Fréttablaðið - 05.06.2010, Blaðsíða 58
5. júní 2010 LAUGARDAGUR6
Aðstoðarskólastjóri
Menntaskólinn Hraðbraut óskar að ráða aðstoðarskólastjóra.
Aðstoðarskólastjóri heyrir beint undir skólastjóra og sér um daglega
stjórnun skólans ásamt því að vera staðgengill skólastjóra.
Hæfi skröfur:
• Háskólamenntun ásamt kennsluréttindum á framhaldsskólastigi
• Háskólamenntun í stjórnun er æskileg
• Gott vald á talaðri og ritaðri íslensku ásamt góðri kunnáttu í ensku
• Áhugi á menntun og ungu fólki
• Öguð vinnubrögð og hæfni í mannlegum samskiptum
Áhugasamir hafi samband við Ólaf Hauk Johnson skólastjóra í síma 565 9500 eða með pósti á netfangið
ohj@hradbraut.is. Með allar fyrirspurnir verður farið sem trúnaðarmál.
T V E I M U R Á R U M
Á U N D A N
Faxafeni 10 · 108 Reykjavík · Sími: 517-5040 · www.hradbraut.is65 950
Grunnskóli Seltjarnarness auglýsir eftir
• Þroskaþjálfa til starfa á yngsta stigi um 75% stöðugildi
er að ræða.
Nánari upplýsingar fást hjá Eddu Óskarsdóttir deildarstjóra
sérkennslu í tölvupósti eddao@seltjarnarnes.is
• Myndmenntakennara til starfa á yngsta og miðstigi um
100% stöðugildi er að ræða.
Nánari upplýsingar fást hjá Ólínu Thoroddsen aðstoðarskólastjóra í
tölvupósti olina@seltjarnarnes.is
• Kennurum á unglingastigi í:
- Smíði 8 kennslustundir á viku
- Spænsku 6 kennslustundir á viku
- Tölvufræði 2 kennslustundir á viku
- Stærðfræði 22 kennslustundir á viku
- Náttúrufræði 3 kennslustundir á viku.
Nánari upplýsingar fást hjá Helgu Kristínu Gunnarsdóttir aðstoðar-
skólastjóra í tölvupósti helgakr@seltjarnarnes.is
Umsóknarfrestur er til 14. júní 2010
Á Seltjarnarnesi eru um 600 nemendur í heildstæðum grunnskóla.
Skólinn er rekinn í tveimur starfstöðvum; Mýrarhúsaskóla fyrir nem-
endur í 1. - 6. bekk og Valhúsaskóla fyrir nemendur í 7. - 10. bekk.
Fræðslu-, menningar- og þróunarsvið Seltjarnarnesbæjar
www.grunnskoli.is
Leitum að leikskólakennara sem er ljúfur í lund og
samstarfsfús v. fæðingarorlofs eins af kennurum skólans.
Um framtíðarstarf gæti verið að ræða. Áherslur skólastarfs
eru á gæði í samskiptum og skapandi starf í anda
Reggió-stefnunnar. Rík áhersla er á virðingu og gleði í
öllum samskiptum og eru það lykilhugtök í daglegu starfi .
Einkunnarorð skólans eru Börn eru merkilegt fólk.
Áhugasamir sendi tölvupóst á regnbogi@regnbogi.is
eða hafi ð samband við undirritaða í síma 899 2056
ð
Leikskólakennari óskast
Ráðningartími er frá 12. ágúst nk.
Snyrtifræðingur
Dekurstofan í Kringlunni óskar eftir að ráða snyrti-
fræðing í hlutastarf.
Umsóknir sendist á box@frett.is merkt: „dekur”
Alþjóðaskólinn á Íslandi auglýsir eftir
metnaðarfullum starfskrafti
Alþjóðaskólinn (The International School of Iceland) er eini alþjóðlegi
grunnskólinn á Íslandi. Við leitum að metnaðarfullum aðila til að slást
í okkar hóp og taka þátt í skemmtilegu og spennandi uppbyggingar-
star i með grunnskólabörnum frá öllum heimshornum.
Starfslýsing
• Umsjónarkennsla
• Íslenskukennsla sem móðurmál og annað tungumál
• Raungreinakennsla
• Þemakennsla
• Þróun námsskrár
• Starfshlutfall : 70-100%
Hæfniskröfur
• Háskólamenntun sem nýtist í star i
• Reynsla af að vinna með börnum
• Mjög góð enskukunnátta sem gerir viðkomandi kleift að vinna í
alþjóðlegu-og tvítyngdu umhver i
• Sjálfstæð vinnubrögð, sveigjanleiki, stundvísi, og heiðarleiki
Alþjóðaskólinn á Íslandi er einkarekinn grunnskóli með aðsetur í
Sjálandsskóla Garðabæ. Í skólanum er unnið samkvæmt hugmynda-
fræði Jane Nelson um Jákvæðan aga (Positive Discipline). Skólinn er
formlegur aðili að alþjóðlegri grunnskólanámsstefnu, The Inter-
national Primary Curriculum (IPC). Kennsluhættir eru einstaklings-
miðaðir og bekkir eru fámennir. Kennarar okkar eru frá Íslandi,
Bretlandi, Bandaríkjunum , Hollandi, Þýskalandi og Indlandi. Nánari
upplýsingar má inna á heimasíðu okkar: www.internationalschool.is.
Áhugasamir vinsamlega sendið umsókn ásamt ferilskrá til Bertu
Faber, skólastjóra í netfangið isi@internationalschool.is, eigi síðar en
immtudaginn 10. júní .
Lagadeild Háskólans í Reykjavík útskrifar árlega yfir 100 nemendur úr grunnnámi og meistaranámi í lögum.
Fjórar rannsóknastofnanir eru starfræktar við lagadeild HR og fékk deildin nýlega heimild til að bjóða
doktorsnám í lögfræði.
Markmið lagadeilar er að bjóða nemendum upp á krefjandi nám í framsæknu og skapandi umhverfi. Lögð er
áhersla á nýsköpun í kennslu, alþjóðlega viðurkenndar rannsóknir og sterk tengsl við atvinnulífið.
Leitað er að leiðtoga til að stýra hæfum hópi starfsmanna við framþróun öflugrar og metnaðarfullrar lagadeildar.
Deildarforseti ber ábyrgð á akadamísku starfi og rekstri deildarinnar, situr í framkvæmdastjórn Háskólans í
Reykjavík og heyrir undir rektor HR.
HÆFNISKRÖFUR:
Doktorspróf í lögfræði.
Reynsla af kennslu og rannsóknum.
Forystu- og stjórnunarhæfileikar.
Nánari upplýsingar um starfið veita Gunnar Guðni Tómasson formaður valnefndar, og Ásta Bjarnadóttir
hjá Háskólanum í Reykjavík (599 6200, gunnargt@ru.is, asta@ru.is).
Umsóknum skal skilað til Háskólans í Reykjavík á netfangið appl@ru.is, í síðasta lagi 1. júlí 2010.
Fylgigögn má senda til Háskólans í Reykjavík, b.t. Ástu Bjarnadóttur, Menntavegi 1, 101 Reykjavík.
Allar fyrirspurnir og umsóknir verða meðhöndlaðar sem trúnaðarmál.
Hlutverk Háskólans í Reykjavík er að skapa og miðla þekkingu til að auka samkeppnishæfni og lífsgæði.
Akademískar deildir skólans eru fimm: Kennslufræði- og lýðheilsudeild, lagadeild, tölvunarfræðideild,
tækni- og verkfræðideild og viðskiptadeild.
Háskólinn í Reykjavík er samfélag um 3000 nemenda og yfir 500 starfsmanna og stundakennara. Um helmingur
kennara eru virkir í íslensku atvinnulífi og einn af hverjum sex akademískum starfsmönnum kemur erlendis frá.
Nám í öllum deildum Háskólans í Reykjavík er framsækið, tekur mið af því sem best gerist á alþjóðavettvangi
og er í stöðugri þróun. Háskólinn býður nú upp á tæplega 800 námskeið á ári, um 600 í grunnnámi og 200 á
meistara- og doktorsstigi, og mætir þannig þörfum nemenda og atvinnulífs.
FORSETI
LAGADEILDAR
HÁSKÓLINN Í REYKJAVÍK ÓSKAR EFTIR AÐ RÁÐA FORSETA LAGADEILDAR
www.hr.is