Fréttablaðið - 14.06.2010, Blaðsíða 17
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
ÚTSAUMAÐIR PÚÐAR geta verið til mikillar
prýði. Ekki er verra ef þeir eru saumaðir af einhverjum
sem manni þykir vænt um.
„Þetta eru merkisfígúrur. Þær
eru kallaðar nýlendustyttur og
ég keypti þær í tveimur Afr-
íkulöndum. Er ekki upplagt að
tengja efnið líðandi stund eins
og heimsmeistaramótinu í knatt-
spyrnu sem fer fram þar niður
frá?“ segir Ólöf Gerður Sigfús-
dóttir mannfræðingur glaðlega,
stillir upp þremur pótintátum úr
tré og kynnir þá. „Karlarnir tveir
með hvítu hattana eru keyptir í
Nígeríu og sá langi er frá Suður-
Afríku.“
Ólöf Gerður nam mannfræði í
University of Chicago en dvaldi í
mánuð í Nígeríu og skoðaði afr-
íska minjagripi. Þar rakst hún
á þessar nýlendufígúrur. „Þær
eru blanda af afrísku handverki
og vestrænum áhrifum og segja
söguna í hnotskurn,“ segir hún
og útskýrir nánar: „Þetta eru
hörundslitaðir menn og gerðir
af Afríkubúum en með andlits-
fall Evrópubúa. Stytturnar eru
upprunnar á Fílabeinsströndinni
og voru í upphafi af Afríkubú-
um en með tilkomu nýlenduherr-
anna tóku þær á smám saman á
sig þeirra útlit að nokkru leyti,
föt og skó, fylgihluti eins og belti
og bindi og meira að segja bjór-
vömb. Hvítu höfuðfötin eru eins
og hattarnir sem enskir her-
menn báru á höfði sér þegar þeir
voru þarna að kúga lýðinn. App-
elsínuguli karlinn er samt ekki
í evrópskum jakkafötum heldur
hefur indverskt yfirbragð enda
hafa Indverjar líka sýnt frekju
og yfirgang í Afríku.“
Karlinn með kvikmyndatöku-
vélina er skot á forvitni Vest-
urlandabúans, að sögn Ólafar
Gerðar. „Hann stóð þarna fyrir
framan mig eins og hann væri að
taka mig upp. Þarna var verið að
snúa sjónarhorninu við.“
Ólöf Gerður segir kaupin á körl-
unum í Nígeríu hafa verið mesta
prútt lífs síns. „Mig langaði svo í
þessar styttur en sneri frá eftir
nokkurt þóf við sölumanninn,
kom svo aftur daginn eftir og þá
er maður í hræðilegri stöðu!“
gun@frettabladid.is
Mesta prútt lífs míns
Mannfræðingurinn Ólöf Gerður Sigfúsdóttir gerði meistaraprófsritgerð um afríska minjagripi. Þeir eru
gerðir af heimamönnum í Afríku og birta sýn þeirra á uppstrílaða Vesturlandabúa með bjórvömb.
Ólöf Gerður hefur bæði persónulegan og fræðilegan áhuga á minjagripum. Hún féll fyrir nýlendufígúrunum í Afríku.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
SUMAR ÚTSALA
Gerið gæða- og verðsamanburð
20-50%
AFSLÁTTUR
Lök, hlífðardýnur, sængurverasett,
heilsukoddar, viðhaldskoddar,
íslenskir PU leðurgaflar,
náttborð, útlitsgallaðar dýnur
og fleira.
6 mán
aða
vaxtal
ausar
greiðs
lur
SAGA Queen rúm, nú aðeins 129.900
ÞÓR Queen rúm, nú aðeins 149.900
Ný se
nding SAGA OG ÞÓR
Hágæða heilsudýnur
VALHÖLL/FREYJA
Góð rúm á frábæru verði
Ný sending
Queen rúm, nú aðeins kr. 99.900Queen rúm nú aðeins kr. 179.900
Járn & Gler hf. - Skútuvogur 1h.
Barkarvogsmegin. - 104 Reykjavík
S: 58 58 900. - www.jarngler.is
Skrúfur í miklu úrvali
Gifsskrúfur, A4 Pallaskrúfur ,
Tréskrúfur, Gluggaskrúfur,ofl..
- Gefðu íslenska hönnun
Lín Design • Laugavegi 176, gamla sjónvarpshúsið • sími 533 2220 • www.lindesign.is
Sængurfatnaðurinn frá Lín Design er ofinn úr bómullardamask.
Yfir 30 tegundir af íslenskum sængurfatnaði til brúðargjafa.
Íslensk hönnun á góðu verði.
Dúnmjúkar brúðargjafir
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki