Fréttablaðið - 13.05.2010, Blaðsíða 36
20 13. maí 2010 FIMMTUDAGUR
menning@frettabladid.is
> Ekki missa af …
John Gabriel Borkman eftir
Ibsen í kvöld á Rás 1 kl. 22.25.
Borkman reis hátt í fjármálalíf-
inu en var dæmdur í fangelsi
fyrir misferli. Eftir þriggja ára
fangelsi sneri hann heim og
hefur í átta ár lokað sig inni.
Kona hans og mágkona sitja
og hlusta á hann ráfa um efri
hæð í húsi þeirra. Uppgjör er
óumflýjanlegt. Valur Gíslason,
Anna Guðmundsdóttir og
Guðbjörg Þorbjarnardóttir fara
með helstu hlutverk. Leikstjóri
er Indriði Waage en upptakan
er frá 1960.
ath. kl. 21 í Múlanum
Bréfsnjef kvintettinn spilar í kvöld:
trompetleikararnir, Birkir Freyr
Matthíasson og Snorri Sigurðarson,
píanóleikarinn Kjartan Valdemarsson,
bassaleikarinn Valdimar Kolbeinn
Sigurjónsson og trymbillinn Einar
Scheving leika uppáhalds standardana
sína þar sem trompetinn verður í for-
grunni og að þótt hart verði barist er
ávallt stefnt á jafntefli. Þetta eru tón-
leikar sem enginn má missa af.
Anna Richards flytur á laugardag
dansgjörninginn „Sláturhús hjartans”
í listrými Verksmiðjunnar á Hjalteyri
við Eyjafjörð. Sýningin hefst kl. 17.
Höfundar verksins eru Anna
Richards dansgjörningalistakona og
Sigurbjörg Eiðsdóttir myndlistarkona.
Í verkinu koma fram, auk Önnu, Hall-
grímur J. Ingvason tónlistarmaður,
Helga Rós Indriðadóttir sópransöng-
kona, Sigurður Hólm Sæmundsson
björgunarsveitarmaður og Karlakór
Dalvíkur undir stjórn Guðmundar Óla
Gunnarssonar. Sviðsstýra og ljósmóð-
ir verksins er Lene Zachariassen.
Í verkinu er fjallað um ferðalag mannveru
innan völundarhúss hjarta þess og þau átök sem
þar eiga sér stað og leiða hana í gegnum ferli
ástríðna, uppgjafar, ótta, skilnings og
umbreytinga.
Umgjörð verksins er unnin inni
í rými gömlu síldarbræðslunnar á
Hjalteyri og er áhorfendum frjálst
að færa sig til í rýminu meðan á
flutningi verksins stendur því einnig
er hægt að fylgjast með verkinu af
annarri hæð hússins. Tónlist í verkinu
er að hluta frumsamin og flutt sem
spunaverk þar sem dansari og tón-
listarmenn spinna saman.
Norðanmenn eiga kost á sætaferð
á sýninguna frá Listasafninu á Akur-
eyri kl. 16.30. Ókeypis er á sýninguna
en hún hlaut styrk frá Leiklistarráði Íslands og
Menntamálaráðuneyti 2010 og frá Menningarráði
Eyþings.
Sláturhús hjartans á laugardag
LISTDANS Anna Richards í
verki sínu sem flutt verð-
ur í hráum sal á Hjalteyri
á laugardag.
Listahátíð í Reykjavík hófst
í gær í fertugasta sinn.
Fjöldi viðburða er á dag-
skránni næstu þrjár vikur
og vara sumar sýningar
langt inn á sumarið. Hátíð-
in er fyrir löngu orðinn einn
helsti boðberi sumars og
ljósfylltra daga í Reykjavík
og þótt hún hafi mátt draga
úr kröftum sínum í ljósi
efnahagsaðstæðna er mikil
og fjölbreytt dagskrá í boði.
Ljósmyndin setur stóran svip á
dagskrá hátíðarinnar. Hingað
koma margir góðir gestir með
myndefni sitt og hefur ekki í
annan tíma verið annað eins flóð
af ljósmyndaverkum á sýningar-
stöðum vítt og breytt um höfuð-
borgarsvæðið. Það eru bæði inn-
lendir og erlendir ljósmyndarar
sem sýna og er á næstu vikum
einstakt tækifæri fyrir almenn-
ing að kynnast þessu fjölbreytta
skráningar- og listformi sem ljós-
myndin er.
Fyrsta ber að telja listakon-
una Cindy Sherman en sýning
með verkum hennar í Listasafni
Íslands verður opnuð á laugardag.
Sherman sýnir þar Stills, safn
uppstilltra ljósmynda þar sem
listakonan sviðsetur sig í heim
svart/hvítra augnablika úr vest-
rænni kvikmyndahefð. Cindy er
löngu viðurkennd sem einn merk-
asti listamaður sinnar tíðar.
Annar New York-búi sýnir
myndir sínar í Listasafni Reykja-
víkur, David Byrne, og á upplýs-
ingastöndum Reykjavíkur segir:
Byrne er þekktastur fyrir rekst-
ur sinn á combóinu Talking Heads
en hefur síðan lagt gjörva hönd á
margt.
Finnar hafa á örfáum árum
markað sér sérstöðu í heimi
nútíma ljósmyndunar: í Norræna
húsinu koma þrír finnskir ljós-
myndarar saman með þremur
íslenskum starfsbræðrum sínum
í sýningunni Núna. Þar eru bæði
myndbandsverk og ljósmyndir.
Spessi og Katrín Elvarsdóttir eru
sýningarstjórar.
Katrín er sjálf með sýningu í
Gallerí Ágúst á Baldursgötu 12
sem opnar í dag: þar sýnir hún
verk úr röðinni Equivocal sem
hún hefur unnið að síðustu þrjú
ár.
Stalla hennar, Bára Kristins-
dóttir, sem er ein þeirra sem eiga
myndir á Núna, er líka með sýn-
ingu á nýju efni í sal Íslenskrar
grafíkur í Hafnarhúsi, Miðbakka-
megin, sem er opnuð á sunnudag.
Hún kallar sýninguna Stilla og eru
allar myndirnar teknar í Reykja-
vík í janúar á þessu ári. Með þess-
um myndum vill Bára lýsa stemm-
ingunni sem var í borginni þessa
fyrstu daga ársins 2010.
Þriðja konan sem sýnir verk sín
næstu vikur er Inga Sólveig Frið-
jónsdóttir en hún opnar á morg-
un innsetningu í glugga Auga
fyrir auga sem hún kallar Vol-
canic bedroom. Eins og titillinn
gefur til kynna er listamaðurinn
undir áhrifum eldgosa sem hér
hafa dunið yfir að undanförnu.
Auga fyrir auga er á Hverfisgötu
35, á horni Klapparstígs og Hverf-
isgötu.
Ólöf Nordal er kunnari af
skúlptúrum sínum en ljósmynda-
verkum en í Listasafni ASÍ við
Freyjugötu sýnir hún ljósmynda-
verk sem snerta arfleifð þjóðar á
gagnrýninn og beittan hátt. Hún
stillir saman nýjum myndum við
myndir af eldri minnum úr þjóð-
arsögunni svo ný merking fæðist
í árekstri tveggja miða.
Á Kjarvalsstöðum er Annað
auga, sýning ljósmyndaverka úr
safni Péturs Arasonar og Rögnu
Róbertsdóttur sem eiga stærsta
safn samtímaverka í einkaeign
hér á landi. Birta Guðjónsdótt-
ir hefur dregið saman úr safni
þeirra verk íslenskra og erlendra
listamanna sem nota ljósmyndina
í verkum sínum og er spennandi
að sjá hvaða listamenn hún kall-
ar á fund við gesti Kjarvalsstaða.
Annað auga opnar í dag kl. 17.
Sýningin á Kjarvalsstöðum
rímar við yfirlitssýningu ljós-
myndaverka Sigurðar Guðmunds-
sonar sem mynda sýninguna
Situations and other photo works
1974-1982 í gallerí i8. Ljósmynda-
verkin voru eitt það fyrsta sem
vakti athygli á Sigurði og mörgum
er kunn samnefnd bók sem hér
kom út fyrir nokkrum árum helg-
uð seríunni. Situations-verkin eru
víðkunn í alþjóðlegum listaheimi
en sum þeirra hafa ekki áður sést
hér á landi - fyrr en nú.
Stór útiljósmyndasýning er
komin upp á húsveggjum í mið-
borg Reykjavíkur. Þrettán lista-
menn sýna verk sín og kalla sýn-
inguna Raunveruleikatékk.
Norður á Akureyri er samsýn-
ing fimm listamanna sem skoða
naumhyggjuna í íslenskum ljós-
myndaverkum síðustu áratuga og
kalla þeir hana Straumur - burða-
rás.
Önnur samsýning er uppi í
Listasafni Reykjanesbæjar: Efna-
skipti. Anna Líndal leiðir hóp
fimm kvenna sem vinna með ljós-
myndir.
Í Hafnarborg sýnir þýski ljós-
myndarinn Friederike von Rauch
myndir sem hún tók í dvöl sinni
á listamannasetrinu Bæ í Skaga-
firði.
RAX, hinn kunni ljósmyndari,
hefur sett upp nokkur verk sín í
húsnæði Crymogeu á Barónsstíg
og kallar sýninguna Svipi.
Sýning Gary Schneiders í Hafn-
arhúsi birtir okkur einhvers konar
svipi í sérstakri tökutækni hans af
nöktum líkömum. Gary er þekkt-
ur og mun hann vera með fyrir-
lestur á morgun um hádegisbilið
í Hafnarhúsi um aðferð sína og
list en sýning hans opnar á laug-
ardag.
Af öðru sauðarhúsi eru sýning-
ar tveggja safnara: Unnar Örn
J. Auðarson er með innsetningu
í Listasafni Reykjavíkur sem er
sótt í safnmuni reykvísku safn-
anna, en í Skaftfelli á Seyðis-
firði eru verk eftir Geira - Ásgeir
Emilsson uppi.
Báðar sýningarnar skarast við
aðrar greinar en falla samt að
hluta innan þeirrar ljósmynda-
flóru sem birtist gestum safna á
næstu dögum.
Þá eru ótaldar merkilegar
tveggjamannasýningar sem eru
nokkrar: Einar Falur fer í slóð
Collingwoods og við sjáum mótíf
í landslagi frá tveimur ólíkum
tímum á sýningu í Þjóðminja-
safninu.
Í Ljósmyndasafni Reykjavíkur
er tveggja heima sýn í myndum
Thomsen og Thomsen, Péturs og
Péturs sem ein kynslóð aðskilur.
Í-Kling & Bang sýna Maria
Dambek og Robin McAulay ljós-
myndaseríu frá Berlín af frægu
listahúsi hústökumanna, Þórsgötu
111.
Tvíeykið Nikolai von Rosen og
Florian Wojnar sýna í Nýlistasafn-
inu uppstillingar sem þeir koma
fyrir á ólíklegustu stöðum.
Þá er að lokum að nefna sýningu
úr Breiðholtinu: Friðgeir Helga-
son hefur fest staði bernsku sinn-
ar á filmu í því góða hverfi.
Það er því nóg að sjá: 22 sýning-
ar sem eru í senn á mörkum og í
miðju ljósmyndunar okkar tíma.
pbb@frettabladid.is
Ljósmyndin í fyrirrúmi
LJÓSMYNDIR Cindy Sherman: Ónefnd kvikmyndaskot / Untitled Film Stills, 1978
Svarthvít ljósmynd / Black and white photograph 8 x 10 tommur / inches
MYND MEÐ LEYFI LISTAMANNS OG METRO PICTURES / COURTESY OF THE ARTIST AND METRO PICTURES.
1
3
5
7
9
2
4
6
8
10
Rannsóknarskýrsla Alþingis
Rannsóknarnefnd Alþingis
Fyrirsætumorðin
James Patterson
Pétrísk-íslensk orðabók
Pétur Þorsteinsson
Nemesis
Jo Nesbø
Missir
Guðbergur Bergsson
Matur og drykkur
Helga Sigurðardóttir
Góða nótt, yndið mitt
Dorothy Koomson
Hafmeyjan
Camilla Läckberg
Hvorki meira né minna
Fanney R. og María Elínard.
Sítrónur og saffran
Kajsa Ingemarsson
METSÖLULISTI EYMUNDSSON
SAMKVÆMT BÓKSÖLU Í EYMUNDSSON UM LAND ALLT
05.05.10 – 11.05.10