Fréttablaðið - 07.05.2010, Qupperneq 8
8 7. maí 2010 FÖSTUDAGUR
ALÞINGI 420 milljarða króna vantar
upp á að ríkissjóður hafi fjármagn-
að áfallnar framtíðarskuldbind-
ingar vegna eftirlauna opinberra
starfsmanna.
Þar af vantar um 350 milljarða
inn í svokallaða B-deild Lífeyr-
issjóðs ríkisstarfsmanna (LSR)
og um 40 milljónir inn í Lífeyris-
sjóð hjúkrunarfræðinga en einn-
ig vantar nokkuð upp á að A-deild
LSR standist tryggingafræðilegar
kröfur.
Þetta kom fram við umræður
á Alþingi í gær. Til samanburðar
voru tekjur ríkissjóðs áætlaðar 468
milljarðar króna í fjárlagafrum-
varpi ársins 2010.
B-deild LSR heldur utan um rétt-
indi ríkisstarfsmanna sem hófu
störf fyrir 1996. Réttindi þeirra eru
ekki háð ávöxtun fjármuna LSR líkt
og í öðrum lífeyrissjóðum.
Steingrímur J. Sigfússon fjár-
málaráðherra sagði að B-deildin
gæti staðið undir skuldbinding-
um fram til 2025. Auka þurfi inn-
greiðslur til að standa undir skuld-
bindingum eftir þann tíma. „Við
þurfum endilega að fá alla saman
að þessu borði til að skoða og kort-
leggja framtíðina,“ sagði Stein-
grímur. „Þetta er stórt og mikið
samfélagslegt verkefni sem varðar
okkur öll.“ Vandinn sé meðal ann-
ars sá að greiðslur inn í LSR voru
ekki nægilegar á árunum 2004-
2007 þegar afgangur á ríkissjóði
var mestur.
Bjarni Benediktsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, sagði ósann-
gjarnt að lífeyrisþegi á almennum
markaði, sem nú hefur skert rétt-
indi vegna taps almennra lífeyris-
sjóða vegna hrunsins, þurfi jafn-
framt að þola það að hluti þeirra
skatta, sem hann greiðir, renni í að
standa undir óskertum lífeyri opin-
berra starfsmanna.
Fram kom hjá fjármálaráðherra
að þótt lífeyrissjóðirnir hafi þurft
að skerða réttindi í kjölfar hruns-
ins séu réttindin sem þeir veita
nú svipuð og var árið 2006. Opin-
berir starfsmenn hafi ekki notið
aukinna réttinda frá 2006 fram að
hruni í sama mæli og lífeyrisþegar
á almennum markaði.
Vigdís Hauksdóttir, Fram-
sóknarflokki, sagði að rétt væri
að kanna möguleika á að leggja
niður LSR, og nota eignir sjóðs-
ins í að laga til í rekstri ríkisins.
Fjármagna eigi lífeyrisgreiðslur
opinberra starfsmanna úr gegn-
umstreymissjóði. „Þeir eru hvort
sem er með ríkisábyrgð,“ sgaði
Vigdís. peturg@frettabladid.is
Flugtímabil: 4. maí –20. júní
Bókunartímabil: 4.–11. maí
10.000 kr.
afsláttur
Sumargjöf
Afsláttarkóði:
IEX0502
með ánægju
www.icelandexpress.is
Allar nánari upplýsingar um afsláttinn á www.icelandexpress.is
Bókaðu núna!
SAMGÖNGUR Umferð um hringveginn dróst
verulega saman fyrstu fjóra mánuði ársins, á
16 völdum talningarstöðum. Þetta jafngildir
3,2 prósentum og er mesti samdráttur í langan
tíma.
Í fyrra jókst umferðin fyrstu fjóra mánuði
ársins um 0,7 prósent, en stóð í stað árið 2008.
Árið 2007 jókst hún um tæp 14 prósent á sama
tíma. Þetta er því mikil breyting á skömmum
tíma.
Á heimasíðu Vegagerðarinnar segir að
erlendar rannsóknir sýni mikla fylgni með
þjóðarhag og umferðarsveiflu og þá fylgni megi
einnig sjá hér á landi.
Mælingar sýna samdrátt á öllum landsvæðum,
nema Norðurlandi, þar var örlítil hækkun. Það
kann að skýrast af mikilli skíðasókn í vetur.
Umferð á Suðurlandi og höfuðborgarsvæðinu
minnkar um tæp fjögur prósent. - kóp
Umferð dregst saman um hringveginn nema á Norðurlandi:
Minni bílaumferð nú en í fyrra
2010/2009 2009/2008
Milli aprílmánaða Frá áramótum Milli aprílmánaða Frá áramótum
Suðurland -6,6% -4,0% 8,1% 3,6%
Höfuðborgarsvæðið -7,8% -4,0% -2,0% -1,1%
Vesturland -11,1% -2,9% 12,0% -,03%
Norðurland -10,7% 0,2% 21,0% 0,9%
Austurland -15,4% -0,2% 31,2% 0,9%
Samtals -7,8% -3,2% 6,4% 0,7%
Tafla um akstursaukningu
ALÞINGI Jóhanna Sigurðardóttir vísaði því á bug á
Alþingi í gær að hún eða Steingrímur J. Sigfússon
fjármálaráðherra hefðu vitað af fyrirheiti sem Má
Guðmundssyni seðlabankastjóra var gefið um að
laun seðlabankastjóra yrðu óskert hvað sem liði
ákvörðunum kjararáðs.
Jóhanna sagðist engin samtöl hafa átt við Láru V.
Júlíusdóttur, formann bankaráðs Seðlabankans, í
aðdraganda þess að tillagan var gerð. „Ég hef haft
samband við mitt starfsfólk í ráðuneytinu og það
kannast enginn við að hafa gefið slíkt loforð,“ sagði
Jóhanna.
Þingmennirnir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson,
Sigurður Kári Kristjánsson og Birkir Jón Jónsson
beindu spurningum til Jóhönnu vegna tillögunnar
um að Má verði bætt sú 400.000 króna skerðing á
launum sem leiðir af nýlegri ákvörðun kjararáðs.
„Laun seðlabankastjóra geta ekki verið úr takti
við aðrar ákvarðanir sem teknar hafa verið af hálfu
hins opinbera,“ sagði Jóhanna.
Líklega verði tillagan dregin til baka „enda er það
skynsamlegt því að það að hækka launin er úr öllum
takti við þá stefnu sem ríkisstjórnin hefur markað.“
Sigurður Kári fann að því að Jóhanna svaraði
ekki því hver gaf loforðið, að frumkvæði hvers og
með vitneskju hverra. - pg
Þingmenn saumuðu að forsætisráðherra vegna launamála seðlabankastjóra:
Enginn kannast við að hafa gefið
loforð um laun seðlabankastjóra
FORSÆTISRÁÐHERRA Sagði á Alþingi að ákvörðun um ráðn-
ingu Más Guðmundssonar í starf seðlabankastjóra hefði fyrst
verið tekin eftir að þriggja manna nefnd fór yfir umsóknir.
420 milljarða vantar
upp á skuldbindingar
Ríkið vantar tæplega ein fjárlög til að fjármagna lífeyri ríkisstarfsmanna frá
2025. Stórt samfélagslegt verkefni, segir fjármálaráðherra. Taka á eignir LSR
inn í ríkissjóð og koma upp gegnumstreymissjóði, segir Vigdís Hauksdóttir.
BJARNI
BENEDIKTSSON
VIGDÍS
HAUKSDÓTTIR
HELGUVÍK Reyknesingar vilja að ríkið
leggi fé í hafnarframkvæmdir.
SVEITARSTJÓRNIR „Óviðunandi er að
gangandi og hjólandi vegfarend-
ur innan Reykjanesbæjar þurfi að
fara yfir eina fjölförnustu hrað-
braut landsins á leið sinni milli
íbúðahverfa,“ segir í ályktun bæj-
arráðs Reykjanesbæjar sem gagn-
rýnir að aðeins skuli gert ráð fyrir
samtals 145 milljónum króna á
þessu ári og því næsta til að gera
gatnamót Reykjanesbrautar og
Grænásbrautar öruggari.
Bæjarráðið er einnig ósátt við að
engin framlög séu til hafnarfram-
kvæmda í Helguvík, tengingu með
svokölluðum Olíuvegi frá Reykja-
nesbraut niður á Keflavíkurveg
eða til þess að „útrýma svartbletti“
við gatnamót á Reykjanesbraut - gar
Reyknesingar ósáttir:
Vilja meira til
samgöngubóta
SVEITARSTJÓRNIR Guðbrandur Ein-
arsson, bæjarfulltrúi A-lista í
Reykjanesbæ, segir Árna Sigfús-
son bæjarstjóra fara með rangt
mál í fréttatil-
kynningu sem
bærinn sendi
frá sér um mál-
efni Eignar-
haldsfélagsins
Fasteignar í
kjölfar skýrslu
frá Capacent
um reynsl-
una af aðild
bæjarins að
félaginu. „Fréttatilkynningin frá
Reykjanesbæ gefur tilefni til að
ætla að áfram verði haldið með
froðusnakkið,“ segir í bókun Guð-
brands. Í bókun fulltrúa Sjálfstæð-
isflokks segir hins vegar að skýrsl-
an staðfesti málflutning þeirra.
„Fullyrðingum Guðbrands Ein-
arssonar og tilraunum hans til
að gera persónu bæjarstjóra að
aðalleikara í túlkun á niðurstöðu
skýrslunnar er vísað til föðurhús-
anna,“ segir í bókun þeirra. - gar
Deilt um reynslu af Fasteign:
Bæjarstjóri er
ekki aðalleikari
GUÐBRANDUR
EINARSSON
FJÁRMÁLARÁÐHERRA Lífeyriskerfi Íslendinga er eitt hinna þriggja bestu í heimi
ásamt þeim svissnesku og hollensku, sagði Steingrímur J. Sigfússon á Alþingi í gær.
Hreinar eignir námu 119 prósentum af landsframleiðslu í lok síðasta árs en hlutfallið
var 130 prósent árið 2007.
1. Hvað heitir nýtt framboð í
Kópavogi sem Hjálmar Hjálm-
arsson fer fyrir?
2. Hver rappar með Erpi á
væntanlegri sólóplötu hans?
3. Hve margir gestir renndu sér
á skíðum í Hlíðarfjalli nýliðinn
vetur?
SJÁ SVÖR Á SÍÐU 42
VEISTU SVARIÐ?