Fréttablaðið - 07.05.2010, Síða 18

Fréttablaðið - 07.05.2010, Síða 18
18 7. maí 2010 FÖSTUDAGUR FRÁ DEGI TIL DAGS greinar@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is MENNING: Páll Baldvin Baldvinsson fulltrúi ritstjóra pbb@frettabladid.is HELGAREFNI: Anna Margrét Björnsson amb@frettabladid.is og Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 Borgarmál Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir borgarfulltrúi HALLDÓR Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is SKOÐUN Það er ekki sjálfgefið að rekstur Reykjavíkurborgar skili afgangi. Öll árin 2002 til 2006, á sama tíma og mikill uppgangur var í þjóðfélaginu, var borg- in rekin með halla. Á árinu 2007 snerist þetta við og hefur borgin verið rekin með afgangi síðustu 3 árin. Þetta er mjög góður árangur, ekki síst í ljósi þeirra hremminga sem hafa gengið yfir efna- hagskerfi landsmanna síðustu 2 árin. Rekstrarafgangur á árinu 2009 upp á rúma 3 milljarða er eftirtektarverður árangur fyrir margra hluta sakir. Hvorki skattar né gjaldskrár fyrir grunnþjónustu voru hækkaðar á árinu. Útsvarshlutfall í borginni er lægra en lögbundið hámark segir til um. Gengisþróun var óhagstæð- ari og verðlag var hærra en áætlun gerði ráð fyrir. Líklegri niðurstaða fyrir árið 2009 hefði sjálfsagt verið sú að eftir hækkun skatta, hækkun gjaldskráa, og eftir hækkun útsvarshlutfalls í hæstu leyfilegu mörk hefði rekstur borgarinnar samt komið út í mínus. Þessu spáði m.a. Samfylkingin. Ekkert af þessu gerðist. Niðurstöðuna má þakka nýjum vinnu- brögðum við fjármálastjórn Reykjavíkur- borgar. Gott samráð meiri- og minnihluta var um vinnu við fjárhagsáætlun í borgar- stjórn. Þunginn í aðgerðaráætlun okkar var að standa vörð um grunnþjónustuna, störfin og gjaldskrár. Við þetta allt hefur verið staðið. Starfsmenn borgarinnar komu með um 300 tillögur um sparnað sem voru nýttar á árinu. Niðurstaðan er afgangur upp á rúma 3 milljarða. Staða borgarsjóðs og dótturfyrirtækja er allt annað en auðveld. Skuldir Orku- veitu Reykjavíkur vega þar þyngst en fjárfestingar síðustu ára hafa enn ekki skilað þeim tekjum sem þarf til að staða félagsins sé viðunandi. Grundvallaratriði í því að viðhalda þátt- um eins og lánshæfismati er að rekstur borgarinnar sé í lagi. Hallarekstur ofan á erfiða skuldastöðu er nefnilega óskemmti- leg blanda eins og Grikkland og fleiri ríki fá að kenna á um þessar mundir. Það eru því mjög ánægjulegar fréttir að borgarsjóður sé rekinn með afgangi. Annars konar niðurstaða væri ekkert annað en dauðans alvara. Grín og glens við stjórn borgarinnar væri mikið ábyrgðarleysi. Hallarekstur eins og stundaður var á árum áður væri mikið ábyrgðarleysi. Grínlaust ® Atvinna í boði Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráð- herra hefur komið á fót nefnd sem á að fara yfir ráðningarmál stjórnar- ráðsins. Athugasemdir hafa verið gerðar við fjölda „tímabundinna“ starfa hjá hinu opinbera, sem ráðið er í án auglýsingar. Þykir mörgum þetta fyrirkomulag lykta af frændhygli, þar sem dyggum flokksmönnum sé raðað á garðann. Umboðsmaður Alþingis hefur meðal annars gagnrýnt þetta fyrirkomulag og kallar það tímaskekkju. Ekki liggur fyrir hver fer fyrir rannsóknarnefndinni en líklegt má teljast að hann verði skipaður án auglýsingar. Fjörbaugur? Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings, var handtekinn í gær. Ófáir útrásarvíkinganna svo- kölluðu búa erlendis og telja sumir að þetta verði til þess að þeir munu ekki láta sjá sig á Íslandi í bráð. Útrásarvíkingarnir gætu með öðrum orðum reynt að freista þess að taka út refsingu eins og alvöru víkingar, með fjörbaugsgarði. Skrípaleikur Besti flokkur Jóns Gnarr hefur hlotið meiri meðbyr en menn bjuggust við og ljóst að andstæðingum hans er farið að þykja gamanið grátt. Sumir þeirra halda því á lofti að það yrði dýrkeypt að greiða Besta flokknum atkvæði; borgarmálin myndu jú bara breytast í skrípaleik. Á móti má benda á að kjörtíma- bilið sem nú er að renna sitt skeið var farsakennt í meira lagi og þurfti enga grínara til þess. bergsteinn@frettabladid.is F réttablaðið sagði frá því í fyrradag að bótasvikamál- um, sem Tryggingastofnun kemur upp um, hefði fjölgað þrefalt eftir að stofnunin tók upp hert eftirlit í fyrra. Sigríður Lillý Baldursdóttir, forstjóri stofnunarinnar, tiltók dæmi af fimm barna fjölskyldu, þar sem faðirinn skráði sig til málamynda utan heimilis og fjölskyldan fékk fyrir vikið um 170 þúsund krónur í bætur á mánuði, sem hún átti ekki rétt á. Bætur fjölskyldunnar frá Tryggingastofnun námu sam- tals yfir 700 þúsund krónum, sem er meira en margir laun- þegar á vinnumarkaði hafa í fjölskyldutekjur. Upp um svikin komst þegar fjölskyldan birti myndir af sér á samskiptavefnum Facebook og starfsfólk Tryggingastofn- unar fór fyrir vikið að spyrja spurninga. Fjölskyldan var svipt bótunum sem hún átti ekki rétt á, en verður ekki beitt neinum öðrum viðurlögum. Í blaðinu í gær kemur fram að í félagsmála- ráðuneytinu séu nú til skoðunar tillögur frá Tryggingastofnun um að viðurlögum verði beitt við bótasvikum, líkt og öðrum fjársvikum. Viðbrögðin við fréttinni um hvernig Facebook varð bóta- svikurunum að falli hafa verið á ýmsa vegu. Tryggingastofnun bárust strax í kjölfarið um tuttugu ábendingar um sambæri- leg svik, sem stofnunin telur trúverðugar. Á bloggsíðum og í almennum umræðum hafa hins vegar tvö gagnrýnin sjónarmið komið fram: annars vegar að Tryggingastofnun beiti einhvers konar stórabróður-eftirliti, þar sem fólk fái ekki að vera í friði á eigin samskiptasíðu, og hins vegar að það skjóti skökku við að elta smælingjana þegar stórsvindlarar sem komu við sögu í bankahruninu gangi enn þá lausir. Tryggingastofnun hlýtur að sjálfsögðu að fylgja eftir ábend- ingum um bótasvik. Þau eru lögbrot og enginn munur á því að stela peningum af ríkinu og af einhverjum öðrum. Peningarnir, sem greiddir eru í velferðarbætur, koma úr vasa skattgreiðenda. Þeir sem beita blekkingum til að fá meira af þeim peningum en þeim ber samkvæmt lögum eru að stela úr vasa samborgara sinna. Sama á við um þá sem skjóta undan skatti. Það er sjálfsagt að taka hart á þeim brotum eins og öðrum þjófnaði. Afstæðishyggja er varasöm þegar glæpur og refsing eru ann- ars vegar. Það er ekki ástæða til að refsa ekki fyrir lítinn glæp þótt einhver komist upp með stærri glæp. Atburðir gærdagsins sýndu reyndar að stórlaxar viðskiptalífsins, sem grunaðir eru um afbrot, eru ekki utan seilingar laganna arms. Rétt er að hafa í huga að í samfélagi, þar sem siðferðileg afstaða fólks er sú að það sé í lagi að stela litlum peningum, er veruleg hætta á að fólki fari líka að finnast í lagi að stela miklum peningum. Full ástæða er til að taka hart á bótasvikum í almannatryggingakerfinu. Stolið úr vasa náungans

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.