Fréttablaðið - 14.06.2010, Blaðsíða 10
10 14. júní 2010 MÁNUDAGUR
SAMGÖNGUR Strætó bs. stefnir á að
bjóða farþegum sínum upp á að
borga fyrir farið með almennum
greiðslukortum í vetur, að sögn
framkvæmdastjóra fyrirtækisins.
„Við höfum unnið að því að leysa
þetta verkefni tæknilega og vonum
að þetta náist fyrir þann tíma,“
segir framkvæmdastjórinn, Reynir
Jónsson.
Spurður hvort kerfið byggist
að einhverju leyti á Smartkorta-
kerfinu, sem Strætó vann að í
nokkur ár og kostaði fyrirtæk-
ið um 250 milljónir króna, segir
Reynir að svo sé ekki. Smart-kerf-
ið hafi verið lagt af 2007. Sá búnað-
ur sé að miklu leyti úreltur og erf-
itt að fá varahluti í hann. Því hafi
verið hugsað til næstu kynslóðar af
tölvubúnaði. Hann sé að auki mun
einfaldari í notkun.
„Þetta er eins og posi fyrir debet-
og kreditkort, en án upphringingar
á staðnum,“ segir hann.
Reynir rifjar upp að kvartað hafi
verið undan því að vagnarnir gefi
ekki til baka. „En Íslendingar nota
helst ekki reiðufé. Þetta er korta-
land og við höfum metið það svo að
kæmum til móts við miklu stærri
hóp með því að einblína á að taka
við kortum.“
Sem stendur taka vagns-
tjórar einungis við miðum og
tímabilskortum, svo sem Græna
kortinu, eða reiðufé. Þá er hægt
að kaupa miðaspjöld af vagnstjóra
fyrir reiðufé. Síðustu áramót bætt-
ist svo við vefþjónusta, þar sem
hægt er að kaupa miða og fá senda
heim. Farmiða má einnig kaupa á
sumum skiptistöðvum Strætós. En í
miðbæ Reykjavíkur er hvergi hægt
að fá miða nema á Hlemmi.
Spurður hvers vegna ekki sé
hægt að kaupa miða í almennum
söluturnum eins og víðast erlend-
is, segir Reynir að heilt yfir greiði
farþegar ekki nema 20 prósent af
rekstrarkostnaðinum. Afganginn
niðurgreiði sveitarfélögin. „Þannig
að við höfum ekki svigrúm til að
greiða mikla söluþóknun,“ segir
hann. Söluturnar sjái sér því ekki
hag í að selja miðana lengur. Þegar
við bætist að flestir noti greiðslu-
kort, þannig að söluturnar þurfi í
raun að lána viðskiptavinum mið-
ana, hafið það enn dregið úr vilja
þeirra til að selja þá.
„Jafnvel Ráðhús Reykjavíkur,
stærsti eigandi Strætós, er hætt
að selja miðana í smásölu vegna
þessa,“ segir Reynir.
klemens@frettabladid.is
Loks hægt að nota
greiðslukort í strætó
Framkvæmdastjóri Strætós segir að stefnt sé að því í vetur að farþegar geti
borgað fyrir stakar ferðir með greiðslukorti. Smart-kerfið verði ekki notað.
„Þetta er kortaland,“ segir hann. Enginn vilji selja farmiðana í lausasölu lengur.
Staðgreiðsluverð kr. 26.250*
Ástæðan er einangrun á hraðastýringu og stór poki sem getur
tekið á móti óvenju miklu magni af örsmáum ögnum eins og
t.d. ösku. Einnig er hægt að fá ofnæmissíu í vélina. Parketbursti
að andvirði kr. 9.320 fylgir frítt með.
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is
Öskudagar í Eirvík
Þú sparar
kr. 15.882
Fullt verð kr. 32.812
*Gildir á meðan birgðir endast.
Nýja S2120 ryksugan frá Miele hentar betur í öskuna en
flestar aðrar ryksugur
Passat EcoFuel® er eitt best geymda leyndarmálið í íslenskri umferð. Grænn og vænn
lúxusbíll sem gengur fyrir íslensku metaneldsneyti. Eldsneytiskostnaðurinn er því nær
helmingi minni en hjá sambærilegri bensínbifreið. Auk þess leggur hann frítt í stæði í
Reykjavík, 90 mín. í senn – og losar aðeins um 119 CO2 g/km. Íslenskt metan er unnið úr
lífrænum efnum, því verður engin aukning koltvísýrings í andrúmsloftinu við bruna þess. Das Auto.
Sparar allt nema gæðin
Passat EcoFuel® kostar aðeins frá
3.890.000 kr.
METAN er innlendur orkugjafi METAN er helmingi ódýrara en bensín
Sparaðu allt að 50% af
árlegum eldsneytiskostnað
i.
REYNIR JÓNSSON Framkvæmdastjóri Strætós segir að farmiðarnir séu svo mikið
niðurgreiddir að ekki sé hægt að veita söluturnum nægilegan afslátt til að þeir sjái
sér hag í að selja þá. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN