Fréttablaðið - 07.05.2010, Qupperneq 50
30 7. maí 2010 FÖSTUDAGUR
Í lok maí er von á kynlífs-
myndbandi frá Kendru
Wilkinson í óþökk stjörn-
unnar. Ekki er allt sem sýn-
ist og margt bendir til þess
að hún hafi lagt blessun
sína á útgáfuna – þrátt fyrir
hótanir um málsókn.
Klámframleiðandinn Vivid til-
kynnti í vikunni útgáfu kyn-
lífsmyndbands með sjónvarps-
stjörnunni Kendru Wilkinson
í aðalhlutverki. Lögfræðingar
Kendru sendu í kjölfarið frá sér
yfirlýsingu um að myndbandið
væri raunverulegt, en allra leiða
yrði leitað til að koma í veg fyrir
útgáfu þess.
Kendra er þar með komin
í hóp stjarna á borð við Paris
Hilton og Kim Kardashian. Þær
skutust reyndar báðar upp á
stjörnuhimininn í kjölfar mynd-
banda sem sýndu þær stunda
kynlíf með þáverandi kærust-
um sínum, eins furðulega og það
hljómar. Tilkynning lögfræð-
inga Kendru er áþekk þeim
sem lögfræðingar Par-
isar og Kim sendu frá
sér á sínum tíma. Mynd-
bönd þeirra komu engu
síður út og stúlkurnar
sömdu um að fá hluta af
hagnaðinum.
Samkvæmt banda-
rískum vefmiðlum
er nær öruggt að
myndbandið komi
út, þrátt fyrir yfir-
lýsingar Kendru. Af
hverju? Jú, í Banda-
ríkjunum eru lög
sem kallast 2257.
Samkvæmt þeim er
ólöglegt að gefa út
kynlífsefni fólks,
án þess að fá frá
því undirskrift sem
Kendra og kynlífshneykslið
■ Kendra er ein af fjölmörgum fyrrverandi kærustum Playboy-kóngsins
Hugh Hefner.
■ Hún kom fram í þáttunum Girls of the Playboy Mansion, sem er einn
vinsælasti þáttur í sögu E!-sjónvarpsstöðvarinnar.
■ Í dag kemur hún fram í einum af vinsælustu þáttum E!, sem fjallar um
líf hennar og NFL-stjörnunnar Hank Basket, en þau eignuðust nýlega sitt
fyrsta barn.
HVER ER KENDRA WILKINSON?
sannar að það hafi verið 18
ára eða eldri þegar efnið
var framleitt.
Það er því ómögulegt
að hin fjölmörgu ólög-
legu kynlífsmynd-
bönd íbúa Hollywood
hefðu komið út án
undirskriftar og
samþykkis þeirra
sem fram komu
í myndbönd-
unum. Það
rennir
stoðum
undir
þá
kenn-
ingu,
að hótan-
ir um máls-
höfðanir séu
hluti af hannaðri atburðarás til
að kynna myndböndin.
Kendra á að hafa verið 18 eða
19 ára þegar myndbandið var
tekið upp, en „mótleikari“ hennar
er óþekktur. Samkvæmt tilkynn-
ingu Vivid fékk klámframleiðand-
inn myndbandið frá þriðja aðila og
hyggst gefa það út í lok maí. Áður
en það gerist má búast við stórum
yfirlýsingum úr herbúðum Kendru,
sem endar á því að báðir aðilar
semja um að hún fái greiddar fúlg-
ur fjár gegn því að láta dómsmál
niður falla. Þetta er nákvæmlega
það sem gerðist í nóvember í fyrra
þegar Vivid hugðist gefa út kyn-
lífsmyndband með leikkonunni og
fyrirsætunni Shaunu Sand.
Hún tók svo þátt í kynningar-
starfi myndbandsins.
atlifannar@frettabladid.is
Uppistandshópurinn Mið-Ísland mun
kitla hláturtaugar manna að Gljúfra-
steini klukkan 16 á laugardag. Halldór
Halldórsson, betur þekktur sem Dóri
DNA, segir hópinn ætla að vera með
menningarlegt grín þar sem gert er
grín að ungskáldum, tónlistarhúsinu
og ýmsum þemum úr bókum Guðbergs
Bergssonar. „Okkur fannst mjög viðeig-
andi að halda uppistand að Gljúfrasteini
og höfum séð það í hillingum alveg frá
því við stofnuðum hópinn. Ég vann þarna
lengi og sá um skipulagningu ýmissa
viðburða þar og sá þá að þetta er góður
vettvangur fyrir uppistand. Þetta er líka
algjör hláturhöll og þarna hefur mikið
verið grínast í gegnum tíðina,“ útskýr-
ir Dóri DNA, sem einmitt er barnabarn
Nóbelsskáldsins Halldórs Laxness. Dóri
kemur fram ásamt þeim Jóhanni Alfreð,
Ara Eldjárn og Bergi Ebba. Hann hyggst
koma fram órakaður og með hatt að
hætti ungskálda en segir hina piltana
ekki muna gera slíkt hið sama. „Ég er
sá eini í hópnum sem vex almennilega
skegg, hinir hefðu þurft lengri fyrirvara
ef þeir ættu að geta verið með.“
Hann segist viðbúinn fjölmenni en
óttast ekki að þurfa að vísa fólki frá
sökum plássleysis. „Það er svo ótrú-
legt með þennan sal að það virðist alltaf
vera pláss fyrir alla. Þetta er líka fyrsta
giggið okkar eftir árshátíð hópsins sem
haldin var í Kaupmannahöfn fyrir stuttu
og þess vegna mjög viðeigandi að það
fari fram að menningarsetrinu Gljúfra-
steini.“
Aðgangseyrir er 800 krónur og gildir
það einnig sem miði inn á safnið. - sm
Gamanmál á Gljúfrasteini
GRÍNAÐ AÐ GLJÚFRASTEINI Ari, Dóri, Jóhann
og Bergur í Mið-Íslandi, en hópurinn verður
með uppistand á menningarsetrinu Gljúfra-
steini á laugardag. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
KYNLÍFSHNEYKSLI
Paris Hilton og
Kim Kardashian
högnuðust báðar
á útgáfum kyn-
lífsmyndbanda
sem þær virtust
í fyrstu ætla
að hindra að
kæmu út.
> BORÐAR BARNAMAT
Nýtt æði hefur gripið um sig í
Hollywood og er hvern stjarn-
an á fætur annarri farin að
snæða barnamat til að halda
sér grannri. Leikkonan Jennifer
Aniston er þeirra á meðal og
hefur hún misst um 4 kíló á
einni viku á þessum undar-
lega kúr.
Hin unga leikkona Kristen Stewart segist ekki
vera fýld þegar hún gengur rauða dregilinn held-
ur sé hún aðeins hrædd og óörugg. Hún segir
fylgifiska frægðarinnar oft á tíðum erfiða og
nefnir þá sérstaklega atgang ljósmyndara. „Um
leið og einhver uppgötvar að þú sért á staðnum er
öruggara að forða sér. Fólk virðist missa sig. Og
ljósmyndararnir, þeir eru hræðilegir. Þeir eru
dusilmenni,“ sagði leikkonan.
„Mér finnst skrítið þegar ég fer á svið og fólk
segir að ég sé taugaóstyrk og óörugg, og ég er
það, en fólk lætur það hljóma eins og það sé eitt-
hvað slæmt. Svo eru aðrir sem segja að ég sé fýld.
En ég er það ekki, það eru bara allir að öskra á þig
úr öllum áttum og stundum verður það of mikið
og þá þarf ég að berjast við tárin. Maður verður
andlega búinn á því.“
Twilight-stjarna óttast ljósmyndara
EKKI FÚL Kristen Stewart segist ekki fýld, heldur aðeins and-
lega búin á því. NORDICPHOTOS/GETTY
folk@frettabladid.is