Fréttablaðið - 29.04.2010, Side 70
54 29. apríl 2010 FIMMTUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
MORGUNMATURINN
LÁRÉTT
2. örverpi, 6. í röð, 8. örn, 9. fæða,
11. samanburðart., 12. úrræði, 14.
afkima, 16. pot, 17. æðri vera, 18. lík,
20. númer, 21. merki.
LÓÐRÉTT
1. skraf, 3. guð, 4. þrykk, 5. málmur,
7. gera óvandlega, 10. umfram, 13.
pumpun, 15. sjá eftir, 16. mælieining,
19. kind.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. urpt, 6. jk, 8. ari, 9. ala,
11. en, 12. lausn, 14. skoti, 16. ot, 17.
guð, 18. hræ, 20. nr, 21. mark.
LÓÐRÉTT: 1. hjal, 3. ra, 4. prentun,
5. tin, 7. klastra, 10. auk, 13. sog, 15.
iðra, 16. ohm, 19. ær.
„Við erum ekki svona vitlausir eins
og hinn klúbburinn, að hleypa hverj-
um sem er inn,“ segir útvarpsmað-
urinn Andri Freyr Viðarsson.
Fréttablaðið fjallaði í gær um
aðdáendaklúbb Rods Stewart sem
söngvararnir Daníel Ágúst Haralds-
son, Birgir Ísleifur Gunnarsson og
Krummi Björgvinsson stofnuðu um
helgina. Fullyrtu þeir að klúbbur-
inn væri sá fyrsti sem heiðraði Rod
Stewart á Íslandi, en það fór fyrir
brjóstið á Andra Frey sem stofn-
aði aðdáendaklúbbinn Rodway, til
heiðurs Rod Stewart, í fyrra.
„Þetta er virkilega særandi.
Ég var mjög ánægður þegar ég sá
myndina af tveimur góðum mönn-
um og mikið af fallegum plötum.
Svo rak ég augun í að þeir sögðust
hafa stofnað fyrsta Rod Stewart-
klúbbinn. Það særði,“ segir Andri
Freyr, en hann er staddur á Íslandi
þessa dagana en býr sem kunn-
ugt er í Kaupmannahöfn. „Rodway
var stofnaður síðasta haust í Kaup-
mannahöfn.“
Er klúbburinn danskur?
„Nei, hann er íslenskur. Við vorum
þrír Íslendingar sem sátum heima
og vorum að hlusta á karlinn.“
Stofnmeðlimir Rodway ásamt
Andra eru Aðalsteinn Möller, einn-
ig þekktur sem Alli í Útlögunum, og
kvikmyndagerðarmaðurinn Daði
Jónsson. Níu meðlimir eru í Rod-
way í dag og nú velta þeir fyrir sér
að fara í pílagrímsferð til Malmö í
sumar, þar sem Rod Stewart verður
með tónleika. „Þetta er stóra stund-
in,“ segir Andri og bætir við að eng-
inn meðlimur klúbbsins hafi enn séð
Gamla rám á sviði. „Það er ekkert
hlaupið að því að sjá kallinn.“ - afb
Ég stofnaði fyrsta Rod Stewart-klúbbinn
STOFNAÐI RODWAY Í FYRRA Andri Freyr segist vera í fyrsta íslenska aðdáendaklúbbi
Rods Stewart. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Hljómsveitin Retro Stefson mun
hita upp fyrir Amadou og Miriam
á opnunartónleikum Listahátíðar í
Reykjavík sem fram fara 12. maí
næstkomandi.
Unnsteinn Manuel Stefánsson,
meðlimur Retro Stefson, er mikill
aðdáandi tónlistarfólksins frá Malí
og hefur ákveðið að taka sér frí frá
Evróputúr með hljómsveitinni FM
Belfast til þess eins að geta komið
fram á Listahátíðinni. „Ég varð að
koma heim ef Retro Stefson átti að
geta spilað á tónleikunum þar sem
ég er söngvari hljómsveitarinn-
ar. Ég flýg heim frá Frankfurt og
svo aftur út til Parísar að tónleik-
unum loknum. Ég missi reyndar af
einum tónleikum með FM Belfast
fyrir vikið en það bjargast,“ segir
Unnsteinn, sem flaug út til Boston
í gær ásamt öðrum meðlimum FM
Belfast, en tónleikaferðalagi þeirra
lýkur í lok maí.
„Ég kem aftur heim í lok maí og
útskrifast þá úr Menntaskólanum
við Hamrahlíð. Þar sem ég er úti á
próftíma tek ég eitt próf í íslenska
sendiráðinu í Berlín. Maður fer eftir
ýmsum krókaleiðum til að láta allt
ganga upp,“ segir hann og hlær. „Ég
vona bara að flugsamgöngur stand-
ist því það er nokkuð tæpt hjá mér
að fljúga þarna heim til að spila á
Listahátíðinni.“
Unnsteinn segir tónlist malísku
listamannanna mjög líflega og
einnig séu þau óhrædd að bræða
heimstónlist saman við aðrar tón-
listarstefnur líkt og raftónlist. „Ég
er mjög spenntur fyrir tónleikun-
um, enda erum við bræðurnir mikl-
ir aðdáendur. Ég vona einnig að fjöl-
skylda mín og vinir kíki á tónleikana
þar sem það verður eini tíminn sem
ég hef til að hitta fólkið mitt í þessu
stutta stoppi. Mig langar einnig að
taka fram að boðskortum í útskrift-
arveisluna verður dreift á tónleik-
unum sjálfum,“ segir Unnsteinn og
hlær. sara@frettabladid.is
UNNSTEINN MANUEL: FER KRÓKALEIÐIR SVO TÓNLEIKAHALDIÐ GANGI UPP
Klárar stúdentinn á miðj-
um Evróputúr FM Belfast
Á FERÐ OG FLUGI Unnsteinn Manuel Stefánsson, meðlimur hljómsveitarinnar Retro
Stefson, tekur sér frí frá Evróputúr með hljómsveitinni FM Belfast til að hita upp fyrir
Amadou og Miriam á Listahátíð í Reykjavík. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
„Ég fæ mér oftast bara kaffi og
hafragraut með hunangi.“
Lilja Jónsdóttir kvikmyndagerðarkona.
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á síðu 8
1 Páll Gunnar Pálsson.
2 Rod Stewart-klúbbnum.
3 Hjalti Jón Sveinsson.
„Nei, það hefur enginn af þessum
aðilum sett sig í samband við mig,“
segir Sveinn Björnsson, fram-
kvæmdastjóri Cube Properties, en
félagið á húsnæðið þar sem kvik-
myndahúsið Regnboginn er rekið
við Hverfisgötu. Eins og Frétta-
blaðið hefur greint frá rennur leigu-
samningur dreifingarfyrirtækisins
Senu og Cube Properties út um ára-
mótin. Ekki stendur til að endurnýja
hann. Nokkrir aðilar hafa sýnt því
áhuga að taka yfir reksturinn og
stofna þar ýmist listakvikmynda-
hús eða kvikmyndasetur. Á Hressó
á þriðjudagskvöld kom hópur fólks
saman til að stofna grasrótarsam-
tök í kringum svokallað arthouse-
kvikmyndahús og þá hafa íslenskir
kvikmyndagerðarmenn sýnt hús-
næðinu áhuga en Kvikmyndamið-
stöð Íslands flytur á aðra hæð hús-
næðisins innan skamms.
Sveinn segir engan af þessum
aðilum hafa sett sig í samband
við sig. Nú sé hins vegar verið að
þreifa fyrir sér og tala við hina og
þessa aðila um hugsanlega aðkomu.
Sveinn segir það ekki sjálfgefið að
í húsinu verði rekið kvikmyndahús
og bendir á að ekki séu margir um
hituna á þeim markaði. Það sé því
ekki ólíklegt að kvikmyndasýning-
ar leggist af í Regnboganum og sá
möguleiki hafi verið ræddur. Þar
með hyrfi síðasta kvikmyndahúsið
úr miðborg Reykjavíkur.
Cube Properties var áður í eigu
Samson Properties sem var hluti af
fasteignaveldi Björgólfsfeðga. Eftir
að eigendur Samson Properties
höfðu verið úrskurðaðir gjaldþrota
var skipaður bússtjóri sem fer með
sjötíu prósenta hlut í félaginu fyrir
hönd kröfuhafa. -fgg
Enginn hefur sýnt Regnboganum áhuga
ALLIR MÖGULEIKAR METNIR Sveinn
Björnsson, framkvæmdastjóri Cube
Properties, segir ekki sjálfgefið að
áframhald verði á kvikmyndasýningum í
Regnboganum.
Hún vakti nokkra
athygli, fréttatilkynning-
in frá Forlaginu um sókn
Stefáns Mána til Frakk-
lands en Fransmennirnir
fá bráðum að gæða
sér á spennusög-
unni Svartur á
leik. Það var þó
ekki sú staðreynd
sem fangaði augu margra heldur
neðanmálsgrein í tilkynningunni að
danski leikstjórinn Nicholas Winding
Refn ætti að leikstýra mynd sem
væri byggð á bókinni. Þetta var hins
vegar leiðrétt skömmu síðar því það
er auðvitað Óskar Þór Axelsson sem
leikstýrir myndinni, Refn kemur hins
vegar að framleiðslu hennar.
Og meira úr kvikmyndageiranum því
eins og greint var frá í heimspress-
unni neyddust aðstandendur
Iron Man 2 til að færa
frumsýningu myndarinnar
til Los Angeles sökum
öskunnar frá Eyjafjalla-
jökli. Askan hefur enn
áhrif því svo gæti farið
að kvikmyndaþyrstir
íbúar Selfoss og
Keflavíkur yrðu að
bíða eftir myndinni
því svokölluð print
myndarinnar voru föst í Ósló vegna
eldgossins. Hins vegar tókst að
koma digital-útgáfunni til Íslands í
tæka tíð þannig að myndin verður
frumsýnd í Reykjavík og á Akureyri
eins og til stóð.
Ólafur Páll Gunnarsson er þekkt-
astur sem útvarpsmaður á Rás 2 en
hefur verið að færa sig upp á skaftið
undanfarið hvað söngtilþrif varðar.
Hann lætur ekki lengur duga að sitja
við útvarpshljóðnemann því auk
þess að vera einn af liðsmönnum
karlakórsins Fjallabræður ætlar hann
að stíga á svið á Kringlukránni um
helgina með hinni síungu hljómsveit
Pops. Óli Palli er hvergi
banginn og ætlar
að spreyta sig á
meistarastykkjum
sjöunda áratugarins
á borð við Like A
Rolling Stone og
Dead Flowers.
- fgg, fb
FRÉTTIR AF FÓLKI
Hugræn atferlismeðferð
– ofþyngd
Nýr hópur byrjar á laug.
(kl. 11–13, 1 x viku í 7 vikur)
Nánari uppl. á heilsuborg.is
S: 560-1010