Fréttablaðið - 21.05.2010, Blaðsíða 60
28 21. maí 2010 FÖSTUDAGUR
menning@frettabladid.is
UNA HLÍN KRISTJÁNSDÓTTIR Hlaut styrk
til viðskiptaráðgjafar með fatamerki sitt
Royal Extreme. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Vorúthlutun Hönnunarsjóðs Aur-
oru og sú fjórða frá því sjóður-
inn var stofnaður fór fram í gær.
Fjórum milljónum króna var
úthlutað. Þeir sem hlutu styrki
voru Hreinn Bernharðsson til
starfsreynslu hjá Hrafnkeli Birg-
issyni, Hafsteinn Júlíusson til
vöruþróunar og markaðssetning-
ar erlendis á vörulínu sinni HAF,
Sigríður Sigurjónsdóttir til sýn-
ingahalds í SPARK design space
og Una Hlín Kristjánsdóttir
sem hlaut styrk til viðskiptaráð-
gjafar með fatamerki sitt Royal
Extreme. Hönnunarsjóðurinn
mun einnig veita viðurkenning-
ar í fatahönnunarsýningu LungA,
listahátíð ungs fólks í sumar.
Fjórir hlutu
styrki Auroru
Kúlan í Þjóðmenningarhúsi
Bryndís Bolladóttir textílhönnuður sýnir
nýjustu hönnun sína, kúluna, í verslun
og veitingastofu Þjóðmenningarhússins.
Sýningin verður opnuð í dag og verð-
ur opin alla daga frá kl. 11 til 17 fram í
ágúst.
Kúlan er unnin úr þæfðri íslenskri ull.
Hún bregður sér í ólík hlutverk, svo sem
snaga, leikfangs, hitaplatta, skrauts,
kolls og hljóðdempunarverks. Bryndís
útskrifaðist úr textíldeild Listaháskóla
Íslands árið 1999. Hún hefur einnig sótt
námskeið við Konstfack-listaháskólann
í Svíþjóð.
> Ekki missa af …
Ljósmyndasýningin „Fjársjóður
– tuttugu ljósmyndarar frá Eyja-
firði 1858-1965“ opnar í Minja-
safninu á Akureyri á laugardag
klukkan 14. Sýningin er afrakstur
rannsókna Harðar Geirssonar,
safnvarðar Minjasafnsins, á ljós-
myndaarfi Íslendinga.
Uppgötvunum hans á
ferðalaginu um leyndardóma
ljósmyndanna má líkja við litla
eðalsteina sem saman mynda
fjársjóð. Myndir eftir nánast
óþekktan ljósmyndara, Árna
Stefánsson frá Litla-Dal, koma
þar fyrir sjónir almennings í
fyrsta skipti.
Kvikmyndasmiðja Miðbergs og Hólmasels heldur
uppskeruhátíð í Regnboganum í dag kl. 15 þar
sem myndin Þ.A.U.A. verður sýnd. Hún fjallar um
strák í 8. bekk sem langar að bjóða bekkjasystur
sinni á ball í skólanum en veit ekki hvernig hann
á að fara að því. Örlögin grípa inn í þegar hún
sest við borðið sem hann situr við í matartíma í
skólanum og þau fara nokkur saman á skauta.
Þegar Robbi risi og Lalli lúði skipa þeim að taka
dularfullan poka fyrir sig og geyma því lögreglan
er á hælum þeirra fara mál að vandast.
Guðmundur Jónas Haraldsson, leiðbeinandi
Kvikmyndasmiðjunnar og leikstjóri myndarinnar,
segir samvinnuna hafa verið virkilega skemmti-
lega og lærdómsríka. „Í vinnslu myndarinnar
blönduðum við saman veruleika og skáldskap,
æfðum senur sem við tókum svo upp í raun-
verulegum aðstæðum, til dæmis tókum við upp
í Ölduselsskóla á skólatíma,“ segir Guðmundur
Jónas. „Erum við afar þakklát Ölduselsskóla vegna
þess hve vel þau tóku okkur og studdu þannig
við það skapandi starf sem Miðberg er að vinna
með krökkunum. Og okkur langar að þakka þeim
fjölmörgu sem studdu við bakið á okkur og hjálp-
uðu til við að gera þessa hugsýn að veruleika.“
Uppskeruhátíð í Regnboganum
GUÐMUNDUR JÓNAS HARALDSSON Guðmundur
segir að samvinnan hafi verið virkilega skemmtileg
og lærdómsrík.
Bókin Karlar sem hata konur
eftir Stieg Larsson hefur selst í
meira en milljón eintaka í Bret-
landi. Hún er þar með orðin 21.
bókin á þessari öld sem nær þess-
um árangri. Önnur bókin í röð-
inni, Stúlkan sem lék sér að eld-
inum, hefur selst í 680 þúsundum
eintaka og síðasta bókin, Loft-
kastalinn sem hrundi, í 556 þús-
undum eintaka. Sú bók kom út í
kilju í síðasta mánuði og seldist
þá í 98 þúsund eintökum á aðeins
þremur dögum. Alls hafa bækur
Stiegs Larsson selst fyrir 13,8
milljónir punda á Bretlandi, eða
um tvo og hálfan
milljarð króna.
Á undanförnum
árum hafa
yfir tuttugu
milljón bóka í
Millenium-þrí-
leiknum selst í
alls 41 landi.
Stieg Larsson
nær milljón
STIEG LARSSON
Millenium-
þríleikurinn
hefur notið
mikilla
vinsælda.Baldur og Júlíus
Guðmundssynir
Hvar er Mjallhvít?
André Bachmann Sævar SverrissonHulda Gestsdóttir
Rúnars Júlíussonar
minnst í tónum á
Kringlukránni
21. & 22. maí.
Dansleikur með hljómsveitinni
Hvar er Mjallhvít?
ásamt André Bachmann.
Sérstakir gestir
Synir Rúnars þeir Baldur og
Júlíus ásamt popparanum síunga
Sævari Sverrissyni
og Diskódívunni Huldu
Gestsdóttur.
Dansleikurinn hefst kl. 23:00
mætið tímanlega.
Með Stuð Í Hjarta