Fréttablaðið - 15.06.2010, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 15.06.2010, Blaðsíða 16
 15. júní 2010 ÞRIÐJUDAGUR Sanngjarnar skuldaleiðréttingar Alþingi afgreiðir nú endur- bætt og vönduð úrræði fyrir verst settu skuldarana. Einar sér eru slíkar lausnir þó líkt og að bera sólarljós inn í glugga- laust hús, því hætt er við að án víðtækra almennra skuldaleið- réttinga bætist við ný vandamál jafn harðan og leysist úr hinum eldri. Þess vegna er fagnað- arefni að fyrir Alþingi ligg- ur einnig stjórnarfrumvarp félagsmálaráðherra um almenn- ar aðgerðir vegna bílalána. Enn hefur þó ekki náðst samstaða um almennar aðgerðir vegna húsnæðislána almennings sem hafa ýmist orðið fyrir gengis- hruni eða verðbólgusprengju. Þ ver pól it ísk sa mstaða tókst í efnahags- og skatta- nefnd Alþingis fyrr á árinu um að kanna svigrúm bank- anna til afskrifta. Af ársreikn- ingi Landsbankans má ráða að bankinn sjálfur fékk hjá sínum kröfuhöfum 33% niðurfærslu á lánum einstaklinga. Einn- ig hefur fréttaflutningur verið af lánaflokki einnar fjármála- stofnunar sem hafði verið færð- ur niður um nær helming. Alls eru íbúðalán viðskiptabankanna yfir 500 milljarðar og afsláttur- inn sem þeim hefur verið veittur af kröfum tugmilljarðar. Bank- arnir hafa gert almenn tilboð um skuldaleiðréttingar geng- istengdra lána, en ekki verð- tryggðra íslenskra húsnæðis- lána (utan Íslandsbanka – 10%) sem þó væri eðlilegt að gera til- kall til enda bera þeir og kröfu- hafar þeirra verulega ábyrgð á forsendubresti sem viðskipta- vinirnir líða nú fyrir og sann- gjarnt að deila þeim kostnaði. Almennar leiðréttingar væru þó alltaf mun lægri en afsláttur til bankanna var því hann fer að verulegu leyti í tapaðar kröfur. Skuldaleiðréttingar íslenskra húsnæðislána hafa hinsvegar alltaf strandað á því að lífeyr- issjóðirnir og Íbúðalánasjóð- ur yrðu að taka þátt í þeim. Það gæti annarsvegar leitt til skerðingar lífeyris sem enginn vill og hinsvegar gæti ríkið ekki lagt Íbúðalánasjóði til það sem þarf. Ný staða Seðlabanki Íslands gerði nýver- ið hagstæðan samning við Seðla- bankann í Lúxemborg um kaup á skuldabréfapakka Avens sem innihélt íslensk íbúðabréf og innistæður. Skuldabréfin voru svo seld lífeyrissjóðunum og er talið hafa styrkt trygginga- fræðilega stöðu sjóðanna um 1- 2%, eða á þriðja tug milljarða. Stærstu sjóðirnir eru með lið- lega 150 milljarða í húsnæðis- lánum til einstaklinga en nærri lætur að ávinningurinn af Avens samningnum gæti stað- ið undir 10-15% lækkun hús- næðislána lífeyrissjóðanna án þess að skerða þyrfti lífeyris- réttindi. Ekki getur talist óeðli- legt að ávinningur sjóðanna af íbúðabréfaviðskiptum renni til skuldaleiðréttinga húsnæðis- lána. Ábati ríkissjóðs af samn- ingnum var ekki langt frá því sem lífeyrissjóðirnir nutu. Þar sem fyrst og fremst er um hagn- að af íbúðabréfaviðskiptum að ræða væri ekki óeðlilegt að láta Íbúðalánasjóð njóta góðs af með sömu rökum og að ofan. Ef frekari eiginfjárframlög þyrfti til sjóðsins eða bankanna, þá er rétt að hafa í huga að endurfjár- mögnun bankakerfisins varð hátt í 200 milljörðum lægri en áætlanir gerðu ráð fyrir. Þá má skoða ýmsar aðrar leiðir til efl- ingar Íbúðalánasjóði, s.s. hærri vaxtamun, merkja honum tekj- ur af sérstökum bankasköttum, skattleggja séreignasparnað og leggja í sjóðinn, o.s.frv. Þegar saman er lagt afskriftasvigrúm bankanna, ávinningur lífeyris- sjóðanna og ríkissjóðs af Avens samningnum, auk annarra leiða er ljóst að skapa má allt að 100 milljarða svigrúm til almennra aðgerða. Á næstu dögum fellur Hæsta- réttardómur um lögmæti geng- istenginga og getur þá skapast enn ný staða í skuldaleiðrétt- ingamálum ef dómurinn fellur skuldurum í vil. Þegar þeirri réttaróvissu hefur verið eytt hafa stjórnmálaöflin í land- inu tækifæri til að taka forystu og ná saman um sanngjarnar almennar skuldaleiðrétting- ar. Þær munu ekki leysa hvers manns vanda, né munu afskrif- ast 20% af öllu hjá öllum. Lán- takendur geta heldur ekki vænst þess að lánveitendur beri allan skaðann sem 29,4% verðbólga á hálfu þriðja ári er, en eðlilegt er að honum sé deilt og kannski almennar aðgerðir eigi eink- um að miða að þeim sem keyptu húsnæði á síðustu árum fyrir hrun. Sáttaskref Sumir hafa haft áhyggjur af því að almennar aðgerðir nýtist líka fólki sem ekki þarf á að halda. Þá er þrenns að gæta. Í fyrsta lagi hefur það fólk líka sætt óréttmætu vaxtaokri. Í öðru lagi, þó fólk eigi eignir umfram skuldir hefur auk tæplega 30% verðbólguskots, kaupmáttur rýrnað um 13% frá ársbyrjun 2008. Í þriðja lagi verður hægt að skattleggja þá sem við teljum ekki að eigi að njóta almennra aðgerða. Þeir sem hafa haft áhyggjur af skuldaradekri ættu að hafa í huga að án almennra aðgerða komum við einkum til móts við þá sem gengu lengst í skuldsetningu, en venjulegt vinnandi fólk sem hélt sig innan hámarkslána Íbúðalánanasjóðs fær engan stuðning þó lánin hafi hækkað um tæp 30% og kaupmáttur rýrnað um 13%. Það væru ekki góð skilaboð inn í framtíðina að skuldagleðin ein njóti skilnings. Við munum ekki greiða úr fjármálum heimila hratt og vel nema saman fari greiðslu- erfiðleikaúrræði og almenn- ar aðgerðir sem skapa fólki almenn skilyrði. Stjórnvöld og fjármálakerfið þurfa líka að viðurkenna ábyrgð sína á vanda heimila. Skuldaleiðrétting er áþreifanleg leið til þess og mik- ilvægt skref til að byggja upp traust og ná sáttum í íslensku samfélagi. Efnahagsmál Helgi Hjörvar alþingismaður og formaður efnahags- og skattanefndar Þegar þeirri réttaróvissu hefur verið eytt er tækifæri fyrir stjórn- málaöflin í landinu til að taka for- ystu og ná saman um sanngjarnar almennar skuldaleiðréttingar. Vertu í góðu sambandi í sumar Símatilboðin gilda til 30. júní 2010. Nánari upplýsingar á vodafone.is og í 1414. Nokia 2330 Almennt verð: 12.990 kr. Viðskiptavinir í Vodafone Gull fá 15% afslátt. 3G Nettengill 6.990 kr. fyrir viðskiptavini í Vodafone Gull. Almennt verð 7.990 kr. 15%Vodafone Gullafsláttur 15%Vodafone Gullafsláttur LG Cookie Fresh Almennt verð: 27.990 kr. Viðskiptavinir í Vodafone Gull fá 15% afslátt.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.