar séu fyrir
hendi til að framleiða myndina.
Þó verði að líkindum óþekktir
leikarar í aðalhlutverkunum.
Kvikmynd
um ævi Ozzy
Osbourne
stofnuð í Maryland í Bandaríkjun-
um 1995. Önnur plata sveitarinn-
ar, The Young And The Hopeless,
skaut henni upp á stjörnuhimin-
inn og sömuleiðis söngvaranum
Joel Madden. Einkalíf hans hefur
verið áberandi í fjölmiðlum, sér-
staklega eftir að hann byrjaði með
raunveruleikastjörnunni Nicole
Richie. Þau eiga tvö börn saman
og ætla að ganga upp að altarinu
á næstunni.
Drowning Pool spilar eilítið
harðara rokk, nokkuð í anda
Godsmack. Fjórða plata sveitar-
innar, samnefnd henni, kom út
á þriðjudaginn. Drowning Pool
var stofnuð í Dallas 1996 og er á
mála hjá útgáfufyrirtækinu Ele-
ven Seven Music ásamt sveitum á
borð við Mötley Crüe og Blondie.
Tíð söngvaraskipti hafa verið hjá
Drowning Pool. Eftir að upphaf-
legi söngvarinn Dave Williams
lést úr hjartasjúkdómi 2002 aðeins
þrítugur hljóp Jason Jones í hans
skarð. Eftir að hann hætti gekk
Ryan McCombs til liðs við sveitina
áður en Full Circle kom út 2007 og
er hann enn að.
Bullet For My Valentine kemur
frá Wales og spilar þungarokk
þar sem gamaldags gítartilþrif
eru áberandi. Sveitin hóf störf
með því að spila lög Metallica og
Nirvana undir nafninu Jeff Kill-
ed John. Árið 2002 gerði hún fimm
platna samning við Sony BMg
og kom fyrsta platan, The Poi-
son, út 2005. Sveitin, sem gaf út
sína þriðju plötu, Fever á þriðju-
dag, hefur selt yfir tvær milljónir
platna á ferli sínum.
freyr@frettabladid.is
N
O
R
D
IC
PH
O
TO
S/G
ETTY