Fréttablaðið - 17.06.2010, Page 42
30 17. júní 2010 FIMMTUDAGUR
menning@frettabladid.is
ath kl. 14.
Í Þjóðminjasafni Íslands verður þjóðhá-
tíðardegi Íslendinga fagnað með ókeyp-
is aðgangi og leiðsögn um grunnsýningu
safnsins Þjóð verður til - Menning og
samfélag í 1200 ár. Leiðsögnin er öllum
opin og hefst klukkan 14. Grunnsýningu
Þjóðminjasafnsins er ætlað að hvetja
gesti til að spyrja grundvallarspurninga
um þjóðina sem byggt hefur Ísland til
þessa dags.
> Ekki missa af
Shoeboxtour-hópnum á
Austurvelli í dag kl. 16. Þar
verða hópurinn í röð margra
skemmtilegra atriða fyrir fólk
á öllum aldri, en í dag verða
í flestum stærri byggðum
hátíðahöld fyrir alla fjölskyld-
una.
Kór Öldutúnsskóla í Hafnarfirði fór í tónleikaferð
til Kanada laugardaginn 12. júní og kemur til
baka hinn 20. júní. Krakkarnir flugu til Winnipeg
þar sem kórinn mun hafa aðsetur en þaðan mun
hann halda víða um nágrennið til söngs. Dagskrá
kórsins er margþætt og heldur kórinn stutta tón-
leika á öllum viðkomustöðum sínum. Farið verður
í heimsóknir til Nýja-Íslands, Árborgar, Mikleyjar
(Hecla), Gimli og á dvalarheimilið Betelstaði svo
eitthvað sé nefnt.
Hápunktur ferðarinnar eru stórtónleikar í dag,
þann 17. júní. Fyrst mun kórinn syngja við styttu
Jóns Sigurðssonar í Þinghúsgarðinum, en síðar
um kvöldið verður farið í Winnipeg Art Gallery þar
sem aðaltónleikar kórsins verða. Kórinn hefur lagt
metnað sinn í að flytja íslenska tónlist, hann hefur
öðlast mikla færni í söng og túlkun á íslenskum
þjóðlögum og verkum eftir íslenska höfunda.
Til gamans má geta að kórinn tók nýlega þátt í
gerð landkynningarmyndbandsins við lagið Jungel
Drum þar sem margir hafa séð hann að starfi.
Stjórnandi kórsins er Brynhildur Auðbjargardóttir.
Öldutúnskór vestanhafs
TÓNLIST Kór Öldutúnsskóla syngur víða í Winnipeg í
dag. MYND ÖLDUTÚNSSKÓLI
Götuleikhús Hins hússins
stendur fyrir stórri aðgerð
17. júní. Sextíu manna
hópur stendur að sýningu
þar sem spilið Svarti-Pétur
er leitt til lykta fyrir augum
gangandi gesta í miðborg-
inni.
Jókerarnir fjórir með drottningar
og kónga sameinaðra sorta í broddi
fylkingar vinna saman að því að
handsama hinn alræmda Svarta-
Pétur og leiða spilastokkinn saman
undir risapilsfald drottninganna
svo nýtt spil geti hafist. það er
mikið fyrir því haft að leiða spil-
ið til enda, falin spil í erminni, þó
bannað sé að hafa rangt við til að
handsama óreglupésann, sem ein-
hverra hluta vegna er með kín-
versku yfirbragði, alla vega er
grímumynstrið ættað þaðan.
Hinir kynngimögnuðu spaðar,
dreymandi hjörtun, kokhraustir
tíglarnir og laufin listrænu eiga
erfitt með að rata undir pilsfald-
inn og Svarti-Pétur lætur ekki
góma sig.
Auk leikara Götuleikhússin
koma að sýningunni söngmenn,
dansarar, fimleikafólk, hestar og
knapar úr Reiðskólanum í Reykja-
vík, Bréfdúfufélagið leggur til
fiðurfé, og Lúðrasveit verkalýðs-
ins blæs í lúðra og ber bumbur. Þá
þakka aðstandendur tækjaleigunni
taeki.is fyrir hennar framlag sem
og Lundavespum og fleiri fyrir-
tækjum sem hafa lagt spilastokks-
mönnum lið.
Leikstjóri Götuleikhúss Hins
hússins er Steinunn Knútsdótt-
ir og um útlit sér Una Stígsdóttir.
Götuleikhúsmenn biðja hátíðar-
gesti að fylgjast vel með ferðum
Svarta-Péturs og beina sjálfsupp-
teknum spilunum að krossgötunum
við Hljómskálann ef hjartatvistur
fer að eltast við laufatíu en það par
hefur verið óábyrgt á æfingum og
margsinnis fundist í stokknum.
Á krossgötum Sóleyjargötu, Frí-
kirkjuvegar og Skothúsvegar fer
lokaatriði fram, síðasti slagurinn,
og eru leikslok áætluð kl. 14.30.
Ætlunin er að koma böndum á
Svarta-Pétur, stokka upp á nýtt og
spila Ólsen Ólsen á 17. júní.
pbb@frettabladid.is
LEITIN AÐ SVARTA-PÉTRI
MENNING Hver dró mig? hugsar Svarti Pétur. MYND HITT HÚSIÐ
Hljómsveitin Salon Islandus ásamt Auði Gunnars-
dóttur sópran kemur fram á hátíðartónleikum í
Garðabæ í kvöld kl. 20. Tónleikarnir eru haldnir
í safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli og er aðgangur
ókeypis í boði Garðabæjar.
Hátíðartónleikarnir eru hluti af 17. júní dagskrá
í Garðabæ.
„Salon Islandus“, áður Salonhljómsveit Sigurð-
ar Ingva Snorrasonar, hefur starfað síðan 2004.
Hljómsveitin hefur haldið tónleika víða um land
og verið reglulegur gestur í Garðabæ undanfarin
ár. Sigurður Ingvi stofnandi þessara hljómsveita
lék um árabil í hljómsveit „Kursalon“- hússins í
Vínarborg þar sem Johann Strauss lék með hljóm-
sveit sinni á ofanverðri 19. öld.
Sigurður hefur allar götur síðan lagt rækt við
hina sívinsælu Vínartónlist og aðra klassík í létt-
ari kantinum auk þess að leika á klarínettu í Sin-
fóníuhljómsveit Íslands. Hljómsveitina „Salon
Islandus“ skipa listamenn úr fremstu röð hljóð-
færaleikara á Íslandi. Hljóðfæraleikarar í kvöld
verða Sigrún Eðvaldsdóttir og Pálína Árnadóttir,
fiðlur, Bryndís Halla Gylfadóttir, selló, Hávarð-
ur Tryggvason, kontrabassi, Martial Nardeau,
flauta, Einar Jóhannesson, klarinetta, Anna
Guðný Guðmundsdóttir píanó og Pétur Grétarsson
slagverk.
Auður Gunnarsdóttir sópran er einsöngvari
með hljómsveitinni í kvöld. Auður lauk prófi frá
Söng skólanum í Reykjavík vorið 1991. Haustið
1999 var hún fastráðin að óperunni í Würzburg og
söng þar fjölmörg hlutverk auk þess sem hún söng
sem gestur í óperuhúsum víða um Þýskaland.
Þá hefur hún einnig sungið í Íslensku óperunni.
Auður hefur haldið fjölda tónleika hér heima og
erlendis og komið fram við ýmis tækifæri.
Á efnisskránni er Vínartónlist, þekktir ópusar
eftir Johann Strauss, Gaetano, Franz Lehár og
fleiri af hinum þekkta Vínarskóla. - pbb
Strauss á sautjándanum
TÓNLSIT Salon-sveifla hljómar í kvöld í Kirkjuhvoli í boði Garð-
bæinga og Sigrún Eðvaldsdóttir er á meðal flytjenda.
1
3
5
7
9
2
4
6
8
10
Eyjafjallajökull
Ari Trausti og Ragnar Th.
Makalaus - kilja
Tobba Marinós
Morgnar í Jenín - kilja
Susan Abulhawa
Góða nótt yndið mitt - kilja
Dorothy Koomson
25 gönguleiðir á höfuðborgar-
svæðinu - Reynir Ingibjartsson
Ræktum sjálf
Gitte Kjeldsen
Hvorki meira né minna - Fanney
R. Elínardóttir/María Elínardóttir
METSÖLULISTI EYMUNDSSON
SAMKVÆMT BÓKSÖLU Í EYMUNDSSON UM LAND ALLT
09.06.10 - 15.06.10
Vegahandbókin 2010
Ýmsir höfundar
Handbókin um heimsmeistara-
keppnina - Keir Radnedge
Friðlaus - kilja
Lee Child