Fréttablaðið - 13.05.2010, Blaðsíða 15

Fréttablaðið - 13.05.2010, Blaðsíða 15
FIMMTUDAGUR 13. maí 2010 Fólkið í landinu vantreystir rétt-arkerfinu eins og vandaðar skoðanakannanir hafa sýnt um ára- bil. Innan við þriðji hver Íslending- ur ber nú mikið traust til dómskerf- isins. Þegar spurt var um traust manna til Alþingis fyrir hrun, var hlutfallið svipað, eða tæpur þriðj- ungur, en eftir hrun hrapaði traust- ið enn neðar. Nú segist áttundi hver maður bera mikið traust til Alþing- is. Einn af átta. Skýringin á vantrausti almenn- ings í garð dómskerfisins blasir við. Dómskerfið er skilgetið afkvæmi gerspilltrar stjórnmálastéttar. Sjálfstæðisflokkurinn og Fram- sóknarflokkurinn, sem standa nú berskjaldaðir frammi fyrir lands- mönnum í ljósi skýrslu Rannsóknar- nefndar Alþingis (RNA), hafa stýrt dómsmálaráðuneytinu og skipað alla dómara landsins frá 1926, ef frá eru talin sex ár (1944-47, 1956- 58, 1979-80, 1987-88). Þessir tveir flokkar settu bankana í hendur manna, sem keyrðu bankana í kaf á sex árum. Því er skiljanlegt, og einnig í ljósi ýmissa genginna dóma á fyrri tíð, að fólkið í landinu telji sig þurfa að óttast, að dómstólarn- ir sýkni flesta eða alla sakborninga bankahrunsins, þegar þar að kemur. Skýrsla RNA segir berum orðum, að bankarnir hafi brotið lög. Byrgjum brunninn í tæka tíð Hér er enginn smávandi á ferðum. Það er grundvallarregla í réttar- ríkjum, að ekki er hægt að sækja menn oftar en einu sinni til saka í sama máli. Prófessor William Black flutti nýlega tvo fyrirlestra í Háskóla Íslands um afbrotafræði- legar hliðar hrunsins og benti á, að Alþingi þyrfti að endurskoða skip- an dómstólanna, ef svo illa færi, að ljóslega sekir bankastjórnendur og aðrir slyppu við refsingu. Nær væri því að endurskoða dómstólaskipan- ina, áður en bankahrunið kemur til kasta dómstólanna. Ég sendi for- sætisráðherra stutta minnisgrein um málið 27. marz 2009 með afriti til tveggja af helztu lögræðingum landsins, en ég hef engin viðbrögð fengið frá ráðuneytinu. Í minnisgreininni lýsti ég því, að mörg undangengin ár hafa legið fyrir stjórnvöldum tillögur frá dómarafélaginu og öðrum um að umskipa dómsvaldinu með því að hafa dómstigin þrjú frekar en tvö. Rökin eru þau, að of mörg mál komi nú til kasta Hæstaréttar og því sé eðlilegt, að nýtt millidómstig taki við málum, sem áfrýjað er úr hér- aði, og Hæstiréttur fjalli aðeins um þau mál, sem mikilvægust eru talin, og hafi þá betri skilyrði en hann hefur nú til að vanda til verka. Sé þetta gert, er hægt að leggja niður störf allra dómara í Hæsta- rétti samkvæmt heimild í 61. grein stjórnarskrárinnar, en þar segir um dómara: „ ... og ekki verða þeir heldur fluttir í annað embætti á móti vilja þeirra nema þegar svo stendur á, að verið er að koma nýrri skipun á dómstólana.” Þessi heim- ild stjórnarskrárinnar er ótvíræð og auðskiljanleg: hægt er að flytja dómara í annað embætti á móti vilja þeirra, sé verið að koma nýrri skip- un á dómstólana. Síðan er hægt að skipa dómara í Hæstarétt upp á nýtt með nýrri aðferð, þar sem erlendir menn, til dæmis lagaprófessorar og dómarar, verða fengnir til að hjálpa til við að meta hæfi umsækjenda og girða fyrir landlægan klíkuskap og nápot. Fyrri dómarar hefðu sama rétt og aðrir til að sækja um störf- in. Ærin tilefni Þessi róttæka tillaga er ekki borin fram að ástæðulausu. Fyrrum ráðherra, sem Rannsóknarnefnd Alþingis segir hafa sýnt van- rækslu, fékk nýlega á sig dóm fyrir að skipa son flokksformanns síns í dómarastarf, þótt aðrir mun hæfari umsækjendur væru í boði. Frænd- inn og vinurinn í Hæstarétti eru mönnum í fersku minni, og það er einnig viðsnúningur Hæstaréttar í kvótamálinu undir þrýstingi frá ríkisstjórninni. Þennan ávirðinga- lista mætti lengja. Með því að end- urskipa Hæstarétt nú þegar væri betur tryggt, að útgefnar ákærur ríkissaksóknara og sérstaks sak- sóknara fengju trúverðuga meðferð í Hæstarétti, þar sem dómendur hafa fengið hæfnisdóm erlendrar matsnefndar. Svipuð hreingerning þyrfti einnig að fara fram í öllu dómskerfinu og hjá ríkislögreglu- stjóra, og þótt fyrr hefði verið. Þótt spillingin í Sjálfstæðis- flokknum (og einnig Framsóknar- flokknum) hafi mengað svo dóms- kerfið, að almenningur telur sig ekki geta treyst dómstólunum, bera aðrir flokkar einnig ábyrgð. Enda hafa þeir yfirleitt ekki reynt að leið- rétta slagsíðuna í þau fáu skipti, sem þeir hafa stýrt dómsmála- ráðuneytinu, til dæmis í tíð þeirr- ar ríkisstjórnar, sem nú situr. Vand- inn er því ekki bundinn við gömlu helmingaskiptaflokkana, heldur við stjórnmálastéttina eins og hún leggur sig. Við þessum vanda þarf að bregðast, áður en bankahrunið kemur til kasta Hæstaréttar. Djúpar sprungur í dómskerfinu Þorvaldur Gylfason prófessor Í DAG Starfsemi á árinu 2009 Allar fjárhæðir í milljónum króna Breytingar á hreinni eign til greiðslu lífeyris 31.12. 2009 2008 Samtals Samtals Iðgjöld 174 159 Lífeyrir -198 -180 Fjárfestingartekjur 389 48 Fjárfestingargjöld -3 -3 Rekstrarkostnaður -20 -11 Aðrar tekjur 24 14 Hækkun á hreinni eign á árinu 365 28 Hrein eign frá fyrra ári 2.437 2.505 Hrein eign til greiðslu lífeyris 2.801 2.533 Efnahagsreikningur 2009 2008 Fasteign, rekstrafjármunir og aðrar eignir 11 17 Verðbréf með breytilegum tekjum 1.306 1.067 Verðbréf með föstum tekjum 1.151 634 Veðlán 161 123 Bankainnistæður 208 621 Kröfur 1 1 Aðrar eignir Skuldir -35 -27 Hrein eign til greiðslu lífeyris 2.801 2.437 Kennitölur 2009 2008 Nafn ávöxtun Hrein raunávöxtun 6,8% -15,7% Hrein raunávöxtun 5 ára meðaltal 2,3% 2,0% Fjöldi sjóðfélaga 146 155 Fjöldi lífeyrisþega 225 224 Rekstrarkostnaður í % af eignum Eignir í íslenskum krónum í % 66,6% 64,8% Eignir í erlendum gjaldmiðlum í % 33,4% 35,2% Eign umfram heildar skuldbindingar í % -59,9% -60,6% Eign umfram áfallnar skuldbindingar í % -59,6% -60,5% Ársfundur 2010 Ársfundur Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar 2010, verður haldinn mánudaginn 14. júní nk. kl. 16.00 í Bæjarstjórnarsal Kópavogsbæjar, Fannborg 2, 1. hæð Stjórn og framkvæmdastjóri Í stjórn lífeyrissjóðsins eru Hlynur Jónsson, stjórnarformaður, Guðríður Arnardóttir, Sigurrós Þorgrímsdóttir, Guðrún Pálsdóttir og Ragnar Snorri Magnússon. Framkvæmdastjóri sjóðsins er Jón G. Kristjánsson Aðsetur sjóðsins er hjá Lífeyrissjóði starfsmanna sveitarfélaga Sigtúni 42, 108 Reykjavík Sími 570 0400 www.lss.is Lífeyrissjóður starfsmanna Kópavogsbæjar Birt með fyrirvara um prentvillur Skráðu þig á póstlistann á www.netto.is! Mjódd - Salavegi - Hverafold - Akureyri - Höfn - Grindavík - Reykjanesbæ Tilboðin gilda 13. - 16. maí eða meðan birgðir endast Birt með fyrirvara um prentvillur 38% afsláttur KLEMENTÍNUR OPIÐ Í DAG UM LAND ALLT 12:00-18:00 1.259 kr/kg áður 1.798 kr/kg LAMBALÆRI NETTÓ FYLLTAR SVÍNALUNDIR FERSKAR 1.979 kr/kg áður 2.998 kr/kg 34% afsláttur 30% afsláttur 50% afsláttur

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.