Fréttablaðið - 15.06.2010, Blaðsíða 4
4 15. júní 2010 ÞRIÐJUDAGUR4
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Henný Árnadóttir henny@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Bjarni Þór Sigurðsson bthor@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is
GENGIÐ 14.06.2010
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
213,5542
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
127,99 128,61
188,68 189,60
156,58 157,46
21,049 21,173
20,009 20,127
16,381 16,477
1,3939 1,4021
187,71 188,83
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
STJÓRNMÁL Þingmenn allra flokka
sem sæti eiga á Alþingi, utan Sam-
fylkingarinnar, lögðu í gær fram
þingsályktunartillögu á Alþingi þar
sem lagt er til að umsókn Íslands
um aðild að Evrópusambandinu
verði dregin til baka.
Flutningsmað-
ur tillögunnar
er Unnur Brá
Konráðsdóttir,
þingmaður Sjálf-
stæðisflokks-
ins. Auk henn-
ar standa þau
Ásmundur Einar
Daðason, þing-
maður Vinstri
grænna, Gunnar
Bragi Sveinsson,
formaður þing-
flokks Fram-
sóknarflokks-
ins, og Birgitta
Jónsdóttir, þing-
flokksformaður
Hreyfingarinn-
ar, að tillögunni.
„Ég styð tillög-
una, enda tel ég misráðið að standa
í aðildarviðræðum eins og sakir
standa,“ segir Bjarni Benediktsson,
formaður Sjálfstæðisflokksins.
Unnið var að því í gær að semja
um starfslok Alþingis, og hvaða
málum þingið muni ljúka áður en
þingmenn fara í sumarfrí. Heim-
ildarmenn Fréttablaðsins telja með
öllu útilokað að tillagan, sem lögð
var fram í gær, verði afgreidd fyrir
þinglok.
Alþingi samþykkti 16. júlí í fyrra
að fela ríkisstjórninni að sækja um
aðild að Evrópusambandinu (ESB).
Alls greiddu 33 þingmenn atkvæði
með tillögunni en 28 greiddu atkvæði
gegn henni. Tveir þingmenn greiddu
ekki atkvæði.
Fram kom í könnun sem MMR
gerði fyrir vefsíðuna andriki.is
að tæplega 58 prósent þeirra sem
afstöðu tóku teldu rétt að íslensk
stjórnvöld drægju umsókn sína um
aðild að ESB til baka.
Bjarni segir að niðurstöðurnar
komi ekki á óvart, það virðist vera
að renna upp fyrir þjóðinni að for-
gangsröðun ríkisstjórnarinnar hafi
verið röng. Sjálfstæðismenn hafi
lagt til að þjóðin fái að greiða um það
atkvæði hvort fara eigi í aðildarvið-
ræður. Misráðið hafi verið að fara
í viðræður án þess að um það væri
breið samstaða meðal þjóðarinnar.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson,
formaður Framsóknarflokksins,
segir afstöðuna enn meira afgerandi
en hann hafði átt von á. Það rími við
það sem hann hafi sagt þegar fjallað
var um aðildarumsóknina á Alþingi.
Þetta sé ekki rétti tíminn fyrir slíkar
viðræður.
Birgitta Jónsdóttir í Hreyfingunni
segist vilja þjóðaratkvæðagreiðslu
um hvort fara eigi í aðildarviðræð-
ur, og hefur lagt fram frumvarp um
málið á Alþingi. Hún segir að halda
hefði átt slíka atkvæðagreiðslu áður
en Alþingi fjallaði um málið.
Ekki náðist í Jóhönnu Sigurðar-
dóttur forsætisráðherra eða Stein-
grím J. Sigfússon fjármálaráðherra
í gær. brjann@frettabladid.is
Vilja draga umsókn til baka
Þingmenn annarra flokka en Samfylkingarinnar hafa lagt til að stjórnvöld hætti við að sækja um aðild að
ESB. Formaður Sjálfstæðisflokksins segist styðja tillöguna. Útilokað að hún verði afgreidd fyrir þinglok.
BJARNI
BENEDIKTSSON
SIGMUNDUR DAVÍÐ
GUNNLAUGSSON
Tæplega 58 prósent landsmanna vilja að íslensk stjórnvöld dragi umsókn
um aðild að Evrópusambandinu til baka, samkvæmt könnun sem markaðs-
r annsóknarfyrirtækið MMR gerði fyrir vefsíðuna Andriki.is. Vitnað var í
niðurstöður könnunarinnar í Morgunblaðinu í gær.
Alls sögðust 57,6 prósent mjög eða frekar fylgjandi því að draga umsókn-
ina til baka, en 24,3 voru því mjög eða frekar andsnúin. Þá sagðist 18,1
prósent hvorki fylgjandi né andvígt því að draga umsóknina til baka.
Í könnuninni var vitnað í skýrslu utanríkisráðherra til Alþingis, þar sem
fram kom að beinn kostnaður vegna aðildarumsóknarinnar á árunum 2009
til 2012 verði um 990 milljónir króna. Þátttakendur í könnuninni voru spurð-
ir hversu vel eða illa þeir teldu þeim fjármunum varið.
Alls sögðust rúmlega tveir þriðju hlutar, 66,9 prósent, telja fjármununum
mjög eða frekar illa varið. Um 19,9 prósent sögðust telja peningunum mjög
eða frekar vel varið. Þá sagðist 13,1 prósent þeirra sem afstöðu tóku hvorki
telja fjármununum vel né illa varið.
Könnunin var gerð dagana 8. til 10. júní. Úrtakið var valið tilviljanakennt
úr þjóðskrá. Þátttakendur voru 846. Svarhlutfall í fyrri spurningunni var 90
prósent, en 86,3 prósent í þeirri síðari.
Um 58% vilja draga ESB-umsókn til baka
LÖGREGLUMÁL Rúmlega þrítugur karlmaður
hefur játað að vera valdur að dauða 53 ára
karlmanns sem fannst látinn og með alvar-
lega áverka utandyra við Bjarnarvelli í
Reykjanesbæ að morgni 8. maí síðastlið-
ins. Blaðberi kom að hinum látna og hafði
samband við Neyðarlínuna.
Grunur beindist fljótlega að rúmlega
þrítugum manni. Hann var handtekinn í
kjölfarið og hefur setið í gæsluvarðhaldi
síðan 9. maí vegna rannsóknar málsins og
almannahagsmuna.
Rannsókn málsins hefur leitt í ljós að
leiðir mannanna lágu saman við Bjarn-
arvelli fyrir tilviljun. Þeir þekktust ekki
en höfðu báðir verið að skemmta sér um
nóttina og voru undir áhrifum áfengis.
Eftir að mennirnir höfðu átt orðaskipti er
talið að yngri maðurinn hafi veist að þeim
eldri með þeim afleiðingum að hann hlaut
meðal annars alvarlega höfuðáverka og lést
af þeirra völdum.
Sakborningurinn var í gær úrskurðaður
í áframhaldandi gæsluvarðhald til mánu-
dagsins 12. júlí að kröfu lögreglustjórans
á Suðurnesjum. Lögregla á Suðurnesjum
hefur farið með rannsókn málsins með
aðstoð frá tæknideild lögreglunnar á
höfuðborgarsvæðinu. Rannsókn er vel á veg
komin en enn er beðið eftir niðurstöðum úr
ýmsum sérfræðirannsóknum.
- jss
Lést af völdum höfuðáverka eftir árás við Bjarnarvelli í Reykjanesbæ:
Játaði að vera valdur að dauða manns
LÖGREGLAN Á SUÐURNESJUM Hefur annast rannsókn
málsins.
VIÐSKIPTI Framkvæmdastjórn Evr-
ópusambandsins kynnti í gær drög
að tillögum um aukið gegnsæi á
fjármálamörkuðum auk banns við
skortsölu með hlutabréf og skulda-
bréf. Þá eru uppi vangaveltur um
að veita eftirlitsstofnunum auknar
valdheimildir til að takmarka
fjármálagjörninga.
Angela Merkel, kanslari Þýska-
lands, og Nicolas Sarkozy, forseti
Frakklands, hafa þrýst á að setja
reglur sem þessar enda telja þau
það geta komið á stöðugleika á
evrusvæðinu, að sögn bandaríska
dagblaðsins Wall Street Journal.
- jab
ESB vill gegnsæi á markaði:
Leggja drög að
boði og banni
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
23°
18°
22°
17°
19°
18°
18°
18°
21°
17°
24°
27°
36°
18°
17°
18°
13°
Á MORGUN
3-8 m/s.
FIMMTUDAGUR
Hæg norðlæg eða
breytileg átt.
15
11
10
10
10
17
13
12
12
14
4
7
7
5
3
8
7
2
4
3
5
4
16
12
12 15
18
15
15
11
13 10
20
LÉTTIR TIL Á
MORGUN Fínasta
veður á landinu í
dag, einkum norð-
austan til þar sem
mestu hlýindin
verða. Á morgun
léttir til vestanlands
en það verður dá-
lítil væta suðaust-
an til fyrri partinn.
Spáin fyrir 17. júní
er fl ott en horfur
eru á bjartviðri um
allt land.
Elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður
Stuðningur við að aðildarum-
sókn verði dregin til baka
FylgjandiAndvíg
Hlutlaus
Heimild: Könnun MMR fyrir andriki.is
57,6%
18,1%
24,3%
EVRÓPUMÁL Leiðtogar Evrópu-
sambandsins munu samþykkja að
hefja aðildarviðræður við Íslend-
inga á fundi sínum 17. júní.
Þetta fullyrðir Bloomberg-
fréttastofan, eftir að hún komst
yfir drög að yfirlýsingu þessa
efnis, sem leggja á fyrir fundinn.
Þar komi fram að það fari eftir
Íslendingum hversu fljótlega við-
ræðurnar gangi fyrir sig, það er
hversu fljótir Íslendingar verði
að uppfylla skilyrði ESB. - kóþ
Aðildarumsókn Íslands:
Leyft verði að
hefja viðræður
Laun lækna lækkað minna
Laun lækna hafa lækkað minna frá
bankahruni en laun hjúkrunarfræð-
inga, ljósmæðra og sjúkraliða, þvert á
markmið um kjarajöfnun í niður-
skurðinum. Heilbrigðisráðherra hyggst
beita sér fyrir því að laun lækna
skerðist meira en laun annarra hópa
í stéttinni. Þetta kom fram í fréttum
Stöðvar 2 í gær.
HEILBRIGÐISMÁL