Fréttablaðið - 01.06.2010, Blaðsíða 19
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
„Ég er ekkert upptekin af því að
sigra en ég ætla hins vegar ekki að
lenda í síðasta sæti,“ segir einka-
þjálfarinn Linda Jónsdóttir, sem
hefur undanfarið verið að búa sig
undir þátttöku í fitness-keppni í
haust.
Linda hefur starfað sem einka-
þjálfari um árabil. Árið 2003 kom
hún með látum í fitness-keppnina
og tryggði sér annað sætið. Eftir
það tók hún sér nokkurra ára frí
frá keppni, en hóf aftur þátttöku í
fitness í apríl á þessu ári og lenti
þá í síðasta sæti. Hún segir úrslitin
hafa verið ágætis spark í rassinn.
„Ég vissi auðvitað áður en ég tók
þátt í keppninni að aldurinn myndi
setja strik í reikninginn, en reikn-
aði nú kannski ekki alveg með
botninum,“ segir hún brosandi.
„Hins vegar varð þetta til þess að
ég veit núna nákvæmlega hvar ég
stend og hvar ég þarf að bæta mig
til að ná árangri.“
Linda tekur þó fram að sjálf
keppnin hafi tekið stakkaskiptum
frá því að hún keppti fyrst. „Þátt-
takendur leggja miklu meira á sig
í dag og maður er náttúrulega að
etja kappi við stelpur sem eru að
keppa erlendis. Konurnar eru að
verða skornari og massaðri með
hverju árinu, nú eru þær svona á
bilinu frá átta og upp í ellefu í fitu-
prósentu.“ En er þetta hollt fyrir
líkamann? „Ég veit ekki alveg
hvað skal segja, alla vega líður
manni ekkert rosalega vel þegar
maður er búinn að skera sig svona
mikið niður.“
Ekki líður á löngu þar til Linda
þarf að fara að huga að því en þá
tekur við strangur matarkúr. „Þá
verður bara kjúklingur, fiskur,
salat, hafragrautur, flatkökur og
prótíndrykkir á matseðlinum og
lítið farið út fyrir það. Svo minnk-
ar maður skammtana eftir því sem
á líður,“ segir hún og getur þess
að þarna fari hún eftir ábending-
um annarra fitness-keppenda sem
hafi náð langt. „Sömuleiðis mun
ég fjölga stundunum sem ég æfi í
ræktinni. Það þýðir ekkert annað
ef maður ætlar að gera sitt besta.“
roald@frettabladid.is
Meiri áskorun í fitness
Linda Jónsdóttir einkaþjálfari lenti í öðru sæti í fitness fyrir nokkrum árum og undirbýr sig nú af fullum
krafti fyrir mótið í nóvember. Sigur er ekki efstur á dagskrá en tap kemur heldur ekki til greina.
Tekið á því. Linda æfir að staðaldri í klukkutíma á dag fimm daga vikunnar. Hún ætlar að æfa alla daga vikunnar fram að keppn-
inni í fitness og þrjá klukkutíma í senn. FRÉTTABLAÐIÐ/ F55200510
ELDGOSIÐ Í EYJAFJALLAJÖKLI gæti mögulega haft
heilsufarslegar afleiðingar. Í gær hófst rannsókn á heilsufars-
legum afleiðingum gossins en það er sóttvarnalæknir sem
stendur fyrir henni ásamt fleirum. Rannsóknin mun fyrst og
fremst ná til þeirra sem orðið hafa fyrir hvað mestu öskufalli í
námunda við eldstöðina.
Sölufulltrúi:
Jóna María Hafsteinsdóttir
jmh@365.is
sími 512 5473
Miðvikudaga
Rómantísk sumarvara
Opið: má-fö. 12:30-18:00, Dalvegi 16a,
Rauðu múrsteinshúsunum, Kóp. 201
S: 517 7727 - www.nora.is og á Facebook
Grensásvegi 8 - 108 Reykjavík - 517-2040
LAGERSALA
Góðir skór - gott verð
Mikið úrval af nýrri vöru á alla fjölskylduna
Opið virka
daga 12-18
laugardag
12-16
Takkaskór
besta verði
ð
í bænum ?
Stærðir 31-46
kr. 5.495.-
Græna duftið
sem allir eru að
tala um!
Borgartún 24 – Hæðarsmára 6 – Hafnarborg s. 58 58 700 www.madurlifandi.is
Fæst í verslunum Maður Lifandi
PH-ion Green Alkalizing Superfood er kraftmikið
næringarríkt grænt duft sem hjálpar við að afeitra
ristilinn og blóðið. Það inniheldur mikið af góðum
vítamínum, steinefnum, ensýmum, söltum og
snefilefnum, aminósýrum og andoxunarefnum.
• Inniheldur sérlega stóran skammt af blaðgrænu
• Hjálpar líkamanum að komast í jafnvægi
og verða basískari
• Hreinsar blóðið og viðheldur réttu sýrustigi
í líkamanum
• Dregur úr streitu, styrkir ónæmiskerfið
og eykur orku
• Kemur jafnvægi á blóðsykurinn, meltinguna
og sýrustigið í þörmunum
Maður Lifandi veitir faglega ráðgjöf varðandi
hreinsanir, erum með ýmsar lausnir fyrir þig.
Frábær tilboð í verslunum okkar á ýmsum
detox-vörum.