Fréttablaðið - 10.06.2010, Side 10
10 10. júní 2010 FIMMTUDAGUR
11 eða 14 nátta ferð - ótrúleg kjör!
Heimsferðir bjóða ótrúlegt tilboð á síðustu sætunum í spennandi sumarleyfi sferðir til eins allra vinsælasta sólaráfangastaðar Íslendinga,
Costa del Sol. Í boði eru ferðir 22. júní í 14 nætur og 6. júlí í 11 nætur. Fjölbreytt gisting í boði á ótrúlegum kjörum. Costa del Sol býður allt
það helsta sem maður getur óskað sér í fríinu. Gríptu þetta einstaka tækifæri til að njóta lífsins á þessum vinsæla áfangastað í sumarfríinu.
Ath. mjög takmarkaður fjöldi íbúða og herbergja í boði - verð getur hækkað án fyrirvara.
ALÞINGI Það er ekkert að vanbún-
aði að leggja niður skilanefnd-
ir föllnu bankanna, sagði Helgi
Hjörvar, Samfylkingu, á Alþingi
í gær. Vinnan við uppgjör föllnu
bankanna hefur færst til slita-
stjórna. Ekki ætti að taka nema
2-3 mánuði að hnýta lausa enda
þannig að hægt verði að leggja
skilanefndirnar niður.
Óli Björn Kárason, Sjálfstæð-
isflokki, sagði skilanefndirnar
hina nýju valdastétt á Íslandi,
þær væru óháðar öllum og þurfi
ekki að standa neinum skil gjörða
sinna.
Fram kom að kostnaður við
starf skilanefnda bankanna næmi
um 20 milljörðum króna en verð-
mæti eignanna sem þær sýsla með
er talið um 3.500 milljarðar.
Gylfi Magnússon, viðskipta- og
efnahagsráðherra, sagði að þótt
þessar tölur þættu háar hér á
landi þætti erlendum kröfuhöfum
hann svo lítill að þeir drægju í efa
að nóg væri að gert til að hámarka
verðmæti eigna bankanna. Gylfi
sagði að það skipti ekki höfuð-
máli hvort stjórnirnar yrðu sam-
einaðar eða ekki. Vinnan við að
leysa upp gömlu bankana yrði sú
sama og kostnaður breyttist lítið
þótt honum yrði skipt með öðrum
hætti.
Árni Þór Sigurðsson, VG, tók
undir með Helga Hjörvar að
leggja mætti skilanefndirnar
niður og fela slitastjórnum allt
uppgjör þrotabúa bankanna. Hann
minnti á að heimilt væri sam-
kvæmt lögum og dómafordæmi
að endurákvarða skiptakostnað.
Skiptastjórar, þ.e. skilanefndirn-
ar, bæru sönnunarbyrði fyrir því
að reikningar sem þeir gefa út
fyrir vinnu sína væru réttmætir.
„Hverjir hagnast á því að bank-
arnir fóru á hausinn?“ spurði Vig-
dís Hauksdóttir, Framsóknar-
flokki, og sagði að það væru fyrst
og fremst fagaðilar sem starfa
við uppgjör þrotabúanna. Vigdís
sagðist vera að undirbúa tillögu
um að fram fari rannsókn á starf-
semi skilanefndanna, sambærileg
rannsókninni á bankahruninu.
Tryggvi Þór Herbertsson, Sjálf-
stæðisflokki, nálgaðist málið úr
annarri átt, sagði að Íslendingar
ættu að fagna því að sem flest-
ir störfuðu hjá skilanefndum og
hefðu sem hæst laun. Íslendingar
ættu litlar eignir í gömlu bönk-
unum, erlendir kröfuhafar borgi
laun skilanefnda og skiptakostnað
að langmestu leyti; skatttekjur séu
mun hærri en hlutur Íslendinga í
kostnaði við skilanefndirnar.
peturg@frettabladid.is
Skilanefndir
lagðar niður
Þingmenn úr báðum stjórnarflokkum telja rétt að
leggja niður skilanefndir föllnu bankanna. Nefnd-
irnar voru harðlega gagnrýndar á Alþingi. „Hin
nýja yfirstétt,“ segir Óli Björn Kárason þingmaður.
SKILANEFNDIR Kostnaður við að skipta upp föllnu bönkunum nemur samtals 20
milljörðum króna, sem er um 0,6% af um 3.500 milljarða heildareignum. Gylfi
Magnússon segir að hlutfallið sé misjafnt eftir bönkum og á bilinu 0,3-1%.
1. Hvaða hvalategund er talin
mynda vinatengsl samkvæmt
rannsóknum?
2. Hvað heitir verslunarkeðjan
í Bretlandi sem er að stórum
hluta í eigu skilanefnda gömlu
bankanna?
3. Hvaða breska dagblað hefur
beðið Eið Smára Guðjohnsen
afsökunar?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 54
TRYGGVI ÞÓR HERBERTSSON, VIGDÍS HAUKS-
DÓTTIR, GYLFI MAGNÚSSON, ÓLI BJÖRN
KÁRASON OG ÁRNI ÞÓR SIGURÐSSON
MANNRÉTTINDI Mannréttindasam-
tökin Amnesty International birtu
í gær nýja skýrslu sem ber heit-
ið „From Promises to Delivery“. Í
skýrslunni eru Þúsaldarmarkmið
Sameinuðu þjóðanna skoðuð út frá
mannréttindaskyldum sjálfstæðra
ríkja. Skýrslan felur meðal annars
í sér skýringar og viðhorf samtak-
anna á jafnrétti, mæðraheilsu og
fátækt og varpar hún ljósi á það bil
sem er á milli Þúsaldarmarkmiða
Sameinuðu þjóðanna og annarra
alþjóðlegra mannréttindaviðmiða.
Þúsaldarmarkmiðin eru frum-
kvæði SÞ til að vinna gegn fátækt í
heiminum og byggja á Þúsaldaryfir-
lýsingunni sem samþykkt var fyrir
tíu árum. Meginmarkmið þeirra er
að eyða fátækt og hungri í heim-
inum öllum og tryggja jafnrétti á
öllum grundvelli.
Í skýrslu Amnesty er lýst hver
þau skref eru sem ríkisstjórnir
verða að stíga til að ná fram raun-
verulegum árangri í framfylgni við
Þúsaldarmarkmiðin og útrýmingu
fátæktar. Að mati samtakanna kall-
ar hún á að stjórnvöld tryggi að öll
átaksverkefni sem tengjast Þúsald-
armarkmiðunum samræmist alþjóð-
legum mannréttindum. - sv
Amnesty International birtir nýja skýrslu sem krefur stjórnvöld um aðgerðir:
Þúsaldarmarkmið SÞ skoðuð
VINNA SKIPULEGA GEGN FÁTÆKT
Skýrsla Amnesty International skýrir frá
Þúsaldarmarkmiðum SÞ um baráttuna
við fátækt.
VIÐSKIPTI Ólafur Ólafs-
son, fyrrverandi aðal-
eigandi Kaupþings, seg-
ist enga aðild hafa átt
að hlutabréfakaupum
katarska sjeiksins Al-
Thani í Kaupþingi og að
aldrei hafi staðið til að
hann hefði fjárhagsleg-
an ávinning af viðskipt-
unum. Þetta segir hann
í tilkynningu til fjölmiðla.
Hann segist hafa hjálpað til
við að koma kaupunum á og verið
milliliður í lánveitingunni til
sjeiksins. „Sheik Al-Thani er í
hópi öflugustu og virtustu fjár-
festa heims. Samsæriskenningar
um að hann hafi ætlað að taka
þátt í einhvers konar sjónarspili
gegn þóknun í tengslum við
kaup á 5% hlut í Kaupþingi
eru vægast sagt fráleitar,“
segir Ólafur.
Ólafur hyggst ekki tjá sig
frekar um „innihald tölvu-
pósta eða annarra sam-
skipta sem Lilja Steinþórs-
dóttir og Halldór Bjarkar
Lúðvígsson kunna að hafa
átt í janúar 2009 eða þá
túlkun atburða sem þar er sett
fram“. DV birti símtal milli Lilju
og Halldórs á mánudag þar sem
rætt var um að reynt hefði verið
að fela aðild Ólafs að málinu.
Ólafur segist þess enn fremur
fullviss að rannsókn málsins muni
leiða í ljós að hann hafi engin lög
brotið í málinu. - sh
Fráleitar samsæriskenningar um katarska sjeikinn:
Ólafur Ólafsson segist
saklaus í Al-Thani-máli
ÓLAFUR ÓLAFSSON
MOSKVA, AP Háttsettur embættis-
maður hjá Sameinuðu þjóðunum
fullyrðir að tala þeirra sem deyja
árlega af notkun afgansks heró-
íns í V-Evrópu sé hærri en heild-
arfjöldi þeirra NATO-hermanna
sem hafa látist í Afganistan síðan
2001, eða um 1.800 manns.
Stærsti markaðurinn fyrir
afgönsk fíkniefni er í Rússlandi,
en á ári hverju seljast þar meira
en 70 tonn af heróíni. - sv
Heróín skaðlegra en stríð:
Fjöldi dauðs-
falla gífurlegur
Stálu bensíni af vélsleða
Ungur maður hefur verið dæmdur í
fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi
fyrir að stela 22 lítrum af bensíni af
vélsleða. Félagi hans var dæmdur fyrir
hylmingu þar sem hann notaði hluta
af bensíninu á bíl sinn.
DÓMSTÓLAR
MANNRÉTTINDI Íslandsdeild Amn-
esty International efna til vináttu-
leik í knattspyrnu næstkomandi
sunnudag. Leikurinn er til stuðn-
ings Stand Up United, alþjóðlegu
keppnisliði sem berst fyrir mann-
réttindum um allan heim.
Meðal leikmanna Amnesty
verða Ilmur Kristjánsdóttir, Sig-
mar Guðmundsson og Ari Eld-
járn. Boðið verður upp á ýmis
skemmtiatriði í hálfleik. Leikur-
inn fer fram á gervigrasvellinum
í Laugardal og hefst klukkan 16.
Aðgangur er ókeypis. - sv
Amnesty heldur vináttuleik:
Keppa fyrir
málstaðinn
VEISTU SVARIÐ?