Fréttablaðið - 14.06.2010, Side 41
MÁNUDAGUR 14. júní 2010 25
Hásteinsvöllur, áhorf.: 705
ÍBV Fylkir
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 11–7 (7–6)
Varin skot Albert 5 – Fjalar 7
Horn 8–6
Aukaspyrnur fengnar 11–17
Rangstöður 4–5
FYLKIR 4–3–3
Fjalar Þorgeirsson 6
Þórir Hannesson 7
Kristján Valdimarss. 6
Valur Fannar Gíslas. 6
Andrés Már Jóh. 6
Ólafur Ingi Stígsson 6
Ásgeir Börkur Ásg. 5
Kjartan Ágúst Breiðd. 6
(78. Ásgeir Ö. Arnþ. -)
Ingimundur Níels 7
(74. Jóhann Þórhalls. -)
Pape M. Faye 6
Albert Brynjar Ingas. 5
*Maður leiksins
ÍBV 4–5–1
Albert Sævarsson 7
James Hurst 6
Eiður Aron Sigurbj. 6
Rasmus Christiansen 6
Matt Garner 7
Tony Mawejje 6
(67. Ásgeir Aron Ásg. 7)
Finnur Ólafsson 6
(76. Eyþór Helgi B. -)
Andri Ólafsson 7
Tryggvi Guðmundss. 6
*Þórarinn Ingi Vald. 8
Denis Sytnik 6
(87. Yngvi Borgþórss. -)
1-0 Þórarinn Ingi Valdimarsson (69.)
1-0
Örvar Sær Gíslason (4)
Það skiptir okkur miklu máli að bjóða viðskiptavinum okkar það besta
sem mögulegt er hverju sinni. Við leitum sífellt nýrra leiða
og höfum hagsmuni viðskiptavina okkar að leiðarljósi.
En þótt við sækjum fram þá gætum við þess ávallt að sýna fyrirhyggju.
Góð vinna og vandaðar leiðir eru vænlegastar til árangurs.
Við ætlum að gera betur
FÓTBOLTI ÍBV komst í gær á topp
Pepsi-deildar karla með 1-0 sigri
á Fylki á Hásteinsvelli. Eina
mark leiksins skoraði Þórarinn
Ingi Valdimarsson á 69. mínútu
leiksins.
Fyrri hálfleikur var bragð-
daufur og lítið um marktækifæri.
Fyrsta marktilraunin leit ekki
dagsins ljós fyrr en á 30. mín-
útu er Tryggvi Guðmunds-
son skaut yfir markið af
stuttu færi.
Það færðist meira fjör
í leikinn í síðari hálfleik.
Eyjamenn voru nálægt því
að komast yfir er Denis
Stynik slapp einn inn
fyrir vörn Fylkis
eftir sendingu Andra
Ólafssonar en Fjalar
Þorgeirsson varði
vel í marki Fylkis.
Í næstu sókn komst
Pape Mamadou Faye
einn gegn Alberti
Sævarssyni, mark-
verði ÍBV, sem varði
vel frá honum. Stuttu
síðar komst Andri í
gott færi eftir send-
ingu Tryggva en
skaut yfir mark gest-
anna.
Vendipunktur
leiksins kom á 60.
mínútu er Fylkis-
maðurinn Ásgeir
Börkur Ásgeirs-
son fékk að líta sitt
annað gula spjald
í leiknum, er hann
reyndi að fiska auka-
spyrnu á Tryggva Guðmundsson á
miðjum vellinum.
Eyjamenn færðu sér þetta í
nyt því níu mínútum síðar skor-
uðu þeir eina mark sitt í leiknum.
Andri Ólafsson komst inn í teig
Fylkismanna en Kristján Valdi-
marsson, varnarmaður Fylk-
is, náði að koma boltan-
um undan fótum Andra
en beint á Þórarin Inga
sem skoraði með laglegu
skoti.
Bæði lið fengu nokk-
ur hálffæri eftir þetta
en fleiri mörk voru ekki
skoruð. Eyja-
menn unnu
því sann-
gjarnan 1-0
sigur.
„Ég er stolt-
ur af strákunum,“
sagði Heimir Hall-
grímsson, þjálfari ÍBV,
eftir leikinn. „Þetta var
nú samt ekki okkar besti
leikur í ár. Við áttum
erfitt með spilið okkar í
fyrri hálfleik en þetta
var þó aðeins betra í
þeim síðari. Ég var
þó samt ósáttur við
að við skoruðum ekki
fleiri mörk og getum
skrifað það á eigin
klaufaskap.“
Ólafur Þórðarson,
þjálfari Fylkis, var vitanlega
heldur ósáttur við niðurstöðu
leiksins. „Það var ansi margt sem
fór úrskeðis hjá okkur í dag. Við
létum Eyjamenn bara taka okkur
– þeir voru grimmari, ákveðnari
og gengu hreint til verks. Við nýtt-
um þó ekki þau færi sem við feng-
um og með smá heppni hefðum við
getað fengið stig úr leiknum.“
- vsh
ÍBV komið á topp Pepsi-deildar karla eftir 1-0 sigur á Fylki á Hásteinsvelli í gær:
Ég er stoltur af strákunum
ÞJÁLFARINN
Heimir Hallgrímsson var
ánægður með sigurinn á
Fylki í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL