Fréttablaðið - 30.04.2010, Síða 32
4 föstudagur 30. apríl
Söngfuglinn Lára
Rúnarsdóttir er
komin með nýjan
umboðsmann og stefn-
ir á frægð og frama
erlendis. Fram undan
eru tónleikar þar sem
hún spilar á undan hinni
vinsælu Amy McDonald
auk þess sem hún hefur
gert sérstakan samn-
ing við tískuhönnuðinn
Munda um að klæðast
aðeins fatnaði hans á
tónleikum.
Viðtal : Anna Margrét Björnsson
Myndir: Stefán Karlsson
É
g var mjög ánægð með
myndbandið, það kom
miklu betur út en ég
þorði að vona,“ segir
Lára sælleg og glöð
þegar hún segir frá nýju mynd-
bandi við lagið „I wanna be“ sem
er af þriðju plötu hennar sem kom
út í október síðastliðnum. Því er
leikstýrt af breska leikstjóranum
Henry Bateman og skartar Láru
og fleira fólki hvítmáluðu í fram-
an með svarta hryllilega bauga. „Já
það er smá goth-fílingur í þessu,“
segir hún og hlær. „Pælingin var
sú að maður eigi að kýla á hlutina
strax í lífinu vegna þess að maður
veit aldrei hvaða dagur er manns
síðasti.“
Lára er búin að vera í tónlistar-
bransanum í fjölmörg ár og gaf til
að mynda út sína fyrstu plötu hér-
lendis árið 2003. Nú er hins vegar
kúvending á frama Láru þar sem
hún er komin með nýjan umboðs-
mann, Bretann Nicholas Knowles,
sem hefur áralanga reynslu í tón-
listarbransanum í Bretlandi og ætlar
að sækja hart inn á breska mark-
aðinn í sumar. „Það er vegna Nicks
sem hjólin fóru að snúast. Ég hitti
hann í gegnum sameiginlega vini
en hann hafði farið á tónleika með
mér og hreifst af því sem hann sá.
Hann segir mér að hann hefði trú
á því að ég gæti náð langt erlendis.
Persónulega var ég eiginlega búin
að leggja alla drauma um frægð
og frama á hilluna, ég var nýbúin
að eignast barn og hafði í raun ýtt
þessu dálítið frá mér.“ Lára segist
síðast hafa spilað úti í Los Angeles
árið 2006 og því verður það spenn-
andi fyrir hana að spila á tónleikum
í júní sem eru haldnir af tónlistar-
tímaritinu Q. Það er engin önnur en
Amy McDonald sem spilar á sömu
tónleikum og því má áætla að stórir
hlutir geti farið að gerast hjá hinni
ungu íslensku söngkonu á næst-
unni. „Síðasta platan mín var í raun
fyrsta platan sem ég gerði eiginlega
aðeins það sem mig langaði til þess
að gera. Ég vildi bara vinna með
skemmtilegum hópi og gera lög
sem voru að mínu skapi. En þegar
Nick kom og hitti mig þá kviknaði
á gamla neistanum hjá mér aftur
um að tónlist mín gæti átt erindi
til útlanda. Nick hefur afskaplega
mikið af samböndum og þetta virð-
ist ætla að ganga upp. Næst á dag-
skrá er að gera nýjan útgáfusamn-
ing og gera svo nýja plötu seinna á
þessu ári.“
STRANGT KLASSÍSKT
TÓNLISTARNÁM
Ein ástæða þess að Nicholas hefur
óbilandi trú á Láru eru vaxandi
vinsældir söngkvenna sem einn-
ig skrifa tónlistina sína. „Það sem
kallast singer/songwriter á ensku.
Það er svo lítill markaður fyrir þess-
ari tónlist hérna heima og svo held
ég að fólkið sem er að hlusta á
þessa tónlist sé ekkert endilega að
kaupa hana heldur spili hana bara á
myspace eða öðrum vefsíðum. Nick
fylgdist með hópnum sem mætti á
tónleikana mína hérna heima og
komst að því að þetta voru aðal-
lega unglingsstúlkur. Það er auðvit-
að stór markaður og mikið sóknar-
færi. Hann ber mig saman við söng-
konur í Florence and the Machine,
Lily Allen, Regina Spector og Bat
for Lashes en þær eru allar að
gera það gott.“ Finnst henni rokk-
heimurinn hafa verið dálítið karla-
væddur? „Já, ég held að karlmenn-
irnir sem eru í tónlist fái oft meiri
umfjöllun en konurnar, svona eins
og gerist reyndar í öllum stéttum.
Það er í rauninni dálítið grátbros-
legt að þegar ég er komin með karl-
mann sem umboðsmann fari hlut-
irnir loksins að gerast,“ segir hún
og hlær. „En það sem Nick hefur
líka aðallega gert fyrir mig er að
hjálpa mér með þetta endalausa
„plögg“ og pot sem ég er ekki hrif-
in af og hundleiðinlegri samninga-
gerð.“ Lára kemur af tónelsku fólki
og byrjaði ung í tónlistarskóla. Faðir
hennar er Rúnar Þórisson gítarleik-
ari og hún lærði bæði á píanó og
klassískan söng. „Ég tók burtfarar-
próf úr söngnum úr Tónlistarskóla
Kópavogs árið 2006.
Það verður þó að segjast að ég
er eiginlega búin að gleyma alveg
klassíska söngnum núna þar sem
ég nota hann eiginlega ekki neitt.
Það hefur alltaf verið mikil tónlist
á heimilinu. Þegar ég var lítil var
pabbi minn í mjög ströngu klass-
ísku gítarnámi og því var mikið
spilað og mikið æft heima hjá mér.
Hann gerði sömu kröfur til mín, ég
átti að æfa mig í hálftíma á dag. Til
að byrja með þá naut ég þess ekkert
sérstaklega að spila á píanó. Það var
ekki fyrr en ég hætti að ég fór að
nálgast hljóðfærið upp á nýtt með
sköpun í huga að ég virkilega kunni
að meta það.“
BARNIÐ MEÐ Á TÚRA
Lára keypti sinn fyrsta gítar þegar
hún var í sálfræðinámi í Háskóla Ís-
lands. „Ég lærði sjálf á gítarinn og
gerði ekki annað en að spila þegar
ég átti að vera að læra í háskólan-
um. Eitt sinn var ég að spila á loka-
hófi KK í Stapanum þegar Kiddi í
Hjálmum til mín og bauð mér að
taka upp plötu í geimsteini. Tilvilj-
un, eins og svo margt annað í mínu
lífi. Ég hef verið svo ótrúlega hepp-
in að kynnast alltaf svo góðu fólki.
Stundum er eins og það komi allt
upp í hendurnar á mér.“ Dóttir Láru,
Embla, er sannarlega gleðigjafi í lífi
hennar en hún fæddist fyrir einu
og hálfu ári. „Við hjónakornin erum
bæði í hljómsveitinni og því höfum
við auðvitað hugsað út í það hvað
við munum gera ef ég á að fara í
tónleikaferð um heiminn. Von-
andi gengur þetta upp þannig að
við tökum hana bara með okkur.
Vonandi verða þetta ekki einhverj-
ir skítatúrar með rútu þar sem allir
fara á fyllirí,“ segir hún og hlær.
„Ég er ekki beint að fara að lifa ein-
hverjum rokk og ról-lífsstíl með
bandinu og litlu barni.“ Lára segir
hljómsveitina vinna afskaplega vel
saman og þrátt fyrir að hún semji
öll lögin þá eigi hinir meðlimirnir
heilmikið í þeim. Auk þess að vinna
myrkranna á milli í tónlistarsköp-
un er Lára svo rekstrarstjóri Skíf-
unnar og hefur því í nógu að snú-
ast. En hvernig tónlist skyldi höfða
mest til hennar? „Vegna vinnu
minnar í Skífunni hlusta ég gífur-
lega mikið á alls kyns tónlist. Und-
anfarið hef ég mest hlustað á ýmiss
konar söngkonur, allt frá gömlum
Billy Holliday-upptökum og upp í
nýjar stjörnur eins og hina sænsku
Lycke Li. Ég er líka mjög hrifin af
Nick Cave, Tom Waits og Rufus
Wainwright og þess háttar söng-
vurum. Textarnir mínir eru frekar
persónulegir en sumir eru gaman-
samir. Allir textarnir eru byggðir á
einhverri reynslu og eru allt frá því
að vera ástarsöngvar upp í að vera
lög um náttúruna eða pólitík.“
KLÆÐIST HÖNNUN MUNDA
„Það er gaman að geta þess að
ég samdi lag árið 2006 sem nefn-
ist Crystals og biður fólk að vera
ekki að tapa sér í veraldlegu kapp-
hlaupi. Það kom ekki út fyrr en
eftir að kreppan skall á sem er
kannski dálítið of seint,“ segir hún
og hlær. En hvað brennur mest á
henni? „Ég myndi segja að ég væri
mikill náttúruverndarsinni og er
afskaplega hrifin af náttúrunni
og þeim innblæstri sem hún veit-
ir mér við listsköpunina. En ég
myndi segja að það sem ég hafi
helst lært síðustu ár er hversu
mikilvægt það er að læra að lifa í
núinu og vera sáttur við það sem
maður hefur. Ég á sjálf dálítið erf-
itt með þetta, ég er alltaf dálítið
komin á undan mér og er alltaf
að stefna hærra og lengra.“ Það er
púsluspil að koma öllu heim og
saman með ungt barn heima fyrir.
„Ég held að ég sé að standa mig
vel. Þetta væri heldur ekki mögu-
legt ef ég ætti ekki svona góða
fjölskyldu sem styðja mig og að-
stoða mig mikið.“ Þegar Lára hefur
tíma aflögu stundar hún sund og
Bragðgott tyggjó
með 100% náttúrulega
sætuefninu Xylitol sem
stuðlar að betri tannheilsu
Spry TYGGJÓ
100%
Xylitol
Fyrir alla sem vilja forðast
sykur í matvælum!
Xylitol er ekki aðeins bragðgott sætuefni heldur stuðlar það
hreinlega að betri tannheilsu! Heilbrigðissamtök víða um heim
mæla eindregið með Xylitoli sem sætuefni í tyggigúmmí.
Brosum og verum hraust!
Fæst í heilsubúðum & apótekum
ÞAÐ KEMUR EINHVERN
VEGINN ALLT UPP Í
HENDURNAR Á MÉR
Spilar ásamt
Amy McDonald
Lára Rúnarsdóttir
tekur stefnuna á
Bretland og stóra
tónleika í maí.