Fréttablaðið - 17.05.2010, Síða 1

Fréttablaðið - 17.05.2010, Síða 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI17. maí 2010 — 114. tölublað — 10. árgangur FASTEIGNIR.IS 17. MAÍ 2010 20. TBL. Heimili fasteignasala hefur til sölu mikið endur- nýjað 190 fermetra endaraðhús að Látraströnd 28 á Seltjarnarnesi. H úsið er á þremur pöllum en komið er inn á neðsta pallinn. Þar er anddyri með flísum og stórum fataskáp. Gestasnyrting er flísalögð í hólf og gólf með skáp og innréttingu. Hol/gangur með parketi. Tvö barnaherbergi með parketi eru á pallin-um. Gengið er út á lóðina úr öðru herbergi. Þvottahús er með flísum á gólfi, innréttingu og þar má einnig ganga út á lóðina. Miðpallurinn er opin stofa með mik-illi lofthæð, parketi á gólfi og útgangi á lóðina. Falleg-ur arinn er í stofunni. Komið er upp á efsta pallinn úr stofunni. Þar er rúmgóð parketlögð borðstofa. Eldhús með flísum og fallegri innréttingu, hvít og úr eik. Sólskáli tengir á skemmtilegan hátt saman borðstofuna og eldhúsið. Á svefnherbergisgangi er hjónaherbergi með parketi, tvö herbergi með parketi og skápum, stórt baðherbergi flísalagt í hólf og gólf, sturta og stórt nuddbaðkar. Húsið hefur verið mikið endurnýjað síðastliðin ár. Að sögn eiganda var húsið klætt að utan fyrir um 5 árum og frárennsli endurnýjað. Rafmagnstafla er ný og rafmagn yfirfarið og endurnýjað að mestu. Innfelld lýsing er í hluta hússins. Fyrir 2-3 árum voru nánast öll gólfefni, innréttingar, innihurðir, baðherbergi o.fl. endurnýjað. Ágætt útsýni. Sölusýning verður haldin í dag klukkan 16:30. Mikið endurnýjað enda-raðhús á þremur pöllum Fallegur arinn er í stofunni. Húsið er mikið endurnýjað bæði að innan og utan. Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447 FÆTUR húsmæðra og -feðra fá sjaldan frí. Meðan hend- urnar vinna mikið verk í eldhúsinu fyrir kvöldmatartíma er því ekki úr vegi að huga að tánum. Það má gera með því að koma sér upp mjúkri mottu til að standa á. Hilla fyrir helg b Þ ð Öfugt við marga unglinga hefur Sylvía Lind gaman af gömlum hlutum sem fylgt hafa fjölskyldunni. Kisan hennar heitir Snúlla. FRÉTTABLAÐIÐ/GV Allar vörur með 20% afslætti til 21 maí í bústaði híbýli og viðhaldMÁNUDAGUR 17. MAÍ 2010 3 SÉRBLÖÐ í Fréttablaðinu Allt Fasteignir.is Híbýli og viðhald MÁNUDAGUR skoðun 14 veðrið í dag Heiðarleika Veljum framboð um H-lista í vor Ólafur F. Magnússon greiðir auglýsinguna LAGADEILD Metnaður og gæði Umsóknarfrestur til 5. júní Lagadeild Nóatúni 4 · Sími 520 3000 www.sminor.is Bæklingur fylgir með Börnin send á Diskóeyju Óttarr Proppé og Bragi Valdimar stilla saman strengi sína. fólk 30 Nýr prestur í Fríkirkjunni Frelsið og umburðarlyndið innan Fríkirkjunnar hefur ávallt höfðað til Bryndísar Valbjarnardóttur. tímamót 16 8 3 5 8 8 SVALT NORÐANLANDS Í dag verður norðlæg eða breytileg átt, víða 3-8 m/s. Búast má við lítils- háttar rigningu við norðurströnd- ina. Sunnanlands eru horfur á skúrum, einkum síðdegis. VEÐUR 4 FÓLK Hjónin Hannes Þór Bald- ursson og Berglind Björk Halldórsdóttir ákváðu að breyta heimili sínu í gistiheimili til að geta átt fyrir afborg- unum af húsinu. Fleiri húseig- endur hafa gert slíkt hið sama. „Lánið hafði hækkað svo mikið og maður var orðinn þreyttur á því að púla og púla til að láta enda ná saman,“ segir Hannes Þór. Hjónin fluttu ásamt börnum sínum þremur í íbúð í næsta nágrenni. „Við erum nýbyrj- uð og enn að ganga frá öllum til- skyldum leyfum en við erum byrj- uð að fá nokkrar bókanir og erum bjartsýn fyrir sumarið,“ segir Hannes Þór. -sm / sjá síðu 30 Breyta heimilinu í gistihús: Bjartsýn fyrir sumarið HEILBRIGÐISMÁL Stór lyfjafyrirtæki íhuga alvarlega að hætta að setja ný lyf á markað hér á landi, og jafnvel hætta að selja lyf sem þau eru með í sölu í dag vegna lækkandi lyfja- verðs og óstöðugleika á lyfjamarkaði hér á landi. „Það er ekki hægt að lækka endalaust lyfja- verðið á Íslandi, eins og landið sé í einhvers konar tómarúmi,“ segir Robin Turner, fram- kvæmdastjóri hjá sviss- neska lyfjafyrirtækinu Roche. Fyrirtækið er eitt stærsta lyfjafyrirtæki heims og stærsti framleið- andi krabbameinslyfja í heiminum í dag. „Það verður að horfa á heildarmyndina, það getur vel verið að það sé hægt að ná hagræð- ingu, en ríkisstjórnin á Íslandi er ekki að beita réttum aðferðum. Þeir taka einhliða ákvarð- anir hverja annarri vit- lausari, og hafa ekkert samráð við okkur eða önnur lyfjafyrirtæki. Þá er ekki hægt að kom- ast að niðurstöðu sem gengur upp fyrir báða aðila,“ segir Turner. Hann segir ófremd- arástand hafa ríkt á lyfjamark- aðinum á Íslandi undanfarið. Þar skipti ekki síst máli að heilbrigð- isráðherra hafi ítrekað tekið ein- hliða ákvarðanir, breytt fyrri ákvörðunum fyrirvaralaust og án samráðs. „Það er augljóst að ef lyfja- verðið fer undir ákveðið lágmark hefur mitt fyrirtæki engin önnur úrræði en að hætta við að setja tiltekin lyf á markaði á Íslandi,“ segir Turner. Þá sé líklegt að hætt verði að selja ákveðin lyf sem hafi verið í sölu á Íslandi fari verðið undir ákveðið lágmark. Þó íslenski lyfjamarkaðurinn sé lítill er ekki hægt að bjóða lægra verð hér en annars staðar í Evrópu, segir Turner. Ástæðan er sú að bjóðist betri verð hér en á margfalt stærri mörkuðum sé einfaldlega gerð krafa þar um að fá lyfin á jafn lágu verði. Hann segir Roche fráleitt eina fyrirtækið sem sé búið að fá nóg. Önnur stór lyfjafyrirtæki séu í sömu stöðu, og þar hljóti menn að íhuga málin á sama grundvelli. Álfheiður Ingadóttir heilbrigð- isráðherra segir kröfu Íslendinga ekki að fá lyfin á lægra verði en aðrir, aðeins að fá sambærilegt verð og nágrannalöndin. „Það er misskilningur að þetta skipti sköpum varðandi afkomu lyfjafyrirtækjanna í heiminum, þetta er 300 þúsund manna mark- aður, sem er örmarkaður fyrir lyfjaiðnaðinn. Ég held að það séu ýkjur að þessi fyrirtæki íhugi að hætta að setja lyf á markað hér á landi.“ - bj / sjá síðu 8 Íhuga að sniðganga Ísland Alþjóðleg lyfjafyrirtæki gætu hætt við að setja lyf á markað hér á landi vegna lækkandi lyfjaverðs og óstöð- ugleika segir talsmaður lyfjarisa. Ráðherra segir þetta ýkjur enda Ísland örmarkaður fyrir lyfjafyrirtæki. FÉLAGSMÁL „Þetta var fyrst og fremst falleg stund sem við héldum til að minnast þeirra sem fallið hafa frá,“ segir Gunnlaugur I. Grétarsson, for- maður samtakanna HIV-Ísland. Samtökin stóðu fyrir árlegri minningarguðs- þjónustu vegna þeirra sem látist hafa úr alnæmi í Fríkirkjunni í gær. Kveikt var á 38 kertum, einu fyrir hvern þeirra Íslendinga sem látist hafa, segir Gunnlaugur. „Þetta er alltaf meiri minningardagur en bar- áttudagur. Við komum saman og áttum fallega stund,“ segir Gunnlaugur. Hann segir að talsvert hafi verið rætt um for- dóma í Fríkirkjunni í gær. Bæði þá fordóma sem þeir sem látist hafa úr alnæmi þurftu að glíma við, og þá fordóma sem þeir sem sjálfir eru með sjúkdóminn þurfa að eiga við hjá sjálfum sér. - bj Árleg minningarguðsþjónusta um þá sem látist hafa úr alnæmi í Fríkirkjunni: Kveiktu á kertum til minningar MINNTUST LÁTINNA Samtökin HIV-Ísland stóðu fyrir minningarathöfn um þá Íslendinga sem látist hafa úr alnæmi í Fríkirkj- unni í gær. Gestir kveiktu á einu kerti fyrir hvern af þeim 38 sem látist hafa úr sjúkdóminum. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Ég held að það séu ýkjur að þessi fyrirtæki íhugi að hætta að setja lyf á markað hér á landi. ÁLFHEIÐUR INGADÓTTIR HEILBRIGÐIS- RÁÐHERRA HANNES ÞÓR BALDURSSON FH með montréttinn FH vann 1-0 sigur á Hauk- um í fyrsta Hafnarfjarðar- slagnum í 36 ár. íþróttir 27

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.