Fréttablaðið - 17.06.2010, Qupperneq 4
4 17. júní 2010 FIMMTUDAGUR
FRÉTTASKÝRING
Hvað tekur nú við í aðildarumsókn
Ísland að ESB?
Leiðtogaráð Evrópusambands-
ins samþykkir að öllum líkind-
um aðildarviðræður við Ísland á
fundi sínum í dag. Þá fer af stað
ferli, sem getur staðið hátt í tvö ár
eða jafnvel lengur.
„Næsta skref er að kalla saman
það sem Evrópusambandið kallar
milliríkjaráðstefnu,“ segir Stefán
Haukur Jóhannesson, sendiherra
Íslands gagnvart Evrópusam-
bandinu í Brussel, sem jafnframt
er formaður íslensku samninga-
nefndarinnar.
Stefán segir ekki vitað hvenær
þessi fundur verður haldinn, en
almennt er reiknað með að það
verði í haust. Á þeirri ráðstefnu
koma saman ráðherrar allra
aðildarríkjanna 27 ásamt Össuri
Skarphéðinssyni utanríkisráð-
herra og ýta viðræðunum form-
lega úr vör.
Eiginlegar aðildarviðræður
hefjast þó varla fyrr en næsta vor,
því eftir ríkjaráðstefnuna hefst
vinna við nákvæman samanburð á
löggjöf Íslands og löggjöf Evrópu-
sambandsins, þar sem sérfræð-
ingar af beggja hálfu skilgreina
nákvæmlega hvað ber á milli og
hvar þarf að brúa bilin.
Fyrst að þeim samanburði lokn-
um verður hægt að hefja hinar
efnislegu viðræður, sem geta
tekið ár eða meira, allt eftir því
hve mikið ber á milli í hverjum
kafla viðræðnanna.
Samningsmarkmið Íslands voru
skilgreind í meginatriðum í nefnd-
aráliti meirihluta utanríkismála-
nefndar frá 9. júlí 2009. Íslenska
samninganefndin hefur haft þetta
nefndarálit að leiðarljósi í störfum
sínum hingað til.
„Heimavinnan okkar hefur
gengið bara vel og allt á réttri
leið hvað það varðar,“ segir Stefán
Haukur. „Samningahóparnir eru
búnir að hittast nokkrum sinn-
um, misoft eftir sviðum. Þeir hafa
verið að fara yfir löggjöf Evrópu-
sambandsins og greina þetta hvað
okkur varðar.“
Af hálfu Evrópusambandsins
verður, eins og jafnan í aðild-
arviðræðum, áhersla lögð á að
Ísland taki upp löggjöf sambands-
ins óbreytta. Íslendingar reyna
aftur á móti að fá samþykki fyrir
undanþágum eða sérlausnum út
frá hagsmunum Íslands.
Mikil áhersla verður lögð á
að upplýsa Íslendinga jafnóðum
um gang viðræðnanna. Nú þegar
hefur verið opnuð upplýsingasíða
á vef utanríkisráðuneytisins, evr-
opa.utanrikisraduneyti.is, þar sem
er að finna hafsjó af upplýsingum
um aðildarviðræðurnar.
gudsteinn@frettabladid.is
Leiðtogaráðið tekur
umsókn Íslands fyrir
Aðildarumsókn Íslands er á dagskrá fundar Leiðtogaráðs Evrópusambandins í
dag. Eiginlegar aðildarviðræður hefjast þó varla fyrr en næsta vor, þegar ná-
kvæmum samanburði á löggjöf Íslands og Evrópusambandsins er lokið.
STEFÁN HAUKUR JÓHANNESSON OG ÖSSUR SKARPHÉÐINSSON Formaður samninga-
nefndar Íslands ásamt utanríkisráðherra. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur dæmt fimm
Litháa, Darius Tomasevskis, Deividas
Sarapinas, Gediminas Lisauskas, Sar-
unas Urniezius og Tadas Jasnauskas í
fjögurra og fimm ára fangelsi fyrir man-
sal, hlutdeild og hylmingu. Um var að
ræða athæfi fimmmenninganna gegn lit-
háískri stúlku, en þeir stóðu að því með
einum eða öðrum hætti að hún var flutt
hingað til lands til að stunda vændi.
Fjölskipaður Héraðsdómur Reykjaness
hafði áður dæmt alla mennina í fimm
ára fangelsi. Þá voru þeir dæmdir til að
greiða litháísku stúlkunni 1,8 milljónir
króna í miskabætur.
Hæstiréttur mildaði dóm yfir fjórum
þeirra í fjögur ár. Hann lækkaði einnig
miskabætur þeirra til stúlkunnar niður í
eina milljón. „Við ákvörðun refsingar var
litið til þess að samverknaður þeirra laut
að því að taka úr höndum ungrar konu,
sem mátti sín lítils, frelsi til að ráða ferð-
um sínum og dvalarstað í þeim tilgangi
að láta hana leggja stund á vændi hér á
landi,“ segir í dómi Hæstaréttar. Þessi
háttsemi var greinilega þaulskipulögð
með einbeittum ásetningi í samstarfi við
brotamenn erlendis, sem ekki hafði orðið
uppvíst um.“ Dómurinn sagði mennina
ekki eiga sér neinar málsbætur. Hins
vegar hefði sá, sem fékk fimm ára dóm-
inn, átt ríkastan þátt í athæfinu. -jss
Hæstiréttur mildaði dóm yfir fjórum af fimm mansalsmönnum og lækkaði skaðabætur:
Mansalsmenn í fjögur og fimm ár inni
MANSALSMENN Eiga áralanga fangelsisvist fram undan.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
24°
21°
25°
20°
17°
20°
19°
19°
22°
21°
25°
27°
36°
22°
19°
19°
19°Á MORGUN
Víða hægur vindur en
8-15 m/s á Snæfellsnesi.
LAUGARDAGUR
SV 3-8 m/s
og væta V-lands.
15
13
13
12
12
8
12
15
20
12
7
3
4
5
4
4
7
7
5
5
5
4
14
15 18
18
15 14
13
16
20
21
GLEÐILEGA
ÞJÓÐHÁTÍÐ! Hæg-
ur vindur og lítil
úrkoma einkenna
þjóðhátíðarveðrið.
Þó þykknar heldur
upp í höfuðborg-
inni og nágrenni
seint í dag eða
kvöld. Næstu
daga má búast við
hæglætisveðri og
helst er von á vætu
vestantil.
Soffía
Sveinsdóttir
veður-
fréttamaður
DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur
gert Héraðsdómi Reykjavíkur
að taka mál fornbókasalans Ara
Gísla Bragasonar til meðferð-
ar. Ari Gísli er ákærður fyrir að
hafa tekið við
um 300 stoln-
um, verðmæt-
um fornbók-
um til sölu.
Héraðsdóm-
ur vísaði fyrir
skemmstu frá
dómi þeim þátt-
um ákærunn-
ar sem sneru
að Ara Gísla,
en Hæstiréttur
hefur nú ómerkt þá ákvörðun.
Bækurnar sem málið snýst
um hurfu úr dánarbúi Böðvars
Kvaran árin 2006 og 2007. Böðv-
ar Yngvi Jakobsson hefur játað á
sig þjófnaðinn.
Ættingjar Böðvars Kvaran
krefjast 33 milljóna króna í
bætur fyrir þjófnaðinn. - sh
Hæstiréttur ómerkir frávísun:
Ari Gísli aftur
til héraðsdóms
ARI GÍSLI
BRAGASON
HESTAMENNSKA Enn hefur ekki
verið hægt að tengja smitandi
hósta í hrossum þeim veirum sem
þekktar eru fyrir að leggjast á
öndunarfæri hrossa. Þetta kom
fram á fundi stýrihóps fulltrúa
Matvælastofnunar, Tilraunastöðv-
arinnar á Keldum og sjávarút-
vegs- og landbúnaðarráðuneytis
í gær. Aftur á móti hefur komið í
ljós að bakterían Streptococcus
Zooepidemicus ræktast úr öllum
hrossum með hósta og graftar-
kenndan hor. Frumorsök sjúk-
dómsins er því enn óþekkt en
markmiðið með þeirri sérstöku
rannsóknaráætlun sem nú verður
unnið eftir er áframhaldandi leit
að orsök hans og uppruna. - jss
Hrossaveiki enn í rannsókn:
Orsök pestar
enn óþekkt
PARÍS, AP Árið 2018 munu Frakkar
hækka eftirlaunaaldur úr 60 í 62
ár. Áætlað er að þetta muni spara
ríkinu um 19 milljarða evra sama
ár og mun rétta af eftirlaunahall-
ann sem hefur hrjáð Frakkland.
Erik Woerth, vinnumálaráð-
herra Frakklands, segir aðgerð-
ina ábyrga og sanngjarna:
„Það eru engar töfralausnir
þegar kemur að eftirlaunamál-
um,“ segir Woerth og tekur fram
að aðgerðin muni færa landið
nær öðrum löndum Evrópu hvað
varðar eftirlaunamál, þar sem
aðgerðir sem þessar hafa skilað
tilætluðum árangri. - sv
Frakkar breyta eftirlaunaaldri:
Hækkar um
tvö ár árið 2018
ENGLAND Breskur lögreglumað-
ur var í gær dæmdur í þriggja
og hálfs árs fangelsi fyrir að
bjóða konum sem hann stöðvaði
vegna umferðarlagabrota, kynlíf.
Bauðst hann þá til að sleppa þeim
ef þær hefðu við hann samfarir.
Tvær konur sváfu hjá mannin-
um í þeim tilgangi, en hann þykir
hafa gerst sekur um alvarlegt
brot á reglum um hegðun lög-
regluþjóna og embættið hafi liðið
mikinn álitshnekki. Dómarinn
minntist einnig á að maðurinn
hegðaði sér eins og rándýr.
- sv
Lögregluþjónn dæmdur:
Bauð konum
kynlíf fyrir brot
HESTAPEST Ekki hefur verið hægt að
tengja pestina við þekktar veirur.
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Henný Árnadóttir henny@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Bjarni Þór Sigurðsson bthor@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is
GENGIÐ 16.06.2010
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
213,2678
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
127,47 128,07
188,66 189,58
156,59 157,47
21,051 21,175
19,877 19,995
16,319 16,415
1,3910 1,3992
187,32 188,44
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
www.ellingsen.is
Abu veiðivörur
í miklu úrvali