Fréttablaðið - 17.06.2010, Page 27
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
„Ég hef nú ekki mikið verið að
flíka þessari áráttu minni enda
held ég að fólk telji mig almennt
geðveikan að standa í þessu. En ég
er ekki einn,“ segir Eiríkur Gunn-
steinsson lögfræðingur sem er for-
fallinn fótboltatreyjusafnari og
hefur verið í mörg ár.
Eins og gefur að skilja er hátíð í
bæ hjá Eiríki þessa dagana vegna
HM í Suður-Afríku. Hann styður
Spánverja þar með ráðum og dáð
eins og félagsliðið Real Madrid,
enda bjó hann um hríð og lærði í
borginni.
Aðspurður segist hann hafa
eignast fyrstu fótboltatreyjuna
sína í upphafi níunda áratugarins.
Treyjan sú var eftirlíking af bún-
ingi Manchester United sem Hen-
son framleiddi. Í kjölfarið fylgdi
treyja Stuttgart frá 1984, eins og
Ásgeir Sigurvinsson lék í. Söfn-
unaráráttan hófst fyrir alvöru
þegar Eiríkur var í London sum-
arið 1986 og rak nefið inn í versl-
unina Soccer Scene. „Þar komst
ég fyrst í alvöru treyjur héðan og
þaðan. Ég fékk landsliðstreyjur
Frakklands og Englands og eftir
það varð ekki aftur snúið,“ segir
Eiríkur, en í treyjusafni hans eru
nú yfir fimmtíu búningar víðs
vegar að úr heiminum. „Margar
af gömlu treyjunum mínum gaf
ég fyrir mörgum árum í söfnun til
Afríku og stuðlaði þannig að upp-
gangi knattspyrnunnar í þeirri
heimsálfu, eins og er að koma í ljós
núna,“ segir Eiríkur og hlær.
Hann segist aðallega festa kaup
á fótboltatreyjum á Netinu, en
sjaldnast klæðast þeim nema þegar
hann spilar knattspyrnu á veturna.
Spurður um eftirlætistreyjurnar í
safninu nefnir Eiríkur Real Madr-
id-treyju frá 1986 sem Rafael Gor-
dillo lék í, treyju brasilíska félags-
liðsins Flamengo sem goðsögnin
Zico klæddist í leik og ÍK-treyju
frá miðjum níunda áratugnum með
auglýsingu frá Sapur-teppahreinsi,
en Eiríkur fékk einmitt Henson til
að endurhanna svipaða treyju fyrir
nokkrum árum og seldist sú í 140
eintökum til gallharðra stuðnings-
mann ÍK. „Svo eru fleiri treyjur
sem mér þykir vænt um, eins og
landsliðstreyja Tíbets sem dansk-
ur námsmaður fékk það hlutverk
að hanna fyrir Hummell-fyrirtæk-
ið og tókst afbragðsvel upp,“ segir
Eiríkur. kjartan@frettabladid.is
Zico-treyjan í uppáhaldi
Eiríkur Gunnsteinsson lögfræðingur hefur safnað fótboltatreyjum af öllum stærðum og gerðum frá því
hann var ungur drengur. Hann pantar treyjurnar aðallega af Netinu en notar þær sjaldan dagsdaglega.
Eiríkur, sem er einlægur stuðningsmaður Spánverja, er hér í treyju liðsins frá HM 1982 og með Tango-bolta eins og notaðir voru á
sama móti. Hluti treyjusafnins sést í bakgrunni. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SAUMAVÉL er algjört þarfaþing fyrir laghent tísku-
gúrú. Það er svo gott að geta breytt og bætt í sam-
ræmi við nýjustu strauma og frábært að geta bara
saumað draumaflíkina sjálfur ef hún er hvergi fáanleg.
SUMAR ÚTSALA
Gerið gæða- og verðsamanburð
20-50%
AFSLÁTTUR
Lök, hlífðardýnur, sængurverasett,
heilsukoddar, viðhaldskoddar,
íslenskir PU leðurgaflar,
náttborð, útlitsgallaðar dýnur
og fleira.
6 mán
aða
vaxtal
ausar
greiðs
lur
SAGA Queen rúm, nú aðeins 129.900
ÞÓR Queen rúm, nú aðeins 149.900
Ný se
nding SAGA OG ÞÓR
Hágæða heilsudýnur
VALHÖLL/FREYJA
Góð rúm á frábæru verði
Ný sending
Queen rúm, nú aðeins kr. 99.900Queen rúm nú aðeins kr. 179.900
F Á K A F E N I 9 - - S í m i : 5 5 3 7 0 6 0
O p i ð m á n u d - f ö s t u d . 1 1 - 1 8 & l a u g a r d . 1 1 - 1 6
Skór & töskur í miklu úrvali
www.gabor.is
Sérverslun með