Fréttablaðið - 17.06.2010, Blaðsíða 18
18 17. júní 2010 FIMMTUDAGUR
hagur heimilanna
Útgjöldin
> Verð á pakka af Winston-sígarettum
Heimilt er að taka inn í
landið varning sem fenginn
er erlendis, í fari eða toll-
frjálsri verslun hér á landi,
að verðmæti allt að 65.000
krónum. Verðmæti einstaks
hlutar skal þó að hámarki
vera 32.500. Börn innan 12
ára njóta að hálfu þessara
réttinda.
Fyrir nokkrum árum var hægt
að kaupa myndavél í Danmörku
fyrir um 3.000 danskar krónur og
koma með hana heim til Íslands
án þess að borga af henni toll. Til
þess að sleppa við slík gjöld í dag
verður fólk að sætta sig við helm-
ingi ódýrari myndavél, en hún
má ekki vera dýrari en um 1.500
danskar krónur. Tollalög hafa
ekki enn tekið mið af gengisfalli
íslensku krónunnar svo ferða-
menn mega í raun kaupa helm-
ingi minna í útlöndum nú heldur
en fyrir hrun.
Kári Gunnlaugsson, yfirtoll-
vörður hjá tollstjóra, segir að
tollalög séu eins og hver önnur lög
og reglur og þeim beri að fylgja.
„Ef maður fer yfir magnið sem
ákveðið er hér á Íslandi, er maður
að brjóta lög,“ segir Kári. „Málin
eru þá meðhöndluð sem smygl.“
Þegar verslað er á Netinu skal
hafa í huga að tollar, skattar og
aðrar álagningar eru mjög mismun-
andi eftir vöruflokkum. Hljómflutn-
ingstæki eins og iPod, magnarar og
hátalarar hafa vörugjalds- og tolla-
álagningu sem til dæmis myndavél-
ar hafa ekki. Tryggvi Axelsson, for-
stjóri Neytendastofu, segir að þessi
vörugjöld og tollar sem leggjast á
aðsendar vörur séu flókin sökum
þess að Ísland er ekki með aðild að
Evrópusambandinu. „Með því að
einfalda það umhverfi myndum við
Íslendingar kannski eiga aðgang að
virkari samkeppni.“ segir hann.
Yfirvöld fara eftir alþjóðlegu
tollakerfi sem samræmi vöru-
flokka um allan heim. Vörur eru
flokkaðar niður í mismunandi
flokka og gjöld lögð á þær sam-
kvæmt þeim. Oft eru lægri gjöld
á vörum sem skilgreindar eru
sem nauðsyn, heldur en á þeim
sem teljast til lúxusvarnings.
„Það er misjafnt hvernig þetta er
flokkað,“ segir yfirtollvörður hjá
tollstjóra. „Til dæmis eru tölvur
og myndavélar ekki taldar mun-
aðarvörur í dag, heldur nauðsyn.
Hljómflutningstæki á borð við
iPod eru aftur á móti talin mun-
aðarvara.“
sunna@frettabladid.is
Tollalög hafa ekki aðlag-
ast hruni krónunnar
Áfengi: Fjórir möguleikar
1. 1 lítra af sterku áfengi og 1 lítra af léttvíni
2. 3 lítra af léttvíni
3. 1 lítra af sterku áfengi og 1,5 lítra af léttvíni
4. 1 lítra af sterku áfengi og 6 lítra af bjór
Miðað er við að sterkt áfengi sé meira en 21% vínandi að rúmmáli og að
léttvín sé áfengi, annað en bjór, sem í er minna af vínanda.
Tóbak: Tveir möguleikar
1. 200 sígarettur (10 pakkar)
2. 250 g af öðru tóbaki
Lágmarksaldur til innflutnings áfengis er 20 ár og 18 ár að því er varðar
tóbak.
Tollfrjálst áfengi og tóbak
Takmarkast við 18.500 krónur og hámark 3 kg að
þyngd.
Dæmi um matvæli sem ekki má koma með til
Íslands:
■ Reyktar, saltar eða þurrkaðar kjötvörur, án suðu.
(Salami og hvers konar reyktar, ósoðnar pylsur,
hamborgarhryggi og fuglakjöt.)
■ Ósoðin mjólk og ósoðin egg, þar með talinn
ostur sem er ekki nægilega vel innpakkaður.
Mikilvægt er að umbúðir utan um matvöru séu
með innihaldslýsingu.
Sælgæti, matur og drykkur
Jakkaföt keypt erlendis
sem kosta um
50.000 krónur,
eru tæpum
20.000 krónum
yfir hámarki sem
koma má með
inn í landið.
Ferðamaður skal
þá fara að rauða
hliðinu í tollinum
og tilkynna um
vöruna. Þá þarf að
borga virðisaukaskatt
af mismuni vörunnar,
eða 25,5 prósent (og
önnur gjöld sem eru
viðloðandi vöruna).
Fari ferðamaður að
græna hliðinu gæti
hann lent í upptöku
varnings, skýrslutöku
og sekt. Hæsta refsing
við broti á tollalögum er tveggja
ára fangelsi.
Keypt erlendis
Apple iPod
40.000 krónur (hingað kominn með öllum kostnaði,
flutningi, tryggingu ...)
Álagning frá Tollinum:
Tollur (7,5%): 3.000 krónur
Virðisaukaskattur (25,5%): 13.515 krónur
Vörugjöld (25%): 10.000 krónur
Samtals: 66.515 krónur
Canon stafræn myndavél
40.000 krónur (hingað komin með öllum kostnaði,
flutningi, tryggingu ...)
Álagning frá Tollinum:
Tollur (7,5%): 0 krónur
Virðisaukaskattur (25,5%): 10.200 krónur
Vörugjöld (25%): 0 krónur
Samtals: 50.200 krónur
Keypt á Netinu
„Ég verð nú að viðurkenna að ég er með
afskaplega lélega neytendavitund, læt yfirleitt
svína á mér og þegi þunnu hljóði,“ segir Ingi
Björn Guðnason, verkefnastjóri Háskólaseturs
Vestfjarða. „Svo ég hef gert óteljandi slæm kaup.
Verstu kaupin gætu samt verið í eldhússtólunum
sem ég keypti í Ikea á síðasta ári og brotnuðu
hver á fætur öðrum og voru nærri búnir að
slasa mann og annan.“
„Bestu kaupin eru líklega Nokia 5110
sími sem ég eignaðist einhvern tímann
undir lok síðustu aldar. Ódrepandi apparat,
sem þoldi ófá höggin, m.a. þurfti hann að
þola það að fljúga af þaki bíls á 50
kílómetra hraða en lét það ekkert
á sig fá. Þessi sími þurfti samt
að játa sig sigraðan þegar ég
týndi honum úti á túni rétt fyrir slátt. Þetta hefði
þó líklega allt saman blessast og kannski ætti
ég hann enn þann dag í dag ef hann hefði ekki
endilega þurft að verða rafmagnslaus á meðan
ég hringdi í hann í örvæntingarfullri tilraun til að
hafa upp á honum á 1,5 hektara túninu. Það var
ekkert við því að gera, slátturinn mátti ekki bíða
enda brakandi þurrkur sem óvíst var hve lengi
myndi halda. Ég sneri mig næstum úr háls-
liðnum þegar ég var að snúa heyinu næstu
tvo daga við að horfa aftur fyrir traktorinn í
von um að síminn blessaður myndi þeytast
upp aftan úr heytætlunni. Hann kom ekki í
leitirnar fyrr en ég var að raka saman
á þriðja degi. Þá var lítið eftir af
honum en símakortið þó sem
betur fer enn á sínum stað.“
NEYTANDINN: Ingi Björn Guðnason
Síminn varð heyönnum að bráð
2002 2004 2006 2008 2010
kr
ón
ur
44
3
51
2
57
2
61
6
88
7
Heimild: Hagstofa Íslands
Hægt verður að fylla út og undirrita skjöl til tryggingafélagsins VÍS á netinu
innan tíðar. VÍS verður fyrsta íslenska þjónustufyrirtækið sem gerir viðskipta-
vinum mögulegt að skrifa undir skjöl á Netinu með þessum hætti. Hingað til
hefur almenn útbreiðsla á upptöku rafrænna undirskrifta strandað á tækninni,
en hún hefur miðast við að tengja undirskriftir við rafræn skilríki. Það er ekki
raunin í kerfinu sem VÍS tekur nú upp. Fyrstu eyðublöðin eru komin á heima-
síðu félagins og á næstu vikum verða algengustu tilkynningaeyðublöðin útbúin
fyrir Netið.
■ Þjónusta
Hægt að skrifa undir á Netinu
HÚSRÁÐ
GÓÐUR MEÐLEIGJANDI
■ Finnborg Salóme Steinþórsdóttir,
félagsfræðingur og starfsmaður hjá
Ferðaþjónustu bænda, segir sitt besta
húsráð vera að eiga
góðan meðleigjanda.
„Húsráðið mitt er
að eignast góðan
meðleigjanda,
sambýliskonu eða
sambýlismann, sem
meðal annars kann að elda. Það
er bæði lærdómsríkt og nærandi,“
segir Finnborg Salóme. Hún býr
með vinkonu sinni og segir einn af
fjölmörgum kostum meðleigjandans
vera hversu góður kokkur hún sé.
„Það ættu eiginlega allir að eiga einn
meðleigjanda eins og minn.“
LEIFSSTÖÐ Gengisfall krónunnar gerir það að verkum að ferðamenn erlendis geta
keypt nær helmingi minna en áður.
Viktoría, krónprinsessa Svía, gengur
í hjónaband á laugardaginn og ætlar
verslun IKEA á Íslandi að halda upp
á það um helgina. Allar konur sem
mæta í brúðarkjól í IKEA á laugardag
milli 13 og 15 og láta taka mynd af sér
í prinsessurúmi í búðinni fá að launum
dekur í Mecca Spa, 10 þúsund króna
gjafakort í IKEA og máltíð fyrir tvo á
veitingastað IKEA. Þá verður gæsum og
vinkonum þeirra boðið upp á máltíð og
prinsessuköku á brúðkaupsdaginn. Alla helgina munu börn sem mæta klædd
sem prinsessur og prinsar fá ókeypis köku og Prince Polo í IKEA og tilboð verða
á réttum á veitingastaðnum.
■ Verslun
Gjafir handa þeim sem mæta í brúðarkjól
Auglýsingasími
Allt sem þú þarft…