Fréttablaðið - 07.05.2010, Qupperneq 19
FÖSTUDAGUR 7. maí 2010 19
Pólitísk afskipti af strætókerf-inu þurfa ekki alltaf að vera
af hinu vonda. Stjórnmálamenn-
irnir eru, jú, fulltrúar almenn-
ings og ein boðleiðin til að koma
hugmyndum okkar um almenn-
ingssamgöngur er án efa í gegn-
um þá. Vandinn er hins vegar að
þeir sem tjá sig um strætó eru
oft menn sem hvorki nota það
né gætu hugsað sér að gera það.
Hættan við pólitísku afskiptin
er því sú að snautt skömmtuðu
fé verði frekar varið til verkefna
sem hljóma vel heldur en til verk-
efna sem myndu nýtast fleirum
betur.
Nýlega var til dæmis samþykkt
í borgarstjórn tillaga Samfylk-
ingarinnar um að taka upp 10
mínútna tíðni á stofnleiðum. Eins
kærkomið og mér, sem öðrum
farþegum þætti að aukna tíðni
stofnleiða úr 15 mínútum í 10, þá
er bæði einfaldara og betra fyrir
notendur að taka aftur upp marg-
ar þær ferðir sem felldar voru
út fyrir nokkrum árum. Þannig
ætti að þétta tíðnina innan núver-
andi kerfis: hafa hana 15 mínútur
í stað hálftíma yfir miðjan dag,
hálftíma í stað klukkutíma um
kvöld og helgar, og taka upp akst-
ur á sunnudagsmorgnum og stór-
hátíðum.
Segjum svo að skyndilega dyttu
100 milljónir í þágu almennings-
samgangna af himnum ofan og á
borð borgarstjórans.
Skynsamlegast væri að setja
stærsta hluta þess fjár beint inn
í strætókerfið og leyfa sérfræð-
ingum Strætó að finna út hvar
þeir nýttust best, á sama hátt
og sérfræðingar Strætó þurfa
að móta tillögur um niðurskurð,
þegar hagræða þarf í rekstri. En
það er alltaf heilmikill þrýst-
ingur á að setja féð frekar í ein-
hver auðhampanleg verkefni eins
og „frístundastrætó“, „smart-
kort“ eða einhverjar byltingar á
strætókerfinu.
Þegar rætt er um svokallaða
frístundavagna skiptir útfærsl-
an höfuðmáli. Í Grafarvogi mun
frístundastrætóinn þannig vera
einfaldlega hluti af leiðakerfi
Strætó. Það er hugmynd sem vit
er í. Að auki mættu sveitarfélög
gera meira af því að krefja
íþróttafélögin sjálf um árangur
í vistvænum samgöngum. Til
dæmis að skilyrða greiðslur eða
umbuna þeim félögum sérstak-
lega þar sem ákveðinn hluti
barna kemur á æfingu gangandi,
hjólandi eða í strætó. Það verð-
ur ekki hægt að brjótast út úr
vítahring skutlsins nema koma
því inn hjá börnum og foreldrum
að hjólreiðar séu ekki bara úti-
vist heldur samgöngumáti, og
að strætó sé ekki bara fyrir
aumingja.
Í Hafnarfirði hafa menn því
miður ekki borið gæfu til að
hugsa málið með jafnheildræn-
um hætti. Þar hefur þannig
verið komið á laggirnar sérstöku
almenningssamgöngukerfi, ein-
ungis fyrir börn og fólk undir
tvítugu. Sem sagt aðskilið strætó-
kerfi, bara fyrir ungmenni á leið
í íþróttir og tómstundastarf. Þótt
það sé nú kannski ekki góður
siður að draga mátt úr fólki sem
vill vel og reynir eflaust sitt
besta, þá má draga í efa hag-
kvæmnina og skynsemina við það
að beint á eftir hálftómri hverfis-
leið Strætó fyrir fullorðna, keyri
sérstök hverfisleið fyrir börn og
unglinga.
Strætókerfið er eins og vega-
kerfið. Hinum takmörkuðu fjár-
munum sem varið er í almenn-
ingssamgöngur á ekki að splitta
upp í mörg lítil strætókerfi fyrir
ólíka þjóðfélagshópa. Mundi það
annars hljóma skynsamlega að
búa til sérstaka frístundavegi
sem málaðir væru í skærum
litum og einungis börn og ung-
menni á leið í fótbolta mættu
nota? Allir sjá sóunina sem í því
fælist.
Margt af því sem tekið hefur
verið upp á í umræddu barna-
og unglingastrætókerfi Hafnar-
fjarðar er raunar ekki ósniðugt,
til dæmis það að hafa starfsmann
um borð í vögnunum til að fylgj-
ast með blessuðum börnunum. Öll
skref sem auka traust foreldra á
strætó sem ferðamáta eru af hinu
góða og tilvalið að halda þessum
strætóvörðum áfram þegar að
kerfið verður sameinað hinu
almenna strætókerfi, sem verður
vonandi sem fyrst. Annað sem er
af hinu góða er að foreldrum býst
að kaupa passa fyrir heilan vetur
og þurfa að því búnu ekki að telja
strætómiða ofan í litlu krílin. Að
sjálfsögðu á að koma upp slík-
um strætópössum upp í almenna
strætókerfinu sem allra fyrst.
Strætómiðarnir kenna börnum
nefnilega að strætó kostar,
en ferðin með bílnum hennar
mömmu sé alltaf ókeypis. Það er
vondur lærdómur.
Aðskilnaðarstrætó
Pawel Bartoszek
stærðfræðingur
Í DAG
Framboð Besta flokksins hefur farið hátt undanfarið
og sitt sýnist hverjum eins og
gefur að skilja þegar umræða
um stjórnmál er annars vegar.
Þegar skoðaðar eru nýlegar
kannanir um fylgi flokkanna
kemur berlega í ljós að kall-
að er eftir breytingum frá því
sem verið hefur. Eðlilega. Þetta
sýnir fylgi hins unga og síkáta
Besta flokks svo ekki verður
um villst. Besti flokkurinn er,
þrátt fyrir ungan aldur, hlaðinn
reynslu þeirra sem að honum
standa, hann gengur fyrir afli
umbreytinga, blæs frá sér kjarki
og gefur leyfi til að hugsa hlut-
ina upp á nýtt. Besti flokkurinn
stundar heiðarleg stjórnmál og
skemmtileg. Hann kynnir nýjar
og ferskar áherslur og boðar
öðruvísi Reykjavík – allskonar
Reykjavík.
Það felast tækifæri í því að
komast til valda í batteríi eins
og borginni. Því fylgir einnig
ábyrgð. Frambjóðendur Besta
flokksins vita að öllu gamni
fylgir nokkur alvara.
Mig langar að leggja að kjós-
endum að líta til baka og spyrja
sig hvort þeirra þörfum hafi
verið mætt af núverandi borg-
arstjórn, hverjar svo sem þær
kunna að hafa verið. Hefur ein-
hver talað þínu máli, hafa þau
málefni sem verið hafa í for-
grunni átt samhljóm með því
sem hefur verið ofarlega á baugi
hjá þér og þínum? Er einhver að
hlusta?
Besti flokkurinn hlustar á
fólk, menn og líka konur. Þess
vegna mun nýr og kynbættur
framboðslisti Besta flokksins
verða kynntur föstudaginn 7.
maí. Mun þá enn bætast í góðan
flokk fólks sem er í stakk búið að
umfaðma Reykjavík og byggja
upp samfélag þar sem fólki má
meira að segja langa til að geta
skoðað ísbjörn … og hafa gaman.
Það er kominn tími á breyting-
ar, það eru nýir tímar. Við stönd-
um frammi fyrir því að horfast
í augu við breyttar aðstæður og
við megum ulla á þá sem vilja
slá Besta flokkinn út af borðinu
sem eitthvað djók.
Ég er ekki grínisti
Borgarmál
Hjördís Sjafnar
Ingimundardóttir
frambjóðandi Besta
flokksins í Reykjavík
Það felast tækifæri í því að komast
til valda í batteríi eins og borginni.
Því fylgir einnig ábyrgð. Frambjóð-
endur Besta flokksins vita að öllu
gamni fylgir nokkur alvara.
AF ÖLLU PALLAEFNI, GIRÐINGA
EININGUM OG GARÐHÚSUM
20%
AFSLÁTTUR
GILDIR TIL 9. MAÍ