Fréttablaðið - 18.05.2010, Blaðsíða 19
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
„Ég bara mætti þarna í spinning-
tíma um hádegi, rappaði nokkur
vel valin lög fyrir mannskapinn
og kvaddi,“ segir Erpur, sem kom
fram að beiðni samstarfsmanns
síns og félaga til margra ára Atla
Rúnars Hermannssonar sem hefur
verið að þeyta skífum í spinning
tímum í World Class í Laugum í
vetur.
„Maður hefur verið að taka
klúbbavinkilinn á þetta, svona
þétta keyrslu með góðu bíti og ég
vinn náið með kennurunum, sem
gefa merki eftir því hvort eigi að
hraða eða hægja á tónlistinni,“
segir Atli og bætir við að heimsókn
Erps hafi verið vel tekið. Rappar-
inn samsinnir því. „Þau voru alveg
að fíla þetta, sérstaklega píurnar.
Þetta var svolítið eins og að koma
fram á hip hop giggi, þar sem allir
hreyfðust auðvitað sjálkrafa takt-
fast.“
Þetta er í fyrsta sinn sem Erpur
treður upp á líkamsræktarstöð.
Hann segist þó vera öllu vanur
til dæmis hafi hann í gegnum tíð-
ina spilað á Litla-Hrauni, í barna-
afmælum, á kvennakvöldum, í
afmæli hjá presti, þar sem hann
var beðinn um að fara með allar
sínar klámfengnustu rímur, og
auk þess komið fram með Sollu
stirðu. „Í síðustu viku rappaði ég
síðan í þrítugsafmælinu hjá honum
Glysnigga, eins og ég kalla Gillzen-
egger. Það var mjög fyndið, þú
veist, fullt af svona aflituðum körl-
um sem sofa í ljósabekkjum.“
Erpur útilokar því ekki að hann
muni einhvern tímann taka aftur
lagið í spinning-tíma hjá dj Atla
félaga sínum. „Ekki málið, ég er
alveg til í þetta allt saman. Það
er enginn óhultur,“ segir hann og
glottir og Atli segðist hafa gaman
af því að fá félagann aftur í heim-
sókn við eitthvert gott tækifæri.
En eru drengirnir duglegir að
taka á því í ræktinni. „Já, já, ég
er að æfa á fullu, lyfta og þess
háttar,“ segir Atli. Erpur hugsar
sig um. „Það er nú eitthvað minna
um það. Ég var á kafi í sundi og
siglingum þegar ég var yngri, það
var nú alveg helvíti gott en menn
hreyfa sig núna bara þegar þeir
nenna.“
roald@frettabladid.is
Rappaði í spinning-tíma
Þátttakendur í hádegisspinning í World Class í Laugum fengu óvæntan glaðning á dögunum þegar tón-
listarmaðurinn Erpur Eyvindarsson skaut upp kollinum og rappaði nokkur lög fyrir mannskapinn.
Atli Rúnar Hermannsson, dj Atli, kom þátttakendum í spinning í Laugum heldur betur á óvart þegar hann fékk félag sinn Erp
Eyvindarson til að rappa í tíma. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
VERÐANDI MÆÐUR velja oft ráð mæðra sinna frekar
en ráð lækna og heilbrigðisstarfsfólks. Þetta kemur fram í
nýlegri breskri rannsókn sem kannaði hug kvenna á ýmsum
tímabilum. Konur sem eignuðust börn eftir 2000 voru þó
líklegri til að leita að þekkingu víða, úr bókum, frá læknum,
af Netinu og frá fjölskyldu. www.bbc.co.uk
Patti.is
Landsins mesta úrval af sófasettum
Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is
Opið : Mánud. - Föstud. frá 9 til 18 og Laugard. frá 11 til 16
kynnum nýju línuna
Kynn
ingar
tilboð
Horn
sófi 2
H2
Láttu þér líða vel í sófa frá Patta
286.1
10 kr
Písa
2H2
Verð
frá
afsláttur út maí%10
2 frábærir fyrirlestrar
Borgartún 24 – Hæðarsmára 6 – Hafnarborg s. 58 58 700 www.madurlifandi.is
Lykillinn að þinni leið – jákvætt
hugarfar er þinn fjársjóður
Þriðjudaginn 18. maí kl. 17:30–20:30
Fyrirlesari: Arnbjörg Finnbogadóttir
Coaching/Lífsþjálfi
Verð 4.900 kr.
Heilsusamleg máltíð innifalin.
Matur-melting-upptaka
Fimmtudaginn 20. maí kl. 17:30–19:30
Fyrirlesari: Kolbrún Björnsdóttir
grasalæknir
Verð 2.900 kr.
hjá Maður lifandi
Sjá nánar á heimasíðu okkar
www.madurlifandi.is
Miðvikudaga
Jóna María Hafsteinsdóttir
jmh@365.is - sími 512 5473
Henný Árnadóttir
henny@365.is - sími 512 5427
Þórdís Hermannsdóttir
thordish@365.is - sími 512 5447