Fréttablaðið - 17.06.2010, Blaðsíða 8
8 17. júní 2010 FIMMTUDAGUR
FRÉTTASKÝRING
Hvaða áhrif mun erfið staða lífeyris-
sjóðanna hafa á þá sem eiga réttindi
í sjóðunum?
Tryggingafræðileg staða almennu
lífeyrissjóðanna um síðustu ára-
mót var að meðaltali neikvæð um
ellefu prósent, að teknu tilliti til
stærðar hvers sjóðs, samkvæmt
samantekt Fjármálaeftirlitsins.
Lögum samkvæmt ber sjóðun-
um að skerða greiðslur sé stað-
an neikvæð um tíu prósent eða
meira. Með bráðabirgðaákvæði
sem sett var eftir hrunið, og hefur
síðan verið endurnýjað, þurfa
sjóðirnir ekki að skerða greiðsl-
ur nema tryggingafræðileg staða
sé neikvæð um fimmtán prósent
eða meira.
Vegið meðaltal tryggingafræði-
legrar stöðu sjóðanna um síðustu
áramót var neikvætt um ellefu
prósent. Það er svipað og staðan
var einu ári fyrr.
Hrafn Magnússon, fram-
kvæmdastjóri Landssambands
lífeyrissjóða, segir að stærstu líf-
eyrissjóðirnir hafi þegar brugð-
ist við þessari stöðu með því að
skerða greiðslur.
„Ég er að vonast til þess að það
þurfi enginn sjóður að skerða á
næsta ári,“ segir Hrafn. Gangi
það eftir eru áhrifin af slæmri
tryggingafræðilegri stöðu sjóð-
anna engin fyrir sjóðsfélaga, að
því gefnu að þær skerðingar sem
þegar hefur verið gripið til dugi.
Tveir af lífeyrissjóðunum 24
eru með svo lélega trygginga-
fræðilega stöðu að þeir munu
engu að síður þurfa að skerða
greiðslur. Báðir eru afar litlir og
lokaðir.
Helmingur almennu lífeyris-
sjóðanna er með tryggingafræði-
lega stöðu á bilinu -10 prósent til
-15 prósent. Ef ekki væri fyrir
bráðabirgðaákvæðið þyrftu þess-
ir sjóðir allir að skerða greiðslur
til sjóðsfélaga sinna. Í þessum
hópi eru stórir lífeyrissjóðir á
borð við Lífeyrissjóð verzlunar-
manna, Gildi, Stapa og Stafi.
Átta sjóðir eru með neikvæða
tryggingafræðilega stöðu á bil-
inu núll til -10 prósent. Aðeins
tveir litlir lífeyrissjóðir eru með
jákvæða tryggingafræðilega
stöðu.
Meirihluti almennu lífeyris-
sjóðanna var með jákvæða rau-
návöxtun á árinu 2009, en tíu
voru með neikvæða raunávöxt-
un. Vegið meðaltal sjóðanna 24,
þar sem tekið er tillit til stærðar
þeirra, er neikvætt um 0,85 pró-
sent, samkvæmt útreikningum
Fjármálaeftirlitsins.
Staða sextán opinberra lífeyris-
sjóða er talsvert önnur, en ríki og
sveitarfélög ábyrgjast greiðslur
úr sjóðunum. Samkvæmt niður-
stöðum Fjármálaeftirlitsins var
tryggingafræðileg staða þeirra
að meðaltali neikvæð um 57 pró-
sent. Það er raunar ekkert nýtt,
en sjóðirnir hafa lengi sýnt nei-
kvæða tryggingafræðilega stöðu
án þess að þurfa að skerða greiðsl-
ur, vegna ábyrgðar ríkis og sveit-
arfélaga.
Opinberu sjóðirnir voru þó
flestir með jákvæða raunávöxt-
un á síðasta ári. Vegið meðaltal
var nálægt 2,8 prósentum.
brjann@frettabladid.is
Staða flestra lífeyris-
sjóðanna neikvæð
Tryggingafræðileg staða almennu lífeyrissjóðanna var neikvæð um 11 prósent
um síðustu áramót samkvæmt úttekt FME. Sjóðirnir hafa brugðist við með því
að skerða greiðslur segir framkvæmdastjóri Landssambands lífeyrissjóða.
0,15
0,10
0,05
0,00
-0,05
-0,10
-0,15
-0,20
-0,25
-0,30
Staða almennra lífeyrissjóða
Lögum samkvæmt
ber lífeyrissjóðum að
skerða réttindi sjóðsfé-
laga fari trygginga-
fræðileg staða þeirra
undir -10 prósent.
Þau mörk hafa verið
rýmkuð tímabundið í
-15 prósent.
Al
m
en
ni
lí
fe
yr
iss
j.
Ef
tir
lau
na
sj.
F
ÍA
Ef
tir
lau
na
sj.
S
S
Fe
sta
lí
fe
yr
iss
j.
Fr
jál
si
líf
ey
ris
sj.
Gi
ld
i l
ífe
yr
iss
jó
.
Ef
tir
lau
na
sj.
st
ar
fsm
. G
lit
ni
s
Ísl
en
sk
i l
ífe
yr
iss
j.
Kj
öl
ur
lí
fe
yr
iss
j.
Líf
ey
ris
sj.
b
an
ka
m
. a
ld
ur
sd
ei
ld
Líf
ey
ris
s.
ba
nk
am
a.
hl
ut
fa
lls
d.
Líf
ey
ris
sj.
b
æ
nd
a
Líf
ey
ris
s.
Ra
ng
æ
in
ga
Líf
ey
ris
sj.
st
ar
fsm
. B
ún
að
ar
b.
Líf
ey
ris
sj.
Ta
nn
l.f
él
. Í
sla
nd
s
Líf
ey
ris
sjó
. v
er
kf
ræ
ði
ng
a
Líf
ey
ris
sj.
v
er
sz
lu
na
rm
.
Líf
ey
ris
sj.
V
es
tfj
ar
ða
Líf
ey
ris
sj.
V
es
tm
.e
yja
Líf
ey
ris
sj.
S
kjö
ld
ur
Sa
m
ei
na
ði
lí
fe
yr
iss
j.
St
af
ir
líf
ey
ris
sjó
ðu
r
St
ap
i l
ífe
yr
iss
jó
ðu
r
Sö
fn
un
ar
sj.
lí
fe
yr
isr
ét
tin
da
Trygginga-
fræðileg staða
Raunávöxtun
Þegar talað er um tryggingafræðilega stöðu lífeyrissjóða er í raun verið að
leggja mat á hvort sjóðirnir muni á endanum geta staðið undir skuldbind-
ingum við þá sem greiða í sjóðinn.
Ef staðan er á núllinu duga greiðslur nákvæmlega fyrir útgjöldum, sé gert
ráð fyrir 3,5 prósenta ávöxtun. Sé staðan jákvæð má búast við að sjóðurinn
skili afgangi. Sé staðan hins vegar neikvæð, eins og hún var hjá flestum
sjóðunum um síðustu áramót, duga greiðslur ekki til að ábyrgjast óbreyttar
greiðslur úr sjóðnum í framtíðinni.
Lífeyrissjóðirnir eiga að vera með tryggingafræðilega á milli fimm prósent-
um í plús og fimm prósentum í mínus. Fari þeir yfir fimm prósentin fimm ár
í röð ber þeim að auka réttindi. Fari þeir undir mínus fimm prósent fimm ár
í röð ber þeim að skerða réttindi. Fari sjóðirnir undir mínus tíu prósent ber
þeim að skerða greiðslur strax. Þau mörk hafa verið rýmkuð tímabundið svo
sjóðirnir þurfa ekki að skerða greiðslur nema þeir fari undir mínus fimmtán
prósent.
Meta hvort greiðslur dugi fyrir útgjöldum
LÖGREGLUMÁL „Þetta er uppblásið og stór hluti
af þessu lygar,“ segir Júlíus Þorbergsson, betur
þekktur sem Júlli í Draumnum. Hann losnaði
úr gæsluvarðhaldi í gær, en þar hafði hann setið
síðan fyrir helgi grunaður um að selja fíkniefni
og lyfseðilsskyld lyf í verslun sinni.
Lögreglan gerði húsleit í Draumnum og á
fjórum öðrum stöðum vegna málsins í síðustu
viku, meðal annars á heimili og dvalarstað Júlí-
usar. Þar fundust á annað hundrað töflur af lyf-
seðilsskyldum lyfjum, nokkuð magn af kókaíni
og 14 milljónir í reiðufé.
Hann vill lítið tjá sig um málið sem slíkt en
segir þó af og frá að hann selji fíkniefni. „Það
er lygi,“ segir hann.
Lögreglan hefur nú innsiglað Drauminn og
allt stefnir í að farið verði fram á að honum
verði lokað til frambúðar vegna ítrekaðra lög-
brota og kvartana. Júlli hefur rekið Drauminn
í 22 ár og veit nú ekkert hvað framtíðin ber í
skauti sér. „Ég get ekkert sagt um það núna,“
segir hann.
Júlli segir gæsluvarðhaldsvistina hafa tekið
á hann. Erfiðast af öllu hafi þó verið að komast
ekki til vinnu, enda slagar hefðbundinn vinnu-
dagur hjá honum hátt í 20 klukkustundir og því
viðbrigði að þurfa að sitja auðum höndum.
Einnig var farið fram á að sonur Júlíusar
sætti varðhaldi vegna málsins en á það féllst
dómarinn ekki. - sh
Eigandi verslunarinnar Draumsins við Rauðarárstíg losnaði úr gæsluvarðhaldi í gær:
Júlli í Draumnum segist ekki selja fíkniefni
JÚLLI Á GÓÐUM DEGI Júlíus Þorbergsson hefur rekið
Drauminn í 22 ár. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Innköllun vegna rafrænnar
skráningar hlutabréfa í Högum hf.
Miðvikudaginn 23. júní 2010 verða hlutabréf í Högum hf. tekin
til rafrænnar skráningar hjá Verðbréfaskráningu Íslands hf. í
samræmi við ákvörðun stjórnar Haga hf. þar að lútandi. Þar af
leiðandi verður ekki tekið við tilkynningum um eigendaskipti á
bréfum félagsins 22. og 23. júní 2010. Frá þeim tíma ógildast hin
áþreifanlegu hlutabréf í félaginu í samræmi við ákvæði laga og
reglugerðar um rafræna eignarskráningu verðbréfa.
Nánar tilgreint verða öll hlutabréf í Högum hf. tekin til rafrænnar
skráningar en þau eru öll í einum f lokki og gefin út á nafn hluthafa.
Útgáfudags er getið á hverju bréfi.
Hér með er skorað á alla eigendur ofangreindra hlutabréfa
sem telja nokkurn vafa leika á að eignarhald þeirra sé
réttilega fært í hlutaskrá Haga hf. að staðreyna
skráninguna með fyrirspurn til hlutaskrár Haga hf.,
Hagasmára 1, 201 Kópavogi, eða í síma/tölvupóstfangi
530-5500/geg@hagar.is. Komi í ljós við slíka könnun að
eigendaskipti hafi ekki verið skráð ber eigendum að færa
sönnur á þau gagnvart félaginu fyrir nefndan dag.
Enn fremur er skorað á alla þá sem eiga takmörkuð
réttindi til ofangreindra hlutabréfa, s.s. veðréttindi, að
koma þeim á framfæri fyrir skráningardag við fullgilda
reikningsstofnun, þ.e. banka, verðbréfafyrirtæki eða
sparisjóð sem gert hefur aðildarsamning við
Verðbréfaskráningu Íslands hf.
Athygli hluthafa er vakin á að hin áþreifanlegu hlutabréf félagsins
verða ógild sjálfkrafa og því er ekki þörf á að skila þeim til félagsins.
Jafnframt er vakin athygli á að ferli rafrænnar skráningar hefur
engin áhrif á möguleika hluthafa til að eiga viðskipti með hluti sína í
félaginu að undanskildum framangreindum takmörkunum á
tilkynningum um eigendaskipti 22. og 23. júní 2010.
Að lokinni rafrænni skráningu þurfa hluthafar að fela
reikningsstofnun umsjón með eignarhlut sínum í félaginu til að geta
framselt hluti sína, svo sem vegna sölu eða skipta. Reikningsstofnun
stofnar í þessu skyni VS-reikning í nafni viðkomandi hluthafa.
Hluthöfum félagsins er kynnt
framangreint bréf leiðis.
Stjórn Haga hf.
Drengir með loftskammbyssu
Lögreglan í Vestmannaeyjum lagði
nýverið hald á loftskammbyssu sem
nokkrir fimmtán ára drengir höfðu í
fórum sínum. Drengirnir höfðu gert
sér að leik að skjóta úr byssunni.
Lögregla áréttar að skotvopnaleyfi
þurfi til þess að eiga og skjóta úr
loftskammbyssu, því sömu reglur gildi
um slík vopn og önnur skotvopn.
LÖGREGLAN
Börn vígja nýja sundlaug
Ný sundlaug verður opnuð á Blöndu-
ósi í dag, 17. júní. Það verða börn
í grunnskólanum á Blönduósi sem
fyrst fá sér sundsprett í lauginni, en
með því taka þau forskot á sæluna,
því laugin verður ekki vígð formlega
fyrr en á Húnavöku í júlí.
BLÖNDUÓS
DÓMSMÁL Karlmaður hefur verið
dæmdur í átta mánaða fangelsi
og til ævilangar sviptingar öku-
réttar.
Hann var meðal annars dæmd-
ur fyrir skjalafals. Hann falsaði
nafn konu á bílasamning vegna
bifhjóls. Samningurinn var upp á
1,6 milljónir.
Þá braust hann inn í sendibíl og
stal 56 kössum af sælgæti.
Maðurinn reyndist vera með
loftriffil og loftbyssu í fórum
sínum, án þess að hafa skot-
vopnaleyfi. Hann braut margoft
umferðarlög, meðal annars með
fíkniefnaakstri. -jss
Með loftskotvopn án leyfis:
Falsaði nafn á
bílasamning
VEISTU SVARIÐ?
1. Hvað heitir nýr stjórnarfor-
maður Orkuveitu Reykjavíkur?
2. Hversu margar námsbrautir
voru lagðar niður hjá Háskól-
anum í Reykjavík í fyrradag?
3. Hvaða landsliðsmaður í
handbolta útskrifaðist í gær
sem einkaþjálfari?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 50