Fréttablaðið - 17.06.2010, Side 32
17. JÚNÍ 2010 FIMMTUDAGUR2 ● fréttablaðið ● 17. júní
Fjallkonan er tákn Íslands. Frá
lýðveldisstofnun 1944 hefur
leikkona komið fram í gervi
Fjallkonunnar í Reykjavík og
flutt ljóð við hátíðahöld 17.
júní.
„Maður fann svolítið fyrir því að
vera Íslendingur í sporum Fjall-
konunnar og það var mjög sterkt
í huga manns að vera íslensk, sem
og íslenska þjóðin, stolt hennar og
vegferð. Ég upplifði mig í miklu
ábyrgðarhlutverki og man að ég
reyndi að brosa sem minnst á svo
hátíðlegri stund,“ segir leikkon-
an Kristbjörg Kjeld sem valin var
Fjallkonan árin 1962 og 1971.
Undir orð Kristbjargar tekur
leikkonan Þórunn Lárusdóttir sem
var Fjallkonan 2001.
„Maður fylltist jákvæðri þjóð-
erniskennd og fann fyrir upphefð
að vera í hlutverk Fjallkonunnar.
Það er álitinn mikill heiður og mér
leið sérstaklega vel með það ný-
komin heim úr námi,“ segir Þór-
unn. Móðir hennar Sigríður Þor-
valdsdóttir leikkona var Fjall-
kona 1967.
„Báðar fórum við mamma
með fjallkonuljóð eftir Matthí-
as Johannessen, en mitt var sér-
staklega samið fyrir daginn. Mér
þykir óskaplega vænt um ljóðið og
finnst það standa upp úr í minn-
ingu dagsins,“ segir Þórunn.
Fjallkonuljóð Kristbjargar 1962
var Nú strýk ég gullnum boga eftir
Jóhannes úr Kötlum og Land míns
föður eftir sama skáld árið 1971.
„Í fyrra skiptið flutti ég fjall-
konuljóðið af svölum Alþingishúss-
ins en í seinna skiptið hafði athöfn-
in verið færð á Austurvöll. Það er
ógleymanlegt að standa á svölun-
um og horfa yfir mannhafið,“ segir
Kristbjörg og Þórunn minnist þess
að hafa flutt ljóð sitt fyrir framan
landsfeðurna á Austurvelli.
„Það tók ekkert á taugarnar því
þetta fólk kemur gjarnan í leikhús-
ið. Mér fannst bara falleg hefðin að
Fjallkonan flytji ljóð því það hæfir
vel bókmenntaþjóð,“ segir hún.
„Ég var gagntekin þjóðernis-
tilfinningu, en átti ekki í vanda
með að flytja ljóðin þótt ég hafi
átt tregt um tungu. Í seinna skipt-
ið varð þó löng þögn hjá mér svo
hljómsveitin kom of snemma
inn í, en ég stóð það af mér og
kláraði mitt. Það var ekkert mál,
þótt stundin væri hátíðleg,“ segir
Kristbjörg og hlær. - þlg
0000
Hjónaleysin Jónína Guðrún Kristinsdóttir kennari
og Jóhann Valdimarsson rafeindavirki áttuðu sig á
því á sunnudaginn var að þau ættu tuttugu ára trú-
lofunarafmæli í dag og tóku ákvörðun um það dag-
inn eftir að láta pússa sig saman á trúlofunarafmæl-
inu. „Við byrjuðum saman 17. júní fyrir tuttugu og
einu ári og trúlofuðum okkur ári síðar. Það hefur
svo alltaf staðið til að efna heitin en einhverra hluta
vegna hefur ekki orðið af því fyrr en nú,“ segir
Jónína.
Þau Jónína og Jóhann eiga þrjú börn sem hafa
reglulega rukkað þau um brúðkaup. Þau tóku frétt-
unum því afar vel. „Sú yngsta er sex ára og ég held
að hún hefði varla þolað meiri fyrirvara. Hún er
alveg á hjólum,“ segir Jónína og hlær. Jónína segir
lítið tilstand í kringum brúðkaupið og einungis for-
eldrum og systkinum brúðhjónanna er boðið. „Ég
ætla að vera í upphlutnum sem ég fermdist í en ég
fór þó með jakkafötin hans Jóhanns í hreinsun. Sú
stutta fær hins vegar að vera brúðarmey í prins-
essukjól. Allir fá því að hafa þetta eins og þeir vilja
enda mottóið ekkert vesen.“
Athöfnin verður látlaus en Jón Dalbú, sóknar-
prestur í Hallgrímskirkju, gefur brúðhjónin saman.
Vígslan fer hins vegar fram í Háteigskirkju enda
búa brúðhjónin í Háteigssókn. „Að athöfninni lok-
inni strollum við svo heim og sláum upp léttri
veislu.“ -ve
Brúðkaupið ákveðið með
þriggja daga fyrirvara
Þau Jónína og Jóhann hafa verið trúlofuð í tuttugu ár en hafa
nú loksins ákveðið að láta gefa sig saman. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Gagntekin þjóðarstolti
Leikkonurnar og fyrrum Fjallkonurnar Þórunn Lárusdóttir og Kristbjörg Kjeld á Aust-
urvelli, þar sem minningar fyrri þjóðhátíðardaga drjúpa af hverjum stokk og steini.
17. júní 1962. Fjallkonan Kristbjörg
Kjeld í Alþingisgarðinum.
17. júní 2001. Þórunn Lárusdóttir í hlutverki fjallkonunnar á Austurvelli, íklædd
skautbúningi í eigu borgarinnar.
FRÉTTA
BLA
Ð
IÐ
/VILH
ELM
● HÁTÍÐ Á VEST-
FJÖRÐUM Hátíðardag-
skrá verður bæði á Ísafirði og
Hrafnseyri í dag. Guðsþjón-
usta hefst í Ísafjarðarkirkju
kl. 11 en á sama tíma verð-
ur víðavangshlaup ræst bæði
á Suðureyri og Þingeyri.
Skrúðganga fer frá Silfurtorgi
klukkan 13.45 með lúðra-
sveit og fánaborg skáta í far-
arbroddi en hefðbundin dagskrá hefst á Eyrartúni klukkan 14. Hátíðar-
ræðuna flytur Sigurður Pétursson sagnfræðingur. Sunnukórinn syngur
og fjallkonan stígur á stokk. Að því loknu verður boðið upp á skemmti-
dagskrá fyrir börn og fullorðna.
Á Hrafnseyri verður háskólahátíð með útskrift meistaranema frá
Háskólasetri Vestfjarða klukkan 12 og guðsþjónusta klukkan 14. Að henni
lokinni verður hátíðardagskrá þar sem Katrín Jakobsdóttir mennta- og
menningarráðherra flytur ræðu dagsins. Klukkan 21 hefjast rokktónleikar
á Silfurtorgi á Ísafirði og á Þingeyri fer söngvarakeppni Höfrungs fram.
● BARNASKEMMTUN Barna- og há-
tíðardagskrá hefst í Tjarnargarðinum á
Egilsstöðum klukkan 11 í dag en þar verð-
ur boðið upp á söngatriði, leikrit, andlits-
málningu, sverðasmiðju, legófjör og ým-
islegt fleira fram eftir degi. Skátamessa
hefst í Egilsstaðakirkju klukkan 13.30 en hálf-
tíma síðar verður efnt til skrúðgöngu frá kirkj-
unni að Tjarnargarðinum þar sem vegleg
hátíðardagskrá fer fram.
Klukkan 15.30 verður formleg opnun á
Ljóðabænum Egilsstöðum í Minjasafni Austur-
lands og á ljóðaverkefni til heiðurs Hákoni
Aðalsteinssyni. Klukkutíma síðar verður listasýn-
ingin 4KONUR opnuð í Sláturhúsinu og klukkan
17 opnar málverkasýning Myndlistarfélags Fljótsdals-
héraðs í flugstöðinni á Egilsstöðum.