Fréttablaðið - 29.05.2010, Side 78

Fréttablaðið - 29.05.2010, Side 78
38 29. maí 2010 LAUGARDAGUR Þ essi plaköt eru frá- bært framtak. Það er gaman að fara í gegn- um þau og sjá hvern- ig knattspyrnan hefur verið túlkuð í gegn- um tíðina,“ segir Bobby Breið- holt, grafískur hönnuður hjá Fíton, eftir að hafa litið á plakötin nítj- án. Bobby gefur sig ekki út fyrir að vera sérstakur áhugamaður um knattspyrnu og vissi ekki af þess- ari plakata-hefð í tengslum við HM, en segist munu fylgjast með þeim í framtíðinni. Hann segir það áhugaverð- asta við pla- kötin í gegn- um tíðina vera hversu vel þau fanga tíðarand- ann þegar hver keppni var hald- in. „Við höfum hér Art Deco fíling árið 1930, fas- istamyndmál 1938 og plakatið fyrir HM í Þýskalandi 1974 er eins og progguð djassplötukápa. Reyndar væri djössuð prog konseptplata um knattspyrnu eitthvað sem ég væri til í að kynna mér,“ segir Bobby, og bætir við að honum þyki eldri plakötin mun skemmtilegri en þau nýju. „Þessi nýrri eru allt of „hönn- unarleg“ að mínu mati. Það mætti slökkva á tölvunni og gera þetta meira í höndunum eins og eldri pla- kötin,“ segir Bobby Breiðholt. Um plakatið fyrir HM sem er að hefjast í Suður Afríku segir Bobby það þjóna sínu hlutverki en verði þó varla í minnum haft. „Þetta plakat er bara nokkuð ágætt, þótt ég sé ekkert að drepast úr spenn- ingi. Litirnir eru hressir. Það er nokkuð skapandi hugmynd að sameina Afríku og knattspyrnu á þennan hátt þó að Afríka sé eins og skelkaður drengur að fá bolta í andlitið. En þetta er kannski aðeins of hönnunarstofulegt. Það hefði verið miklu meira gaman ef þetta verið meira afrískt og handgert.“BOBBY BREIÐHOLT HM 2010 Svona lítur plakatið fyrir HM í Suður Afríku, sem hefst 11 júní, út. Það er helst til of hönnunarstofulegt að mati Bobby Breiðholts. MYNDIR/AFP Brasilía 1950 „Til að byrja með er aldrei gott að troða of miklu af fánum og merkjum á plakat. En hérna er öxlum bara yppt og fánum allra knattspyrnuhæfra þjóða heimsins er troðið saman … á sveittan sokk! Þetta er skræpótt, skræpótt flík. Ég vorkenni þjóðunum sem eru ofan í skónum.“ Chile 1962 „Heimsendir!! Þessi mynd er bara sprenghlægileg. Reyndar talar þessi armageddón mynd svolítið til mín. Ég hef afar takmarkaðan áhuga á fótbolta og mér finnst einmitt að HM umturni heiminum eins og loftsteinn á fjögurra ára fresti. En ég efast um að knattspyrnuaðdáendur líti þannig á það. Hringið í Bruce Willis.“ Þýskaland 2006 „Æi vá, þessi hugmynd er rosalega á seinustu stundu eitthvað. Já ókei, á fjögurra ára fresti koma fótboltastjörn- urnar út til að láta ljós sitt skína og fyrirgefðu, en ég sofnaði ofan í súpuna mína. Svo er þetta bara illa gert. Þetta hefði eflaust komið betur út ef þetta væri teiknað í einhverju Avatar forriti, en það bjargar ekki þreyttri hugmynd og úbbs, ég sofnaði aftur.“ Mexíkó 1970 „Afgerandi besta plakatið af þeim öllum. Sýnir bara að fyrir plaköt af þessu tagi er minna alltaf meira. Engin kássa af fánum og merkjum, engin pólitík og engin þjóðremba. Bara ein sterk, næstum abstrakt mynd af því sem skiptir máli. Letrið er líka alveg tryllt á sixtís-hátt.“ Ítalía 1990 „Eitt af aðeins tveimur plakötum þar sem ljósmynd er notuð,“ (plakatið fyrir HM í Mexíkó 1986 er einnig ljósmynd). „Mér finnst þetta mjög vel heppnuð blanda af svarthvítu og litagrafík. Fortíð og nútíð mætast og þessir litir passa vel við svarthvítu myndina. Sviss 1954 Af öllum plakötunum sem fara alla leið út í listrænar myndskreytingar finnst mér þetta best. Alveg rosalegur Kaffi Mokka fiftís-stíll sem er í góðu lagi mín vegna. Boltinn teygir á netinu og er við það að springa út úr myndinni. Spenn- andi, smekklegt og frábærir litir.“ BESTU PLAKÖTIN VERSTU PLAKÖTIN Knattspyrnan túlkuð í plakötum Allt frá fyrstu HM í knattspyrnu sem haldin var árið 1930 hefur FIFA heiðrað þá hefð að gefa út opinbert kynningarplakat fyrir hverja keppni og er færasta fáanlega fólk fengið til verksins hverju sinni. Kjartan Guðmundsson fékk hönnuðinn Bobby Breiðholt til að líta á herlegheitin og velja bestu og verstu HM-plakötin af þeim nítján sem gefin hafa verið út í gegnum tíðina HM-TÍÐARANDINN ENDURSPEGLAÐUR HM-plakötin endurspegla tíðarandann þegar keppnirnar voru haldnar nokkuð vel, að mati Bobbys Breiðholts. Hér má sjá nokkur dæmi um HM-plaköt í gegnum tíðina, meðal annars Art Deco-stílll árið 1930, „fasistamyndmál” 1938 og hið fræga plakat fyrir HM á Spáni 1982, sem hannað var af myndlistargoðsögninni Miró. 1930 ÚRÚGVÆ 1938 FRAKKLAND 1974 V-ÞÝSKALAND 1982 SPÁNN 1986 MEXÍKÓ
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.