Fréttablaðið - 10.06.2010, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 10.06.2010, Blaðsíða 48
32 10. júní 2010 FIMMTUDAGUR BAKÞANKAR Páls Baldvins Baldvins- sonar ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman Sameign á framleiðslutækjum er víðs fjarri smáborgaranum íslenska. Hann verður að eiga sitt. Það blasir við þegar menn setja sig í athafnagírinn og stika út á túnin með sláttuvélarnar sínar. Á nokkurra hundraða fermetra svæði er ég umkringdur fimm sláttu- vélum. Þær tala hver með sínu hljóði, sumar rafdrifnar, aðrar keyrðar bensín- blöndum. Mínir grannar vilja hafa bleðl- ana sína stuttklippta og þó þurrkurinn hafi verið skæður það sem liðið er af júní eru menn komnir í annan umgang í slætti. Grasið, sem víðast stendur á gömlum meiði á mínum slóðum, sprettur vel í þurrki, það er einung- is gras af yngri fræstofnum sem hefur tilhneigingu til að skrælna í sólinni – útlent gras sem þekkir sig ekki í íslenskri jörð og hagar sér sem útlenskt. MOLDIN á Hólavöllunum er enda þegar komið er stungu niður samþjappaður jökulleir sem mettast vel af vatni en er að sama skapi þungur fyrir rótarvöxt, vonlaus fyrir kart- öflur til dæmis. Ofan á honum er setlag sem hefur safnast saman á þessum rétt hundrað árum sem menn hafa staðið í garðrækt hér. Grasrótin er því liggjandi á grunnu lagi og vex vel – jafnvel í þurrki. Það þýðir slátt viku- lega. Og svo er von á rigningu. Miðað við þorsta rótanna má búast við hörku- sprettu um helgina. Þá vex grasið svo hratt að maður sér það spretta. MENN bera sig misjafnlega að við slátt. Það fer reyndar svolítið eftir vélum. Mörgum hættir til að þjösnast á vél- inni í afkastaþrá en það er ekki góð taktík. Vélarnar skulu líða eftir flötinni í hægum gangi sláttumanns. Auðvitað fer þetta allt eftir því hvernig skilið var við flötina að hausti. Hafi menn slórað og setið af sér síðasta slátt er hætt við að argaþýfið bjóði þá velkomna. Þá leggjast prúðustu menn í tuddaskap og hætta tám og snúrum í þverlyndislegum átökum við sinuna frá í fyrrahaust. REYNDAR skil ég ekki að víðast hvar hafa menn lagt af slátt með orfi og ljá: bíð eiginlega eftir því að það verði hipp aftur. Ekki er hægt að hugsa sér betri bolvindu en það. Slær öllu við vilji menn ná af sér miðjunni. Orf eru fátíð orðin og ljái þarf að umgangast af varúð eins og forna rakhnífa. En mikið væri gaman að maður hætti að heyra skrölt í vélum, fimm í kór, og heyrði í staðinn syngjandi ljá fella grasið árla morguns eftir döggfagra dögun. Sláttuvélablús Pondus kynnir: Varnarsinnaðir miðjumenn úr neðri deildum með asnalegan hárvöxt í and- litinu. Næst: Aðstoðarþjálfar- ar frá Miðlönd- um með vörtur. 10 Jíha! Við vissum að þú gætir þetta. Nú búumst við sömu einkunum á öðrum prófum. Hvernig gengu prófin? Greinilega mjög illla. Úps, afsakið, röng íbúð. Jæja, vertu nú kyrr hérna á meðan mamma sækir kaffi. Frábært, klifur- stigið er hafið. Búba Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24 alla virka daga frá kl. 9-17. ...góðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn... Blaðberinn bíður þín
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.