Fréttablaðið - 10.06.2010, Side 2
2 10. júní 2010 FIMMTUDAGUR
STJÓRNSÝSLA „Þetta er mjög óheppi-
legt í ljósi þeirra aðhaldsaðgerða
sem þessi stjórn hefur staðið
fyrir,“ segir Guðlaugur G. Sverris-
son, stjórnarformaður Orkuveitu
Reykjavíkur (OR), um fréttir af
bílakaupum fyrirtækisins. DV
greindi frá því í gær að OR hefði
nýlega keypt sjö milljóna króna
Benzjeppa fyrir fjármálastjóra
fyrirtækisins, Önnu Skúladóttur.
Stjórn OR hefur ekki tekið málið
fyrir en að sögn Guðlaugs eru
málefni einstakra starfsmanna
og ráðningarsamningar þeirra á
ábyrgð forstjóra fyrirtækisins.
Aðspurður sagðist Guðlaugur
telja að eðlilegt væri að stjórn OR
skoðaði mál eins og þetta.
Samkvæmt ráðningarsamningi
sem gerður var við Önnu þegar
hún tók við starfi fjármálastjóra
OR í mars árið 2006 nýtur hún bif-
reiðafríðinda. Auk hennar njóta
þrír aðrir af æðstu stjórnendum
fyrirtækisins sambærilegra fríð-
inda. Þar er um að ræða, Hjörleif
B. Kvaran forstjóra, Pál Erland
framkvæmdastjóra veiturekst-
urs og Jakob Sigurð Friðriksson,
framkvæmdastjóra framleiðslu
og sölu.
Komið hefur fram að fjár-
hagsstaða OR er erfið og gripið
hefur verið til ýmissa aðhalds-
aðgerða á undanförnum miss-
erum til að bregðast við því.
Til að mynda voru laun flestra
starfsmanna lækkuð í mars
árið 2009 auk þess sem fram
kom í máli Guðlaugs G. Sverris-
sonar, stjórnarformanns, nýlega
að eigi markmið fimm ára áætlun-
ar um fjárþörf OR, sem miða við
fimm prósenta arðsemi, að nást,
þurfi mikla hækkun á gjaldskrá
fyrirtækisins.
Samkvæmt árshlutareikningi
OR sem gefinn var út 12. maí síð-
astliðinn fyrir fyrsta ársfjórðung
ársins 2010 eru heildarskuldir OR
rúmir 244 milljarðar króna.
Jón Gnarr, verðandi borgar-
stjóri, sagðist í samtali við Frétta-
blaðið ekki hafa kynnt sér málefni
OR nægilega vel. „En mér finnst
þetta svolítið 2007 og þetta virk-
ar svolítið taktlaust á mig.“ Hann
telur að eðlilegt væri að Orku-
veitan skeri
n iður lúxus
áður en farið
sé í uppsagnir
eða gjaldskrár-
hækkanir
„Mér finnst
þetta furðu-
legt mál og hef
óskað eftir upp-
lýsingum það,“
segir Dagur B.
Eggertsson, oddviti Samfylking-
arinnar í Reykjavík. „Ég hélt satt
best að segja að það stæðu yfir
mjög strangar sparnaðaraðgerðir
alls staðar í rekstri borgarinnar og
þær aðgerðir eiga sannarlega að
ná til Orkuveitunnar líka.“ Dagur
segist vilja fá frekari upplýsingar
um málið áður en hann tjáir sig
um það hvort hann telji það gefa
tilefni til breytinga á æðstu stjórn
Orkuveitunnar.
Hjörleifur B. Kvaran og Anna
Skúladóttir gáfu ekki kost á viðtali
í gær.
magnusl@frettabladid.is
LÖGREGLUMÁL Tvær nauðganir
hafa á síðustu dögum verið kærð-
ar til lögreglunnar á höfuðborgar-
svæðinu. Annars vegar er um
að ræða konu á þrítugsaldri sem
lagt hefur fram kæru. Hins vegar
hefur fjórtán ára stúlka kært
nauðgun.
Eftir því sem Fréttablað-
ið kemst næst var konan stödd
í gleðskap þegar meint brot var
framið gegn henni.
Unga stúlkan mun hins vegar
hafa farið heim með manni sem
hún kannaðist við, þar sem hann
braut gegn henni. Samkvæmt
heimildum blaðsins var áfengi
ekki haft um hönd.
Kynferðisbrotadeild lögregl-
unnar á höfuðborgarsvæðinu fer
með rannsókn málanna. - jss
Tvær nauðgunarkærur:
Fjórtán ára
kærir nauðgun
Geirmundur, fáið þið þá ekki
endurskoðendur?
„Ég held að það sé alveg víst að við
fáum til okkar einhverja endur-
skoðendur til að hafa umsjón með
þessum öndum.“
Geirmundur Vilhjálmsson er forstöðu-
maður fangelsisins á Kvíabryggju. Þar
eru menn farnir að rækta blóm, tré og
matjurtir og ætla að líka að fá sér hænur
og endur.
SUÐURLAND Skóflustunga að nýrri byggingu fyrir
gufubaðsaðstöðu við Laugarvatn var tekin í gær og
framkvæmdir hefjast á næstunni, að því er segir í
tilkynningu frá Gufu ehf.
„Um er að ræða heilsulind, sem verður byggð
á sama stað og gamla góða gufubaðið. Heilsulind-
in byggir á sömu hugmyndafræði og upprunaleg
aðstaða, þar sem gestum er gert kleift að njóta
náttúrulegrar gufu úr iðrum jarðar,“ segir um
áætlanir fyrir nýja gufubaðhúsið sem leysir af
hólmi gamalt hús sem þjónaði í áratugi þar til það
var rifið fyrir nokkrum árum.
„Gamla gufan var hús sem reist var yfir gufu-
hver, en í húsinu var rimlagólf svo gestir gætu
notið gufunnar beint. Nýja gufubaðsaðstaðan verð-
ur eins og áður byggð ofan á gufuhver og mun efn-
isval í nýrri aðstöðu undirstrika tengsl þess við
íslenska náttúru. Auk gufubaða verða jafnframt
byggðar laugar og heitir pottar ásamt glæsilegri
útiaðstöðu fyrir gesti,“ segir áfram í tilkynningu
Gufu ehf.
Helstu eigendur Gufu eru Byggingarfélag náms-
manna, Flugleiðahótel ehf. og Bláa Lónið hf. auk
hóps hollvina gufubaðsins, eins og segir í tilkynn-
ingunni. Þar kemur fram að heildarkostnaður við
verkið sé áætlaður 400 milljónir króna og að því
ljúki í lok maí á næsta ári. - gar
Loks hillir undir arftaka gamla baðhússins sem byggt var yfir gufuhver:
Nýtt gufubaðhús reist á Laugarvatni
NÝJA GUFUBAÐIÐ Byggt ofan á hver eins og gamla baðhúsið
og efnisvalið á að undirstrika tengslin við náttúru Íslands.
MYND/GUFA EHF.
ALÞINGI Ráðist verður í bólusetn-
ingu allra barna við pneumokka-
sýkingu, sem veldur eyrnabólgu,
ef Alþingi fer að tillögu heilbrigð-
isnefndar og afgreiðir þingsálykt-
unartillögu frá Siv Friðleifsdóttur
og fleiri þingmönnum.
„Það er álit nefndarinnar að hér
sé um þarft mál að ræða enda eru
eyrnabólgur eitt algengasta heilsu-
vandamál barna hér á landi og
skýrir yfir 50 prósent allrar sýkla-
lyfjanotkunar hjá börnum,“ segir í
þverpólitísku áliti heilbrigðisnefnd-
ar. „Bólusetning gegn pneumó-
kokkasýkingum er þjóðhagslega
hagkvæm aðgerð sem skilar sér
strax í auknum lífsgæðum, minni
notkun sýklalyfja, minna álagi
á heilbrigðisstofnunum, minna
vinnutapi hjá foreldrum sem og
jákvæðum hjarðáhrifum.“ Fram
kemur að í heilbrigðisráðuneytinu
sé til áætlun um að öll börn fædd
2011 fái slíka bólusetningu.
Heilbrigðisnefnd hefur jafn-
framt afgreitt tillögu frá Steinunni
Valdísi Óskarsdóttur og fleirum
um að allar 12 ára stúlkur verði
bólusettar gegn HPV-smiti og leg-
hálskrabbameini og telur að einnig
eigi að ráðast í þá aðgerð þótt hún
eigi þó að vera aftar í forgangsröð
en bólusetning gegn eyrnabólgu.
Báðar þessar tillögur voru á
dagskrá þingsins í gær. - pg
Bólusetning vegna eyrnabólgu og leghálskrabbameins bíður samþykkis Alþingis:
Þjóðhagslega hagkvæm aðgerð
BÓLUSETNING Heilbrigðisnefnd Alþingis
vill taka upp bólusetningu allra stúlkna
gegn leghálskrabbameini.
Kaup á lúxusbíl þykja
furðuleg og taktlaus
Stjórnarformaður Orkuveitunnar og oddvitar verðandi meirihluta í borginni
segja einkennilegt að bílar séu keyptir fyrir margmilljónir undir stjórnendur á
aðhaldstímum. Dagur B. Eggertsson hefur kallað eftir upplýsingum um málið.
JÓN
GNARR
DAGUR B.
EGGERTSSON
SAMFÉLAGSMÁL Útgerð og áhöfn
hrefnuveiðibátsins Drafnar RE
gaf Mæðrastyrksnefnd fyrstu
veiddu hrefnu skipsins á yfir-
standandi vertíð í gær. Hrefnu-
veiðimenn ehf. sáu um að koma
kjötinu í neytendaumbúðir.
Hrefnan gaf af sér um 800 kíló
af kjöti.
Gunnar Jóhannsson segir
ástæðu gjafarinnar fyrst og
fremst vera að styðja við bakið
á því góða starfi sem nefndin
hefur unnið fyrir þá sem þurfi
eru. „En við viljum jafnframt
vekja athygli fólks á þeirri
matarkistu sem við eigum hér,
og að enginn þurfi að svelta ef
hann ber sig eftir björginni.“
- shá
Mæðrastyrksnefnd styrkt:
Fyrsta hrefnan
gefin fátækum
UTANRÍKISMÁL Skrifað var undir
samning seðlabanka Íslands
og Kína við upphaf opinberrar
heimsóknar He Guoqiang,
flokksritara í stjórnmálanefnd
miðstjórnar kínverska kommún-
istaflokksins, og sendinefndar
hans.
He Guoquang er með hærra
settum mönnum kínverska
stjórnkerfisins sem hingað hafa
komið og var nokkur viðbúnaður
vegna upphafs fundanna í utan-
ríkisráðuneytinu við Rauðarár-
stíg í gær. Götunni var lokað á
meðan sendinefndin staldraði
við.
Flokksritarinn fundaði með
Ólafi Ragnari Grímssyni, for-
seta Íslands í hádeginu, eftir að
hafa fundað með Össuri Skarp-
héðinssyni utanríkisráðherra og
Jóhönnu Sigurðardóttur forsæt-
isráðherra. Þá ætlaði He Guoqu-
ang að kynna sér orkunýtingu í
Svartsengi og á Hellisheiði. - óká
Háttsettur maður í heimsókn:
Lögregla lokaði
Rauðarárstíg
GUÐLAUGUR G.
SVERRISSON
HREFNAN KOMIN Í HÚS Aðalheiður
Franzdóttir og Ragnhildur Guðmunds-
dóttir frá Mæðrastyrksnefnd tóku á móti
Gunnari Jóhannssyni. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Tók lögreglumann hálstaki
Ríkissaksóknari hefur ákært ungan
mann fyrir að veitast að lögreglu-
manni við skyldustörf með ofbeldi
og taka hann hálstaki.
DÓMSTÓLAR
HOLLAND, AP Þingkosningarnar
í Hollandi virtust ætla að verða
hnífjafnar samkvæmt fréttum í
gærkvöldi. Frjálslynda þjóðar-
flokknum og Verkamannaflokkn-
um, stærstu flokkunum til hægri
og vinstri, var spáð jafnmörgum
þingsætum, eða 31 af 150 á hol-
lenska þinginu.
Kristilegi demókrataflokkurinn,
sem Jan Peter Balkenende forsætis-
ráðherra leiðir, beið afhroð og ætlar
hann að hætta stjórnmálaþátttöku.
Allar líkur virðast vera á sam-
steypustjórn þriggja flokka. - shá
Þingkosningar í Hollandi:
Stjórn þriggja
flokka líkleg
GLÆSIKERRA
Bíllinn, af gerðinni
Mercedes Benz ML 350,
kostaði notaður um átta
milljónir króna.
SPURNING DAGSINS