Fréttablaðið - 21.05.2010, Blaðsíða 54
22 21. maí 2010 FÖSTUDAGUR
timamot@frettabladid.is
Þrír Íslendingar, þeir
Björn Ólafsson, Einar
Stefánsson og Hall-
grímur Magnússon,
náðu tindi hæsta fjalls
heims að morgni þessa
dags fyrir þrettán árum.
Haraldur Örn Ólafsson
varð síðan fjórði Íslendingurinn til að
komast á toppinn árið 2002 og hafa
því allir Íslendingarnir, sem vitað er
til að hafi reynt við fjallið, komist á
toppinn. Fyrstu menn til að komast á
tind Everest voru Edmund Hillary og
leiðsögumaður hans en þeir komust
á tindinn árið 1953. Bretarnir George
Mallory og Andrew Irvine voru þó á
ferðinni 24 árum áður
en ekki er vitað hvort
þeir náðu tindinum.
Lík Mallory fannst í
hlíðum fjallsins árið
1997 í 8.530 metra
hæð og þótti ýmislegt
gefa til kynna að hann
hefði náð á tindinn. Til dæmis fund-
ust snjógleraugun í vasa hans og
velta menn því fyrir sér hvort hann
hafi þá náð tindinum síðla dags og
verið á niðurleið að nóttu þegar
hann féll. Fjallið er 8.844,43 metra
yfir sjávarmáli og liggja landamæri
Nepals og Tíbets eftir fjallshryggnum
en tindurinn sjálfur er í Tíbet.
ÞETTA GERÐIST: 21. MAÍ 1997
Íslendingar ná tindi Everest
MANFREÐ VILHJÁLMSSON ARKI-
TEKT ER 82 ÁRA.
„Ég held að menn átti sig
ekki á því að það er sitt-
hvað að kaupa sér eina
flík, eftir tískunni í dag,
eða byggja hús sem stend-
ur í heila öld eða jafnvel
aldir.“
Manfreð Vilhjálmsson hefur
starfað í rúma hálfa öld.
Hann hlaut heiðursverðlaun
menningarverðlauna DV árið
2009.
Bróðir minn og frændi okkar,
Hallgrímur Guðjónsson,
Dysjum, Garðabæ,
lést á heimili sínu mánudaginn 17. maí. Útför hans
verður tilkynnt síðar.
Sesselja Guðmundsdóttir
Elísabet Eygló Jónsdóttir
Jóna Gréta Jónsdóttir
Dagbjört Erla Kjartansdóttir
Ástkær eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir og amma,
Ingibjörg Jóhannesdóttir,
Hlaðhamri,
lést á Sjúkrahúsinu Akranesi 10. maí. Útför hennar
verður frá Prestbakkakirkju í Hrútafirði, laugardag-
inn 22. maí kl. 14.00. Þeim sem vilja minnast hennar
er bent á Hollvinasamtök Heilbrigðisstofnunar
Hvammstanga eða Krabbameinsfélag Íslands.
Kjartan Ólafsson
Jóhannes Kjartansson Sveinbjörg Guðmundsdóttir
Jón Kjartansson Gyða Eyjólfsdóttir
Sigurður Kjartansson Olivia Weaving
og barnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Brynhildur Eggertsdóttir,
Gullsmára 7, Kópavogi, áður til
heimilis að Kotárgerði 22, Akureyri,
er látin. Útför hennar fer fram frá Bústaðakirkju,
mánudaginn 31. maí kl. 13.00.
Sigtryggur Þorbjörnsson
Ingibjörg Sigtryggsdóttir Aðalbjörn Þorsteinsson
Stefán Sigtryggsson
Eggert Már Sigtryggsson Guðbjörg Björnsdóttir
Guðrún Sigtryggsdóttir Hermann Jónasson
barnabörn og barnabarnabörn.
Okkar innilegustu þakkir til allra sem
sýndu okkur samúð og vinarhug við
andlát og útför ástkærrar eiginkonu
minnar, móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
Kristínar Guðmundu
Halldórsdóttur,
Baughúsum 10, Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks gjörgæsludeildar
Landspítalans við Hringbraut.
Magnús Davíð Ingólfsson
Halldóra Magnúsdóttir og fjölskylda
Ingólfur Magnússon og fjölskylda
Guðmundur Magnússon og fjölskylda
Soffía Magnúsdóttir og fjölskylda
Magnús K. Magnússon og börn
Maðurinn minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Jóhann Ágúst
Guðlaugsson
frá Kolsstöðum í Dölum,
lést á heimili sínu laugardaginn 8. maí. Hann verður
jarðsunginn frá Neskirkju í dag 21. maí kl. 15.00.
Steinunn Erla Magnúsdóttir
Árni H. Jóhannsson Sigrún Elfa Ingvarsdóttir
Bjarni Jóhannsson Ingigerður Sæmundsdóttir
Gunnbjörn Óli Jóhannsson Freyja Ólafsdóttir
Jóhann G. Jóhannsson Þórdís Þórsdóttir
afabörn og langafabörn.
Okkar innilegustu þakkir til allra
þeirra sem sýndu okkur samúð og
vinarhug við andlát elskulegrar
móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
Sigurbjargar
Hjálmarsdóttur,
Hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð,
áður Gullsmára 8, Kópavogi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Sambýlisins Gullsmára
og Hjúkrunarheimilisins Sunnuhlíðar fyrir hlýhug og
góða umönnun.
Hjálmar Viggósson Ragnheiður Hermannsdóttir,
Magnea Viggósdóttir Kenneth Morgan
Erna Margrét Viggósdóttir Kristján Þ. Guðmundsson
Helen Viggósdóttir Þórarinn Þórarinsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Ólafur Hannes Finsen,
fv. forstjóri, Vesturgötu 50a, Reykjavík,
lést á Landspítalanum sunnudaginn 16. maí.
Útförin fer fram frá Dómkirkjunni fimmtudaginn
27. maí kl. 15.00.
Guðbjörg A. Finsen
Guðrún Finsen Bjarne Wessel Jensen
Aðalsteinn Finsen Hulda Hrönn Finsen
Sigríður Finsen Magnús Soffaníasson
barnabörn og fjölskyldur.
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Ólafur Theódór
Grímsson
Hraunbæ 144, Reykjavík,
lést á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund föstu-
daginn 14. maí. Útförin fer fram frá Kópavogskirkju
miðvikudaginn 26. maí kl. 15.00.
Guðrún Jóna Tryggvadóttir
Elvar Ólafsson Helga Sóley Alfreðsdóttir
Ingunn Ólafsdóttir Sigurður Vilhjálmsson
Hólmar Örn Ólafsson
Berglind Ólafsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
MOSAIK
„Við ætlum að bjóða nemendum upp á traust fagnám á þessu
sviði og efla þar með þekkinguna sem þarf til að starfa innan
iðnaðarins,“ segir Björn Þór Jónsson, deildarforseti tölvunar-
fræðideildar Háskólans í Reykjavík, sem ætlar að bjóða upp á
sérstaka áherslulínu í tölvuleikjaþróun næsta haust. Þetta er í
fyrsta sinn sem nám af þessu tagi verður kennt hérlendis en
starfsfólk tölvunarfræðideildar HR hefur þróað línuna í sam-
starfi við Samtök íslenskra leikjafyrirtækja, sem voru stofnuð
á síðasta ári. Björn lýsir henni með eftirfarandi hætti.
„Leikjaþróunarlínan er hluti af B.Sc. námi í tölvunarfræði
og samanstendur af fimm námskeiðum, eða sem nemur einni
önn. Leikjaiðnaðurinn þarfnast velmenntaðra tölvunarfræð-
inga, þar sem góður tölvuleikur er í raun flókinn hugbúnaður
sem gerir kröfur til þeirra sem hann þróa. Í þessari línu er
því lögð sérstök áhersla á ýmis grundvallaratriði sem liggja
að baki flestum tölvuleikjum, til dæmis eru þar námskeið í
tölvugrafík og tæknilegri uppbyggingu leikjaþjóna. Þá geta
nemendur valið sér námskeið á sviði gervigreindar, samskipta
manns og tölvu, gagnasafnskerfa og hönnunar tölvuleikja.“
Björn segir gróskuna sem einkennir nú íslenskan tölvu-
leikjaiðnað forsendu þess að ákveðið var að fara af stað með
leikjaþróunarlínuna. „Iðnaðurinn er að byggjast hratt upp
í kjölfar kreppunnar. Þetta eru fyrirtæki sem náðu ekki í
starfsfólk vegna umsvifa bankanna og höfðu minni tekjur
vegna gengisins en eru nú að blómstra. Fyrirtækjum fjölgar
stöðugt sem róa á þessi mið og vilja ráða til sín starfskrafta en
það er of lítið afþeim á lausu. Öflugt háskólastarf er forsenda
þess að þekkingariðnaðurinn og þar með talið tölvuleikjaiðn-
aðurinn þroskist og dafni hér. Við hjá HR viljum leggja okkar
á vogarskálarnar með fjölgun faglærðra einstaklinga.“
Nemendur sem stunda nám til B.Sc. prófs í tölvunarfræði
við HR geta valið sér áherslulínu á öðru námsári. Leikjalín-
an er nýjasta línan sem er í boði, en fyrir eru áherslulínur í
gervigreind, hugbúnaðarfræði og fræðilegri tölvunarfræði.
Umsóknarfrestur til náms í tölvunarfræði við HR rennur út
31. maí. Hægt verður að kynna sér námið frekar á leikjadegi
sem HR og Samtök íslenskra leikjafyrirtækja standa fyrir
í húsakynnum skólans í Nauthólsvík 29. maí. „Sérfræðing-
ar okkar og fulltrúar tölvuleikjafyrirtækja flytja þar erindi,
verðlaun verða veitt í samkeppni um bestu tölvuleikina og
fleira og er öllum velkomið að mæta.“ roald@frettabladid.is
HR: BÝÐUR UPP Á NÝJA NÁMSLEIÐ
Þróa tölvuleiki
NÝSKÖPUN „Við hjá HR viljum leggja okkar á vogarskálarnar með
fjölgun faglærðra á þessu sviði,“ segir Björn um tölvuleikjalínu HR.
Með honum á myndinni er Erla Bjarney Árnadóttir, formaður Samtaka
íslenskra leikjafyrirtækja. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
AFMÆLI
JASON
BIGGS
leikari er 32
ára.
CATHER-
INE TATE
leikkona er
42 ára.