Fréttablaðið


Fréttablaðið - 07.05.2010, Qupperneq 21

Fréttablaðið - 07.05.2010, Qupperneq 21
FÖSTUDAGUR 7. maí 2010 21 Fjöldi þeirra sem eru án atvinnu á Íslandi er í sögulegu hámarki um þessar mundir og er þessi staða framandi fyrir flesta Íslendinga þar sem atvinnustig í landinu hefur verið mjög hátt um langan tíma. Áhrifin af langtíma- atvinnuleysi, á bæði starfsgetu og félagslega stöðu fólks, geta verið mikil ef ekki er brugðist við og leitað leiða til að viðhalda virkni og starfsgetu. Í þessari grein er ætlunin að kynna þá þjónustu sem Reykjavíkurborg býður á þjónustumiðstöðvum fyrir ein- staklinga sem eru án bótaréttar og eiga rétt á fjárhagsaðstoð. Viðhorfið skiptir miklu máli Það er ekki alltaf hægt að velja aðstæður en það er hægt að velja viðhorf til þeirra aðstæðna sem upp koma. Í dag gengur þjóð- in í gegnum kreppu og er komin í aðstæður sem hún hefur ekki valið sér. Viðhorf til þessara breyttu aðstæðna getum við hins vegar valið okkur. Í nýjum aðstæðum geta falist tækifæri til þess að gera hluti sem mann hefur alltaf langað til að gera en ekki haft tíma eða tækifæri til. Dæmi um þetta gætu verið að fara í nám, sinna fjölskyldu og áhugamálum betur eða taka þátt í félags- og sjálfboðaliðastarfi. Viðbrögð okkar og viðhorf geta gegnt lykilhlutverki í því hvern- ig við komum sterkari út úr þessu ástandi þegar því lýkur. Atvinnuleit og virkni Það er mikilvægt fyrir þá sem eru án atvinnu að viðhalda virkni sinni til þess að koma í veg fyrir afleiðingar sem geta fylgt því að vera án atvinnu yfir lengri tíma. Að hafa markmið og hlutverk í samfélaginu er okkur öllum mik- ilvægt. Þess vegna er ákjósan- legast að fara strax af stað, líta í kringum sig og koma auga á þau tækifæri sem standa atvinnuleit- endum til boða. Virkniráðgjafar Reykjavíkurborg hefur ráðið sex virkniráðgjafa sem starfa á þjónustumiðstöðvum borgarinn- ar. Hlutverk þeirra er að aðstoða og leiðbeina atvinnuleitendum, sem ekki eiga bótarétt hjá Vinnu- miðlun, um hvernig þeir geta við- haldið og jafnvel bætt starfsgetu og færni sína. Hluti af þjónustu virkniráðgjafa er að aðstoða atvinnuleitendur við að búa sér til persónulega virkniáætlun. Við gerð áætlunarinnar kemur atvinnuleitandinn á framfæri því sem hann telur vera heppileg- ustu virkni fyrir sig og ráðgjaf- inn leggur til úrræði sem koma til móts við það. Auk þessa getur virkniáætlun viðhaldið reglusemi sem er okkur svo mikilvæg og komið í veg fyrir að óregla kom- ist á svefn og jafnvel mataræði. Kynningarnámskeið Öllum atvinnuleitendum sem eiga rétt á fjárhagsaðstoð frá Reykja- víkurborg er boðið á kynningar- námskeið. Nú þegar hafa verið haldin tvö slík námskeið og hafa sótt þau um sjötíu einstakling- ar. Á þeim er farið yfir möguleg- ar óæskilegar afleiðingar þess að vera án atvinnu og leiðir til að koma í veg fyrir þær. Þá eru kynntar reglur um fjárhagsaðstoð Reykjavíkurborgar, réttindi og skyldur. Kynnt eru úrræði og stuðningur sem atvinnuleitend- um stendur til boða og þátttak- endum námskeiðsins er að lokum boðið að koma í einstaklingsvið- tal til virkniráðgjafa á þjónustu- miðstöð í sínu hverfi. Þátttakend- ur gera mat í lok hvers námskeiðs og í stuttu máli má segja að það hafi mælst mjög vel fyrir meðal þeirra. Úrræðin Fjölmörg úrræði standa atvinnu- leitendum til boða og má þar nefna Rauðakross-húsið og Hlut- verkasetur sem eru öllum opin og þar er boðið upp á fjölda nám- skeiða og verkefna sem ætlað er að stuðla að virkni og auka færni atvinnuleitenda. Reykjavíkurborg hefur sett á laggirnar átta ný úrræði og námskeið fyrir þá sem eiga rétt á fjárhagsaðstoð og eru án bóta- réttar. Námskeiðin eru fjölbreytt og þar ættu allir að geta fundið sér námskeið við hæfi. Allar skúrir styttir upp um síðir Atvinnuleitendur, sem ekki eiga rétt á atvinnuleysisbótum, eru eindregið hvattir til að leita til virkniráðgjafa á þjónustumið- stöð í sínu hverfi. Þar er hægt að fá stuðning og leiðbeiningar til að fást við þá stöðu að vera án atvinnu, stöðu sem er framandi fyrir marga. Hvatning til atvinnuleitenda í Reykjavík Atvinnuleysi Þórarinn Þórsson félagsráðgjafi Að hafa markmið og hlutverk í samfélaginu er okkur öllum mikil- vægt. Þess vegna er ákjósanlegast að fara strax af stað, líta í kring- um sig og koma auga á þau tækifæri sem standa atvinnuleitendum til boða.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.