Fréttablaðið - 01.06.2010, Side 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI1. júní 2010 — 126. tölublað — 10. árgangur
ÞRIÐJUDAGUR
skoðun 14
2 SÉRBLÖÐ
í Fréttablaðinu
Allt
Sumarfatnaður
Leikkonur í lokahófi
Bjartir og sumarlegir skærir lit-
ir voru áberandi í lokahófi kvik-
myndahátíðarinnar í Cannes.
sumarfatnaður 5
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
„Ég er ekkert upptekin af því að
sigra en ég ætla hins vegar ekki að
lenda í síðasta sæti,“ segir einka-þjálfarinn Linda Jónsdóttir, sem
hefur undanfarið verið að búa sig
undir þátttöku í fitness-keppni í
haust.
Linda hefur starfað sem einka-þjálfari um árabil. Árið 2003 kom
hún með látum í fitness-keppnina
og tryggði sér annað sætið. Eftir
það tók hún sér nokkurra ára frí
frá keppni, en hóf aftur þátttöku í
fitness í apríl á þessu ári og le tiþá í síðast
aði nú kannski ekki alveg með
botninum,“ segir hún brosandi. „Hins vegar varð þetta til þess að
ég veit núna nákvæmlega hvar ég
stend og hvar ég þarf að bæta mig
til að ná árangri.“Linda tekur þó fram að sjálf
keppnin hafi tekið stakkaskiptum
frá því að hún keppti fyrst. „Þátt-takendur leggja miklu meira á sig
í dag og maður er náttúrulega að
etja kappi við stelpur sem eru aðkeppa erlendis K
manni ekkert rosalega vel þegar maður er búinn að skera sig svona
mikið niður.“
Ekki líður á löngu þar til Linda
þarf að fara að huga að því en þá
tekur við strangur matarkúr. „Þá
verður bara kjúklingur, fiskur,
salat, hafragrautur, flatkökur og
prótíndrykkir á matseðlinum og
lítið farið út fyrir það. Svo minnk-ar maður skammtana eftiá líð
Meiri áskorun í fitnessLinda Jónsdóttir einkaþjálfari lenti í öðru sæti í fitness fyrir nokkrum árum og undirbýr sig nú af fullum
krafti fyrir mótið í nóvember. Sigur er ekki efstur á dagskrá en tap kemur heldur ekki til greina.
Tekið á því. Linda æfir að staðaldri í klukkutíma á dag fimm daga vikunnar. Hún ætlar að æfa alla daga vikunnar fram að keppn-
inni í fitness og þrjá klukkutíma í senn.
FRÉTTABLAÐIÐ/ F55200510
ELDGOSIÐ Í EYJAFJALLAJÖKLI gæti mögulega haft
heilsufarslegar afleiðingar. Í gær hófst rannsókn á heilsufars-
legum afleiðingum gossins en það er sóttvarnalæknir sem
stendur fyrir henni ásamt fleirum. Rannsóknin mun fyrst og
fremst ná til þeirra sem orðið hafa fyrir hvað mestu öskufalli í
námunda við eldstöðina.
Rómantísk sumarvara
Opið: má-fö. 12:30-18:00, Dalvegi 16a,
Rauðu múrsteinshúsunum, Kóp. 201
S: 517 7727 - www.nora.is og á Fa b
Sumarfatnaður
SÉRBLAÐ • ÞRIÐJUDAGUR 1. JÚNÍ 2010
veðrið í dag
Baldursnesi 6
Akureyri
Sími 414 1050
Smiðjuvegi 76
Kópavogi
Sími 414 1000
HANDLAUGARTÆKI
MEÐ LYFTITAPPA
8.500.-
Tilboðsverð
Opið virka daga frá 8 -18
laugardaga frá10 -15
Hagnýtt nám á
fræðilegum grunni
Umsóknarfrestur til 5. júní
VIÐSKIPTAFRÆÐIDEILD
VIÐSKIPTAFRÆÐIDEILD
STJÓRNMÁL „Það er siðferðileg
skylda mín að segja mína sögu.
Hvort það verður á þessu ári eða
því næsta, í bókarformi eða á
einhvern annan hátt verður bara
að koma í ljós.
Ég á allavega
mikið af heim-
ildum í mínum
fórum sem hafa
ekki áður komið
fram,“ segir
Ólafur F. Magn-
ússon, læknir
og fráfarandi
borgarfulltrúi,
sem ætlar að
skrifa ævisögu
sína.
Ólafi mistókst sem kunnugt
er að ná kjöri í borgarstjórn um
liðna helgi. Hann segist búast
fastlega við því að það eigi eftir
að hrikta í einhverjum stoðum
nú þegar fréttir berast af skrif-
um hans. - fgg / sjá síðu 34
Hættir í borgarstjórn:
Ólafur skrifar
ævisögu sína
Fullkomið ár
Fanney Ingvarsdóttir vann
þrjá titla í handbolta og var
kjörin Ungfrú Ísland.
fólk 34
ÓLAFUR F.
MAGNÚSSON
Spjótkastari fi mmtugur
Einar Vilhjálmsson býst við
barnabarni í afmælisgjöf.
tímamót 18
KOSNINGAR 192 konur voru kjörnar
í sveitarstjórnir um helgina en 320
karlar. Hlutur kvenna er því 37,5
prósent og eykst um 1,5 prósentu-
stig á milli kosninga, var 36 pró-
sent fyrir fjórum árum.
Kristín Ástgeirsdóttir, fram-
kvæmdastýra Jafnréttisstofu,
segir það óneitanlega vonbrigði
að hlutur kvenna hafi ekki aukist
meira en raun bar vitni. Hún segir
jákvætt að hann þokist í rétta átt
en markmiðið hljóti að vera að hlut-
ur kvenna sé jafn hlut karla.
Hlutfall kvenna var hærra í þeim
54 sveitarfélögum þar sem voru
listakosningar eða 40,5 prósent. Í
átján sveitarfélögum voru óhlut-
bundnar kosningar sem þýðir að
allir í sveitarfélaginu voru í kjöri.
Þar var hlutur kvenna 35 prósent.
Í fjórum sveitarfélögum var sjálf-
kjörið, en í þeim var stillt upp
einum lista. Þar voru níu konur
kjörnar í sveitarstjórnir af 20 eða
45 prósent.
„Þessar niðurstöður eru að
vissu leyti eftir bókinni, það hefur
verið tilhneiging til þess að hlut-
ur kvenna sé betri í stærri sveit-
arfélögum en verri í þeim smærri,
ekki síst er hann verri þar sem eru
óhlutbundnar kosningar,“ segir
Kristín.
Konur eru meirihluti fulltrúa í 11
af 76 sveitarfélögum á landinu en
karlar í 65 sveitarfélögum. Karlar
eru einráðir á einum stað á land-
inu, í Akrahreppi í Skagafirði. Þar
var óhlutbundin kosning og fimm
karlar kjörnir í hreppsnefnd.
Hlutfall kvenna er hæst í Reykja-
vík þegar landið er skoðað eftir
kjördæmum, 47 prósent, en lægst í
Suðvesturkjördæmi eða 33 prósent.
- sbt / sjá síðu 10
Konur eru 37,5 prósent þeirra sem hlutu kosningu til sveitarstjórna um helgina:
Lítil fjölgun kvenna í sveitarstjórnum
DÁLÍTIL VÆTA víða um land en
þó síst norðvestanlands. Á Aust-
fjörðum má búast við þokusúld.
Vindur verður fremur hægur og
áttin austlæg.
veður 4
11
10
8
79
EFNAHAGSHRUNIÐ Þingmannanefnd
um skýrslu rannsóknarnefnd-
ar Alþingis hefur sent ábendingu
til setts ríkissaksóknara um mál
þriggja fyrrverandi seðlabanka-
stjóra og forstjóra Fjármálaeftir-
litsins sem í skýrslunni eru sagð-
ir hafa sýnt af sér vanrækslu í
starfi.
„Að mati þeirra níu sem sitja í
þessari nefnd þarf að ljúka þætti
þessara einstaklinga eins og allra
annarra sem hugsanlega hafa sýnt
af sér vanrækslu í starfi,“ segir
Ragnheiður Ríkharðsdóttir, alþing-
ismaður Sjálfstæðisflokks, sem á
sæti í þingmannanefndinni.
Eintaklingarnir fjórir eru seðla-
bankastjórarnir fyrrverandi, Davíð
Oddsson, Eiríkur Guðnason og Ingi-
mundur Friðriksson auk Jónasar
Fr. Jónssonar, fyrrverandi forstjóra
Fjármálaeftirlitsins.
„Þetta er í raun ábending um að
þessir aðilar séu í ákveðnu tóma-
rúmi. Við vildum athuga hvort það
væri ekki örugglega fjallað um
þeirra mál einhvers staðar þannig
að þeir væru ekki að bíða og fá þau
kannski í hausinn eftir einhver ár,
segir Birgitta Jónsdóttir, alþingis-
maður Hreyfingarinnar og meðlim-
ur þingmannanefndarinnar.
Björn L. Bergsson, settur ríkis-
saksóknari í málum sem tengjast
bankahruninu, staðfestir að ábend-
ingin hafi borist frá þingmanna-
nefndinni. „Þessari skoðun mun
ljúka á allra næstu dögum,“ segir
Björn sem kveður Alþingi munu
verða gert viðvart um niðurstöðu
hans.
Jónas Fr. Jónsson sagði við frétta-
stofu Stöðvar 2 í gær að ákvörðun
þingnefndarinnar um að senda
ábendinguna til setts ríkissaksókn-
ara væri „pólitískt sjónarspil“.
Birgitta Jónsdóttir undirstrikar
að þingmannanefndin sé aðeins að
benda á að mál umræddra manna
sé ekki í endanlegu ferli. „Ef það
er einhver óvissa um eitthvað er
alltaf betra að fá það bara hreint,“
segir hún.
Ragnheiður Ríkharðsdóttir
minnir á að þingmannanefndin hafi
sent ýmsum fyrrverandi ráðherr-
um bréf til að gefa þeim enn kost á
að tjá sig. „Skýrsluhöfundar halda
enn fast við það að menn hafi sýnt
vanrækslu í starfi,“ segir Ragn-
heiður.
Þá hefur þingmannanefndin sent
forseta Íslands bréf vegna ágrein-
ings um tiltekin atriði. Í ljós hafa
komið að sá Al Thani sem forsetinn
átti í samskiptum við var ekki sá Al
Thani sem tengist meintum falsvið-
skiptum með hlutabréf í Kaupþingi.
Þá hafi ferð með einkaþotu þar sem
Ólafur Ragnar Grímsson var skráð-
ur farþegi aldrei verið farin. - gar
Embættismenn fái málalok
Þingmannanefnd vill ljúka málum seðlabankastjóra og forstjóra Fjármálaeftirlitsins og sendi settum ríkis-
saksóknara ábendingu um meinta vanrækslu þeirra. Saksóknarinn kveðst svara Alþingi á næstu dögum.
ÁRÁS ÍSRAELA MÓTMÆLT Á annað hundrað manns mótmæltu mannskæðri árás Ísraela á skipa-
lest sem flutti hjálpargögn til stríðshrjáðra íbúa Gasasvæðisins. Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra ávarpaði
mótmælendur af tröppum ráðuneytisins. Össur segir árásina svívirðilegan glæp og Steingrímur J. Sigfússon fjármála-
ráðherra segir hana svo yfirgengilega að hún hljóti að marka tímamót í samskiptum við Ísrael. Sjá síðu 6
Kynjaskipting í sveitarstjórnum
192 konur
37,5%
320 karlar
62,5%
Hlutfall karla og kvenna á landsvísu
Valur slátraði Fylki
Valur skoraði fi mm mörk
gegn Fylki í Pepsi-deild
karla í gær.
íþróttir 30
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
A
LL
I