Fréttablaðið - 01.06.2010, Blaðsíða 44
32 1. júní 2010 ÞRIÐJUDAGUR
ÞRIÐJUDAGUR
LOKSINS Á ÍSLANDI
GOLF CHANNEL
Á Golf channel er að finna allt fyrir kylfinginn; kennsla frá þeim bestu,
kvennagolfið, nærmyndir af frægum kylfingum, lífstíllinn, golfmótin
og golfvellir um víða veröld.
Golf channel er að finna í Allt og Skemmtun pökkunum á Stöð 2 Fjölvarp
á rás 49 á Vodafone Digital Ísland
Áskrifendur eru minntir á að uppfæra myndlykilinn með sjálfvirkri leit.
20.00 Grilled STÖÐ 2 BÍÓ
20.35 Modern Family STÖÐ 2
21.50 That Michell and Webb
Look STÖÐ 2 EXTRA
22.15 Langrækni SJÓNVARPIÐ
22.35 Jay Leno SKJÁR EINN
SJÓNVARPIÐ SKJÁR EINN
OMEGA
Dagskrá allan sólarhringinn.
STÖÐ 2
08.00 Buena Vista Social Club
10.00 My Date with Drew
12.00 Grettir. Bíómyndin
14.00 Buena Vista Social Club
16.00 My Date with Drew
18.00 Grettir. Bíómyndin
20.00 Grilled
22.00 Crank
00.00 Red Dust
01.50 Children of the Corn 6
03.10 Crank
06.00 Analyze This
15.50 Íslenski boltinn (e)
16.35 Stiklur - Fámennt í fagurri sveit
(e)
17.20 Táknmálsfréttir
17.30 Jimmy Tvískór
17.52 Sammi
18.00 Múmínálfarnir
18.25 Chris á skólabekk (2:3) (Chris på
skolebænken) Dönsk þáttaröð.
19.00 Fréttir
19.30 Veðurfréttir
19.35 Kastljós
20.05 Að duga eða drepast (5:10)
(Make It or Break It) Bandarísk þáttaröð um
ungar fimleikadömur sem dreymir um að
komast í fremstu röð og keppa á Ólymp-
íuleikum.
20.50 HM 2010 (3:4) HM 2010 er upp-
hitun fyrir mótið sem hefst 11.júní í sumar.
Þetta eru fjórir þættir, þar sem Þorsteinn J.
fer vandlega yfir heimsmeistaramótið í fót-
bolta í Suður-Afríku í júní.
21.20 Íslenska golfmótaröðin
22.00 Tíufréttir
22.10 Veðurfréttir
22.15 Langrækni (3:3) (Unforgiven)
Nýr breskur myndaflokkur í þremur þáttum.
Ruth Slater er látin laus eftir 15 ára fang-
elsisvist vegna morða á tveimur lögreglu-
þjónum og þá rifnar ofan af löngu grón-
um sárum.
23.05 Leiðin á HM (15:16) Að þessu
sinni eru kynnt liðin frá Portúgal og Mexíkó.
23.35 Kastljós (e)
00.00 Fréttir (e)
00.10 Dagskrárlok
06.00 Pepsi MAX tónlist
08.00 Dr. Phil (e)
08.45 Rachael Ray (e)
09.30 Pepsi MAX tónlist
17.10 Rachael Ray
17.55 Dr. Phil
18.40 Girlfriends (1:22) (e)
19.00 The Real Housewives of
Orange County (8:12) Raunveruleikasería
þar sem fylgst er með lífi fimm húsmæðra í
einu ríkasta bæjarfélagi Bandaríkjanna.
19.45 King of Queens (23:24)
20.10 Top Chef (1:17) Bandarísk raun-
veruleikasería þar sem efnilegir kokkar þurfa
að sanna hæfni sína og getu í eldhúsinu.
Yfirskrift fyrsta þáttarins er „4-Star All-Stars“
og þar snúa átta kokkar úr fyrstu tveimur
þáttaröðunum aftur og keppa um pen-
ingaverðlaun sem renna til góðgerðarmála.
Hraðaþrautin snýst um að elda fullkomið
egg með aðra höndina fyrir aftan bak og
stóra verkefnið er að matreiða fjögurra
rétta máltíð með hörpuskel, humri, önd og
Kobe-nautakjöti.
20.55 America’s Next Top Model (6:12)
Bandarísk raunveruleikasería þar sem Tyra
Banks leitar að næstu ofurfyrirsætu. Núna
þurfa stelpurnar að standa sig í myndatöku
í neðanjarðarlest. Við dómaraborðið lætur
André Leon Talley eina stúlkuna fá það
óþvegið.
21.45 Life (7:21) Bandarísk þáttaröð um
lögreglumann í Los Angeles sem sat sak-
laus í fangelsi í tólf ár en leitar nú þeirra
sem komu á hann sök.
22.35 Jay Leno
23.20 Law & Order (5:22) (e)
00.10 Big Game (6:8) (e)
01.50 King of Queens (23:24) (e)
02.15 Pepsi MAX tónlist
07.00 Barnatími Stöðvar 2 Strumparn-
ir, Bratz
08.15 Oprah
08.55 Í fínu formi
09.10 Bold and the Beautiful
09.30 The Doctors
10.15 Einu sinni var (14:22)
10.55 Wipeout (3:11)
11.45 Numbers (16:23)
12.35 Nágrannar
13.00 Worst Week (1:16)
13.30 Blades of Glory
15.00 Sjáðu
15.30 Risaeðlugarðurinn
15.53 Barnatími Stöðvar 2 Ben 10,
Strumparnir
17.08 Bold and the Beautiful
17.33 Nágrannar
17.58 The Simpsons (21:22)
18.23 Veður Markaðurinn
18.30 Fréttir Stöðvar 2
18.47 Íþróttir
18.54 Ísland í dag
19.11 Veður
19.20 Two and a Half Men (4:24)
19.45 How I Met Your Mother (2:22)
Önnur sería þessara bráðskemmtilegu og
rómantísku gamanþátta sem notið hafa mik-
illar hylli í Bandaríkjunum.
20.10 How I Met Your Mother (15:24)
20.35 Modern Family (18:24) Frábær
gamanþáttur um líf þriggja ólíkra en dæmi-
gerðra nútímafjölskyldna.
21.00 Bones (17:22)
21.45 Curb Your Enthusiasm (6:10)
Larry David snýr nú aftur í sjöundu þáttaröð-
inni, studdur stjörnunum úr Seinfeld, þeim
Jerry, Kramer, Elaine og George.
22.15 Louis Theroux. African Hunting
Holiday Áhugaverð heimildarmynd með
Louis Theroux sem ferðast alla leið til Afríku
til að fylgjast með bandarískum ferðamönn-
um þar sem þeir fara með fararstjóra í vel
skipulagða veiðiferð á villtum dýrum.
23.15 Grey‘s Anatomy (23:24)
00.00 Ghost Whisperer (16:23)
00.45 Lady Vengance
02.40 Blades of Glory
04.10 Numbers (16:23)
04.55 Modern Family (18:24)
05.20 Fréttir og Ísland í dag
16.40 Arsenal - West Ham Útsending
frá leik Arsenal og West Ham í ensku úrvals-
deildinni.
18.20 Coca Cola-mörkin Sýnt frá öllum
leikjunum í Coca Cola-deildinni. Öll flottustu
mörkin og tilþrifin á einum stað.
18.50 Premier League World Flottur
þáttur þar sem enska úrvalsdeildin er skoð-
uð frá ýmsum óvæntum og skemmtileg-
um hliðum.
19.20 Chelsea - Wigan Útsending frá
leik Chelsea og Wigan í ensku úrvalsdeild-
inni.
21.00 Michael Owen I þessum þætti
af Football Legends verður farið yfir feril
Michaels Owen og sá magnaði leikmaður
skoðaður i bak og fyrir.
21.30 Goals of the Season 2009/2010
Öll glæsilegustu mörk hverrar leiktíðar Úrvals-
deildarinnar frá upphafi til dagsins í dag.
22.25 Sunderland - Tottenham Útsend-
ing frá leik Sunderland og Tottenham í ensku
úrvalsdeildinni.
▼
▼
▼
▼
20.00 Hrafnaþing
21.00 Græðlingur Guðríður Helgadóttir
sýnir réttu handbrögðin við garðyrkjustörfin.
21.30 Mannamál Sigmundur Ernir
Rúnars son alþingismaður brýtur málin til
mergjar.
07.00 Valur - Fylkir Utsending fra leik
Vals og Fylkis i Pepsi-deild karla i knattspyrnu.
17.20 Valur - Fylkir Utsending fra leik
Vals og Fylkis i Pepsi-deild karla i knattspyrnu.
19.10 Pepsímörkin 2010 Sýnt frá öllum
leikjum Pepsí-deildar karla og sérfræðing-
ar Stöðvar 2 Sport þeir Tómas Ingi og Maggi
Gylfa verða að sjálfsögðu á sínum stað. Allir
leikirnir, öll mörkin og allt það helsta kruf-
ið til mergjar.
20.10 NBA körfuboltinn. LA Lakers -
Phoenix Utsending fra leik Lakers og Pho-
enix i urslitakeppni NBA körfuboltans.
22.00 Crowne Plaza Invitational At
Colonial Skyggnst á bak við tjöldin í PGA
mótaröðinni í golfi. Öll mót ársins á PGA
mótaröðinni krufin til mergjar.
22.55 Inside the PGA Tour 2010
Skyggnst á bak við tjöldin í PGA mótaröðinni
í golfi. Árið sem framundan er skoðað gaum-
gæfilega og komandi mót krufin til mergjar.
23.25 Bestu leikirnir. KR - Fram
27.09.97
> Alyson Hannigan
„Mér var mikið strítt í barnaskóla því ég
var með afskaplega föla húð, svart hár
og gekk í svörtum fötum.“
Alyson Hannigan fer með hlutverk
Lily Aldrin í þáttunum How I Met
Your Mother sem sýndir eru á
Stöð 2 kl. 19.45.
Þegar ég frétti af hinum nýja grínþætti Steindinn okkar
á Stöð 2 hugsaði gamla kerlingin sem stundum tekur
sér bólfestu innra með mér: „Hvaða helv … rugl. Á nú
að fara að setja enn einn kúk og piss brandaraþáttinn
á dagskrá? Hvert er heimurinn eiginlega að fara?“
Ég leyfði mér að vera með sleggjudóma, taldi
öruggt að þessi Steindi hefði nú ekkert gáfulegt fram
að færa, enda þekkti ég ekkert til drengsins annað
en það sem slúðrað var á kaffistofum.
Svo lét ég svo lítið að horfa á einn þátt. Skemmst
er frá að segja að Steindinn hafi snarlega þaggað
niður í kerlingarálftinni. Skemmtilegar hugmyndir, vel
út færðar og vel unnar miðað við það litla fjármagn
sem er til fyrir innlenda dagskrárgerð skilar alveg
ljómandi góðum og fyndnum grínþætti.
Ég á mér meira að segja uppáhaldspersónur.
Mest held ég upp á kerlingarnar tvær sem ræða
hin ýmsu málefni sem yfirleitt eru fremur rædd
í frímínútum í tíunda bekk af bólugröfnum
unglingsdrengjum. Einnig finnst mér goth-arinn á
vitlausu hillunni alveg yndislegur. Hann reynir
mikið að falla í hópinn með hvítri andlitsmáln-
ingu og svörtum varalit, en innst inni vill hann
bara kirja Bjöggalög og fylgja Bylgjulestinni á
Halló Akureyri.
Frægir leikarar krydda þáttinn með skemmti-
legum hætti. Jói Fel og Páll Óskar slást með
vínarbrauði og kuta, Jóhanna Guðrún er ofsótt
af aðdáanda og Erpur leikur geggjaðan pólskan
verkamann.
Ég mæli því með þættinum við allar forpok-
aðar og fordómafullar kerlingar eins og mig.
VIÐ TÆKIÐ SÓLVEIG GÍSLADÓTTIR LOSAR SIG VIÐ FORDÓMA
Steindinn kom þægilega á óvart