Fréttablaðið - 07.05.2010, Page 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI7. maí 2010 — 106. tölublað — 10. árgangur
2 SÉRBLÖÐ
í Fréttablaðinu
Föstudagur
Allt
FÖSTUDAGUR
skoðun 18
veðrið í dag
Pete Doherty tekur upp
með Sveini Jónssyni
Breski vandræðagemlingurinn Pete Do-
herty vinnur að nýju efni í hljóðveri upp-
tökustjórans Sveins Jónssonar í London.
fólk 42
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
0
9
-1
6
0
8
Uppskriftin að föstudags-
pizzunni er á gottimatinn.is
Fréttablaðið er með 212% meiri
lestur en Morgunblaðið.
Meðallestur á tölublað,
höfuðborgar svæðið, 18 – 49 ára.
Könnun Capacent í nóvember 2009 – janúar 2010.
Allt sem þú þarft...
MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTABLAÐIÐ
73,8%
23,7%
Allt frá Bach
til Disney
Tónlistarskóli
Hafnarfjarðar er
60 ára.
tímamót 22
LÉTTIR TIL Hægviðri á landinu í
dag og skýjað í fyrstu en léttir víða
til síðdegis, einkum inn til landsins.
Hiti 8-18, hlýjast SA-lands.
veður 4
8
9
8
10
16
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
Þau Stefanía Ingvarsdóttir og Josue
Martins sjá til þess að það sé líf og
fjör á hafnarbakkanum í Reykja-vík en þar reka þau tvo veitinga-staði nánast hlið við hlið. Sushis-miðjuna hafa þau starfrækt í fjögur
ár en portúgalski veitingastaðurinn
Piri piri var opnaður fyrir nokkr-um vikum.
„Josue er portúgalskur og við
erum afar hrifin af portúgölskum mat Við höf
Lífga upp á hafnarbakkann
Hjónin Stefanía Ingvarsdóttir og Josue Martins leggja sitt af mörkum til að lífga upp á hafnarbakkann í
Reykjavík. Þar reka þau tvo veitingastaði og elda japanskan og portúgalskan mat í löngum bunum.
Á Piri piri er að finna uppáhaldsrétti þeirra Stefaníu og Josue.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Piri piri-kjúklingur á úti-grillið
1 msk. paprikuduft2 hvítlauksrif rifin3 msk. piri piri-olía (fæst í matvöruverslunum)salt
pipar
til hann er eldaður í gegn og vel ristaður að utan.
Svartaugabaunasalat400 g svartaugabaunir, soðnar
3 tó
2 msk. hvítvíns-vinegar4 msk. ólífuolíagróft salt
svartur pipar
Sjóðið baunirnar, skerið
PIRI PIRI KJÚKLINGUR OG SVARTAUGABAUNASALAT
KVENLEG STEF í verkum Ásmundar Sveinssonar
eru til skoðunar á nýrri sýningu í Ásmundarsafni. Ásdís
Ásmundsdóttir, dóttir listamannsins, verður með leið-
sögn um safnið á sunnudag klukkan 14.
Veiti h
Ú
M
Við mælum með Macon Chanes Domaine de Lalande með þessum rétti.
Elmar Kristjánsson,yfirmatreiðslumaðurPerlunnar
Nýr A la Carte
4ra rétta tilboðsseðillVerð aðeins 7.290 kr.
Góð tækifærisgjöf!föstudagur
FYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS 7. maí 2010
REYNDI AÐ JARÐA
Ágústa Eva ræðir um
borgríkið, undirheima
Reykj víkur og ástríðu
fyrir bardagalistum
Kynnir ösku úr eldgosi
Dorrit Moussaieff kynnir
öskusölu matarvefsíðunnar
nammi.is í New York Post.
fólk 30
BRETLAND Enginn flokkur fékk meirihluta í bresku
þingkosningunum sem fram fóru í gær, samkvæmt
útgönguspám sem birtar voru skömmu eftir að
kjörstöðum lokaði. Þar var Íhaldsflokknum spáð
307 þingsætum en 326 sæti þarf til að ná meiri-
hluta. Verkamannaflokkurinn fengi 255 sæti sam-
kvæmt, Frjálslyndir demókratar 59 þingsæti en
aðrir fengju 29 þingsæti.
Ef þetta verða úrslitin hefur Íhaldsflokkurinn
bætt við sig 97 þingsætum en Verkamannaflokkur-
inn tapað 94.
Í Bretlandi eru einmenningskjördæmi og sæta-
fjöldi flokka á þingi því ekki í samræmi við fylgi
flokkanna.
Undir venjulegum kringumstæðum fara stjórn-
arskipti fram um leið og úrslit eru ljós en ekki eru
til ákveðnar reglur um hvað skuli gera nái enginn
flokkur meirihluta. Þurfi að mynda samsteypu-
stjórn mun Gordon Brown sitja áfram þar til hún
hefur verið mynduð.
Kjörsókn í Bretlandi í gær var mikil og höfðu
kvartanir borist um að kjörstaðir hafi ekki ráðið
við fjöldann. Sumir höfðu ekki getað kosið þegar
klukkan sló tíu. Álagið tafði talningu atkvæða.
Íhaldsflokkurinn fékk flest sæti í bresku þingkosningunum í gær:
Enginn flokkur fær meirihluta
Oddaleikur um titilinn
Valsmenn jöfnuðu úrslitaein-
vígið á móti Haukum eftir
sigur í framlengingu í gær.
íþróttir 36
M
YN
D
/I
N
G
Ó
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/STEFÁ
N
Í HALDI LÖGREGLU Magnús Guðmundsson, hægra megin á vinstri mynd, og Hreiðar Már Sigurðsson voru báðir yfirheyrðir í húsakynnum sérstaks saksóknara í gærkvöldi.
Dómari ákveður í dag hvort fallist verður á tólf daga gæsluvarðhald yfir Hreiðari. Ekki er útilokað að jafnframt verði farið fram á varðhald yfir Magnúsi.
LÖGREGLUMÁL Tveir fyrrverandi
bankastjórar Kaupþings eru í haldi
lögreglu grunaðir um að standa að
baki viðskiptum fyrir hátt í hundr-
að milljarða króna í þeim tilgangi
að hækka gengi hlutabréfa í bank-
anum mánuðina fyrir hrun.
Sérstakur saksóknari lét í gær
handtaka Hreiðar Má Sigurðsson,
fyrrverandi forstjóra Kaupþings,
og Magnús Guðmundsson, fyrrver-
andi bankastjóra Kaupþings í Lúx-
emborg, eftir að hafa yfirheyrt þá.
Farið hefur verið fram á að Hreið-
ar sitji í gæsluvarðhaldi í tólf daga
og tók dómari sér frest til hádeg-
is í dag til að kveða upp úrskurð.
Ólafur Þór Hauksson, sérstakur
saksóknari, útilokar ekki að óskað
verði eftir varðhaldi yfir Magnúsi
í dag. Hreiðar og Magnús gistu
báðir fangaklefa í nótt. Þetta er
í fyrsta sinn sem sérstakur sak-
sóknari fer fram á gæsluvarðhald
yfir sakborningi.
Við markaðsmisnotkunina eru
þeir einnig taldir hafa gerst sekir
um umboðssvik, skjalafals og ýmis
brot gegn hlutafélagalögum, að
langmestu leyti framin árið 2008.
Rannsóknin á markaðsmisnotk-
uninni nær til tugmilljarða við-
skipta við menn á borð við sjeik
Al-Thani frá Katar, Skúla Þor-
valdsson og Kevin Stanford. Hluti
málanna kom fyrst upp á yfirborð-
ið í skýrslu rannsóknarnefndar
Alþingis sem skýrir að hluta hvers
vegna ekki er farið fram á gæslu-
varðhald fyrr en nú.
Markmið gæsluvarðhaldsins er
einna helst að koma í veg fyrir að
sakborningarnir geti haft áhrif
á meðseka eða vitni, samkvæmt
heimildum Fréttablaðsins. Einnig
er talið hugsanlegt að einhverjum
gögnum sem ekki hafa enn komið
í leitirnar kunni ella að verða eytt
eða spillt. Ekki eru vísbendingar
um að það hafi verið gert enn.
Magnús gegnir nú starfi banka-
stjóra Banque Havilland í Lúx-
emborg, sem reistur var á grunni
Kaupþings þar í landi. Hann er nú
í eigu enskrar fjölskyldu. Hreiðar
rekur ráðgjafarfyrirtækið Consoli-
um í Lúxemborg, ásamt meðal ann-
arra Ingólfi Helgasyni, sem var
bankastjóri Kaupþings á Íslandi.
Sigurður Einarsson, fyrrver-
andi stjórnarformaður Kaupþings,
hefur verið boðaður í yfirheyrslu
í næstu viku. Hann er staddur í
London. - sh / sjá síðu 6
Bankastjórar handteknir
Tveir fyrrverandi Kaupþingsforstjórar gistu fangaklefa í nótt. Þeir eru grunaðir um tugmilljarða markaðs-
misnotkun í aðdraganda hrunsins. Sérstakur saksóknari hefur farið fram á gæsluvarðhald í fyrsta sinn.