Fréttablaðið - 08.06.2010, Blaðsíða 39
ÞRIÐJUDAGUR 8. júní 2010
„Í raun er ég að selja diskinn
fyrirfram,“ segir djasspíanistinn
Sunna Gunnlaugsdóttir sem notar
síðuna Kickstarter.com til að fjár-
magna plötu sem hún hljóðritaði í
New York í fyrra. Hún ætlar einn-
ig að nota peningana í útvarpsher-
ferð í Bandaríkjunum.
Á síðunni geta stuðningsmenn
og tónlistarunnendur heitið viss-
um upphæðum á Sunnu og fengið
fríðindi í staðinn, það er ef tak-
markið næst að ná inn 2.500 doll-
urum fyrir 10. júní. Sunna hefur
þegar náð inn rúmlega 60% fjár-
mögnun og vantar bara herslu-
muninn.
„Ég var búin að melta þetta
með mér í langan tíma. Ég hafði
heyrt að fólk hefði verið að gera
þetta en þetta er mun algeng-
ara í rokk, urban- og indítónlist,“
segir Sunna. Á meðal fríðinda
sem stuðningsmenn Sunnu geta
fengið er frítt niðurhal á plötunni,
áritað eintak, stuttermabolur og
iPad Nano-spilari. Einnig getur
fólk pantað hvaða lag sem er og
fengið Sunnu til að taka það upp
og senda viðkomandi. Það er dýr-
ast og kostar 100 dollara. Ef fjár-
mögnunin næst ekki að fullu fyrir
10. júní fá þeir sem hafa heitið á
Sunnu peningana sína til baka.
Sunna er að leggja af stað í
tónleikaferð um Bandaríkin. Þar
stígur hún á svið með kvartetti
sem hún spilaði með áður en hún
flutti heim til Íslands eftir þrett-
án ára búsetu í Bandaríkjunum.
-fb
Fjármagnar plötu á netinu
SUNNA GUNNLAUGSDÓTTIR Sunna
notar síðuna Kickstarter.com til að
fjármagna plötuna sína.
Robbie Williams hefur upplýst
hvernig hann heldur sér í svona
góðu formi. Fyrir utan að hlaupa
nokkra kílómetra á dag og borða
hollt þá er lykillinn kynlíf. Robb-
ie er reyndar ekki fyrsta stjarnan
sem lýsir þessu yfir því Cameron
Diaz hefur einnig talað opinber-
lega um hversu gott það er fyrir
línurnar að stunda kynlífið.
Robbie sagði við breska blað-
ið Daily Star að hann og unnusta
hans, Ayda Field, elskist eins oft
og þau geti. „Ef þú vilt spyrja
mig út í formið þá er svarið kyn-
líf. Við stundum það eins mikið
og við getum,“ sagði Robbie.
Söngvarinn hefur smám saman
verið að koma sér á beinu braut-
ina eftir mikinn öldudal og hann
er meðal annars einn aðstand-
enda Soccer Aid-leiksins þar sem
stjörnur og fyrrverandi knatt-
spyrnuhetjur etja kappi fyrir
gott málefni. „Þessi viðburður
hvetur mig áfram, ég vil vera
í góðu formi þegar að leiknum
kemur, ég er duglegur að hlaupa
og spila fótbolta,“ sagði Robbie.
Söngvaranum hefur oft verið
legið á hálsi fyrir að vera of
feitur. En Robbie segist með
æfingum sínum ekki hafa misst
neitt rosalega mikið af kílóum.
„Vöðvamassinn er bara orðinn
meiri og það er frábært að hafa
eitthvað til að stefna að,“ segir
Robbie.
Formið kemur með kynlífi
KYNLÍFIÐ GOTT Robbie Williams segist
halda sér í formi með því að stunda
mikið kynlíf, hlaupa og spila fótbolta. Viðarhöfða 6 – Reykjavík / Bæjarhrauni 12 – Hafnarfirði
www.sindri.is / sími 575 0000
Verslanir
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
1
01
49
3
69.900
Verð með vsk.
18 V höggborvél
DC988KL
Öflug 18 V borvél m. höggi
3ja gíra, 0-450/1450/2000
Átak 52 Nm.
2x2,0 Ah Li-Ion rafhlöður
40 mín. hleðslutæki
Taska fylgir