Fréttablaðið - 17.06.2010, Blaðsíða 24
24 17. júní 2010 FIMMTUDAGUR
Hræðsluáróður
Í dag er 17. júní. Þjóðhátíðardag-ur okkar Íslendinga þar sem
við fögnum sjálfstæði okkar. Af
því tilefni velti ég því fyrir mér
hversu sjálfstæð við erum í raun.
Stór hluti þjóðarinnar er bundinn
í skuldavef fjármálafyrirtækja
sem sitja eins og púkinn á fjós-
bitanum og fitnar og fitnar. Fólk
sem skuldar meira en það ræður
við er ekki frjálst, getur ekki flutt
sig um set, hvorki milli landshluta
né til annarra landa. Það er fast
í kóngulóarvef. Búið að missa
kjarkinn og sjálfsvirðinguna.
Fólk er hrætt við að missa allt
sitt. Þegar fólk er hrætt þá er það
auðvelt skotmark kúgara. Það er
akkúrat það sem við erum í dag,
fórnarlömb kúgara. Kúgara sem
eru fjármálafyrirtæki. Þau sömu
og komu okkur í þessa stöðu.
Rændu okkur ærunni og aleig-
unni. Síðan hafa þau komið með
lausnir til að auðvelda okkur að
borga ránið þ.e. hjálpa þeim að
ræna okkur meira en þeir hafa
nú þegar gert. Annars er mér
ekki vel við að tala um fjármála-
fyrirtæki sem fyrirbæri, það er
náttúrulega fólk sem þar stjórn-
ar, fólk eins og við hin, nema hvað
það hefur meiri völd í augnablik-
inu. En vonandi ekki lengi enn.
Við getum tekið þessi völd frá
þeim með samstöðu. Notað það
sem kemur þeim verst. Tekið
okkur saman og lýst okkur gjald-
þrota í stórum hópum. Tuttugu
þúsund heimili og fimm þúsund
fyrirtæki, allir á sama tíma. Það
er ekki auðvelt fyrir þau að ráða
við það. En áður en farið verð-
ur í þær aðgerðir þá vörum við
fjármagnseigendur við þeim svo
þeir geti tekið peningana sína út
úr bankanum og fjárfest í ríkis-
skuldabréfum eða einhverju öðru
svo þeir brenni ekki inni.
Ég sjálf er búin að vera í marga
mánuði að reyna að ná einhverju
vitrænu samkomulagi við minn
banka, ríkisbankann Landsbanka
Íslands. En ekkert gengið. Búið að
draga mig á asnaeyrunum í allt of
langan tíma. Nú stend ég frammi
fyrir því að láta kúga mig í þrot
eða taka til minna ráða. Ég vil
heldur taka til minna ráða en að
láta kúga mig í þrot.
Hvað með þig? Ertu með?
Ef svo er þá endilega hafðu
samband og við skulum sýna
hvers vegna við höldum upp á 17.
júní.
Það eina sem getur stoppað það
að þetta verði framkvæmt er að
stjórnvöld grípi inní með sann-
gjörnum lausnum. Í nóvember
2008 ræddi ég við þáverandi við-
skiptaráðherra og benti á aðgerð
sem ég taldi vera réttasta í stöð-
unni sem þá var komin upp. Hann
hlustaði stundarkorn og vísaði
þessu svo frá með þeim orðum að
þetta væri ekki hægt. Ég er enn
á sömu skoðun og þá og segi að
þetta er hægt. Annað er hræðslu-
áróður.
Öll lán sem eru gengistryggð,
verði sett yfir í íslenskar krónur
á því gengi sem var þegar lánin
voru tekin. Það sem fólk er nú
þegar búið að greiða af röngum
höfuðstól verði gert upp og notað
til lækkunar. Þetta á við bæði um
fyrirtæki og einstaklinga.
Verðtryggð lán verði færð
niður. Tekið meðaltal af láns-
kjaravísitölu síðustu fimm ára
fyrir hrunið og það notað sem
nýtt viðmið.
Miðað við það hversu óvarlega
fjármálafyrirtæki fóru í útlánum
síðustu árin fyrir hrun þá er ekki
hægt að gera ráð fyrir að þess-
ar aðgerðir hjálpi öllum. Þeir sem
eru í þeirri stöðu fái aukaaðstoð.
Fjármálafyrirtæki sem lána fólki
sem vitað er fyrirfram að getur
ekki greitt af lánum sínum þurfa
að taka þá ábyrgð á sig.
Skuldavandi heimilanna
Agnes
Arnardóttir
verslunareigandi
Nú stend ég frammi fyrir því að láta
kúga mig í þrot eða taka til minna
ráða. Ég vil heldur taka til minna
ráða en að láta kúga mig í þrot.
Við getum verið sammála um að ölvunarakstur getur haft í
för með sér skelfilegar afleiðing-
ar. Við þekkjum alltof mörg dæmi
þess. Það þarf ekki að koma nein-
um á óvart að aðalástæða ölvunar-
aksturs er neysla áfengis. Í gegn-
um tíðina hafa slys og óhöpp tengd
ölvunarakstri tekið of háan toll í
umferðinni. Það er okkar að bregð-
ast við til að draga úr hættunni.
Margar leiðir eru færar og hafa
allar það markmið að hvetja öku-
menn til að aka ekki eftir neyslu.
Okkur kemur málið við. Við eigum
að tilkynna ölvunarakstur í síma
112 sama hver á í hlut. Við eigum að
bjóða upp á óáfenga drykki fyrir þá
sem eru á bíl. Við eigum að stöðva
þá sem ætla að aka undir áhrif-
um. Við látum ekki vini okkar aka
undir áhrifum. Það að hafa aðgengi
að edrú bílstjóra sem keyrir þá sem
eru að skemmta sér skiptir miklu
máli. Leigubílstjórar eru til staðar
allan sólarhringinn og án vafa er
ódýrara að nýta þjónustu þeirra en
að verja því sem við eigum ólifað
að borga fyrir tjónið. Sumir hópar
sem eru að skemmta sér hafa oft
einn ákveðinn bílstjóra sem er
edrú allan tímann, fyrirbæri sem
er kallað „designated driver“, stað-
fastur bílstjóri.
Bjórframleiðendur ætla sér að
auka sölu áfengis um 6% á meðan
HM stendur yfir. Það er líklegt að
það auki ölvunarakstur töluvert þar
sem sumir fá sér bara einn eða tvo
bjóra. Hluti af þessari aukningu er
drukkinn á veitingahúsum.
Nú stendur yfir átak IOGT á
Íslandi þar sem hvatt er til þess að
við ökum edrú. Birtar verða auglýs-
ingar þar sem heyra má frásagnir
fólks um ófyrirsjáanlegar afleiðing-
ar ölvunaraksturs. Markmiðið okkar
er að vekja þjóðina til umhugsunar
um að aka edrú. Boðið verður upp
á bílstjóradrykk á völdum veitinga-
húsum sem eru í samstarfi við átak-
ið. Sérstakur gestur átaksins, Joon-
as Turtonen, framkvæmdastjóri
Hälsa och Trafik í Finnlandi, ber
saman ölvunarakstur hér sem er að
líkjast æ meira því sem er í Finn-
landi. Minnt verður á að ölvunar-
akstur er dauðans alvara.
Ökum edrú
Bjórframleiðendur ætla sér að auka
sölu áfengis um 6% á meðan HM
stendur yfir. Það er líklegt að það auki
ölvunarakstur töluvert þar sem sumir
fá sér bara einn eða tvo bjóra.
Umferðaröryggi
Aðalsteinn
Gunnarsson
framkvæmdastjóri IOGT
Hafðu samband