Fréttablaðið - 05.05.2010, Blaðsíða 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
veðrið í dag
5. maí 2010 — 104. tölublað — 10. árgangur
„Ég dvaldi í litlum há kóheiti H
Skar út grasker og gekk í hús með fjölskyldunni
UPPLÝSINGAR O
Sögurnar... tölurnar... fólkið...
10
6
8-9
Veffang: visir.is – Sími: 512 5000
Miðvikudagur 5. maí 2009 – 5. tölublað – 6. árgangur
Gnúpur í rannsókn
hjá skilanefnd Glitnis
Fjárfestingarfélagið Gnúpur var fyrsta fjármálafyrirtækið sem fór á hliðina í kreppunni. Bankarnir héldu félaginu á lífi. Slökkt verður á öndunarvélinni fljólega og félagið gert upp.
Evran í lægð Gengi evrunnar hefur ekki mælst lægra gagnvart bandaríkjadal í meira en ár. Erfiðri skuldastöðu Grikklands og fleiri evruríkja er þar helst kennt um. Björgunarpakki handa Grikklandi, sem samþykktur var um helgina, íþyngir evrunni. Í gær var gengi hennar gagnvart dollar komið í 1,3 en var rúmlega 1,5 í nóvember.
H E L S T Í Ú T L Ö N D U M
Framkvæmdastjórn Evrópusam-
bandsins (ESB) á að skoða stofn-
un nýs matsfyrirtækis sem mun
meta lánshæfi ríkja og fyrir-
tækja innan ESB. Þetta segir Mi-
chel Barnier, sem fer með mál-
efni innri markaða sambandsins.
Hann fundaði með efnahags-
og viðskiptanefnd ESB í gær og
sagði Fitch, Moody‘s og Standard
& Poor‘s hafa gert Grikkjum erfitt
fyrir, að sögn Financial Times
Pláss fyrir
fjórða matið
Rannsóknarskýrsla Alþingis:
Hvað getur viðskiptalífið
lært af skýrslunni?
Yfir Heiðina með Óla Kristjáni:
Á tvö hundruð hestafla
tryllitæki
Joseph Stiglitz:
Ekki tími fyrir
viðskiptastríð
3 SÉRBLÖÐ
í Fréttablaðinu
Markaðurinn
Allt
Poulsen
MIÐVIKUDAGUR
skoðun 12
HJÚSKAPARLÖG Ekkert er því til
fyrirstöðu að prestum þjóðkirkj-
unnar verði heimilað að gefa
saman samkynhneigð pör í hjóna-
band, að mati 82 presta, djákna
og guðfræðinga sem skrifa undir
grein um ein hjúskaparlög í
blaðinu í dag.
Greinarhöfundar segja að það
sé hlutverk biskups og kenningar-
nefndar að taka afstöðu til frum-
varpsins um ein hjúskaparlög á
Íslandi. Þeir minna á að sænska
kirkjan hafi þegar samþykkt
hjónaband samkynhneigðra.
„Við teljum mikilvægt að þjóð-
kirkjan fylgi því fordæmi, hafi
áfram vígsluvald og stuðli þannig
að áframhaldandi samfylgd kirkju
og þjóðar í hjúskaparmálum.“
- bs / sjá síðu 13
82 prestar og guðfræðingar:
Samkynhneigð
pör fái að giftast
Hollur og hagkvæmur
samgöngumáti
Átaksverkefninu
Hjólað í vinnuna
hrundið af stað.
tímamót 14
FÓLK Osama bin Laden býr við
góðan húsakost í Íran og er
verndaður af írönskum stjórn-
völdum. Hann
er mikill
áhugamaður
um fálka en
fálkasala er ein
helsta tekju-
lind Al Kaída-
samtakanna.
Þetta fullyrð-
ir Alan Parrot,
aðalsöguhetj-
an í íslensku
heimildarmyndinni Feathered
Cocaine eftir þá Þorkel Harð-
arson og Örn Marinó Arnarson.
Fréttastöðin Fox News fjallaði
ítarlega um heimildarmyndina á
vefsíðu sinni en meðal þeirra sem
staðfesta sögu Parrots er fyrrum
leyniþjónustumaðurinn Robert
Baer sem persóna George Cloon-
ey í kvikmyndinni Syriana var
byggð á. - fgg / sjá síðu 18
Íslensk heimildarmynd:
Osama í góðu
yfirlæti í Íran
Yfi r í Kastljósið
Útvarpskonan Margrét Erla
Maack tekur við af
Ragnhildi Stein-
unni Jónsdóttur í
Kastljósinu.
fólk 26
TRYGGINGAMÁL „Það er aldrei við-
unandi að fólk misnoti velferð-
arkerfið og sérstaklega ekki á
tímum sem þessum,“ segir Sig-
ríður Lillý Baldursdóttir, forstjóri
Tryggingastofnunar ríkisins, þar
sem herör var skorin upp gegn
bótasvindli.
Að sögn Sigríðar hefur fjöldi
bótasvikamála þrefaldast frá því
að Tryggingastofnun tók fyrir um
ári upp stóraukið eftirlit með sam-
keyrslu gagna innan stofnunarinn-
ar og athugunum starfsmanna.
Sigríður nefnir sem sérstaklega
svæsið dæmi um bótasvindl tvær
fimm barna fjölskyldur þar sem
fjölskyldufeðurnir hafi skráð sig
til málamynda utan heimilisins.
Það hafi þeir gert til að fá aukinn
barnalífeyri og meðlagsgreiðsl-
ur sem þeir sjálfir hafi síðan ekki
endurgreitt eins og þeim bæri að
gera.
„Okkar eftirlitsfólk fann aðra
fjölskylduna inni á Facebook. Það
er kona sem á fjögur börn með
manninum og eitt með öðrum. Hún
segir að maðurinn búi ekki hjá
þeim en hann hjálpi þeim af og til.
En svo fannst Facebook-síða þess-
arar konu þar sem hún var með
„litla krílið“ eins og hún sagði í
„mömmu og pabba rúmi“ og mynd
af henni með barnið og sveran trú-
lofunarhring. Þá var hún spurð um
þennan trúlofunarhring og þetta
„rúm mömmu og pabba“. Við göng-
um svona langt,“ lýsir Sigríður.
Þessi fjölskylda fékk að sögn
Sigríðar yfir 700 þúsund krónur
á mánuði í bætur. Verulegan hluta
þess hafi þau ekki átt rétt á að fá.
„Þetta er algerlega óviðunandi.
Við hundeltum þetta fólk og látum
það ekki í friði,“ segir forstjóri TR
sem kveður eftirlitsstarfinu fjöt-
ur um fót að mega ekki samkeyra
gögn með gögnum annarra stofn-
ana. „Við eigum í ákveðnum erfið-
leikum en það er verið að vinna að
lausn þeirra með félags- og trygg-
ingamálaráðuneytinu og það er
skilningur á þessu þar.“ - gar
Bótasvikarar gripnir
í bólinu á Facebook
Fjöldi bótasvikamála þrefaldaðist eftir að Tryggingastofnun skar upp herör
gegn svindli fyrir ári. Svæsnasta dæmið er foreldrar fimm barna sem fengu yfir
sjö hundruð þúsund krónur á mánuði þar til þeir afhjúpuðu sig á Facebook.
HLÝTT Í VEÐRI Í morgunsárið
má búast við lítils háttar vætu V-
og NV-til en það léttir heldur til er
líður á daginn. Horfur eru á hæg-
um SV- eða breytilegum áttum og
hlýjast verður suðaustantil.
veður 4
12
9
12
8
16
STJÓRNSÝSLA Allt bendir til að til-
laga um að Má Guðmundssyni
seðlabankastjóra verði bætt upp
kjararýrnun í kjölfar ákvörðunar
kjararáðs verði dregin til baka.
„Ég geri ráð fyrir því. Ríkis-
stjórnin virðist mjög ákveðin í
þessu máli,“ segir Lára V. Júlíus-
dóttir, formaður bankaráðs Seðla-
bankans. Tillagan, sem var borin
upp á fimmtudag, féll í grýttan
jarðveg í samfélaginu.
„Hlutirnir skerpast undir svona
kringumstæðum. Uppi var ákveð-
in staða og ég taldi að mér bæri
að fylgja tilteknum fyrirheitum
sem voru gefin en svo hefur það
breyst,“ segir Lára. - bþs
Tillaga um kjarabætur seðlabankastjórans verður líklega dregin til baka:
Ólíklegt að laun Más hækki
OSAMA BIN LADEN
DULARFULLA KATTAHVARFIÐ Fjórir kettir hurfu sporlaust á einni viku af heimili Kristínar Jónasdóttur
og Frímanns Lúðvíkssonar Buch í Mosfellsbæ. Köttur hvarf á sama tíma frá nágrannakonu þeirra. Frímann telur vísast að ókunnur
dýraníðingur hafi unnið köttunum mein og óttast um þá þrjá ketti sem eftir eru á heimili hans. Sjá síðu 4
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/STEFÁ
N
Haukar komnir í forystu
Haukar tóku í gær 2-1
forystu í einvíginu gegn Val
um Íslandsmeistaratitilinn í
handbolta.
íþróttir 22