Fréttablaðið - 14.06.2010, Side 19
FASTEIGNIR.IS
14. JÚNÍ 201024. TBL.
Valhöll fasteignasala er með á skrá tveggja
hæða raðhús í austurhluta Setberghverfis í
Hafnarfirði.
H úsið er staðsett við Vörðuberg 16 í Hafnar-firði, samtals 169 fermetrar ásamt 25 fer-metra bílskúr. Anddyri er flísalagt á gólfi og
hita undir. Til hliðar við það er gestasnyrting með
flísum á gólfi. Eldhús er búið sérsmíðaðri innréttingu,
vönduðum tækum og granít borðplötu. Efri skápainn-
rétting flæðir inn að borðstofu og stofu, en parket er
á gólfum. Útgengt er á skjólgóðan og stóran suðurpall
með áhaldageymslu, lýsingu og kassa fyrir blóma-
potta. Lítil tjörn með sjávargrjóti umhverfis hefur
verið útbúin við enda pallsins.
Parketlagður stigi liggur upp á efri hæð, en gólf
á efri hæð er sömuleiðis parketlagt. Svefnherbergi
eru þrjú á efri hæð, þar á meðal hjónaherbergi sem
hefur sérinngang að snyrtingu. Frá tveimur svefn-
herbergjum er aðgangur að geymslulofti. Snyrt-
ing er flísalögð, með hornbaðkari, innréttingu og
góðri lýsingu. Á hæðinni er flísalagt þvottahús
og sjónvarpshol, þaðan sem útgengt er á stórar
suðursvalir.
Þetta er eign sem nostrað hefur verið við og vel
viðhaldið í hvívetna. Ásett söluverð eignarinnar er
39,9 millj. Eigendur eru tilbúnir að skoða mögu-
leika á að taka minni eign upp í. Nánari upplýs-
ingar veitir Jón Rafn eða Sigþór hjá Valhöll fast-
eignasölu.
Raðhús, sólpallur og
tjörn með sjávargrjóti
Húsinu fylgir skjólgóður og stór suðurpallur. MYND/ÚR EINKASAFNI
Ingólfur Gissurarson lgf.
Valhöll fasteignasala • Síðumúla 27 • Sími:588-4477.
INDRIÐASTAÐIR - SKORRADALUR
Vandað 64 fm heilsárshús ofarlega í landi Indriða-
staða Skorradal með útsýni yfi r vatnið. Eignin er
með tveimur rúmgóðum svefnherbergjum ásamt
stóru svefnlofti. Eldhús borðstofa og stofa eru í
opnu rými með stórum útsýnisgluggum. Rúmgóð
snyrting með sturtu og útgengt á pall þar sem er
heitur pottur á skjólsælum stað. Heitt og kalt vatn í
húsi. V. 19,5 millj.
SUMARHÚS TIL SÖLU
Mikil Sala.
Vantar allar stærðir af sumarhúsum á skrá.
Höfum m.a. kaupendur að vönduðu heilsárshúsi í Grímsnesi með
a.m.k. þremur svefnherb. Einnig
vantar 70-100 fm heilsárshús á
eignarlandi í a.m.k. klst fjarlægð frá Rvk.
Sumarhúsið þitt selst hjá okkur
– Frí skoðun og verðmat
LÆKJARHVAMMUR V. LAUGARVATN
Notalegur 73 fm bústaður með útigeymslu á
rúmlega 1,1 ha eignarlandi í grennd við Laugarvatn.
Stofa m. fallegri kamínu. Svefnherbergi er rúmgott
og stórt svefnloft hefur verið skipt í tvö rými. Eignin
hefur að mestu verið endurklædd með harðviði
að utan. Stór pallur umhverfi s hús. Kalt vatn og
rafmagn í húsi. Klárt til inntöku heits vatns. V.
18,5 millj.
ASPARSKÓGAR – Í LANDI SVARFHÓLS
Nýtt og glæsilegt 86 fm heilsárhús á steyptri
gólfplötu.Stór stofa með borðstofu og eldhúsi til
hliðar, fallegir franskir gluggar á þrjá vegu. Vönduð
innrétting í eldhúsi. Þrjú rúmgóð svefnherbergi og
snyrting með sturtu og skápainnréttingu. Heitur
pottur á verönd. Heitt og kalt vatn ásamt rafmagni
tengt Eignin er á leigulóð. V. 19,9 millj.
Sigþór
Bragason
s: 899-9787
Lögg.fast.Sali.
Jón Rafn
Valdimarsson
s: 695-5520
Lögg.fast.Sali.