Fréttablaðið - 14.06.2010, Side 38
22 14. júní 2010 MÁNUDAGUR
Listahátíðin LungA hefur
verið haldin árlega við
góðar undirtektir á Seyðis-
firði undanfarin ár. Hátíðin
verður tíu ára í sumar og að
sögn Öllu Borgþórsdóttur,
framkvæmdastjóra LungA,
verður haldið upp á afmælið
með pompi og prakt.
„Við munum halda hátíðlega upp
á afmælið en ég veit ekki hvort
hátíðin verður stærri og betri í
ár því hún er alltaf jafn frábær,“
segir Alla. Sérstakir afmælis-
tónleikar verða laugardaginn 17.
júlí sem fara fram undir berum
himni auk þess sem haldin verð-
ur skemmtileg fatahönnunarsýn-
ing á fimmtudeginum og PopUp
verzlunin mun mæta á staðinn og
selja hönnun beint frá hönnuði til
neytenda.
„Í grunninn verður hátíðin
nokkuð svipuð í sniðum og hún
hefur verið. Það hefur reynd-
ar verið draumur okkar lengi að
halda útitónleika og við ætlum að
taka sénsinn og láta verða af því
í ár. Við höfum alltaf íþróttahúsið
til að hlaupa upp á ef veðrið verð-
ur alveg glatað,“ útskýrir Alla,
sem hefur komið að skipulagn-
ingu hátíðarinnar allt frá upphafi
og er því gjarnan nefnd Mamma
LungA. „Í ár verðum við einnig
með norrænt ungmennaskipti-
verkefni sem nefnist Norrænt
stefnumót og er samstarf milli
fjögurra Norðurlanda. Hingað
kemur norskur hópur frá Norska
blússambandinu, hópur nemenda
frá Kaos Piloterne frá Danmörku
og hópur frá finnskum sirkus-
skóla sem allir munu taka þátt í
verkefninu.“
Alla segir hátíðina vera hálfgert
samfélagsverkefni þar sem allir
bæjarbúar taki virkan þátt í henni
og segir foreldra og björgunar-
sveitir meðal annars sjá um gæslu
á svæðinu. Hún segir um hundrað
ungmenni taka þátt í listasmiðj-
unni árlega en svo fjölgi gest-
um í fjögur þúsund yfir helgina.
„Við erum orðin nokkuð sjóuð í að
taka á móti miklum fjölda fólks í
kringum Norrænu og það hjálpar
talsvert,“ segir hún og hlær. - sm
Treystir á gott veður í ár
GLEÐI OG GAMAN Um hundrað ungmenni sækja listasmiðju LungA hvert sumar.
Þessi mynd var tekin á LungA í fyrra.
MAMMA LUNGA Alla Borgþórsdóttir
hefur séð um skipulagningu LungA
alveg frá upphafi og hefur því verið
nefnd mamma LungA.
ÁLFABAKKA KRINGLUNNI
AKUREYRI
SELFOSSI
12
12
12
12
12
12
12
14
10
10
10
L
L
L
SEX AND THE CITY 2 kl. 5D - 7 - 8D - 10 - 11D
SEX AND THE CITY 2 kl. 5 - 8 - 11
THE LOSERS kl. 5:50 - 8 - 10:10
PRINCE OF PERSIA kl. 5:30 - 8 - 10:30
THE LAST SONG kl. 5:40 - 8
IRON MAN 2 kl. 10:20
AÐ TEMJA DREKANN SINN M/ ísl. Tali kl. 5
SEX AND THE CITY 2 kl. 5D - 8D - 10D
THE LOSERS kl. 6 - 8 - 10 - 11
PRINCE OF PERSIA kl. 5 - 7:30
SEX AND THE CITY 2 kl. 6 - 9
THE LAST SONG kl 6
PRINCE OF PERSIA kl 9
SEX AND THE CITY 2 kl. 8:30
COPS OUT kl. 8:30
ÞEIR VORU BESTIR HJÁ CIA
EN NÚNA VILL CIA LOSNA VIÐ ÞÁ
HÖRKUSPENNANDI HASARMYND
SÍMI 564 0000
L
12
12
16
L
12
SÍMI 462 3500
12
14
L
GET HIM TO THE GREEK kl. 6 - 8 - 10
YOUTH IN REVOLT kl. 8 - 10
SKÓGARDÝRIÐ HÚGÓ 3 kl. 6
SÍMI 530 1919
L
12
14
L
16
STREETDANCE 3D kl. 5.45 - 8 - 10.15
GET HIM TO THE GREEK kl. 5.30 - 8 - 10.25
GET HIM TO THE GREEK LÚXUS kl. 5.30 - 8 - 10.25
SNABBA CASH kl. 8 - 10.30
SKÓGARDÝRIÐ HÚGÓ 3 kl. 6
ROBIN HOOD kl. 5 - 8
STREETDANCE 3D kl. 6 - 9
GET HIM TO THE GREEK kl. 6 - 9
YOUTH IN REVOLT kl. 6 - 8 - 10
OCEANS kl. 5.45
SNABBA CASH kl. 8
.com/smarabio
- bara lúxus
Sími: 553 2075
STREET DANCE 3-D 4, 6, 8 og 10 10
GET HIM TO THE GREEK 3.50, 5.50, 8 og 10 12
ROBIN HOOD 4, 7 og 10 12
Þ.Þ. -FBL
T.V. -Kvikmyndir.isÓ.H.T. -Rás 2
S.V. -MBL
T.V. -Kvikmyndir.is S.V. - MBL
Tónlist ★★★★
Bits and Pieces of a Major Spectacle
Who Knew
Bits and Pieces of a Major Spect acle er fyrsta plata
reykvísku hljómsveitarinnar Who Knew. Hún er
búin að vera starfandi í fjögur ár og hefur m.a. spil-
að töluvert í Evrópu. Platan er gefin út af þýska fyr-
irtækinu Devil Duck Records í samvinnu við 101
Berlin.
Tónlist Who Knew er kraftmikið indí-rokk með
nýbylgjuáhrifum. Sérstök söngrödd Ármanns Ingva
Ármannssonar setur sterkan svip á hana og það
sama má segja um hljóðgervlaleik Hilmis Bergs
Ragnarssonar. Það heyrist að hljómsveitin hefur
spilað töluvert saman. Þéttleikinn og krafturinn
sem einkennir tónleikana hennar er að skila sér vel
á plötuna.
Bits and Pieces of a Major Spectacle hljómar frek-
ar einsleit í fyrstu, en við frekari hlustun fara laga-
smíðarnar og útsetningarnar að njóta sín betur þó
að hljómurinn sé heilsteyptur. Þetta er ein af þess-
um plötum sem batna eftir því sem maður spilar
þær oftar.
Tónlist Who Knew er ekkert byltingarkennd og
yfirbragð hennar ekkert sérstaklega íslensk. En
þetta er samt virkilega vel heppnuð plata.
Lögin eru hvert öðru betra, útsetningarnar eru
áhrifaríkar og hljóðfæraleikurinn tilþrifamikill.
Hljómurinn er líka sérstaklega vel heppnaður. Hann
er mjög þéttur og kraftmikill og öll hljóðfærin fá að
njóta sín í hljóðblönduninni.
Mér finnst ekki ólíklegt að Who Knew muni marka
sér frekari sérstöðu með næstu plötu. En þessi er
þrælskemmtileg. Afbragðs byrjun. Trausti Júlíusson
Niðurstaða: Reykvíska rokkhljómsveitin Who Knew
stimplar sig inn með kraftmikilli og skemmtilegri plötu.
Afbragðs skemmtun
WHO KNEW Fyrsta plata reykvísku hljómsveitarinnar Who
Knew nefnist Bits and Pieces of a Major Spectacle.
Hljómsveitin Bon Jovi frá New Jer-
sey í Bandaríkjunum spilar þessa
dagana fyrir fullu húsi á tónleika-
röð í O2-höllinni í London. Þrátt
fyrir að hafa verið lengi í brans-
anum og spilað fyrir fjölda fólks
víða um heiminn fá þeir félagar
ennþá mikið út úr því að spila fyrir
fullu húsi. „Það er frábær tilfinn-
ing. Það er magnað að við séum
ennþá að spila á stórum leikvöng-
um,“ sagði gítarleikarinn Richie
Sambora. „Við spiluðum nýlega
á nýja Meadowlands-leikvangin-
um í New York. Það var uppselt á
ferna tónleika og við ætlum aftur
að spila á leikvöngum í Bandaríkj-
unum í júlí. En það er rosalega góð
tilfinning að vera hérna í London,“
sagði hann. Sambora, sem var eitt
sinn kvæntur leikkonunni Heather
Locklear, segir að lykillinn á bak
við öll þessi ár í tónlistarbransan-
um sé að halda tónlistinni ferskri
og nútímalegri. „Það er ekki auð-
velt fyrir hljómsveitir að halda sér
ferskum eftir öll þessi ár. Það er
ekki mörgum sem tekst það.“
Bon Jovi er ekkert að fara að
slaka á næstu misserin, þrátt fyrir
að hafa verið starfandi í 27 ár. „Við
ætlum ekkert að hvíla okkur, enda
erum við að skemmta okkur alltof
vel til þess. Við ætlum að spila á
leikvöngum í Evrópu næsta sumar
og í haust ætlum við að gefa út
safnplötu með bestu lögunum
okkar og nokkrum nýjum líka.“
Á meðal vinsælustu laga Bon
Jovi í gegnum árin eru It´s My
Life, Livin´ on a Prayer og You
Give Love a Bad Name.
Frábært að spila á leikvöngum
BON JOVI Rokkararnir frá New Jersey
fá ennþá heilmikið út úr því að spila á
stórum leikvöngum, 27 árum eftir að
þeir hófu störf.